Sveitarstjórn
390. fundur
12. maí 2026
kl.
16:15
-
17:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir
aðalmaður
Helgi Einarsson
aðalmaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1181; frá 30.04.2026
Fundargerðin er í 12 liðum.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202603083.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202604009.Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202510004.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1182; frá 07.05.2026
Fundargerðin er í 15 liðum.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202602143.Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202602141.Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202603083.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202501076.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202605046.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202601036.Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202512031.Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202605002.Liður 15 er sér mál á dagskrá; mál 202602033.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
3.
Framkvæmdaráð - 2; frá 28.04.2026
Fundargerðin er í 9 liðum.Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202409139.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202604064.Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202401136.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
4.
Ungmennaráð - 49; frá 16.04.2026
Fundargerðin er í 4 liðum.Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
5.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 156; frá 06.05.2026
Fundargerðin er í 7 liðum.Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202501060.
Enginn tók til máls um fundargerðina og hún lögð fram til kynningar.
6.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2025. Síðari umræða.
Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu og m.a. eftirfarandi bókað:"Helstu niðurstöður úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2026:Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 70.273.000.Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um kr. 274.465.000.Veltufé frá rekstri fyrir A- og B- hluta er kr. 479.217.000.Fjárfesting og framkvæmdir fyrir A- og B- hluta er kr. 658.467.000.Engin lán voru tekin á árinu. Afborganir lána fyrir A- og B- hluta var 124.248.000.Til máls tóku:Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum úr ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025.Helgi EinarssonFreyr AntonssonKristinn Bogi AntonssonFleiri tóku ekki til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2025 til síðari umræðu í sveitarstjórn þriðjudaginn 12.maí nk."Eftirfarandi gögn fylgdu fundarboði sveitarstjórnar:Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2025 ásamt sundurliðunarbók.Endurskoðunarskýrsla.Skýrsla um stjórnsýsluendurskoðun.Staðfestingarbréf stjórnenda.Ábyrgða- og skuldayfirlit 2025.
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2025 eins og hann liggur fyrir ásamt ábyrgða- og skuldbindingayfirliti og skýrslu endurskoðanda og staðfestir það með áritun sinni.

7.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"a) AuglýsingMeð fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að auglýsingu vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027.b) Timarammi.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 í samræmi við Samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar.Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir að tillaga um dagsetningar er varðar launaáætlun í júní/sumar eru með fyrirvara vegna innleiðingar á nýju launakerfi og launaáætlunarkerfi.a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að auglýsingu.Vísað til umfjöllunar og afgeiðslu sveitarstjórnar.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að tímaramma með þeim fyrirvara sem gert er grein fyrir hér að ofan.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. "
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að auglýsingu um fjárhagsáætlun 2027.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að tímaramma vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030 með þeim fyrirvara um gerð launaáætlunar sem kemur fram hér að ofan.

8.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Ísat kennsla í Krílakoti; a) 75% sérkennslustarf og b) viðauki #9
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var m.a. eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðráðs fylgdi erindi leikskólastjóra, dagsett þann 7. maí 2026, þar sem fram kemur að eftir skoðun á starfsmannahaldi næsta vetur þá sé svigrúm fyrir 75% stöðugildi innan þeirrar stöðugildaheimildar semskólinn hefur samkvæmt fjárhagsáætlun 2026. Óskað er því eftir heimild til að eyrnamerkja 75% stöðugildi sérkennslustarfi (viðbót) og því ekki er þörf á viðbótar fjárheimild vegna þessa.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi leikskólastjóra og veitir heimild fyrir því að ráðið verði í viðbótar 75% stöðugildi í sérkennslu með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti, frá og með 4. ágúst nk. eins og óskað er eftir í erindi leikskólastjóra.Viðauki vegna hækkunar á launaáætlun skólans að upphæð kr. 6.583.199, nr. 9 í fjárhagsáætlunarkerfi, fellur þá niður.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og veitir heimild fyrir því að ráðið verði í viðbótar 75% stöðugildi í sérkennslu með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti, frá og með 4. ágúst nk. eins og óskað er eftir í erindi leikskólastjóra. Viðauki vegna hækkunar á launaáætlun skólans að upphæð kr. 6.583.199, nr. 9 í fjárhagsáætlunarkerfi, fellur þá niður.

