Fara í efni

Sveitarstjórn

396. fundur
17. nóvember 2026 kl. 16:15 - 17:07
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
María Björk Stefánsdóttir varamaður
Helgi Einarsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Magni Þór Óskarsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Monika Margrét Stefánsdóttir, forseti sveitartjórnar, boðaði forföll og 1. varaforseti, Benedikt Snær Magnússon, stýrði fundi.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1200; frá 11.11.2026
Málsnúmer 2611006F
Fundargerðin er í 13 liðum.
Liður 1, mál 202605002 er sér mál á dagskrá.
Liður 2, mál 202608079 er sér mál á dagskrá.
Liður 3, mál 202610121 er sér mál á dagskrá.
Liður 5, mál 202611014 er sér mál á dagskrá.
Liður 7, mál 202401017 er sér mál á dagskrá.
Liður 12, mál 202606078 er sér mál á dagskrá.
Liður 13, mál 202611072 er sér mál á dagskrá.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.
Fjölskylduráð - 11; frá 10.11.2026
Málsnúmer 2611001F
Fundargerðin er í 13 liðum.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202609075.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.
Framkvæmdaráð - 12; frá 11.11.2026
Málsnúmer 2611004F
Fundargerðin er í 11 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202302116.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202609120.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202503050.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202611041.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202610130.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 53; frá 11.11.2026
Málsnúmer 2611003F
Fundargerðin er í 6 liðum.
Liður 1 er sér liður á dagskrá; mál 202512055.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 162; frá 06.11.2026
Málsnúmer 2611002F
Fundargerðin er í 6 liðum.
Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202608079.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202610121.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202501059.
Enginn tók til máls.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030. Síðari umræða.
Málsnúmer 202605002
Á 395. fundi sveitarstjórnar þann 3. nóvember sl. var fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða að vísa henni til byggðaráðs á milli umræðna í sveitarstjórn.

Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var fjárhagsáætlunin til umfjöllunar og gerðar voru nokkrar breytingar á frumvarpinu, sbr. bókun byggðaráðs. Byggðaráð samþykkti samhljóða með 2 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun til síðari umræðu í sveitarstjórn með áorðnum breytingum, Benedikt Snær Magnússon greiddi atkvæði á móti með vísan í 1. lið h) í fundargerð byggðaráðs: "Samþykkt með 2 atkvæðum fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun eins og hún liggur fyrir, Benedikt Snær greiðir
atkvæði á móti. Benedikt Snær lagði til að færa framkvæmdir við slökkviðstöð um eitt ár til að jafna fjárfestingaáætlun yfir árin og minnka líkur og/eða þörf á lántöku."

Helstu niðurstöður ársins 2027:
Samstæða A- og B- hluti, rekstrarafgangur kr. 384.360.000.
A-hluti (Aðalsjóður og Eignasjóður), rekstrarafgangur kr. 354.314.000.
Fjárfestingar samstæðu A- og B-hluta 2027 kr. 1.029.300.000 án áætlaðra tekna vegna gatnagerðargjalda.
Fjárfestingar samstæðu A- og B- hluta 2027-2030 kr. 3.295.910.000, áætluð lántaka kr. 500.000.000 og afborganir langtímaskulda kr. 418.024.000.
Handbært fé frá reksti samstæðunnar árið 2027 kr. 746.948.000


Til máls tóku:

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu breytingum og forsendum á milli umræðna í sveitarstjórn.
Helgi Einarsson.
Benedikt Snær Magnússon, sem leggur til að fjárhæð vegna fjárfestinga í nýrri slökkvistöð, fyrri áfangi, verði flutt frá árinu 2027 og yfir á árið 2029.

Fleiri tóku ekki til máls.

a) Sveitarstjórn hafnar ofangreindri tillögu Benedikts Snæs með 5 atkvæðum á móti 2 atkvæðum Benedikts Snæs Magnússonar og Bessa Ragúels Víðssonar.

b) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum fyrirliggjandi starfs- og fjárhagsáætlun 2027, þriggja ára áætlun 2028 - 2030 ásamt þjónustustefnu, Benedikt Snær Magnússon og Bessi Ragúels Víðisson greiða atkvæði á móti.
7.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
a) Gjaldskrá fráveitu Dalvíkurbyggðar

Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:

"Á 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
Endurskoðuð gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 lögð fram til umræðu. Lagðar til 2,5% hækkanir líkt og uppleggið er með aðrar gjaldskrár.
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð beinir því til Framkvæmdasviðs að samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð verði tekin til endurskoðunar á nýju ári. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að ofangreindri gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2027.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fráveitu 2027 og vísar henni til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda bókun byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2027.
8.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2027. Síðari umræða.
Málsnúmer 202608079
Á 394. fundi sveitarstjórnar þann 20. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 1196. fundi byggðaráðs þann 15.10. 2026 var eftirfarandi bókað varðandi gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur:
k) Gjaldskrá vegna Hitaveitu Dalvíkur 2027. Tillaga um 2,5% hækkun á milli ára.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur eins og hún liggur fyrir.
Vísað til fyrri umræðu í sveitarstjórn.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2027 til síðari umræðu í sveitarstjórn, eins og hún liggur fyrir."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur fyrir árið 2027 og óskar staðfestingar ráðuneytisins á henni.
9.
Álagning fasteignagjalda 2027; heildarskjal
Málsnúmer 202606054
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi heildarskjal yfir álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda 2027.

a) Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis; 0,42%. Samþykkt samhljóða í sveitarstjórn þann 20. október sl.
b) Fasteignaskattur atvinnuhúsnæðis; 1,58%. Samþykkt samhljóða í sveitarstjórn þann 20. október sl.
c) Fasteignaskattur stofnana B- flokkur; 1,32% - óbreytt á milli ára.
d) Vatnsgjald vegna íbúðarhúsnæðis, stofnana og atvinnuhúsnæðis; Samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 3. nóvember sl.
e) Fráveitugjald vegna íbúðarhúsnæðis, stofna og atvinnushúsnæðis; Samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem samþykkt var hér að ofan í 7. lið.
f) Sorphirðugjald samkvæmt A- skattflokki; Samkvæmt sérstakri gjaldskrá sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar þann 3 nóvember sl.
g) Lóðarleiga íbúðahúsalóða; 1% - óbreytt á milli ára.
h) Lóðarleiga atvinnulóða; 2,90% - óbreytt á milli ára.
i) Lóðarleiga ræktarlands; 3,0% - óbreytt á milli ára.
j) Fjöldi gjalddaga 10, þann fyrsti 5. febrúar - óbreytt á milli ára.
Enginn tók til máls.

a) Lagt fram til kynningar.
b) Lagt fram til kynningar.
c) Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
d) Lagt fram til kynningar.
e) Lagt fram til kynningar.
f) Lagt fram til kynningar.
g) Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
h) Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
i) Samþykkt samljóða með 7 atkvæðum.
j) Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi heildarskjal yfir álagningu fasteignaskatt og fasteignagjalda fyrir árið 2027.
10.
Ákvörðun um útsvarsprósentu 2027
Málsnúmer 202611080
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að álagningu útsvarsprósentu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027.
Lagt er til að hún verði áfram hámarksprósenta og óbreytt á milli ára, eða 14,97%.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu og að útsvarsprósenta Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 verði 14,97%.
11.
Frá 1200. fundi byggðaráðs þann 11.11.2026; Verbúð, syðri - viðgerð á þaki; viðaukabeiðni.
Málsnúmer 202610121
Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
Hafnarstjóri leggur fram beiðni um viðauka vegna nauðsynlegra viðgerða á þaki syðri verbúðar.
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að óska eftir viðauka í byggðaráði vegna viðgerða á þaki syðri verbúða.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi viðaukabeiðni frá sveitarstjóra/hafnarstjóra, dagsett þann 2. nóvember sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2027 vegna viðgerðar á þaki á syðri verbúð, verkefni sem nauðsynlegt er að fara í því eftir miklar rigningar nú nýverið þá flæddi vatn inn í geymslur sem eru í útleigu. Óskað er eftir viðauka
að upphæð kr 3.255.111 á lið 41210-4610.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 47 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 3.255.111 á lið 41210-4610. Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tóku:
Bessi Ragúels Víðsson.
Helgi Einarsson.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 47 við fjárhagsáætlun 2027 að upphæð kr. 3.255.111 á lið 41210-4610.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
12.
Frá 1200. fundi byggðaráðs þann 11.11.2026; Viðaukabeiðni
Málsnúmer 202606078
Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni,viðauka nr. 45 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 923.588.
Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 45 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 923.588.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
13.
Frá 11. fundi fjölskylduráðs þann 10.11.2026; Endurskoðun á innritunarreglum í leikskóla
Málsnúmer 202609075
Á 1193. fundi byggðaráðs þann 1. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Elvý Guðríður Hreinsdóttir, leikskólastjóri, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:58.
Á 7. fundi fjölskylduráðs þann 22. september sl. var eftirfarandi bókað:
Innritunarreglur teknar til endurskoðunnar
Niðurstaða : Innritunarreglur teknar fyrir í fjölskylduráði. Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum innritunarreglur og vísa reglum til frekari vinnslu inn í Byggðaráð.
Til umræðu tillögur að breytingum á innritunarreglum leikskóla.
Niðurstaða : Afgreiðslu frestað."

