Fara í efni

Sveitarstjórn

379. fundur
15. apríl 2025 kl. 16:15 - 18:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Freyr Antonsson aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Lilja Guðnadóttir aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir aðalmaður
Helgi Einarsson aðalmaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1143; frá 27.03.2025
Málsnúmer 2503010F
Fundargerðin er í 14 liðum.Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202503092.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202503120.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202503084.Liður 8 er sér mál á dagskrá; mál 202502101.Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202503115.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 1144; frá 10.04.2025.
Málsnúmer 2504003F
Fundargerðin er í 28 liðum.Liður 1 er er mál á dagskrá; mál 202411016.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202503113. ViðaukabeiðniLiður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202502114Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202501152Liður 8 er sér mál á dagsrká; mál 202402137Liður 9 er sér mál á dagskrá; mál 202303137Liður 10 er sér mál á dagskrá; mál 202501089Liður 11 er sér mál á dagskrá; mál 202501030Liður 12 er sér mál á dagskrá; mál 202504010Liður 15 er sér mál á dagskrá; mál 202403046Liður 16 er sér mál á dagskrá; mál 202110061Liður 23 er sér mál á dagskrá; mál 202504009
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
3.
Félagsmálaráð - 285; frá 08.04.2025
Málsnúmer 2503004F
Fundargerðin er í 10 liðum.Liður 8 er sér mál á dagskrá: mál 202503048.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fræðsluráð - 304; frá 09.04.2025
Málsnúmer 2504001F
Fundargerðin er í 9 liðum.Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 202501044.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202502144.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
5.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 172; frá 01.04.2025
Málsnúmer 2503013F
Fundargerðin er í 8 liðum.Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202501152 (byggðaráð).Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202412040.Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202502114 (byggðaráð).
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
6.
Skipulagsráð - 33; frá 09.04.2025
Málsnúmer 2504002F
Fundargerðin er í 21 lið.Liður 1 er sér mál á dagskrá; mál 202504008.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202406093.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202504020.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202404098.Liður 15 er sér mál á dagskrá; mál 202504021.Liður 21 er sér mál á dagskrá; mál 202504027.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
7.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 45; frá 04.04.2025
Málsnúmer 2503008F
Fundargerðin er í 7 liðum.Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
8.
Umhverfis- og dreifbýlisráð - 31; frá 11.04.2025
Málsnúmer 2504004F
Fundargerðin er í 8 liðum.Liður 4 er sér mál á dagskrá; mál 202504021.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202504028.Liður 7 er sér mál á dagskrá; mál 202503121.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
9.
Ungmennaráð - 46; frá 25.03.2025
Málsnúmer 2503009F
Fundargerðin er í 3 liðum.Ekkert þarfnast afgreiðslu.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 146; frá 02.04.2025
Málsnúmer 2503012F
Fundargerðin er í 8 liðum.Liður 2 er sér mál á dagskrá; mál 202503119.Liður 3 er sér mál á dagskrá; mál 201303116.Liður 5 er sér mál á dagskrá; mál 202503146.Liður 6 er sér mál á dagskrá; mál 202406129.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
11.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2024. Fyrri umræða.
Málsnúmer 202411016
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Þorsteinn G. Þorsteinsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, sviðsstjórarnir Eyrún Rafnsdóttir og Gísli Bjarnason, og aðalmenn í Gunnar Kristinn Guðmundsson, Monika Margrét Stefánsdóttir og Freyr Antonsson sem tók þátt í fundinum í gegnum TEAMS, kl. 13:15.Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2024.Þorsteinn G. Þorsteinsson, endurskoðandi fór yfir helstu niðurstöður ársreikningsins.Til umræðu ofangreint.Þorsteinn, Eyrún, Gunnar Kristinn, Monika viku af fundi kl. 14:09.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa fyrirliggjandi ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2024 til fyrri umræðu í sveitarstjórn."Helstu niðurstöður:Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B- hluta er jákvæð um kr. 282.220.000.Rekstrarniðurstaða A-hluta (Aðalsjóður og Eignasjóður) er jákvæð um kr. 163.567.000.Fjárfestingar samstæðu A- og B-hluta voru kr. 563.476.000.Lántaka var kr. 0 og afborganir langtímalána samstæðu A- og B- hluta voru kr. 104.890.000.Handbært fé frá rekstri samstæðu A- og B- hluta var kr. 486.234.000 og veltufé frá rekstri fyrir samstæðuna var kr. 536.076.000.
Til máls tóku:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum.
Freyr Antonsson.
Lilja Guðnadóttir.
Gunnar Kristinn Guðmundsson.

Fleiri tóku ekki til máls:

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2024 til síðari umræðu í sveitarstjórn þriðjudaginn 13.maí nk.
12.
