Umhverfis- og dreifbýlisráð
24. fundur
23. september 2024
kl.
16:15
-
19:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
aðalmaður
Eiður Smári Árnason
aðalmaður
Júlíus Magnússon
aðalmaður
Starfsmenn
Óðinn Steinsson
Helga Íris Ingólfsdóttir
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir
Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Farið yfir stöðu þeirra málaflokka sem heyra undir ráðið.
2.
Framkvæmdir 2024
Farið yfir stöðu framkvæmda ársins.
3.
Umhverfisstefna Dalvíkurbyggðar
Fyrir fundinum lá minnisblað verkefnastjóra þvert á svið þar sem borin eru saman þau þrjú verðtilboð sem bárust í gerð umhverfis- og loftslagsstefnu fyrir Dalvíkurbyggð.
Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að gengið verði að tilboði Eflu í gerð Umhverfis- og loftslagsstefnu. Ráðið vísar vinnu við gerð stefnunnar til Fjárhagsáætlunar 2025. Áætlaður kostnaður við vinnuna er kr. 3.000.000.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Árskógsrétt
Tekin fyrir beiðni frá fjallskilastjóra Árskógsdeildar þar sem farið er fram á að það fjármagn sem áætlað var í viðgerð á Árskógsrétt verði fært fram á árið 2025. Sökum anna tókst ekki að gera við réttina í sumar.
Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að gert verði ráð fyrir viðgerð á Árskógsrétt í Fjárhagsáætlun 2025.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Ósk um afgirt hundasvæði
Með tölvupósti, dagsettum 16. september 2024, óskar Sigrun Ásta Erlingsdóttir eftir því að komið verði upp afgirtu hundasvæði á Árskógssandi.
Umhverfis- og dreifbýlisráð óskar eftir samráði við Skipulagsráð um staðsetningu á afgirtum hundasvæðum í Dalvíkurbyggð. Ráðið vísar erindinu til gerðar þriggja ára áætlunar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Gjaldskrár 2025
Farið yfir drög að uppfærslum og breytingum á þeim gjaldskrám sem heyra undir ráðið.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs 2025
Farið yfir drög að Starfs- og fjárhagsáætlun Framkvæmdasviðs árið 2025 og einnig drög að fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun og viðhaldsáætlun Eignasjóðs.
Umhverfis- og dreifbýlisráð fór yfir framlögð drög og lagði fram breytingar. Starfsmönnum Framkvæmdasviðs er falið að uppfæra áætlanir í samræmi við umræður og tillögur á fundinum.fyrir næsta fund ráðsins
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Stígagerð í kjölfar strenglagningu Rarik ofan Dalvíkur
Tekið fyrir erindi frá Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem hún óskar eftir því að nú þegar Rarik fer í framkvæmdir við strenglagningu ofan byggðar á Dalvík verði tækifærið nýtt til þess að jarðvegsskipta á stígum til að gera þá aðgengilegri. Strenglögn Rarik fylgir þeim stígum sem fyrir eru ofan Dalvíkur, en með þessu mætti gera þá breiðaari og auðveldari yfirferðar lengri hluta ársins.Áætlaður kostnaður Dalvíkurbyggðar við flutning á efni og jöfnum er kr. 1.396.000.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir tillöguna og felur Deildarstjóra að afla leyfa fyrir framkvæmdinni.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.