9.
Frá 1181. fundi byggðaráðs þann 30.04.20026; Viðauki #12
Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Bókað í trúnaðarmálabók.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauki nr. 12 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 4.031.052, þ.e. kr. 1.995.831 á deild 04140 og kr.2.035.321 á deild 04240. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 4.031.052 með þeirri skiptingu sem gert er grein fyrir hér á ofan á deildir 04140 og 04240.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

10.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026;viðaukabeiðni #22
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Bókað í trúnaðarmálabók.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæuðm ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 6.443.399.Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 6.443.399.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 22 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 6.443.399.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
11.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Golfklúbburinn Hamar - vallarstjóri - rekstrarstjóri; viðauki #23
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var m.a. eftirfarandi bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni að upphæð kr. 3.000.000 vegna styrks til Golfklúbbsins Hamars vegna ráðningar vallar- og rekstrarstjóra, viðauki 23 við fjárhagsáætlun 2026, vísað álið 06800-9145 í fjárhagsáætlun 2026.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tók:
Helgi Einarsson.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 23 við fjárhagsáætlun 2026 að upphæð kr. 3.000.000 á lið 06800-9145, vegna styrks til Golfklúbbsins Hamars vegna ráðningar vallar- og rekstrarstjóra félagsins. Ekki þarf að bregðast við viðaukanum þar sem svigrúm er innan fjárhagsramma deildar 06800.

12.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Hauganes flotbryggja, verknúmer HH005; viðauki #24
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 7.maí 2026, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr.9.403.710 vegna flotbryggju á Hauganesi. Á fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir að flotbryggja á Hauganesi verði lengd um 20 metra og gert ráð fyrir framlagi Dalvíkurbyggðar að upphæð kr. 4.600.000 sem er áætlaður hluti sveitarfélagsins og gert ráð fyrir að Vegagerðin /Hafnabótasjóður komi með framlag á móti. Á þessum tímapunkti er alls óvíst hvort að Hafnabótasjóður komi með framlag á móti með vísan í dóm sem féll í Landsrétti 30. október 2025 vegna farþegagjalds. Þar sem vorið er komið og það getur tekið allt að tvo mánuði þar til flotbryggjan verður uppsett eróskað eftir ofangreindum viðauka með þeirri von að Hafnabótasjóður komi að málumá seinni stigum.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 24 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 9.403.710 á lið 42200-11551, verkefni HH005.Byggðarað samþykkir jafnframt að viðaukanumverði mætt með lækkun á handbæru fé.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 24 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 9.403.710 á lið 42200-11551 vegna flotbryggju á Hauganesi.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.

13.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; viðaukabeiðni #25
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Bókað í trúnaðarmálabók.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr.25 að upphæð kr. 3.316.320 á lið 02570-9145.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 25 að upphæð kr. 3.316.320 á lið 02570-9152 (leiðrétting á lykli).
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 25 að upphæð kr. 3.316.320 á lið 02570-9152 (leiðrétting á lykli).
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
14.
Frá 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28.04.2026; Vinnuskóli Dalvíkurbyggðar - staða og framtíð
Á 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var samþykkt samhljóða að vísa tillögu Kristins Boga Antonssonar um að auglýst verði nokkur almenn sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Eigna- og framkvæmdadeild í sumar til umræðu í framkvæmdaráði.Á 1. fundi framkvæmdaráðs þann 15. apríl sl. var samþykkt að auglýsa störf fyrir 18 ára ungmenni í sumar laus til umsóknar skv. minnisblaði starfsmanna. Umrædd störf yrðu þá auglýst eins og störf fyrir 17 ára ungmenni og yrðustarfsmenn hluti af vinnuskólanum.Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var samþykkt að beina því til framkvæmdaráðs að taka til skoðunar hvort hægt sé að bæta 19 ára ungmennum við og auglýsa laus störf fyrir þau líka.Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir að lágmarksaldur fyrir flokkstjóra hjá Dalvíkurbyggð verði lækkaður úr 20 árum í 19 ár og störfin auglýst á nýjan leik fyrir sumarið 2026.Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir að lágmarksaldur fyrir flokkstjóra hjá Dalvíkurbyggð verði lækkaður úr 20 árum í 19 ár og störfin auglýst á nýjan leik fyrir sumarið 2026.