Frá 1143.fundi byggðaráðs þann 27.03.2025; Beiðni um viðauka vegna fjölgun rafmagnstengla og uppsetningu á hleðsludokkum í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202503120
Á 1143.fundi byggðaráðs þann 27.mars sl. var eftirfarandi bókað:"Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kom á fundinn undir þessum lið kl. 16:13.Tekið fyrir erindi frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, bréf dagsett þann 25. mars sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2025 vegna nauðsynlegrar fjölgunar á rafmagnstenglum og uppgetningu á hleðsludokkum auk vinnu við ídrátt raflagna í Dalvíkurskóla vegna breytinga á kennsluháttum.Á fjárhagsáætlun ársins 2025 er gert ráð fyrir kr. 33.400.000 í viðhald Dalvíkurskóla skv. viðhaldsáætlun. Hægt er að forgangsraða verkefninu og taka þá hluta árið 2025 og rest árið 2026.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 12 við fjárhagsáætlun 2025, að upphæð kr. 2.600.000 á lið 31160-4610 þannig að verkefnið verði klárað á árinu 2025. Byggðaráð samþykkir samhljóða að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun 2025, þannig að liður 31160-4610 hækki um kr. 2.600.000 og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
13.
Frá 1143.fundi byggðaráðs þann 27.03.2025; Samstarf sundlauga Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar
Málsnúmer 202503092
Á 1143.fundi byggðaráðs þann 27.mars sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá íþróttafulltrúa, dagsett þann 18. mars sl., þar sem fram kemur að sundlaugar í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð hafa haft með sér samstarf þegar loka þarf vegna framkvæmda á öðrum hvorum staðnum og þá fái korthafar með gild kort á þeim stað frítt á hinum staðnum. Lagt er til að sveitarfélögin geri með sér ótímabundinn samning um áframhaldandi samstarf á þessum nótum. Tilefni þessa erindis er að sundlaugin á Dalvík lokar 1. apríl nk. vegna framkvæmda sem er áætlað að taki 3 mánuði.Ofangreint erindi var tekið fyrir í bæjarráði Fjallabyggðar þann 21. mars sl. og var afgreiðsla Fjallabyggðar eftirfarandi:Bæjarráð samþykkir að veita korthöfum í sundlaug Dalvíkurbyggðar frítt í sund í sundlaugum Fjallabyggðar á meðan framkvæmdum stendur í sumar og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmáladeildar að ganga frá ótímabundnum samningi um áframhaldandi samstarf á þeim nótum.Gísli og Jón Stefán viku af fundi kl. 16:07.Byggðaráð samþykkir samhljóða ofangreint erindi íþróttafulltrúa með 3 atkvæðum og samþykkir að veita korthöfum í sundlaug Fjallabyggðar frítt í sund í sundlaug Dalvíkurbyggðar ef loka þarf vegna framkvæmda. Byggðaráð felur íþróttafulltrúa að vinna drög að samningi með deildarstjóra fræðslu-, frístunda og menningarmáladeildar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og felur íþróttafulltrúa Dalvíkurbyggðar að vinna drög að samningi með deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmáladeildar Fjallabyggðar.
14.
Frá 1143.fundi byggðaráðs þann 27.03.2025; Ósk um viðauka vegna endurnýjunar á Pool borði í félagsmiðstöð
Málsnúmer 202502101
Á 1143.fundi byggðaráðs var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Frístundafulltrúa, dagsett þann 18. mars 2025, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 600.000 til að kaupa nýtt poolborð og billiardbúnað fyrir Félagsmiðstöðina. Núverandi borð er orðið ónýtt.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun 2025, að upphæð kr. 600.000, þannig að á lið 06310-2810 fari kr. 500.000 og á lið 06310-4180 fari kr. 100.000. Byggðaráð samþykkir að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 13 við fjárhagsáætlun 2025, þannig að á lið 06310-2810 fari kr. 500.000 og á lið 06310-4180 fari kr. 100.000.- og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
15.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Erindi skíðafélags vegna framkvæmdastyrks 2025
Málsnúmer 202503113
"Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:Undir þessum lið koma á fund byggðaráðs Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, kl. 14:10.Á 1143. fundi byggðaráðs þann 27. mars sl. var eftirfarandi bókað:Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Hörður Finnbogason, framkvæmdastjóri Skíðafélags Dalvíkur, Jón Stefán Jónsson, íþróttafulltrúi, og Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs,kl. 15:00.Með fundarboð byggðaráðs fylgdi greinargerð framkvæmdastjóra Skíðafélagsins um helstu verkþætti, stöðu framkvæmda og stöðu fjármála vegna aðstöðuhúss Skíðafélags Dalvíkur sem er í byggingu.Til umræðu ofangreint.Styrkur sveitarfélagsins til Skíðafélagsins með hönnunarkostnaði frá árinu 2023 eru kr. 158.000.000.Hörður vék af fundi kl. 15:30.Frekari umfjöllun og afgreiðslu frestað.Með fundarboði fylgdi minnisblað íþróttafulltrúa, dagsett þann 7. apríl sl., þar sem íþróttafulltrúi leggur til að fjármagn, kr. 20.500.000, sem er eyrnamerkt í fjárfestingastyrk til Skíðafélagsins á árinu 2026 í þriggja ára áætlun sveitarfélagsins verði fært yfir á árið 2025 þar sem framkvæmdin er á undan áætlun.a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gerðar verði breytingar á fjárhagsáætlun 2025 og 2026 þannig að áætlaður styrkur ársins 2026 kr. 20.500.0000 verði flutt til ársins 2025. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela íþróttafulltrúa að útbúa viðaukabeiðni í samræmi við ofangreint fyrir fund sveitarstjórnar."Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi viðaukabeiðni frá íþróttafulltrúa.
