Fara í efni

Umhverfis- og dreifbýlisráð

33. fundur
13. júní 2025 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2025
Málsnúmer 202501021
Farið yfir stöðu á framkvæmdum ársins.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur deildarstjóra að finna hönnuð til að vinna að forhönnun fyrir strandlengju Dalvíkur.
2.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Málsnúmer 202502075
Farið yfir fjárhagslega stöðu þeirra málaflokka er heyra undir ráðið.
3.
Náttúruverndarnefnd Þingeyinga ósk um samstarf
Málsnúmer 202504022
Tekið fyrir erindi frá Norðurþingi, rafpóstur dagsettur þann 2. apríl sl., þar sem fram kemur að byggðaráð Norðurþings samþykkir að leita eftir samstarfi við sveitarfélögin á starfssvæði SSNE um stofnun og rekstur náttúruverndarnefndar. Norðurþing lýsir sig reiðubúið til að vera leiðandi sveitarfélag í starfi nefndarinnar.
Umhverfis- og dreifbýlisráð álítur náttúrvernd mikilvæga. Eðlilegast væri að slík nefnd væri leidd undir forystu SSNE. Því ætti að beina þessari fyrirspurn um tilvistarrétt náttúruverndarnefndar á starfsvæði SSNE til stjórnar samtakanna.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
4.
Árskógssandur - fyrirspurn um afgirt hundasvæði
Málsnúmer 202409086
Tekið fyrir erindi frá 34. fundi Skipulagsráðs sem vísað var til Umhverfis- og dreifbýlisráðs til samþykktar. Skipulagsráð samþykkti tillögu Framkvæmdasviðs að afgirtu svæði fyrir lausagöngu hunda við Árskógarskóla á svæði sem skilgreint er sem opið svæði til sérstakra nota (829-O) í gildandi aðalskipulagi.
Umhverfis- og dreifbýlisráð hafnar erindinu með þeim rökum að ekki hefur farið fram mat á þörf fyrir svona svæði og að ekki hafi verið haft samráð við Ungmennafélagið Reyni, en þessi tillaga gerir ráð fyrir hundasvæði á starfssvæði félagsins.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
5.
Umsókn um að fara með snjótroðara uppá Grímudal
Málsnúmer 202505172
Tekið fyrir erindi þar sem Guðni Berg Einarsson fyrir hönd óstofnaðs skíðafélags óskar eftir leyfi til að fara með snjótroðara upp á Grímudal ofan Dalvíkur veturinn 2025 til 2026 og kanna þar aðstæður til að stunda alpagreinar.
Umhverfis- og dreifbýlisráð setur sig ekki upp á móti þessu erindi þar sem ekki verður neitt jarðrask af þessari athugun og Grímudalur ekki innan vatnsverndarsvæðis.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.
6.
Sandskeið - umgengni og ásýnd svæðisins
Málsnúmer 202504021
Farið yfir stöðu á hreinsunarátaki við Sandskeið og á fleiri stöðum í sveitarfélaginu.
7.
Gámasvæði við Sandskeið - framtíðarfyrirkomuleg
Málsnúmer 202506042
Fyrir fundinum lá minnisblað deildarstjóra þar sem farið var yfir stöðu gámageymslusvæðis við Sandskeið og mögulegar leiðir til breytinga og úrbóta.
Umhverfis- og dreifbýlisráð frestar afgreiðslu málsins þar til hreinsunarátaki á Sandskeiði er lokið. Þá ætti þörf fyrir svona svæði að liggja betur fyrir og hægt að taka afstöðu til staðsetningar og utanumhalds.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
8.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Tekið fyrir erindi frá Byggðaráði 1147 fundi. Þar var til umræðu vinna við starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2026-2029. Samþykkt var fjárhagsáætlunaferli Dalvíkurbyggðar.Fyrstu skref eru:a) Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslum, forgangsröðun og stefnu.b) Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat og tímaramma.c) Ákvörðun um markmið fjárhagsáætlunar og stefna sett.d) Tillaga að auglýsingu vegna erinda.e) Rafrænar kannanir.f) Tímarammi fjárhagsáætlunar.g) Fundur sveitarstjóra og stjórnenda fagsviða með kjörnum fulltrúum til að fara yfir verkefni, stefnu og áherslur í fjárhagsáætlunarvinnunni. h) Þjónustustefnan.Til umræðu ofangreint.