Umhverfis- og dreifbýlisráð
16. fundur
5. janúar 2024
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
aðalmaður
Freyr Antonsson
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Styrkur til Dalvíkurbyggðar
Undir þessum lið kom á fund umhverfis- og dreifbýlisráðs Friðjón Árni Sigurvinsson upplýsingafulltrúi. Fyrir fundinum liggja hugmyndir frá íbúum varðandi ráðstöfun á styrk til uppbyggingar í Bögg og Brúarhvammsreit. Auglýst var eftir hugmyndum á betraisland.is með það að markmiði að fá fram margar mismunandi hugmyndir.
Umhverfis- og dreifbýlisráð telur ljóst að niðurstaða könnunnar meðal íbúa hafi ekki náð markmiði sínu, þar sem einungis sjö tillögur bárust. Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leita eftir samstarfi við Skógræktarfélag Eyfirðinga um hönnun reitanna.
2.
Göngur og réttir í Dalvíkurbyggð 2023, fundargerðir fjallskilanefnda
Um er að ræða sama mál og er á dagskrá undir 3.tl. í fundarboði mál nr. 202311047. Lagt fram til kynningar gangnaseðill Dalvíkurdeildar og fundargerð Dalvíkurdeildar dags. 16.ágúst 2023.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fundargerðir fjallskiladeilda 2023
Lagðar fram til kynningar fundargerðir fjallskiladeilda í Dalvíkurbyggð. Svarfdæladeild, 33.fundur dags. 29.ágúst 2023 og 34.fundur dags. 31.ágúst 2023.Árskógsdeild dags. 3.september 2023 og niðurröðun fjallskila.Dalvíkurdeild dags. 16.ágúst 2023
Umhverfis- og dreifbýlisráð þakkar fjallskiladeildum Dalvíkurbyggðar fyrir vel unnin störf.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Öryggismál á hafnarsvæðinu á Dalvík
Á 363.fundi sveitarstjórnar þann 28.nóvember sl., var eftirfarandi bókað:Til máls tók: Freyr Antonsson, sem leggur til að málinu verði vísað í Umhverfis- og dreifbýlisráð varðandi ráðstafanir um umferðaröryggi meðan deiliskipulagsvinnu og framkvæmdum er ekki lokið. Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Freys Antonssonar.Málið hefur hlotið umfjöllun í veitu- og hafnarráði, skipulagsráði og umhverfis- og dreifbýlisráði.
Umhverfis- og dreifbýlisráð felur framkvæmdasviði að leita eftir samstarfi við Vegagerðina um tillögur til þess að stýra umferð um Karlsrauðatorg neðan Hafnarbrautar og niður á höfn. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
5.
Snjómokstur í Svarfaðardal og Skíðadal - samningur fyrirkomulag
Á 1091.fundi byggðaráðs þann 14.desember 2023 var til umræðu snjómokstur í Svarfaðardal og Skíðadal, samningar og fyrirkomulag. Einnig til umræðu reynslan af heimreiðamokstri og gildandi reglum sem eru hluti af gildandi viðmiðunarreglum um snjómokstur.Niðurstaða: Lagt fram til kynningar og byggðaráð óskar eftir að viðmiðunarreglur um snjómokstur verði kynntar á heimasíðu sveitarfélagsins í upphafi næsta árs.
Til umræðu reglur um snjómokstur sem settar voru í febrúar 2023 samkvæmt minnisblaði frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar. Umhverfis- og dreifbýlisráð felur sveitarstjóra að fara yfir reglurnar með deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og vísar þeim til afgreiðslu í byggðaráði. Jafnframt leggur umhverfis- og dreifbýlisráð áherslu á að viðmiðunarreglur um snjómokstur verði aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins og auglýstar á samfélagsmiðlum. Samþykkt samhljóð með 4 atkvæðum.
6.
Gjaldskrá 2024; Molta ehf.
Lagt fram til kynninga gjaldskrá Moltu ehf., sem tók gildi þann 1.janúar sl.
Lagt fram til kynningar.
7.
Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Húsabakkavega nr. 8038-01 af vegaskrá
Lagt fram til kynningar samrit af tilkynningu frá Vegagerðinni dags. 7.nóvember til eiganda Húsabakka í Svarfaðardal um niðurfellingu Húsabakkavegar af vegaskrá þar sem hann uppfyllir ekki lengur skilyrði vegalaga um þjóðvegi.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fundargerðir 2023; Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra
Tekin fyrir fundargerð 232.fundar Heilbrigðisnefndar Norðurlands dags. 15.nóvember 2023 og fundargerð 233.fundar dags. 13.desember 2023.
Lagt fram til kynningar.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Sveitarstjóri fór yfir fjárfestingar og framkvæmdir ársins 2024 sem heyra undir umhverfis- og dreifbýlisráð. Lagt fram til umræðu og kynningar.
Lagt fram til kynningar.