Fara í efni

Umhverfis- og dreifbýlisráð

5. fundur
13. janúar 2023 kl. 08:15 - 11:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varamaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson sviðstjóri
Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Bjarni D. Daníelsson Sviðsstjóri framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Bæjarrými - ásýnd miðsvæða og skapandi sumarstörf
Málsnúmer 202301039
Til kynningar hugmyndir Önnu Kristínar Guðmundsdóttur um Bæjarrýmisverkefni fyrir Dalvíkurbyggð.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur framkvæmdasviði að vinna að umsókn um styrk í Bæjarrýmisverkefni fyrir Dalvíkurbyggð með Önnu Kristínu Guðmundsdóttur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Endurskoðun á snjómokstursreglum Dalvíkurbyggðar 2023
Málsnúmer 202301037
Eigna- og framkvæmdadeild með endurskoðun á snjómokstursreglum Dalvíkurbyggðar.
Umhverfis- og dreifbýlisráð er almennt sátt með snjómokstur í sveitarfélaginu og leggur ekki til breytingar á snjómokstri í þéttbýli en vill þó bæta við forgangsmokstur á göngustígum á Dalvík. Ráðið hvetur sveitarstjórn að halda áfram að þrýsta á Vegagerðina um meiri vetrarþjónustu í dreifbýli. Einnig leggur ráðið til við sveitarstjórn að samþykkja breytingar á viðmiðunarreglum snjómoksturs í Dalvíkurbyggð sem fela í sér bætta þjónustu við heimreiðamokstur í dreifbýli skv. tillögum ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Fjallgirðingamál 2022
Málsnúmer 202203007
Farið yfir stöðu fjallgirðingamála í sveitarfélaginu.
Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til við sveitarstjórn að álagning vegna fjallgirðina á Árskógsströnd verði óbreytt á milli ára og að fá fjallskilanefnd Árskógsstrandar á fund á haustmánuðum 2023 til að ræða framtíðarfyrirkomulag á fjallgirðingum.
Forgangsröðun á viðhaldi fjallgirðinga frestað til næstu funda.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Fundargerðir fjallskiladeilda 2022
Málsnúmer 202208077
Lagðar fram til kynningar fundargerðir fjallskiladeilda Dalvíkurbyggðar árið 2022.
Lagðar fram til kynningar og samþykktar.

Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Fjárhagsáætlun 2023; endurnýjun girðingar
Málsnúmer 202206054
Á 1030. fundi byggðaráðs var samþykkt að vísa ofangreindu erindi frá Berglindi Björk Stefánsdóttur, sem barst í tölvupósti dags 14 júní 2022 til umhverfisráðs vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2023 og þriggja ára áætlun 2024-2026.Á 4. fundi Umhverfis- og dreifbýlisráð var sviðsstjóra framkvæmdasviðs falið að ræða við Berglindi, kostnaðarmeta framkvæmdina, fara yfir leigusamninga að landamerkjum og leggja aftur fyrir fund ráðsins.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur framkvæmdasviði að ganga til samninga við Berglindi Björk Stefánsdóttir um landamerkjagirðingu á milli Hrafnstaðakots og Ytra-Holts.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.