Umhverfis- og dreifbýlisráð
14. fundur
20. október 2023
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
aðalmaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir
aðalmaður
Eiður Smári Árnason
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2024
Farið yfir gjaldskrár sem heyra undir umhverfis- og dreifbýlisráð.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hækka gjaldskrár fyrir árið 2024 um 4,9%, nema gjaldskrá fyrir ref- og minkaveiðar hún verði hækkuð um 20%.
2.
Fundargerðir 2023; Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra
Tekin fyrir 231. fundargerð Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra frá 20.september sl.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fjárhagsáætlun HNE 2024
Tekin fyrir fjárhagsáætlun HNE fyrir árið 2024.
Lagt fram til kynningar.
4.
Haustfundur ALNEY, fundargerð, rekstraráætlun 2024
Haustfundur ALNEY var haldinn á lögreglustöðinni á Akureyri þriðjudaginn 26.september sl. þar sem m.a. var tekin fyrir fjárhagsáætlun ársins 2024.
Lagt fram til kynningar.
5.
Svæðisskipulagsnefnd 2023
Svæðisskipulagsnefndin óskar eftir að umræða verði tekin í skipulagsráðum/nefndum og sveitarstjórnum sveitarfélaganna um endurskoðun og framtíð svæðisskipulags Eyjafjarðar. Óskað er eftir því að sveitarfélögin taki málefni Svæðisskipulags Eyjafjarðar fyrir á fundum skipulagsráðs/nefndar hvers sveitarfélags og/eða sveitarstjórnar eftir því sem við á.
Umhverfis- og dreifbýlisráð vísar erindinu til byggðaráðs til afgreiðslu.
6.
Opnir skurðir við Hauganes
Það eru skurðir sem liggja meðfram skjólbelti á Hauganesi fyrir ofan Lyngholt sem eru gamlir og stíflaðir. Hætta á því að börn geti farið sér að voða þar sem þeir sjást illa og eru með laufblöð og gras ofan á vatninu. Búið er að bregðast við og lagfæra verstu staðina en finna þarf varanlega lausn.
Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að óska eftir að setja kr. 1.000.000.- á deild 09250 - 4396 á fjárhagsáætlun 2024 til þess að vinna að varanlegri lausn á þessu vandmáli.