Fara í efni

Umhverfis- og dreifbýlisráð

27. fundur
4. desember 2024 kl. 15:30 - 17:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Eiður Smári Árnason aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Málsnúmer 202402018
Farið yfir stöðu þeirra málaflokka er heyra undir ráðið.
2.
Framkvæmdir 2024
Málsnúmer 202401135
Farið yfir stöðu á framkvæmdum fyrir árið 2024
3.
Endurskoðun húsnæðisáætlunar; stafræn húsnæðisáætlun
Málsnúmer 202112032
Sveitarstjórn óskaði eftir því á 365. fundi sínum í janúar 2024 að öll ráð og nefndir Dalvíkurbyggðar taki fyrir húsnæðisáætlun 2025 og komi með tillögur eða viðbætur fyrir lok nóvember 2024.
Umhverfis- og dreifbýlisráð telur að þörf sé á uppbyggingu á leiguíbúðum fyrir eldri borgara og ætti sú þörf að koma fram í húsnæðisáætluninni. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Úrgangsmál innleiðing og útboð
Málsnúmer 202303137
Fyrir fundinum lágu drög að útboðsgögnum fyrir sorphirðu í Dalvíkurbyggð unnin af Consensa.
Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að útboði á sorphirðu. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Gjaldskrá Moltu ehf. 2025
Málsnúmer 202411045
Tekin fyrir gjaldskrá Moltu ehf. fyrir árið 2025. Gjaldskrárbreytingin felst í hækkun um 0 - 4,6% mismunandi eftir úrgangsflokkum.
Lagt fram til kynningar.
6.
Gjaldskrá Norðurár 2025
Málsnúmer 202410054
Tekin fyrir gjaldskrá Norðurár fyrir urðun úrgangs árið 2025. Gjaldskrárbreytingin hljóðar upp á 5 - 25% hækkun á mismunandi flokka úrgangs. Spilliefni og olíur hækka um 25% og blandaður úrgangur frá heimilum um 9,6%.
Lagt fram til kynningar.