Fara í efni

Sveitarstjórn

395. fundur
3. nóvember 2026 kl. 16:15 - 16:52
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Monika Margrét Stefánsdóttir forseti
Helgi Einarsson aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Magni Þór Óskarsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Bessi Ragúels Víðisson aðalmaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1197; frá 20.10.2026
Málsnúmer 2610011F
Fundargerðin er í 1. lið.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1198; frá 22.10.2026
Málsnúmer 2610012F
Fundargerðin er í 2. liðum.
Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202610098.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1199; frá 29.10.2026
Málsnúmer 2610014F
Fundargerðin er í 13 liðum.
Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202609068.
Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202610113.
Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202610108.
Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202610106.
Liður 9 er sér mál á dagskrá; mál 202610107.
Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202610105.
Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202605002.
Liður 12 er sér mál á dagskrá; mál 202610110.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjölskylduráð - 10; frá 20.10.2026
Málsnúmer 2610008F
Fundargerðin er í 4 liðum.
Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
5.
Framkvæmdaráð - 11; frá 28.10.2026
Málsnúmer 2610013F
Fundargerðin er í 3 liðum.
Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202610101.
Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
6.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 20.10.2026; Viðaukabeiðni
Málsnúmer 202610113
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 20. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Bókað í trúnaðarmálabók.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni um viðauka, viðauka nr. 34 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 2.865.907 vegna veikindalauna.
Byggðaráð samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 34 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 2.865.907 vegna veikindalauna.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
7.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Tillaga að viðaukum vegna breytinga á bókhaldslyklum skv. reglugerð
Málsnúmer 202610108
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að 6 viðaukum vegna breytinga á reglugerð um bókhalds, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, nr. 1212/2015.
Breytingareglugerðin er nr. 145 / 2026 og tók gildi afturávirkt frá 1.1.2026.
Um er að ræða tilfærslur á milli málaflokka og deildar og þvi´eru heildaráhrifin 0 á fjárhagsáætlun.
Viðauki nr. 37 vegna málefna fatlaðra.
Viðauki nr. 38 vegna heilbrigðismála/fræðslumála.
Viðauki nr. 39 vegna hreinlætismála,
Viðauki nr. 40 vegna skipulags- og byggingamála.
Viðauki nr. 41 vegna umferðar- og samgöngumála.
Viðauki nr. 42 vegna atvinnumála.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar tillögur að viðaukum nr. 37, 38, 39, 40, 41, 42 við fjárhagsáætlun 2026 og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 37,38, 39, 40, 41 og 42 við fjárhagsáætlun 2026 vegna breytinga á bókhaldslyklum í samræmi við breytingareglugerð nr. 145/2026 vegna breytinga á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga nr. 1212/2015. Um er að ræða tilfærslur á milli málaflokka og deilda og eru þvi heildaráhrifin 0.
8.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Tillaga að viðauka vegna framlaga úr Jöfnunarsjóði 2026
Málsnúmer 202610106
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 þar sem lagt er til að áætluð framlög úr Jöfnunarsjóði 2026 lækki nettó um kr. 52.720.620.
00100-0121 - þjónustuframlag hækki um kr. 24.282.160.
00100-0141 - grunnskólaframlag hækki um kr. 8.211.730.
00100-0151. framlag vegna málefna fatlaðra lækka um kr. -85.626.873.
00100-0190. Önnur framlög samtals hækka um kr. 412.363
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að viðauka, viðauka nr. 43 við fjárhagsáætlun 2026, þannig að deild 00100 lækki um kr. 52.720.620 nettó samkvæmt ofangreindri sundurliðun.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 43 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 52.720.620 á deild 00100 til lækkunar á áætluðum framlögum úr Jöfnunarsjóði, samanber ofangreind sundurliðun sem fram kemur í bókun byggðaráðs.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
9.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Tillaga að viðauka vegna staðgreiðslu 2026
Málsnúmer 202610107
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2026 þar sem lagt er til að áætluð staðgreiðsla / útsvar til sveitarfélagsins hækki um kr. 65.077.409 þannig að liður 00010-0021 verði kr. -1.698.433.249.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að viðauka, viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 65.077.409 á lið 00010-0021.
Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2026 þannig að liður 00010-0021 hækki um kr. 65.077.409.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
10.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Heildarviðauki II við fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer 202610105
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðráðs fylgdi tillaga að heildarviðauka II við fjárhagáætlun 2026 þar sem búið er að setja inn alla viðauka á árinu nr. 1-44. Heildarviðauki I innihélt viðauka nr. 1-28.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Málaflokkayfirlit 2026 með viðaukum.
Rekstraryfirlit 2026 með viðaukum.
Yfirlit yfir viðauka 2026.
Yfirlit yfir samstæðuna fyrir og eftir viðauka.
Yfirit úr fjárhagsáætlunarkerfi yfir viðauka 1-44.
Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta er áætluð kr. 146.731.000 afgangur.
Rekstarniðurstaða A- hluta er áætluð kr. 138.838.000 afgangur.