15.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Verbúðir - tilboð.
Á 1183. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Á 389. fundi sveitarstjórnar þann 21. apríl sl. var byggðaráði og hafnastjóra /sveitarstjóra falið að annast söluferlið á verbúðum í eigu Hafnasjóðs og koma með tillögur til sveitarstjórnar.Á fundinum var farið yfir þau tilboð sem liggja fyrir.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna því tilboði sem liggur fyrir þar sem það er of lágt.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Til máls tóku:
Forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu.
"Sveitarstjórn feli sveitarstjóra/hafnastjóra að taka verbúðir af söluskrá. Því er beint að nýrri sveitarstjórn að skoða með núverandi leigjendum að móta skýra leigu og viðhaldsáætlun þannig að rekstur verbúða geti orðið að mestu sjálfbær."
Helgi Einarsson.
Fleiri tóku ekki til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar fyrirliggjandi kauptilboði þar sem það er of lágt.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.

16.
Ósk um framlengingu á leigusamningi á jörðinni Hrísum
Á 1. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 30. september 2022 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram drög að framlengingu á leigusamningi.Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir að kynna framlögð samningsdrög fyrir ábúendum að Hrísum.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu drög að leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Önnu Baldvinu Jóhannesdóttur um hluta jarðarinnar HRÍSA, landnr. 151363. Leigutaki hefur rétt á leigu á umræddu landi til ársloka 2046 en þó er gagnkvæmur réttur til endurskoðunar þar á.
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan leigusamning um hluta jarðarinnar HRÍSA, landnr. 151363, eins og hann liggur fyrir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan leigusamning um hluta jarðarinnar HRÍSA, landnr. 151363, eins og hann liggur fyrir.
17.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Rekstur tjaldsvæðisins á Dalvík - samningur
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var m.a. eftirfarandi bókað:Dalvíkurbyggð óskaði eftir verðtilboði í rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík, sbr. auglýsing er birtist þann 19. mars sl. https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir-og-tilkynningar/verdtilbod-oskast-i-rekstur-a-tjaldstaedinu-a-dalvikTvö tilboð bárust en hvorug uppfylla þær kröfur sem gerðar voru um skil á fylgigögnum. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra, dagsett þann 30. apríl 2026, þar sem gert er grein fyrir málinu. Fram kemur að taka þarf afstöðu til þess hvort ganga eigi til samninga við annan hvorn tilboðsgjafanna eða auglýsa reksturinn aftur. Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til að gengið verði til samninga viðKnattspyrnudeild UMFS Dalvík um rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík."Deildarstjóri gerði grein fyrir vinnu á milli funda og á fundinum var farið yfir meðfylgjandi drög að samningi um rekstur á tjaldsvæðinu til 3ja ára. Knattspyrnudeild UMFS hefur fengið drögin til yfirlestrar.Helga Íris vék af fundi kl. 15:08.Niðurstaða : Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum meðfylgjandi samningsdrög eins og þau liggja fyrir, fyrir sitt leiti.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og samþykkir að gengið verði til samninga við Knattspyrnudeild UMFS Dalvík um rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi samningsdrög um rekstur á tjaldsvæðinu til 3ja ára, fyrir sitt leiti.

18.
Frá 156. fundi veitu- og hafnaráðs þann 06.05.2026; Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal - samningar
Á 156. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Á 154.fundi veitu- og hafnarráðs var eftirfarandi bókað:Verkefnastjóra þvert á svið er falið að uppfæra þá samninga sem eru í gildi á milli Dalvíkurbyggðar og ÍSOR og leggja fyrir næsta fund ráðsins.Á 155.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum samningum við Ísor ásamt yfirliti yfir þá samninga sem hafa verið gerðir undanfarin ár.Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Ísor ljúki sinni vinnu skv. þeim samningi um efnaeftirlit sem rann út í lok febrúar.Verkefnastjóra þvert á svið falið að leggja fyrir næsta fund drög að heildarsamningi við Ísor þar sem tekið er á vinnslueftirliti og almennri þjónustu og ráðgjöf.Með fundarboði fylgdu drög að samningum við ÍSORNiðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir meðfylgjandi drög að samningum við ÍSOR og vísar þeim til umræðu og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi samning á milli Hitaveitu Dalvíkur og ÍSOR um vinnslueftirlit með vinnslusvæðunum á Hamri og Brimnesborgum. Samningstíminn er 1. júní 2026 og til og með 31.desember 2029. Samningsfjárhæðin er áætluð kr. 10.931.848 án vsk.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi samning á milli Hitaveitu Dalvíkur og ÍSOR um jarðhitaráðgjöf 2026-2029. Samningstíminn er 1. maí sl. og til og með 31. desember 2029. Samningsfjárhæðin er áætluð kr. 6.077.760 án vsk.
c) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi samning á milli Hitaveitu Dalvíkur og ÍSOR um forðafræði jarhitakerfisins á Hamri. Samningstíminn er 1. júní 2026 og til og með 30. september 2026. Samningsfjárhæðin er áætluð kr. 1.898.844 án vsk.