Til máls tók:
Freyr Antonsson.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda ákvörðun byggðaráðs, að gerðar verði breytingar á fjárhagsáætlun 2025 og 2026 þannig að áætlaður styrkur ársins 2026 kr. 20.500.000 verði fluttur til ársins 2025.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 15 á fjárhagsáætlun 2025, þannig að liður 06800-9145 hækki um 20.500.000 og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
16.
Frá 172.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 01.04.2025 og 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Sumarnámskeið 2025
Málsnúmer 202501152
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Á 172. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 1. apríl sl. var eftirfarandi bókað:Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir, frístundafulltrúi kynnir stöðu verkefnisins og fer yfir gjaldskrá sumarnámskeiðanna 2025.Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir gjaldskrá sumarfrístundar 2025 með fimm atkvæðum. Frístundafulltrúa er þakkað fyrir góða framsetningu málsins. Málinu er vísað til umræðu inni í Byggðaráði."a) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að gjaldskrá sumarfrístundar 2025.b) Með fundarboði fylgdi jafnframt beiðni um viðauka vegna tilfærslu á launakostnaði á milli deilda 06500 og 04280, mismunur vegna útreiknings og hlutfalla er kr. 30.637.Óskað er eftir að kr. 544.361 fari af deild 06500- laun og kr. 574.998 fari á deild 06260-laun.Til umræðu ofangreint.Jóna Guðbjörg og Gísli viku af fundi kl. 15:03.a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda og meðfylgjandi tillögu að gjaldskrá vegna sumarfrístundar 2025. Visað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 14 við fjárhagáætlun 2025, þannig að kr. 544.361 fari af launakostnaði deildar 06500 og kr. 574.998 fari á launakostnaðar deildar 06260. Mismun kr. 30.637 er mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Til máls tók:
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögu að gjaldskrá vegna sumarfrístundar 2025.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 14 við fjárhagsáætlun 2025, þannig að kr. 544.361 fari af launakostnaði deildar 06500 og kr. 574.998 fari á launakostnaðar deildar 06260. Mismun að fjárhæð kr. 30.637 er mætt með lækkun á handbæru fé.
17.
Frá 172.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 01.04.2025 og 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Endurskoðun rekstrarsamnings UMFS vegna ÍB-korta
Málsnúmer 202502114
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Á 172. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 1. apríl sl. var eftirfarandi bókað:Íþróttafulltrúi fer yfir greinagerð sína um stöðu knattspyrnudeildar UMFS vegna ÍB-korta.Niðurstaða : Íþrótta- og æskulýðsráðs leggur til að breytingar verði gerðar á gjaldskrá. Boðið verði upp á ÍB-kort til þriggja mánaða, sex mánaða og tólf mánaða.Í greinargerð íþróttafulltrúa, dagsett þann 19. mars sl., kemur m.a. fram að nú um áramót tóku í gildi svokölluð ÍB-kort í Íþróttamiðstöðina, sem í rauninni eru sérstök kort en byggð á 65% afslætti af árskorti. Slíkt sé auðvitað mikil búbót fyrir flest íþróttafélög í plássinu en þó er því öfugt farið með Knattspyrnudeild UMFS sem sér nú fram á aukin fjárútlát (þar sem deildin hefur undanfarin ár haft frían aðgang að aðstöðunni). Fram kemur í greinargerðinni að athugasemdir hafa borist frá forsvarsmönnum meistraraflokka kvenna og karla í knattspyrnu vegna þessara breytinga.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að boðið verði einnig upp á ÍB-kort til þriggja mánaða og sex mánaða.Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að boðið verði upp á ÍB-kort til þriggja og sex mánaða.
18.
Frá 172.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 01.04.2025; Opnunartími Íþróttamiðstöðvar - sumar og vetraropnun
Málsnúmer 202412040
"Á 172.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs var eftirfarandi bókað:Iþróttafulltrúi kynnir hugmyndir um breyttan opnunartíma og vaktafyrirkomulag íþróttamiðstöðvar og starfsfólks hennar.Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á opnunartíma Íþróttamiðstöðvar frá og með 1.júlí 2025. Opnunartími verður endurskoðaður þegar marktækar aðgangstölur liggja fyrir."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu íþrótta- og æskulýsðráðs og tillögu að breyttum opnunartíma Íþróttamiðstöðvar frá og með 1.júlí 2025.
19.
Frá 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 02.04.2025; Verksamningur um efnaeftirlit með vinnslusvæðum Hitaveitu Dalvíkur
Málsnúmer 202503119
Á 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 2.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Frá ÍSORVeitu- og hafnaráð samþykkir framlagðan verksamning um efnaeftirlit með vinnslusvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs og samþykkir verksamning við ÍSOR.
20.
Frá 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 02.04.2025; Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Málsnúmer 202406129
Á 146.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:"Yfirhafnavörður fer yfir stöðuna á verkefninu.Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum að sótt verði um leyfi fyrir niðurrifi hafnarskúrs (F2155363) og gerð verði verðkönnun vegna niðurrifsins."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs að sótt verði um leyfi fyrir niðurrifi hafnaskúrs (F2155363) og er yfirhafnaverði falið að útbúa verðkönnun vegna verkefnisins.
21.
