Fara í efni

Sveitarstjórn

334. fundur
30. mars 2021 kl. 16:15 - 17:42
í fjarfundi
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir forseti
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 979
Málsnúmer 2103011F
Fundargerðin er í 27. liðum. Til afgreiðslu: 15., 16, og 17. liður Til afgreiðslu sem sér liðir á dagskrá: 1., 2., 5., 8., 12., 13. og 14. liður.Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 980
Málsnúmer 2103014F
Fundargerðin er í 7 liðum.Til afgreiðslu: 4. og 5. liður Til afgreiðslu sem sér liðir á dagskrá: 2., 3. og 7. liður.Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu og eru lagðir fram til kynningar.
3.
Fræðsluráð - 258
Málsnúmer 2103012F
Fundargerðin er einn dagskrárliður sem þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar.Til máls tóku Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, Katrín Sigurjónsdóttir og Þórhalla Karlsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
4.
Menningarráð - 85
Málsnúmer 2103010F
Fundargerðin er í 10 liðum. Enginn liður þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar.Enginn tók til máls.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
5.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 25
Málsnúmer 2103009F
Fundargerðin er í 8 liðum. 6. liður er til afgreiðslu. Aðrir liðir þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar og eru lagðir fram til kynningar.
6.
Lagfæringar í sundlaug Dalvíkur
Málsnúmer 202001007
Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 voru lagfæringar í Sundlaug Dalvíkur til umfjöllunar. Lagt var fram til kynningar minnisblað frá Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, Gísla Rúnari Gylfasyni, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og Þorsteini K. Björnssyni, sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs, þar sem gert var grein fyrir stöðu mála. Þeir sátu einnig fundinn til upplýsinga.a) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað, dagsett þann 23. mars 2021, þar sem velt er upp 3 valkostum vegna viðgerðar á sundlaugarkanti og sundlaugarstétt. Lagt er til að farið verði í valkost 1 (steinhellur).b) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að samkomulagi um uppgjör og frágang vegna framkvæmda við sundlaugina á Dalvík á milli Dalvíkurbyggðar og verktaka. Frekari grein fyrir samkomulaginu er bókað í trúnaðarmálabók.c) Minnisblað sveitarstjóra vegna fjarfundar 23. mars sl. með Rarik og Landsneti vegna kröfu sveitarfélagsins um bætur í kjölfar rafmagnsleyfis í óveðrinu í desember 2020 vegna frostskemmda. Sveitarstjóri og sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs gerðu grein fyrir fundinum.Eftirfarandi var bókað á fundi byggðaráðs og eru liðir a), b) og d) til afgreiðslu í sveitarstjórn:"a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum þá tillögu að valkostur 1 verði fyrir valinu.b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samkomulag.c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs og sveitarstjóra að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.d) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vinnuhópurinn um lagfæringar á Sundlaug Dalvíkur leggi fyrir byggðaráð ósk um viðauka við fjárhagsáætlun 2021 í samræmi við liði a) og b) hér að ofan."Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu byggðaráðs að valkostur 1 verði fyrir valinu.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi samkomulag.
d) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vinnuhópurinn um lagfæringar á Sundlaug Dalvíkur leggi fyrir byggðaráð ósk um viðauka við fjárhagsáætlun 2021 í samræmi við liði a) og b) hér að ofan.
7.
Stytting vinnuviku
Málsnúmer 202010063
Til máls tók Þórhalla Karlsdóttir, forseti sveitarstjórnar, sem lýsti sig vanhæfa við umfjöllun um 7. lið og vék af fundi kl. 16:40.1. varaforseti, Guðmundur St. Jónsson, tók því við stjórn fundarins. Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 var tekið fyrir erindi frá vinnutímanefnd á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar vegna styttingu vinnuvikunnar, dagsett þann 10. mars 2021 og var eftirfarandi bókað:"Byggðaráð mun ekki setja sig upp á móti fullri styttingu hjá dagvinnufólki, þ.e. í 36 stunda vinnuviku, svo framarlega sem útfærslan er innan kjarasamninga. Að baki liggi umbótasamtöl og útfærsla felld að mismunandi starfsemi á vinnustöðum. Núverandi frávik frá kjarasamningum verði felld inn í samkomulögin því það kemur ekki stytting ofan á styttingu. Ef tillaga um frekari styttingu eða breytt skipulag vinnutíma er samþykkt skal samkomulag þess efnis koma til sveitarstjórnar til staðfestingar og til innleiðingarhóps til upplýsinga.Byggðaráð ítrekar að sala neysluhléa er með þeim hætti sem kveðið er á um í kjarasamningum. Vísar byggðaráð til frekari skýringa í svar sem sent var vinnustaðanefndinni frá sveitarstjóra með tölvupósti þann 30. nóvember 2020. Þær skýringar eru enn í gildi. Sú túlkun var á þeim tíma borin undir Sambandið og tvö stéttarfélög án athugasemda. Byggðaráð ber fullt traust til starfsfólks nú sem áður, stytting vinnuviku breytir engu þar um. Hins vegar er sveitarfélagið Dalvíkurbyggð bundið að þeim kjarasamningum sem eru í gildi."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn staðfestir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda bókun byggðaráðs.