Á 11.fundi fjölskylduráðs þann 10. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Elvý Guðríður Hreinsdóttir, fer yfir endurskoðaðar innritunarreglur fyrir leikskóla í Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum inritunarreglur inn í leikskóla í Dalvíkurbyggð."
Til máls tóku:
Helgi Einarsson, sem leggur til að e) liður verði tekinn út hvað varðar forgang starfsmanna leikskóla.
Bessi Ragúels Víðisson.


Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og fyrirliggjandi tillögu að innritunarreglum fyrir leikskóla í Dalvíkurbyggð með þeirri breytingu að e) liður falli niður í reglunum í samræmi við ofangreinda tillögu Helga Einarssonar.

14.
Frá 53. fundi skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga þann 11.11.2026; Endurskoðun á Reglur Dalvíkurbyggðar varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum
Málsnúmer 202512055
Á 53. fundi skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Sviðsstjórar fara yfir endurskoðaðar reglur varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.
Niðurstaða : Skólanefnd TÁT samþykkir með þremur atkvæðum endurskoðaðar reglur Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar varðandi tónlistarnemendur sem stunda nám í öðru sveitarfélagi."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að reglum varðandi nemendur sem óska eftir að stunda tónlistarnám í öðrum sveitarfélögum.
15.
Frá 1200. fundi byggðaráðs þann 11.11.2026; Ósk um að opna leikskóladeild í Árskógi fyrr á morgnana
Málsnúmer 202611072
Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 10. nóvember sl., þar sem óskað er eftir að fá að opna leikskóladeild Kötlukoti fyrr á morgnanna eða kl.07:30.
Eins og staðan er núna skapi núverandi opnunartími talsvert álag á morgnana fyrir þá foreldra sem þurfa að koma börnum sínum á tvo mismunandi staði í upphafi dags, eða eiga erfitt með að mæta á réttum tíma til vinnu. Með því að færa opnunartímann um 15 mínútur yrði mun auðveldara að samræma fjölskyldulíf og vinnu. Þessi breyting er hugsuð bara fyrir þetta skólaár. Er þessi ósk gerð í samráði við leikskólastjóra Krílakots og starfsfólk Kötlukots. Þetta þýðir viðbótarkostnað á launum fram að áramótum að upphæð kr.113.338.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum heimild til að opna Kötlukot fyrr eða kl. 7:30 í stað 7:45 hvern dag til reynslu fram að sumarlokun 2027.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir að opna Kötlukot fyrr að morgni eða kl. 7:30 í stað 7:45 til reynslu fram að sumarlokun 2027.
16.
Frá 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11.11.2026; Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Málsnúmer 202302116
Á 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 með breytingum sem gerðar voru eftir auglýsingu.
Gunnar Ágústsson hjá Yrki arkitektum sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum fundarlið.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 með breytingum að lokinni auglýsingu skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati framkvæmdaráðs hafa umræddar breytingar ekki áhrif á auglýsta stefnu aðalskipulagsins og telur ráðið því ekki þörf á endurauglýsingu tillögunnar. Þá leggur framkvæmdaráð til við sveitarstjórn að hún samþykki svör og viðbrögð við athugasemdum sem fram koma í minnisblöðum skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Elín Björk Unnarsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég legg til að framtíðartjaldsvæðið verði sunnan við íþróttasvæðið, eða áfram á sama stað eða við Ólafsfjarðarveg."
Til máls tóku:
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Helgi Einarsson.