Frá 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 02.04.2025; Frá 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 02.04.2025; Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Málsnúmer 201303116
Á 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 2.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Niðurstaða lögmanns á yfirferð samnings kynnt.Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum að samningnum verði sagt upp við Frumherja. Hafin verði vinna við að setja upp eigin mæla frá Hitaveitu Dalvíkur."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs, að samningi við Frumherja verði sagt upp og hafin verði vinna við að setja upp eigin mæla frá Hitaveitu Dalvíkur.
22.
Frá 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 02.04.2025; Styrkur til kaupa á varmadælum vegna húshitunar.
Málsnúmer 202503146
Á 146.fundi veitu- og hafnaráðs þann 2.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Veitu- og hafnaráð samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að veittur verði 500.000kr styrkur vegna framkvæmda við varmadælur á lögbýlum þar sem föst búseta hefur verið í 6 mánuði. Styrkur er veittur vegna framkvæmda frá áramótum 2024/2025. Nánar er kveðið á um skilyrði í reglum um styrki vegna varmadæla í Dalvíkurbyggð. Styrkir verða greiddir af kostnaðarliði 47310-9110.Veitustjóra er falið að halda íbúafund sem fyrst fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar. Yfirskrift fundarins verður „varmadælur á mannamáli“. Á þeim fundi verður erindi sem útskýrir hvernig varmadælur virka, hvaða dælur henta best og við hvaða aðstæður, auk þess sem útskýrt verður hvaða styrkir eru í boði við framkvæmdir á varmadælum.Veitu og hafnaráð samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að styrkur vegna jöfnunar húshitunarkostnaðar sem hefur verið greiddur út í desember undanfarin ár, verði greiddur til lögbýla í síðasta skipti fyrir árið 2025 og styrkur vegna uppsetningu varmadælna komi í staðinn.Gunnar Kristinn Guðmundsson kemur aftur inn á fund kl: 09:21"
Til máls tók:
Gunnar Kristinn Guðmundsson sem lýsti yfir vanhæfi sínu við umfjöllun og afgreiðslu málsins og vék af fundi kl. 16:51.

a) Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að veita styrki allt að kr. 500.000.- til þeirra fasteignaeigenda í Dalvíkurbyggð, sem dreifikerfi hitaveitu nær ekki til og þar sem lögheimili hefur verið skráð í a.m.k. sex mánuði. Þá er það skilyrði að framkvæmdin hljóti styrk frá Orkustofnun.
b) Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að styrkur til jöfnunar húshitunarkostnaðar sem greiddur hefur verið í desember hvert ár, verði greiddur til lögbýla í síðasta skiptið í árslok 2026.
c) Sveitarstjórn felur veitustjóra að yfirfara drög að reglum um styrki vegna varmadælna og leggja fyrir veitu- og hafnaráð á fundi þess í maí og til umfjöllunar í sveitarstjorn þann 13.maí nk.


Gunnar Kristinn kom aftur til fundar kl. 16:54
23.
Frá 304.fundi fræðsluráðs þann 09.04.2025; Skóladagatal skólanna 2025 - 2026
Málsnúmer 202501044
Á 304.fundi fræðsluráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2025 - 2026 lögð fyrir fund til samþykktar.Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026. Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum skóladagatal Árskógarskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026. Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum að taka skóladagatal Krílakots fyrir á næsta fundi hjá ráðinu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðsluráðs og samþykkir skóladagatöl Dalvíkurskóla og Árskógarskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026.
24.
Frá 304.fundi fræðsluráðs þann 09.04.2025; Vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202502144
Á 304.fundi fræðsluráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Farið yfir stöðuna á verkefninu.Fræðsluráð leggur til með fjórum atkvæðum að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og vinnuhópurinn taki líka til skólalóðar Árskógarskóla."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu fræðusluráðs að vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla verði útvíkkaður og taki einnig til skólalóðar við Árskógarskóla.
25.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Úrgangsmál innleiðing og útboð
Málsnúmer 202303137
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Helga Íris Ingólfsdóttir, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar, kl. 15:24, Óðinn Steinsson verkefnastjóri þvert á svið sat fundinn undir þessum lið. Með fundarboði fylgdi minnisblað um niðurstöðu útboðs úrgangsþjónustu, dagsett þann 7. apríl sl., þar sem gert er grein fyrir að tvö tilboð bárust í úrgangsþjónustu fyrir Dalvíkurbyggðar 2025-2028, annað frá Íslenska gámafélaginu ehf og hitt frá Terra Umhverfisþjónustu hf. Eftir yfrferð og samanburð tilboðs þá er það mat umsjónaraðila útboðsins, Consensa, deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar og verkefnastjóra þvert á svið að leggja til að gengið verði til samninga við þann bjóðanda sem er með lægra tilboð sem er Terra umhverfisþjónusta hf."Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við Terra Umhverfisþjónustu hf. um sorphirðu í Dalvíkurbyggð til næstu þriggja ára á grundvelli tilboð þeirra. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að gengið verði til samninga við Terra Umhverfisþjónustu hf. um sorphirðu í Dalvíkurbyggð til næstu þriggja ára á grundvelli tilboðs þeirra, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum í eitt ár í senn.