Þórhalla Karlsdóttir tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Þórhalla kom aftur inn á fundinn kl. 16:43 og tók við stjórn fundarins.
8.
Endurnýjun tölvubúnaðar 2021
Málsnúmer 202009041
Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 var tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 23. mars 2021, þar sem gerð er grein fyrir endurnýjun tölvubúnaðar 2021 skv. endurnýjunaráætlun og fjárhagsáætlun 2021 eftir verðkönnun sem fengið hefur umfjöllun og afgreiðslu í UT-teyminu. Til þess að hægt sé að ganga frá innkaupum, þá vantar enn, eftir tilfærslur og breytingar, kr. 130.469 upp á heimild til búnaðarkaupa sem skiptist niður á 3 svið. Lagt er til að stjórnendum viðkomandi málaflokka / deilda verði falið að finna svigrúm innan fjárhagsáætlunar fyrir þeim upphæðum sem vantar og að UT-teymi fái heimild til að ljúka við innkaupin samkvæmt fyrirliggjandi forsendum.Kr. 38.252 Félagsmálasvið.Kr. 78.145 á Fjármála- og stjórnsýslusvið.Kr. 14.075 á Framkvæmdasvið (áður UT-svið).Eftirfarandi var bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu og veitir UT-teymi heimild til að ganga frá innkaupunum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
9.
Ósk um viðbótarfjármagn vegna viðgerðar á snjótroðara
Málsnúmer 202102149
Á 332. fundi sveitarstjórnar þann 23. febrúar 2021 var samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun 2021 að upphæð kr. 4.964.881, styrkur til Skíðafélags Dalvíkur vegna bilunar á snjótroðara. Þar af var áætlaður flutningskostnaður kr. 1.000.000.Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 var tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 23. mars 2021, þar sem gert er grein fyrir rafpósti frá Skíðafélagi Dalvíkur með ósk um að fá að nýta ofangreindan viðauka til fulls vegna frekari bilunar á snjótroðara. Kostnaðurinn fyrir gírum með flutning var tæpar kr. 4.500.000. Sviðsstjóri leggur til Skíðafélag Dalvíkur fái styrkinn greiddan að fullu, þ.e. kr. 4.964.881.Eftirfarandi var bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu um að Skíðafélag Dalvíkur fá styrkinn greiddan til fulls."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
10.
Samningur við Norðurá bs endurskoðun 2021
Málsnúmer 202103108
Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 var tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður þar sem óskað er staðfestingar sveitarstjórnar á samningi Flokkunar Eyjafjarðar við Norðurá bs. vegna urðunar úrgangs. Stjórn Flokkunar hefur samþykkt samninginn fyrir sitt leyti.Eldri samningur rann út í lok árs 2020, en fyrirliggjandi samningur er nær samhljóða þeim eldri fyrir utan ákvæði í 7. gr. sem kveður á um möguleika á uppsögn samnings.Eftirfarandi var bókað:"Byggðaráð samþykkir samninginn samhljóða með 3 atkvæðum og vísar honum til sveitarstjórnar til umfjöllunar og afgreiðslu."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar staðfestir fyrir sitt leyti samning Flokkunar Eyjafjarðar við Norðurá bs. vegna urðunar úrgangs, samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum.
