Fara í efni

Umhverfis- og dreifbýlisráð

28. fundur
10. janúar 2025 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Eiður Smári Árnason aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Anna Kristín Guðmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Málsnúmer 202402018
Farið yfir stöðu þeirra málaflokka er heyra undir ráðið.
2.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Málsnúmer 202501021
Farið yfir framkvæmdir og viðhaldsverkefni ársins 2025.
Lagt fram til kynningar.
3.
Umhirða opinna svæða - Útboð og gerð þjónustusamnings 2025
Málsnúmer 202501030
Farið yfir drög að verðkönnunargögnum. Deildarstjóra er faið að uppfæra gögnin fyrir næsta fund ráðsins samkvæmt umræðum á fundinum.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2025
Málsnúmer 202501029
Til umræðu uppfærsla á Umferðaröryggisáætlun, en eldri áætlun var unnin árið 2017.
Umhverfis- og dreifbýlisráð er sammála um að mikilvægt sé að uppfæra Umferðaröryggisáætlunina. Ráðið felur Deildarstjóra að uppfæra eldri áætlun eins og hægt er fyrir næsta fund. Umhverfis- og dreifbýlisráð hyggst senda drög að uppærðri áætlun til umsagnar í önnur ráð sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Fundargerðir HNE 2024
Málsnúmer 202402077
Fyrir fundinum lá fundargerð 239. fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra sem fór fram 5. desember 2024.
Lagt fram til kynningar.
7.
Stöðuskýrsla um innleiðingu Árósarsamningsins
Málsnúmer 202412092
Tekinn fyrir rafpóstur frá Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu, dagsettur 27. desember 2025, þar sem vakin er athygli á því að ráðuneytið vinni að uppfærslu á skýrslu um stöðu innleiðingar Árósasamningsins hér á landi. Ráðuneytið væntir þess að fljótlega í byrjun árs 2025 verði birt í samráðsgátt drög að skýrslunni til kynningar og athugasemda en auk þess mun ráðuneytið eiga sérstakt samráð við umhverfisverndarsamtök um efni hennar. Þá vill ráðuneytið hvetja alla þá sem áhuga hafa að koma með ábendingar eða annað sem varðar væntanlega skýrslu.
Lagt fram til kynningar.