26.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Umhirða opinna svæða - Útboð og gerð þjónustusamnings 2025
Málsnúmer 202501030
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Á 29. fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 7. febrúar sl. var eftirfarandi bókað: "Farið yfir lokadrög að verðkönnun vegna umhirðu opinna svæða í Dalvíkurbyggð. Búið var að breyta uppsetningu verðkönnunargagnanna frá fyrri fundi og endurmeta stærð umhirðusvæðanna og flokkun þeirra. Niðurstaða : Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að verðkönnun. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum." Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 7. apríl sl. þar sem gert er grein fyrir niðurstöðu verðfyrirspurnar í umhirðu opinna svæða í Dalvíkurbyggð 2025-2028. Fjögur tilboð bárust frá: EB ehf. GÞ verktakar ehf. Hannes Ingi Sigurðsson. Leó verktaki ehf. Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar leggur til að samið verði við lægstbjóðanda til næstu þriggja ára sem er EB ehf.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að gengið verði til samninga við EB ehf. á grundvelli tilboðsins fyrir tímabilið 1. maí 2025 til og með 31. október 2028 skv. verðkönnunargögnum. Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis."
Til máls tók:
Lilja Guðnadóttir sem lýsir yfir vanhæfi sínu við umfjöllun og afgreiðslu þessa máls og tveggja næstu á dagskrá og vék af fundi kl. 16:55.

Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að gengið verði til samninga við EB ehf. um umhirðu opinna svæða til næstu þriggja ára á grundvelli tilboðs þeirra, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum í eitt ár í senn.
27.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Gatnahreinsun í Dalvíkurbyggð 2025 - 2028
Málsnúmer 202504010
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir minnisblað frá deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 7. apríl sl., þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum úr verðfyrirspurn í gatnahreinsun. Sex tilboð bárust frá: Dalverk ehf. EB ehf., Hreinsitækni ehf. Sigvaldi og synir ehf. Steypustöðin Dalvík ehf. Verkval ehf. Deildarstjóri leggur til að samið verði við lægstbjóðanda til næstu þriggja ára sem er Hreinsitækni ehf.Bygggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að gengið verði til samninga við Hreinsitækni ehf. til næstu þriggja ára um framkvæmd gatnahreinsunar í Dalvíkurbyggð. Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að gengið verði til samninga við Hreinsitækni ehf.við framkvæmd gatnahreinsunar í Dalvíkurbyggð, til næstu þriggja ára, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum í eitt ár í senn.
28.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Rekstur tjaldsvæðis á Dalvík
Málsnúmer 202501089
Á 377.fundi sveitarstjórnar þann 18.febrúar sl. var eftirfarandi bókað:"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og lokadrög vegna verðfyrirspurnar um rekstur tjaldsvæðis á Dalvík."Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar, dagsett þann 24. mars sl., þar sem gert er grein fyrir niðurstöðum úr verðfyrirspurn vegna tjaldsvæðisins á Dalvík. Tvö tilboð bárust; frá Draumablá ehf. og frá EB ehf. Eftir yfirferð og skoðun tilboða er lagt til að gengið verði til samninga við Draumablá ehf. um rekstur á tjaldsvæðinu á Dalvík frá 15. apríl 2025 til 1. október 2027.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að gengið verði til samninga við Draumablá. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn. Lilja Guðnadóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis."
Til máls tók:
Katrín Sif Ingvarsdóttir lýsir yfir vanhæfi sínu við umfjöllun og afgreiðslu málsins og vék af fundi kl. 16:58

Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að gengið verði til samninga við Draumablá ehf. frá 15.apríl 2025 til 1.október 2027, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum í eitt ár í senn.

Lilja Guðnadóttir og Katrín Sif Ingvarsdóttir komu aftur til fundar kl. 17:00
29.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Vinnuhópur um brunamál; húsnæðismál slökkvistöðvar.
Málsnúmer 202110061
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi gögn: a)Fundargerð vinnuhóps um brunamál frá 25.03.2025.Fundur haldinn í kjölfar afgreiðslu skipulagsráðs á 32.fundi sínum þann 12.mars sl., þar sem ráðið hafnaði framlögðum tillögum vinnuhópsins að staðsetningu slökkvistöðvar. Sveitarstjórn tók málið fyrir á 378.fundi sínum þann 18.mars og samþykkti samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu forseta sveitarstjórnar að fela sveitarstjóra að boða vinnuhóp um brunamál og skipulagsráð til þessa fundar og ræða næstu skref. Niðurstaða fundar er að engin af þeim 3 lóðum sem vinnuhópurinn lagði til urði fyrir valinu heldur sé Gunnarsbraut 10b fyrsti valkostur. Sveitarstjóra var falið að boða eigendur að Gunnarsbraut 10 B til fundar og hefja viðræður um möguleg kaup á lóðinni. b) Fundargerð Faglausna frá 7. apríl sl. þar sem mættir voru Almar Eggertsson og Hermann Herbertsson frá Faglausnum ehf, Ottó Biering Ottósson frá EGÓ hús ehf. fyrir hönd lóðarhafa og sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar. c) Erindi frá EGÓ húsum ehf. dagsett þann 8. april 2025 þar sem fram kemur að EGÓ hús er tilbúið að ganga til viðræðna um a) söluverð lóðar eins og hún er núna sem og b) söluverð húss."
Til máls tóku:
Freyr Antonsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar tilboði EGÓ húsa ehf. í heild sinni, það er í lóðina Gunnarsbraut 10B og óbyggt hús á lóðinni.