19.
Frá 1182. fundi byggðaráðs þann 07.05.2026; Útboð á snjómokstri og hálkuvörnum 2026-2029 - útboðsgögn.
Á 1182. fundi byggðaráðs þann 7. maí sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdardeildar, kl.14:43.Á 388. fundi sveitarstjórnar þann 17. mars sl. var eftirfarandi bókað:Á 41. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 13. mars sl. var eftirfarandi bókað:Fyrir fundinum lá minnisblað Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem farið var yfir stöðu á útboði snjómoksturs og hálkuvarna 2026-2029. Búið er að semja við ráðgjafa vegna vinnu við útboðið og stefnt áauglýsingu í apríl.Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð samþykkir framlagða tillögu deildarstjóra um að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin út sérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes hins vegar. Þetta fyrirkomulag hefur verið á þjónustunni undanfarin ár og gefist vel.Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.Niðurstaða : Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og samþykkir að útboð snjómoksturs og hálkuvarna verði tvískipt, þannig að þjónustan fyrir Dalvík verði boðin útsérstaklega og þjónustan fyrir Árskógssand og Hauganes hins vegar. Snjómokstur og hálkuvarnir í framdölum Svarfaðar- og Skíðadals verði áfram utan útboðs og sama verklag verði áfram viðhaft - þ.e. að sveitarfélagið gangiinn í samning Vegagerðarinnar."Deildarstjóri kynnti drög að útboðsgögnum varðandi ofangreint útboð.Niðurstaða : Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi að útboðsgögn."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi útboðsgögn.
Deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar er falið að koma útboðinu í auglýsingu sem fyrst.

20.
Frá 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28.04.2026; Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag
Á 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi hesthúsasvæðis í Hringsholti, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir framlagða tillögu á vinnslustigi og að hún verði kynnt skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

21.
Frá 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28.04.2026; Hríshöfði - umsókn um byggingarleyfi fyrir tengivirki
Á 2. fundi framkvæmdaráðs þann 28. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 15.apríl 2026 þar sem Landsnet sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við spennistöð í Hríshöfða.Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir.Niðurstaða : Framkvæmdaráð samþykkir að áformin verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Höfða lóðar (L151842), Árgerðis og Friðlandsnefnd Svarfdæla.Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu framkvæmdaráðs og samþykkir að áform Landsnets um viðbyggingu við spennistöð í Hríshöfða verði grenndarkynnt skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Höfða lóðar (L151842), Árgerðis og Friðlandsnefnd Svarfdæla.

22.
Frá 1181. fundi byggðaráðs þann 30.04.2026; Endurskoðun byggðaáætlunar - opið samráð
Á 1181. fundi byggðaráðs þann 30. apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekinn fyrir rafpóstur frá SSNE, dagsettur þann 10. apríl sl. þar sem sveitarfélögin innan SSNE eru hvött til að taka meðfylgjandi vinnuskjal aðgerðaáætlunar Byggðaáætlunar til skoðunar með sveitarstjórnum:https://www.byggdastofnun.is/static/files/Byggdaaetlun2022- 2036/hvitbok_vinnuskjal_31.03.2026.pdfNiðurstaða : Vísað til umföllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar"
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
23.
Frá stjórn Dalbæjar; Fundargerðir 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Dalbæjar frá 21. apríl sl., fundur #4 á árinu.
Lagt fram til kynningar.
24.
Frá 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí 2026; Samningur um samstarf sundlauga Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar
Á 2. fundi fjölskylduráðs þann 12. maí 2026 var eftirfarandi bókað:"Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi Dalvíkurbyggðar fer yfir samning og næstu skref rædd.Fjölskylduráð samþykkir með fimm atkvæðum að rifta samningi við Fjallabyggð þar sem að mikill mismunur er á gjaldskrá milli sveitarfélaga. Vilji er til að endurkoða samninginn síðar ef forsendur breytast."
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir riftun á samningi á milli Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um samstarf sundlauga sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fjölskylduráðs og samþykkir riftun á samningi á milli Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um samstarf sundlauga sveitarfélaganna.
25.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðaukabeiðni, viðauka nr. 26 við fjárhagsáætlun 2026, að upphæð kr. 10.342.425 með þeirri sundurliðun á deildir sem gert er grein fyrir í trúnaðarmálabók.Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.