Áætlaðar fjárfestingar og framkvæmdir samstæðunnar eru kr. 844.175.270.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2026 til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Til máls tók:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu forsendum og niðurstöðum heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2026.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2026 eins og hann liggur fyrir.
11.
Frá 1199. fundi byggðaráðs 2026; Frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030.Fyrri umræða.
Málsnúmer 202605002
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir helstu forsendur og niðurstöður.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 til fyrri umræðu í sveitarstjórn."

Til máls tók:

Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri sem gerði grein fyrir helstu forsendum og niðurstöðum fjárhagsáætlunar 2027 og þriggja ára áætlunar 2028-2030.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027 ásamt þriggja ára áætlun til byggðaráðs á milli umræðna.
12.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Úttekt slökkviliðs
Málsnúmer 202609068
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri, kl. 14:02.
Á 1192. fundi byggðaráðs þann 23. september sl. var eftirfarandi bókað:
Tekið fyrir erindi frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnuninni, dagsett þann 9. september sl, þar sem fram kemur að þann 21. apríl 2026 sl. framkvæmdi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) úttekt á starfsemi Slökkviliðs Dalvíkur.
Meðfylgjandi er niðurstaða þeirrar úttektar. Er þess farið á leit við sveitarstjórn að niðurstöðurnar verði teknar til umfjöllunar.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Slökkviliðsstjóra að fara yfir úttektina og koma með tillögur og áætlun um úrbætur við athugasemdum HMS fyrir fundi byggðaráðs.
Byggðaráð óskar eftir að Slökkviliðstjóri komi á fund byggðaráðs og fylgi úttektinni eftir, eins og HMS mælist til."
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað slökkviliðsstjóra, dagsett þann 28. október 2026, þar sem leitast er við að skýra þau atriði sem betur mættu fara og viðbrögð við þeim.
Villi vék af fundi kl. 14:33.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
Erla vék af fundi kl. 14:42 til annarra starfa."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að fela sveitarstjóra að svara HMS er varðar áætlun sveitarstjórnar um úrbætur við athugasemdum stofnunarinnar, byggt á minnisblaði slökkviliðsstjóra.
Sveitarstjórn samþykkir einnig samhljóða að í svari sveitarstjóra verði gert greint fyrir þeim úrbótum sem þegar hafa verið gerðar frá því að úttektin fór fram.
13.
Frá 1198. fundi byggðaráðs þann 22.10.2026; Gamla bryggjan á Hauganesi
Málsnúmer 202610098
Á 1198. fundi byggðaráðs þann 22. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Kollgátu, fyrir hönd eigenda Fjörubaðanna á Hauganesi, dagsett þann 22. október 2026, þar sem óskað er eftir samstarfi við Dalvíkurbyggð um undirbúning að endurbyggingu og viðhaldi gömlu steinbryggjunnar á Hauganesi. Jafnframt er óskað eftir samþykki sveitarfélagsins, sem eiganda bryggjunnar, fyrir verkefninu og heimild til að undirbúa og leggja fram umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða með leyfi þess. Umsóknargögn eru í vinnslu.
Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum, sem eigandi bryggjunnar, að heimila eigendum Fjörubaðanna á Hauganesi að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamanna.
Þessi heimild er ekki samþykki og/eða vísir að samstarfi, fjárhagsskuldbindingu og/eða öðrum skuldbindingum að hálfu sveitarfélagsins vegna þessa verkefnis."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir sem eigandi gömlu bryggjunnar á Hauganesi, að heimila eigendum Fjörubaðanna á Hauganesi að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs Ferðamanna.
Þessi heimild er ekki samþykki og/eða vísir að samstarfi, fjárhagsskuldbindingu og/eða öðrum skuldbindingum að hálfu sveitarfélagsins vegna þessa verkefnis.
14.
Frá 11. fundi framkvæmdaráðs þann 28.10.2026; Frumvarp um breytingar á skipulagslögum
Málsnúmer 202610101
Á 11. fundi framkvæmdaráðs þann 28. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um breytingar á skipulagslögum nr. 123/2010.
Frumvarpið var birt á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytis í samráðsgátt stjórnvalda þann 2.október sl. og var umsagnarfrestur veittur til 16.október.
Umsagnarbeiðni eða upplýsing um kynningu frumvarpsins var ekki send Dalvíkurbyggð.
Niðurstaða : Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar gagnrýnir það verklag ráðuneytis að drög að frumvarpi til breytingar á skipulagslögum hafi ekki verið send sveitarfélaginu til formlegrar umsagnar. Þá gagnrýnir framkvæmdaráð jafnframt þann stutta umsagnarfrest sem veittur er í samráðsgátt stjórnvalda í þessu máli sem og öðrum sambærilegum.
Umsögn í svo veigamiklu máli sem breyting á skipulagslögum er þarf að fara fyrir skipulagsnefnd og sveitarstjórn og því verður tveggja vikna umsagnarfrestur að teljast fráleitur í því samhengi.
Framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar gerir eftirfarandi athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum:
- Gerð er athugasemd við breytingu á 27.gr. laganna varðandi heimild til að vísa ágreiningi um breytingar á svæðisskipulagi til bindandi úrskurðar ráðherra. Að mati framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar er með þessu ákvæði verið að skerða skipulagsvald sveitarfélaga og óljóst í hvaða tilvikum eða á hvaða hátt vísa skuli ágreiningi til ráðherra.
- Gerð er athugasemd við breytingu á 40.gr. laganna þar sem kveðið er á um að sveitarstjórn skuli senda tillögu að deiliskipulagi til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) til athugunar áður en tillaga er auglýst, en að HMS geti jafnframt ákveðið að taka deiliskipulagstillögu til athugundar að lokinni auglýsingu ef stofnunin metur það svo. Að mati framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar er umrædd breyting ekki til þess fallin að flýta fyrir afgreiðslu umfangsmeiri skipulagsmála sem kalla á mismunandi sjónarmið íbúa og þar með fjölda athugasemda. Málsmeðferð slíkra mála yrði seinkað umtalsvert ef athugun HMS færi fram fyrir auglýsingu og svo aftur að henni lokinni. Þá er jafnframt óljóst hver yrði raunverulegur afgreiðslufrestur HMS þar sem tilgreindur þriggja vikna frestur er skýrður sem meginregla. Reynsla sveitarfélagsins hefur hinsvegar verið sú að verkefnaálag HMS leiði oft á tíðum til lengri afgreiðslufrests frá stofnuninni heldur en þess sem tilgreindur er í skipulagslögum.
Að öðru leyti fagnar framkvæmdaráð Dalvíkurbyggðar tímabærri endurskoðun á skipulagslögum"
Til máls tók:
Katrín Sif Ingvarsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir ofangreinda umsögn framkvæmdaráðs Dalvíkurbyggðar.
15.
Frá 1199. fundi byggðaráðs þann 29.10.2026; Loftbrú - nýtt fyrirkomulag
Málsnúmer 202610110
Á 1199. fundi byggðaráðs þann 29. október sl. var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir fréttatilkynning frá Innviðaráðuneytinu, dagsett þann 23. október sl., þar sem fram kemur að ákveðið hefur verið að taka upp nýtt fyrirkomulag vegna afsláttarkóða Loftbrúar frá og með næstu áramótum. Afsláttarkóðar verða framvegis bundnir við fasta krónutölu í stað þess að vera prósentutala af fargjaldi (40%). Upphæðin verður 7.000 kr. fyrir hvern fluglegg eða 14.000 kr. fyrir ferð fram og til baka. Engar aðrar breytingar eru gerðar á Loftbrú. Íbúar landsbyggðarinnar með lögheimili innan sama skilgreinda svæðis eiga því áfram kost á lægri flugfargjöldum til og frá höfuðborgarsvæðinu. Einstaklingar munu einnig áfram geta nýtt afsláttarkóða í alls sex flugleggjum.
Niðurstaða : Byggðaráð Dalvíkurbyggðar lýsir yfir þungum áhyggjum af þeim breytingum sem boðaðar hafa verið á Loftbrú og áhrifum kílómetragjalds á íbúa landsbyggðarinnar.
Íbúar Dalvíkurbyggðar, líkt og aðrir íbúar landsbyggðarinnar, þurfa vegna búsetu sinnar að ferðast um langan veg, meðal annars til að sækja sérhæfða heilbrigðisþjónustu, ásamt því að stjórnsýsla er að stórum hluta staðsett á höfuðborgarsvæðinu. Aðgengi að hagkvæmum samgöngum er því mikilvæg forsenda jafnræðis íbúa og raunhæfs búsetufrelsis. Byggðaráð telur mikilvægt að horft sé heildstætt á kostnað íbúa vegna samgangna. Á sama tíma og kostnaður við akstur eykst með innleiðingu kílómetragjalds er óheppilegt að skerða stuðning við flugsamgöngur í gegnum Loftbrú. Saman geta slíkar breytingar aukið verulega kostnað þeirra sem búa fjarri höfuðborgarsvæðinu og þar með haft neikvæð áhrif á búsetuskilyrði og samkeppnishæfni landsbyggðarinnar.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar skorar á stjórnvöld að tryggja Loftbrú nægilegt fjármagn þannig að markmið úrræðisins um jöfnun ferðakostnaðar verði áfram tryggt og að fallið verði frá breytingum sem fela í sér verulega skerðingu á stuðningi við íbúa landsbyggðarinnar.
Jafnframt verði við framkvæmd og áframhaldandi þróun kílómetragjalds tekið sérstakt tillit til aðstæðna íbúa í dreifðum byggðum, þar sem langar akstursvegalengdir eru ekki val heldur óhjákvæmilegur fylgifiskur búsetu og aðgengis að þjónustu.
Byggðaráð leggur áherslu á að breytingar á opinberum gjöldum og stuðningskerfum sem hafa mismunandi áhrif eftir búsetu verði metnar með tilliti til byggðasjónarmiða og jafnræðis íbúa landsins."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda bókun og ályktun byggðaráðs um Loftbrú.