Umhverfis- og dreifbýlisráð
30. fundur
7. mars 2025
kl.
08:15
-
09:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Eiður Smári Árnason
aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Farið yfir stöðu þeirra málaflokka sem heyra undir ráðið.
2.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Farið yfir stöðu á helstu framkvæmdaverkefnum ársins.
Umhverfis- og dreifbýlisráð óskar eftir því að Skipulagsráð flýti vinnu við deiliskipulag Sandskeiðs þar sem framkvæmdir við götuna eru á framkvæmdaáætlun ársins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Erindi til umhverfis- og dreifbýlisnefndar Dalvíkurbyggðar
Þekkingarnet Þingeyinga og Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar hafa frá árinu 2022 unnið að stóru fræðsluverkefni í umhverfis- og loftlagsmálum sem kallast LOFTUM. Undanfarið hefur fræðsluefni LOFTUM verið gert rafrænt og því vilja verkefnastjórar verkefnisins fá að kynna fyrir kjörnum fulltrúum LOFTUM og Rafræna skólann og ræða aðferðir til að koma verkefninu á framfæri meðal starfsfólks sveitarfélagsins og kjörinna fulltrúa.Fulltrúar LOFTUM sáu sér ekki fært að mæta á þennan fund ráðsins, en stefnt er að kynningu frá þeim á næsta fundi.
Frestað til næsta fundar.
4.
Samningur um slægjuland - Nafnabreyting milli tengdra aðila
Karl Heiðar Friðriksson óskar eftir að taka yfir samning um slægjuland úr landi Laugahlíðar sem Friðrik Þórarinsson hefur haft samning um frá 1998. Óskað er eftir að gerður verði nýr samningur við Karl Heiðar án undangenginnar auglýsingar. Núgildandi samningi við Friðrik verði lokað.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir ofangreint erindi um nafnabreytingu á leigusamningi um slægjuland með tilvísun í gr. 3.4 í Úthlutunarreglum fyrir leigulönd í Dalvíkurbyggð.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
5.
Eineltisamfélagsgerð
Mál frá 280. fundi Félagsmálaráðs þann 10. september 2024, þar sem önnur ráð sveitarfélagsins eru hvött til þess að taka umræðuna um jákvæð og uppbyggileg samskipti.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fundargerðir HNE 2025
Fyrir fundinum lá fundargerð 140. fundar Heilbrigðisnefndar Norðulads eystra sem haldinn var 12. febrúar sl.
Lagt fram til kynningar.