30.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Byggðasafnið Hvoll- Karlsrauðatorg 6 - sala
Málsnúmer 202403046
Á 1144. fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi kauptilboð í fasteignina við Karlsrauðatorg 6, dagsett þann 6. apríl 2025, frá Sumardalur ehf.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að ofangreindu kauptilboði í fasteignina við Karalsrauðatorg 6 verði tekið."
Enginn tók til máls

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs að kauptilboði í fasteignina við Karlsrauðatorg 6 verði tekið.
31.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um veiðigjald - umsögn Dalvíkurbyggðar.
Málsnúmer 202503145
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi umsögn sveitarstjóra fyrir hönd Dalvíkurbyggðar vegna frumvarps um breytingar á lögum um veiðigjald.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að umsögn frá Dalvíkurbyggð."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og umsögn Dalvíkurbyggðar um drög að breytingum á lögum um veiðigjald.
32.
Frá 1143.fundi byggðaráðs þann 27.03.2025; Sameining heilsugæslustöðvanna á Dalvík og í Fjallabyggð
Málsnúmer 202503115
Á 1143.fundi byggðaráðs þann 27.mars sl. var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi: a) Fréttatilkynning um sameiningu heilsugæslustöðvanna á Dalvík og í Fjallabyggð frá 19. mars sl. b) Tölvupóstur frá bæjarstjóra Fjallabyggðar, dagsettur þann 21. mars sl., þar sem upplýst er um eftirfarandi bókun bæjarráðs Fjallabyggaðr um ofangreint: "Fyrir liggur fréttatilkynning frá Heilbrigðisstofnun Norðurlands þar sem fram kemur að heilsugæslustöð HSN á Dalvík og starfsstöðu HSN í Fjallabyggð verði sameinaðar frá og með 1.september n.k. Í tilkynningunni kemur fram að megintilgangurinn með sameiningunni sé að búa til öflugri einingu sem auðveldar að manna stöður fagfólks. Þá auki stærri rekstrareining sveigjanleika í starfseminni með flæði starfsfólks á milli starfsstöðva í sveitarfélögunum tveimur. Einnig er sameiningunni ætlað að styðja við forsendur til teymisvinnu sem ætti að efla samvinnu og miðlun þekkingar meðal starfsfólks. Bæjarráð Fjallabyggðar leggur áherslu á að frekari upplýsingar fáist frá HSN varðandi sameininguna og að það verði tryggt að við fyrirhugaðar breytingar verði ekki um skerðingu þjónustu að ræða fyrir íbúa svæðisins.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að beina því til HSN varðandi sameininguna að það verði tryggt að fyrirhugaðar breytingar skerði ekki þjónustu og öryggi íbúa svæðisins. Byggðaráð óskar jafnframt eftir því að sveitarfélagið fái upplýsingar frá HSN um gang mála og hvernig til hefur tekist varðandi sameininguna."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum og ítrekar ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og beinir því til HSN varðandi sameininguna að það verði tryggt að fyrirhugaðar breytingar skerði ekki þjónustu og öryggi íbúa svæðisins. Sveitarstjórn óskar jafnframt eftir því að sveitarfélagið fái upplýsingar frá HSN um gang mála og hvernig til hefur tekist varðandi sameininguna.
33.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025; Laxós - breyting á aðalskipulagi vegna vatnsöflunar
Málsnúmer 202406093
Á 33f.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:Lögð fram tillaga á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um vatnstökusvæði á áreyrum Þorvaldsdalsár og vatnslagnar að lóð nr. 31 við Öldugötu á Árskógssandi.Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu á vinnslustigi og að tillagan verði kynnt skv. 2.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tók:
Freyr Antonsson sem lagði fram eftirfarandi tillögu. Sveitarstjórn frestar afgreiðslu málsins.

Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
34.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025; Laxós - umsókn um úthlutun lands og breytingu á aðalskipulagi
Málsnúmer 202504008
Á 33.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 28.mars 2025 þar sem Laxós ehf. sækir um úthlutun á 14,5 ha landsvæði norðan við Hauganes fyrir uppbyggingu á stórseiða- og matfiskastöðvum fyrir laxeldi. Samhliða er óskað eftir breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 fyrir framkvæmdina. Meðfylgjandi eru skýringaruppdrættir.Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún heimili umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið. Þá leggur skipulagsráð til við sveitarstjórn að umræddu landsvæði verði úthlutað til Laxóss ehf. án undangenginnar auglýsingar og að loknum skipulagsbreytingum, í samræmi við gr. 6.4 í reglum um úthlutun lóða í Dalvíkurbyggð. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls:

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs og heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs að umræddu landsvæði verði úthlutað til Laxóss ehf. án undangenginnar auglýsingar og að loknum skipulagsbreytingum, í samræmi við gr. 6.4 í reglum um úthlutun lóða í Dalvíkurbyggð.
