Umhverfis- og dreifbýlisráð
13. fundur
26. september 2023
kl.
16:00
-
18:43
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson
formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
varamaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir
aðalmaður
Eiður Smári Árnason
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Á 12. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 8. september sl. var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir ýmis gögn og upplýsingar í tengslum við vinnu umhverfis- og dreifbýlisráðs við fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027:a) Gildandi starfsáætlun fyrir árið 2023.b) Yfirlit yfir framkvæmdir og fjárfestingar 2023-2026.Málaflokkar er heyra undir ráðið eru;03210 Heilbrigðiseftirlitsnefnd06270 Vinnuskóli07 Bruna- og almannavarnir08 Hreinlætismál09510 Eigna- og framkvæmdadeild.10 Samgöngumál11 Umhverfismál13210 Fjallskil13220 Forðagæsla og fjárveikivarnir32200 Eignfærðar framkvæmdir ofangreindra deilda og málaflokka.Til umræðu hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslum, forgangsröðun og stefna.Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til að boðað verði til aukafundar til að vinna að fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027."Með fundarboði byggðaráðs fylgdu ýmis gögn er varðar vinnu ráðsins við starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun ásamt upplýsingum um stöðu mála 2023.Farið yfir fjárfestingar á áætlun 2023-2027 og stöðu þeirra.Farið yfir rekstur málaflokka og deilda sem heyra undir ráðið og áherslur í rekstri ræddar.
a) Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum tillögur að fjárfestingaáætlun eins og hún liggur fyrir samkvæmt stöðulista 2023 og þriggja ára áætlun. Verkefni sem ekki verður farið í árið 2023 en eru á áætlun verði flutt yfir á árið 2024. Jafnframt leggur ráðið til að eyjur á Hólavegi verði fjarlægðar árið 2024.
Erindi um kaup á skotbómulyftara fyrir framkvæmdasviðið er vísað til vinnuhóps um bifreiða- og tækjakaup.
Varðandi erindi um heimreið að Svæði þá óskar ráðið eftir að kostnaður og aðkoma Vegagerðarinnar verði kannað áður en ákvörðun verður tekin. Vísað til fjárhagsáætlunar 2025.
Réttinn á Árskógsströnd- skoða þarf viðhald og aðkomu sveitarfélagsins. Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fá fjallskilastjóra á fund.
b) Rekstur og starfsemi málaflokka og deilda; ráðið leggur til að Vinnuskólinn verði í óbreyttri mynd. Einnig að sett verði kr. 1.500.000 framlag í framkvæmdir við Bögg og Brúarhvammsreit - þ.e. á móti gjöfinni að upphæð kr. 1.500.000. Ráðið leggur til að gert verði ráð fyrir tiltektar- og hreinsunardegi í sveitarfélaginu með þátttöku íbúa og fyrirtækja.
c) Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til að gert verði ráð fyrir fjármagni í að gera gamla Hauganesveginn færan sem göngu- og hjólastíg. Einnig ítrekar ráðið að sótt verði um styrki til að gera upp gömlu bryggjuna á Hauganesi. Að öðru leiti leggur ráðið til að fundargerðir frá íbúafundum á Árskógssandi og Hauganesi verði fylgigögn með starfsáætlun 2024 og hafðar til hliðsjónar.

2.
Frá 9. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.05.2023; Íbúafundur Eigna- og framkvæmdadeildar á Árskógssandi í maí 2023
Á 9. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Helga Íris Ingólfsdóttir kynnir fundagerð frá íbúafundi á Árskógssandi sem haldinn var 2. maí 2023.Umhverfis-og dreifbýlisráð vísar fundagerðinni til vinnu við fjárhagáætlun 2024.Ráðið þakkar Helgu Írisi fyrir samantektina."Með fundarboði umhverfis- og dreifbýlisráðs fylgdi ofangreind fundargerð.
Lagt fram til kynningar og sjá ofangreinda bókun undir lið 1.
3.
Frá 9. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.05.2023; Íbúafundur Eigna- og framkvæmdadeildar á Hauganesi í maí 2023
Á 9. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Helga Íris Ingólfsdóttir kynnir fundagerð frá íbúafundi sem haldinn var á Hauganesi 3. maí 2023.Umhverfis-og dreifbýlisráð vísar fundagerðinni til vinnu við fjárhagáætlun 2024.Ráðið þakkar Helgu Írisi fyrir samantektina."Með fundarboði umhverfis- og dreifbýlisráðs fylgdi ofangreind fundargerð.
Lagt fram til kynningar og sjá ofangreinda bókun undir lið 1.
4.
Gjaldskrár 2024
Á 12. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs voru gjaldskrár til umræðu vegna ársins 2024.https://www.dalvikurbyggd.is/is/stjornsysla/fjarmal-og-rafraen-stjornsysla/gjaldskrar
Umhverfis- og dreifbýlisráð vísar frekari umfjöllun til næsta fundar sem er áætlaður 13. október nk.