11.
Deiliskipulag þjóðvegarins í gegnum Dalvík
Málsnúmer 202011010
Á 979. fundi byggðaráðs þann 25. mars 2021 var ofangreint mál til umfjöllunar en málinu var vísað frá sveitarstjórn til byggðaráðs og sveitarstjóra til skoðunar vegna kostnaðaráhrifa á sveitarfélagið. Á fundinum var kynnt minnisblað sveitarstjóra frá 22. mars sl. þar sem fram kemur að kostnaður sveitarfélagsins er í formi gerðar deiliskipulags, helmingakostnaður á móti Vegagerðinni. Þegar kemur að framkvæmdum er kostnaðarskipting þannig að stígakerfið er sveitarfélagsins en kantsteinninn Vegagerðarinnar.Eftirfarandi var bókað:"Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að afgreiðsla umhverfisráðs um að velja valkost 1 til að setja fram í deiliskipulagi þjóðvegar í þéttbýli Dalvíkur verði staðfest."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs og byggðaráðs um að velja valkost 1.
12.
Frá 978. fundi byggðaráðs þann 11.03.2021; Beiðni um viðauka vegna veikinda - viðauki nr. 7
Málsnúmer 202103038
Tekin fyrir afgreiðsla byggðaráðs í trúnaðarmálabók, beiðni um viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2021 að upphæð kr. 2.152.533 við deild 09210 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé.Samþykkt í byggðaráði samhljóða með 3 atkvæðum.Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 7 með þeirri leiðréttingu að um er að ræða 100% stöðuhlutfall í 3 mánuði.
14.
Ósk um vilyrði fyrir lóð fyrir stofnframlagaverkefni
Málsnúmer 202103175
Til máls tók Jón Ingi Sveinsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu við umfjöllun um liði 14 og 15 á dagskránni og vék af fundi kl. 16:57.Á 980. fundi byggðaráðs þann 29. mars 2021 var tekið fyrir erindi frá Bæjartúni íbúðafélagi hses dagsett 23. mars 2021. Þar óskar Bæjartún eftir að Dalvíkurbyggð veiti vilyrði fyrir lóð á Dalvík fyrir stofnframlagaverkefni.Vilyrðið sé veitt með fyrirvara um samræmi við skipulag og að lóðir séu tækar til úthlutunar. Jafnframt með fyrirvara um samþykki stofnframlagaumsókna til HMS og sveitarfélagsins.Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa erindinu til umhverfisráðs með vísan í grein 3.4. í Lóðaveitingar í Dalvíkurbyggð.Byggðaráð vísar því til sveitarstjórnar að fela byggðaráði fullnaðarafgreiðslu á afgreiðslu umhverfisráðs vegna tímamarka.Jón Ingi Sveinsson greiðir ekki atkvæði vegna vanhæfis.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að vísa erindinu til umhverfisráðs með vísan í grein 3.4. í Lóðaveitingar í Dalvíkurbyggð.

Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum að fela byggðaráði fullnaðarafgreiðslu á afgreiðslu umhverfisráðs vegna tímamarka.

Jón Ingi Sveinsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
15.
Umsókn um stofnframlag vegna bygginga á 6 íbúðum
Málsnúmer 202103152
Á 980. fundi byggðaráðs þann 29. mars 2021 var tekin fyrir umsókn Bæjartúns íbúðafélags hses um stofnframlag til Dalvíkurbyggðar. Sótt er um vegna byggingar á sex íbúðum á Dalvík, annars vegar fyrir leigjendur undir tekju- og eignamörkum laganna og hins vegar fyrir skjólstæðinga félagsþjónustunnar.Alls er sótt um stofnframlag til Dalvíkurbyggðar fyrir 12% af áætluðu stofnvirði en Bæjartún hefur jafnframt sótt um stofnframlag til Ríkisins vegna sama verkefnis.Með umsókninni fylgdu upplýsingar og gögn í samræmi við reglur Dalvíkurbyggðar um stofnframlög.Með upplýsingum til byggðaráðs fylgdi minnisblað sveitarstjóra með rökstuðningi um að ofangreind skilyrði séu uppfyllt.Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að veita Bæjartúni íbúðafélagi hses stofnframlag fyrir 12% af áætluðu stofnvirði til byggingar sex íbúða á Dalvík. Forsenda fyrir veitingu stofnframlags Dalvíkurbyggðar er að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun veiti umsækjanda jafnframt stofnframlag ríkisins innan sex mánaða frá samþykki á umsókn um stofnframlag. Ákvörðun um veitingu stofnframlags Dalvíkurbyggðar fellur niður án tilkynningar ef þetta skilyrði er ekki uppfyllt.Byggðaráð leggur jafnframt til við sveitarstjórn að gerð verði krafa um endurgreiðslu stofnframlags sveitarfélagsins þannig að sveitarfélagið nýtir heimild sína til að binda veitingu stofnframlags skilyrði um að það verði endurgreitt þegar lán, tekin til að standa undir fjármögnun þeirra íbúða sem veitt hefur verið stofnframlag til, hafa verið greidd upp.Jón Ingi Sveinsson greiðir ekki atkvæði vegna vanhæfis.Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreindar afgreiðslur byggðaráðs um veitingu stofnframlags til Bæjartúns með fyrirvörum og um endurgreiðslu stofnframlags.

Jón Ingi Sveinsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Jón Ingi Sveinsson kom aftur inn á fundinn kl. 17:04.

Forseti gerði fundarhlé kl. 17:05 og sveitarstjórn fundaði afsíðis vegna ráðningamála.

Fundarhléi lauk kl. 17:29 og var sveitarstjórnarfundi fram haldið.
16.
Ráðning byggingar- og skipulagsfulltrúa
Málsnúmer 202103157
Á 980. fundi byggðaráðs þann 29. mars 2021 var eftirfarandi bókað:"Í lok febrúar sl. tilkynnti sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs að hann myndi ekki þiggja stöðu byggingar- og skipulagsfulltrúa hjá framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar. Því var staðan auglýst laus til umsóknar.Umsóknarfrestur rann út þann 20. mars sl. og barst ein umsókn frá Helgu Írisi Ingólfsdóttur, skipulags- og tæknifulltrúa.Sveitarstjóri og byggðaráð unnu að úrvinnslu og sátu viðtöl en Mögnum veitti faglega aðstoð í ferlinu.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að Helga Íris Ingólfsdóttir verði ráðin í starf byggingar- og skipulagsfulltrúa hjá Dalvíkurbyggð.Til að uppfylla kröfur laga um mannvirki þá er sveitarstjóra falið að kanna mögulegt samstarf við nágrannasveitarfélögin um verkefni byggingarfulltrúa."Til máls tóku Katrín Sigurjónsdóttir, Guðmundur St. Jónsson, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson og Þórhalla Karlsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að ráða Helgu Írisi Ingólfsdóttur í starf byggingar- og skipulagsfulltrúa hjá Dalvíkurbyggð.

Jafnframt samþykkir sveitarstjórn samhljóða að fela sveitarstjóra að kanna mögulegt samstarf við nágrannasveitarfélögin um verkefni byggingarfulltrúa, til að uppfylla kröfur laga um mannvirki.