Fara í efni

Umhverfis- og dreifbýlisráð

2. fundur
14. október 2022 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varamaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson sviðstjóri
Snæbjörn Sigurðarson starfsmaður
Helga Íris Ingólfsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Snæbjörn Sigurðarson Verkefnastjóri á framkvæmdasviði
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2023; Framkvæmdasvið
Málsnúmer 202210039
Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun Framkvæmdasviðs fyrir árið 2023.
Umhverfis- og dreifbýlisráð fór yfir starfs- og fjárhagsáætlun 2023 sem verður lögð fyrir byggðaráð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Ósk um viðræður til að sinna meindýravörnum í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202208084
Erindi tekið fyrir frá Ólafi Pálmi Agnarssyni með tölvupósti dags 17.8.2022.
Umhverfis- og dreifbýlisráð þakkar Ólafi fyrir erindið og bendir á að í gildi séu samningar um meindýravarnir í sveitarfélaginu.
3.
Endurskoðun Svæðisáætlunar um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2022
Málsnúmer 202111041
Fyrir liggja drög að svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi.Óskað er eftir athugasemdum við fyrirliggjandi drög.
Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að svæðisáætlun. Ráðið leggur til að stofnaður verði þriggja manna stýrihópur til að vinna að framtíðarsýn sveitarfélagsins um meðhöndlun úrgangs. Í hópnum sitji tveir fulltrúar frá Framkvæmdasviði ásamt einum fulltrúa úr sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.