Fleiri tók ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og framlagða tillögu að skipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 með breytingum að lokinni auglýsingu skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum það mat framkvæmdaráðs að umræddar breytingar hafa ekki áhrif á auglýsta stefnu aðalskipulagsins og telur ráðið því ekki þörf á endurauglýsingu tillögunnar. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða fyrirliggjandi svör og viðbrögð við athugasemdum sem fram koma í minnisblöðum skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa.
17.
Frá 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11.11.2026; Athafnasvæði við Melbrún - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202609120
Á 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Melbrún, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tók:
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Benedikt Snær Magnússon

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og framlagða skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Melbrún og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
18.
Frá 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11.11.2026; Deiliskipulag fyrir slökkvistöð og viðbragðsaðila
Málsnúmer 202503050
Á 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir slökkvistöð og viðbragðsaðila, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.
Elín Björk Unnarsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég bendi á þann möguleika að ef Dalvíkurbyggð stefnir á að fjárfesta í nýrri slökkvistöð þá sé það kostur að fjárfesta í Gunnarsbraut 10B, bil 104 - 109. Þar má innrétta nýja slökkvistöð. Flatarmál er 306 fermetrar. Ásett verð er samtals 117.800.000 kr. Húsnæðið gerir ráð fyrir sex útkeyrsluhurðum. Hægt að fækka þeim. Möguleikar eru á að kaupa færri eða
fleiri bil. Núverandi slökkvistöðin á Dalvík er 170 m2 og með þrjár útkeyrsluhurðir. Kostur er að staðsetning slökkvistöðvar sé við eða nálægt björgunarsveit. Annar kostur í stöðunni er að bjóða eigendum á lögrelgustöðinni í samtal um að kaupa þeirra húsnæði sem liggur við slökkvistöðina þannig að hægt sé að stækka hana. Má nefna að gamla pósthúsið við Skíðabraut gæti orðið framtíðar lögreglustöð eins og hún var í þáttunum The True detective. Í Dalvíkurbyggð eru innviðir sem þarfnast viðhalds og fjármagns. Má þar m.a. nefna Ráðhúsið og Sundskála Svarfdæla svo eitthvað sé nefnt. Dalvíkurbyggð á að sýna gott fordæmi og forðast að hafa þensluhvetjandi áhrif í samfélaginu eins og bygging slökkvistöðvar sunnan íþróttasvæðis Dalvíkur myndi hafa í för með sér."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir framlagða skipulagslýsingu fyrir nýtt deiliskipulag fyrir slökkvistöð og viðbragðsaðila, að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
19.
Frá 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11.11.2026; Dýrholt - umsagnarbeiðni um geymslustað ökutækja
Málsnúmer 202611041
Á 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Erindi dagsett 30. október 2026 þar sem Samgöngustofa óskar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um fyrirhugaðan geymslustað ökutækja við Dýrholt í Svarfaðardal.
Meðfylgjandi er staðfesting og samþykki lóðarhafa.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við áformin.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda umsögn framkvæmdaráðs og gerir ekki athugasemdir við áformin.
20.
Frá 1200. fundi byggðaráðs þann 11.11.2026; Árskógsvirkjun í Þorvaldsdal
Málsnúmer 202401017
Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Á 370. fundi sveitarstjórnar þann 18. júní 2024 var eftirfarandi bókað:
Á 1109. fundi byggðaráðs þann 30. maí sl. var m.a. eftirfarandi bókað:
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu samningsdrög "Samningur um rannsókna- og nýtingarleyfi milli Árskógsvikjunar ehf sem rétthafa og Dalvíkurbyggð sem landeiganda við Þorvaldsdalsá sem leyfisveitenda. Einnig fylgdi með álit Skipulagsstofnunar um matsáætlun vegna Árskógsvirkjunar í Þorvaldsdalsá, sbr. rafpóstur dagsettur þann 10. maí sl. Viðbrögð framkvæmdaaðila við umsögnum má finna á eftirfarandi slóð; https://www.skipulag.is/umhverfismat- framkvaemda/gagnagrunnur-umhverfismats/nr/1353#alma Niðurstaða:Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við
meðfylgjandi samningsdrög og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
Niðurstaða : Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreind og meðfylgjandi samningsdrög um rannsóknar- og nýtingarleyfi milli Árskógsvirkjunar ehf. sem rétthafa og Dalvíkurbyggðar sem leyfisveitanda sem landeigandi við Þorvaldsdalsá vegna jarðanna Grundar, F2156437, og Hrafnagils, F215479. Samningstíminn er 60 ár að uppfylltum
ákveðnum forsendum um framvindu, m.a. að rétthafi skal hafa fengið framkvæmdaleyfi innan 8 ára frá undirritun samnings."
Tekið fyrir erindi frá Jóni Jónssyni, lögmanni Arctic Hydro hf., dagsett þann 3. nóvember sl., þar sem vísað er í fyrri samskipti og samning Dalvíkurbyggðar vegna Árskógsvirkjunar. Staðan er sú að Arctic Hydro hefur nú í um 3 ár verið í viðræðum við Ríkiseignir/FSRE um eignarréttarlegan samning vegna virkjunarinnar. Íslenska ríkið er eigandi
vatnsréttinda á 4 af 5 jörðum (þ.m.t. jörðunum sem Dalvíkurbyggð á )og svo eigandi einnar jarðar.
Arctic Hydro hf. telur nú samningaviðræður vera á lokastigum. Í samningi við Dalvíkurbyggð kemur fram að Dalvíkurbyggð njóti betri réttinda, ef samningar við ríkið fela slíkt í
sér. Einnig hefur ríkið komið fram með þá hugmynd að í stað þess að dómkvaddur matsmaður fjalli um skiptingu leigugreiðslna milli landeigenda, þá yrði það hlutverk sérstaks gerðardóms.Ef þetta yrði niðurstaðan þyrfti Dalvíkurbyggð í raun að samþykkja þessa breytingu. Aðalerindið er því að kynna þennan möguleika og kanna hvort
Dalvíkurbyggð gæti samþykkt þetta fyrirkomulag, verði þetta niðurstaðan í samningi við íslenska ríkið.
Í minnisblaði sveitarstjóra dagsett þann 9. nóvember sl. kemur m.a. fram að drög að samningi á milli ríkisins og AH munu verða lögð fyrir byggðaráði til umfjöllunar og samþykktar ef þetta verður niðurstaðan.
Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ef niðurstaðan verður að fara með samninga á milli ríkisins og Arctic Hydro hf. fyrir gerðardóm."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við ef niðurstaðan verður að fara með samninga á milli ríkisins og Arctic Hydro hf. fyrir gerðardóm.
21.
Frá 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 06.11.2026; Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Málsnúmer 202501059
Á 162. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Fundargerð síðasta verkfundar frá 19.október sl. lögð fram sem og upplýsingar um viðbótar einangrun á þak vatnstanksins.
Í lok fundar var farið á verkstað í skoðunarferð.
Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að farið verði í að setja viðbótar einangrun á þak vatnstanksins, líkt og framlagt tilboð gerir ráð fyrir. Vísað á deild 44200-11606.
Veitu- og hafnaráð þakkar byggingarstjóra vatnstanksins fyrir kynningu á verkstað."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs og veitir heimild fyrir að sett verði viðbótar einangrun á þak vatnstanksins. Vísað á lið 44200-11606.
22.
Frá 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11.11.2026; Brunavarnaráætlun 2026-2031
Málsnúmer 202610130
Á 12. fundi framkvæmdaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram til kynningar Brunavarnaráætlun Slökkviliðs Dalvíkur 2026-2031.
Niðurstaða : Lagt fram til kynningar."