35.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025; Deiliskipulag við Dalbæ og Karlsrauðatorg
Málsnúmer 202404098
Á 33.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Auglýsingu tillögu að breytingu á deiliskipulagi íbúðasvæðis við Kirkjuveg lauk þann 10.mars sl. Umsagnir bárust frá slökkviliði Dalvíkurbyggðar, Rarik, Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra og Vegagerðinni. Sex athugasemdir bárust og eru þær lagðar fram ásamt tillögu að svari við efni athugasemda. Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.mars sl. og var afgreiðslu frestað.Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Kirkjuveg skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu: - Á lóð nr. 17 við Karlsrauðatorg verður heimilt að reisa 4-6 íbúðir á 1-2 hæðum. - Lóð nr. 1,3,5,7 við A-götu verður felld út af deiliskipulagsuppdrætti. - Lóð Dalbæjar verður skipt í tvær lóðir. - A-gata lengist niður að lóð Dalbæjar. Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að tillagan verði auglýst skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs og samþykkir breytingu á deiliskipulagi íbúðarsvæðis við Kirkjuveg skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu: Á lóð nr. 17 við Karlsrauðatorg verður heimilt að reisa 4-6 íbúðir á 1-2 hæðum. Lóð nr. 1,3,5,7 við A-götu verður felld út af deiliskipulagsuppdrætti. Lóð Dalbæjar verður skipt í tvær lóðir. A-gata lengist niður að lóð Dalbæjar.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs og samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga.
36.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025; Ægisgata 31 Árskógssandi - fyrirspurn um uppbyggingaráform
Málsnúmer 202504020
Á 33.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Erindi dagsett 3.apríl 2025 þar sem Karl Sigfússon f.h. Hellings ehf. leggur fram tillögu að uppbyggingu ferðaþjónustu á lóð nr. 31 við Ægisgötu á Árskógssandi. Jafnframt er óskað eftir vilyrði fyrir úthlutun á lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu fyrir umrædda uppbyggingu. Meðfylgjandi eru afstöðumyndir.Skipulagsráð tekur jákvætt í erindið og heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið og jafnframt að lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar skv. gr. 6.4 í reglum um úthlutun lóða í Dalvíkurbyggð, að loknum skipulagsbreytingum. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs og samþykkir að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið og jafnframt að lóðum nr. 29 við Ægisgötu og 26 við Öldugötu verði úthlutað til umsækjanda án undangenginnar auglýsingar skv. gr. 6.4 í reglum um úthlutun lóða í Dalvíkurbyggð, að loknum skipulagsbreytingum.
37.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025; Vatnstankur við Upsa - umsókn um stækkun lóðar
Málsnúmer 202504027
Á 33.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl var eftirfarandi bókað:"Lögð fram umsókn Höllu Daggar Káradóttur f.h. veitna Dalvíkurbyggðar um stækkun lóðar undir vatnstank í landi Upsa. Stækkunin felur í sér breytingu á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Upsa og breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem landbúnaðarsvæði L1 er breytt í iðnaðarsvæði. Skipulagsráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið. Að mati skipulagsráðs er breytingin óveruleg skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Upsa til samræmis við erindið þegar breyting á aðalskipulagi hefur verið staðfest. Að mati skipulagsráðs er um óverulega breytingu á deiliskipulagi að ræða skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga og ekki er talin þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. laganna. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs að gerð verði breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 til samræmis við erindið og að breytingin sé óveruleg skv. 2.mgr. 36.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu skipulagsráðs að gerð verði breyting á deiliskipulagi frístunda- og iðnaðarsvæðis í landi Upsa til samræmis við erindið þegar breyting á aðalskipulagi hefur verið staðfest. Sveitarstjórn tekur undir það mat skipulagsráðs að um óverulega breytingu á deiliskipulagi sé að ræða skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga og því ekki talin þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. laganna.
38.
Frá 33.fundi skipulagsráðs þann 09.04.2025 og frá 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.04.2025; Sandskeið - umgengni og ásýnd svæðisins
Málsnúmer 202504021
Á 33.fundi skipulagsráðs þann 9.apríl sl. var eftirfarandi bókað: "Erindi dagsett 4.apríl 2025 þar sem Gunnþór E. Sveinbjörnsson leggur til að gerðar verði úrbætur í umgengni og ásýnd svæðisins við Sandskeið á Dalvík.Skipulagsráð vísar erindinu til vinnu við gerð nýs deiliskipulags fyrir Sandskeið. Skipulagsráð óskar eftir því að sveitarstjórn ræði ásýnd svæðisins og næstu skref. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Á 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Gunnþóri Sveinbjörnssyni dagsett 4. apríl 2025 þar sem hann óskar eftir að tekið verði á umgengni við Sandskeið.Umhverfis- og dreifbýlisráð tekur undir erindið. Ráðið felur deildarstjóra að halda áfram hreinsunarátaki á þessu svæði og fá Heilbrigðiseftirlitið og Byggingafulltrúa til að taka þátt. Lagt er til að komið verði á samstarfi við Hringrás um förgun á brotajárni og að sérstök áhersla verði lögð á umhverfið við Sandskeið. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tóku:
Freyr Antonsson.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir ofangreindar samþykktir skipulagsráðs og umhverfis- og dreifbýlisráðs og vinna áfram að málinu sem og að huga að umgengni um allt sveitarfélagið.
39.
Frá 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.04.2025; Netaveiði göngusilungs í sjó í Eyjafirði.