Tekið fyrir erindi frá HMS, dagsett þann 8. september sl., þar sem fram kemur að Brunavarnasvið HMS hefur lokið yfirferð sinni á Brunavarnaáætlun fyrir Dalvíkurbyggð, og sendist hún hér með til umræðu og samþykkis sveitarstjórnar.

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi Brunavarnaráætlun Slökkviliðs Dalvíkur yfirfari af HMS.

Til máls tók:
Bessi Ragúels Víðsson.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi Brunavarnaráætlun Slökkviliðs Dalvíkur eins og hún liggur fyrir.
23.
Frá 1200. fundi byggðaráðs þann 11.11.2026; Tillaga að breytingum á skipulagsskrá Dalbæjar
Málsnúmer 202611014
Á 1200. fundi byggðaráðs þann 11. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá hjúkrunarframkvæmdastjóra Dalbæjar, dagsettur þann 22. september sl., þar sem fram kemur að meðfylgjandi er breytingatillaga stjórnar Dalæbjar á gildandi Skipulagsskrá Dalbæjar sem óskað er eftir að sveitarstjórn taki til skoðunar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi tillögur að breytingum á Skipulagsskrá Dalbæjar."

Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi skipulagsskrá Dalbæjar með tillögum að breytingum í samræmi við ofangreint. Óskað var eftir athugasemdum frá forsvarsmönnum Dalbæjar og er skipulagsskráin þar í yfirferð.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu 1. varaforseta að fresta frekari umfjöllun og afgreiðslu á skipulagsskránni þar til yfirferð Dalbæjar er lokið.
24.
Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2026; fundir 3-5.
Málsnúmer 202604015
Með fundarboði fylgdu fundargerðir stjórnar Dalbæjar nr. 3, nr. 4 og nr. 5.
Lagt fram til kynningar.