Málsnúmer 202503121
Á 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Fiskistofu, dagsett 13. mars 2025, sem sent er á alla eigendur sjávarjarða við Eyjafjörð. Stofnunin hefur hug á að setja á bann við netaveiði göngusilungs í sjó í Eyjafirði til ársins 2029 til að vernda bleikjustofna á vatnasvæðum í firðinum.Umhverfis- og dreifbýlisráð gerir ekki athugasemdir við fyrirhugað bann við netaveiði göngusilungs í sjó. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og gerir ekki athugasemdir við fyrirhugað bann við netaveiði göngusilungs í sjó.
40.
Frá 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.04.2025; Fjallgirðingamál 2025
Málsnúmer 202504028
Á 31.fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 11.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Farið yfir stöðu á fjallgirðingum og hvaða viðhald á að fara í núna í sumar.Umhverfis- og dreifbýlisráð leggur til að klárað verði að endurnýja nyrsta hluta fjallgirðingarinnar á Árskógsströnd og að haldið verði áfram við endurnýjun á fjallgirðingu ofan við Upsir og Svæði. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfis- og dreifbýlisráðs og leggur til að klárað verði að endurnýja nyrsta hluta fjallgirðingarinnar á Árskógsströnd og að haldið verði áfram við endurnýjun á fjallgirðingu ofan við Upsir og Svæði.
41.
Frá 285.fundi félagsmálaráðs þann 08.04.2025; Beiðni um fjárstyrk 2025, Grófinn Geðrækt.
Málsnúmer 202503048
Á 285.fundi félagsmálaráðs þann 8.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir rafpóstur frá Grófinni Geðrækt sem óskar eftir aðstoð nærsveitarfélaga til að brúa bilið í stórauknum kostnaði við húsaleigu eftir að hafa þurft að fara úr húsnæði sem hefur verið óviðunandi síðastliðin ár. Síðastliðið haust var staðfest að um myglu var að ræða með tilheyrandi áhrifum á margt starfsfólks og húsbúnað Grófarinnar sem að stórum hluta hefur nú verið hent. Kostnaður á nýja húsnæðinu er fjórfalt hærra en var í því gamla og því þörfin mikil fyrir aðstoð. Grófin Geðrækt hefur verið starfrækt af samnefndum félagasamtökum frá árinu 2013 og staðið þeim opin sem vilja nýta þjónustuna án endurgjalds og tilvísana. Grófin er eina opna geðræktarmiðstöðin utan Höfuðborgarsvæðisins og hefur aðsóknin verið vaxandi Árlega koma nú um 350-400 manns, fólk af öllu Eyjafjarðarsvæðinu, Norðurlandi og reyndar víðar af landinu, kringum 5500 heimsóknir á ári undanfarin ár, að meðaltali 24 á dag. Virkir þátttakendur eru 80-140 á mánuði, fer eftir árstíma. Það er von okkar að sveitarfélagið þitt taki erindi okkar fyrir og sjái sér fært að leggja Grófinni lið a.m.k.á þessu ári og aðstoða þannig við að brúa það bil sem húsnæðismálin hafa á fjárhag starfseminnar.Félagsmálaráð hafnar erindinu með fimm greiddum atkvæðum."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu félagsmálaráðs og hafnar umbeðinni styrkbeiðni frá Grófin geðrækt.
42.
Frá 1143.fundi byggðaráðs þann 27.03.2025; Víkingurinn 2025
Málsnúmer 202503084
Á 1143.fundi byggðaráðs þann 27.mars sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Félagi kraftamanna, dagsett þann 12. mars sl., þar sem fram kemur ósk um að Dalvíkurbyggð sjái sér fært að taka þátt í verkefninu Víkingurinn 2025 með styrk að upphæð kr. 250.000, einni máltíð, gistingu með aðgengi að sturtu og sundi. Ætlunin er að heimsækja 4 sveitarfélög og vera með 2 keppnisgreinar í hverju sveitarfélagi sem eru heimsótt.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna þátttöku."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og hafnar þátttöku í Víkingnum 2025.
43.
Frá 1144.fundi byggðaráðs þann 10.04.2025; Aðalfundur Landskerfis bókasafna 2025
Málsnúmer 202504014
Á 1144.fundi byggðaráðs þann 10.apríl sl. var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir aðalfundarboð frá Landskerfi bókasafna, dagsett þann 2 apríl sl., þar sem boðað er til aðalfundar 6. maí nk. kl. 14:00 í Reykjavík.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela forstöðumanni safna og menningarhúss að sækja fundinn ef hún hefur tök á og hægt er að nýta ferðina samhliða í önnur verkefni."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og felur forstöðumanni safna og menningarhúss að sækja fundinn ef hún hefur tök á og hægt er að nýta ferðina samhliða í önnur verkefni.
44.
Frá stjórn Dalbæjar; Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2024 frá 20.11.2024 og 11.12.2024.
Málsnúmer 202402083
Lagðar fram til kynningar fundargerði stjórnar Dalbæjar frá 20.nóvember og 11.desember 2024.
Enginn tók til máls.

Lagt fram til kynningar.
45.
Frá stjórn Dalbæjar; Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2025; frá 19.03.2025 og 10.04.2025.
Málsnúmer 202502107
Lagðar fram til kynningar fundargerði stjórnar Dalbæjar frá 19.mars og 10.apríl 2025.
Enginn tók til máls.

Lagt fram til kynningar.