Fara í efni

Sveitarstjórn

330. fundur
15. desember 2020 kl. 16:15 - 18:05
í fjarfundi
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson forseti
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Fundurinn var sendur út í fjarfundi í gegnum TEAMS en var opinn almenningi og sendur út í fundarsal á 3. hæð Ráðhússins fyrir áhugasama. Engar athugasemdir voru gerðar við fundarboðun. Um kl. 16:25 varð bilun í búnaði hjá Dalvíkurbyggð þannig að netsamband rofnaði og var gert hlé á fundinum í um 30 mínútur. Ekki var hægt að hafa lengur opna útsendingu í fundarsal á 3. hæð en engir áheyrendur mættu á fundinn.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 967, frá 26.11.2020
Málsnúmer 2011023F
Fundargerðin er í 9 liðum.Til afgreiðslu:3. liður c).Liðir 4 og 5 eru sér liðir á dagskrá.Enginn tók til mál um fundargerðina.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 968, frá 03.12.2020
Málsnúmer 2012001F
Fundargerðin er í 9 liðum.Til afgreiðslu:1. liður a.2.1. liður a.3.Liðir 3 og 4 eru sér liðir á dagskrá.Enginn tók til máls um fundargerðina.
2.1 Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024; á milli umræðna í sveitarstjórn
a) Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, og Steinþór Björnsson, deildarstjóri Eigna- og framkvæmdardeildar, í gegnum fjarfund TEAMS kl. 13:00.

a.1 Börkur Þór og Steinþór kynntu tillögur sínar að niðurskurði í fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024 fyrir umhverfis- og tæknisvið og Eignasjóð.
a.2. Börkur Þór og Steinþór lögðu fram beiðni um tilfærslur á milli deilda í málaflokki 31 vegna viðhalds Eignasjóðs samkvæmt fjárhags- og viðhaldsáætlunum 2020.
a.3. Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs gerði grein fyrir kostnaðaráætlun vegna áfanga 2 hvað varðar götulýsingu og óskar eftir heimild til að ráðstafa svigrúmi í áætlun ársins 2020 vegna endurnýjunar á lýsingu á skólalóðar Dalvíkurskóla og við Íþróttamiðstöð samkvæmt fyrirliggjandi kostnaðaráætlun frá Raftákni, samanber málsnúmer 201909134 frá 327. fundi sveitarstjórnar þann 15. september sl.

Börkur Þór og Steinþór viku af fundi kl. 14:02.

b) Tillögur sviðsstjóra vegna breytinga á fjárhagsáætlun á milli umræðna í sveitarstjórn.

Til umræðu tillögur sviðsstjóra að hagræðingu og niðurskurði í rekstri og fjárfestingum vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2023 að beiðni byggðaráðs.
a.1. Afgreiðslu frestað til næsta fundar byggðaráðs.
a.2. Byggðráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um tilfærslur á milli deilda í viðhaldsáætlun Eignasjóðs.
a.3. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um nýtingu fjárheimildar vegna götulýsingar 2020 í endurnýjun á lýsingu á skólalóð Dalvíkurskóla og við Íþróttamiðstöð. Á 327. fundi sveitarstjórnar þann 15. september var eftirfarandi bókað:
"201909134 - Sveitarstjórn - 327 (15.9.2020) - Framkvæmdir umhverfis- og tæknisviðs 2020
Til umræðu staða framkvæmda ársins 2020, undir þessum lið kom inn á fundinn Steinþór Björnsson, deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar kl. 08:15
Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sem leggur fram eftirfarandi tillögu.
"Sveitarstjórn samþykk tillögu umhverfisráðs, að verði svigrúm innan fjárhagsáætlunar að loknum áfanga eitt á endurnýjun götulýsingar, verði farið í endurnýjun á lýsingu skólalóðar Dalvíkurskóla og lóðar við Íþróttamiðstöðina að því marki sem fjármagn dugar til.
Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að koma með viðauka við framkvæmdaáætlun með kostnaðarútreikningi þegar ofangreint liggur fyrir."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Katrínar."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ofangreindu máli er því lokið án viðauka við framkvæmdaáætlun.
b) Byggðaráð frestar frekari umfjöllun og afgreiðslu á tillögum til næsta fundar sem er aukafundur mánudaginn 7. desember nk. kl. 16:15.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum lið a.2.; tilfærslur á milli deilda í viðhaldsáætlun Eignasjóðs.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum lið a.3.; beiðni um nýtingu fjárheimildar vegna götulýsingar 2020 í endurnýjun á lýsingu á skólalóð Dalvíkurskóla og við Íþróttamiðstöð.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 969, frá 07.12.2020
Málsnúmer 2012003F
Fundargerðin er 1 liður og ekkert þarfnast afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.Fundarhlé var gert kl. 16:25 vegna bilunar í búnaði þannig að netsamband rofnaði.
Lagt fram til kynningar.
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 970, frá 10.12.2020
Málsnúmer 2012006F
Fundi haldið áfram kl. 16:55.Fundargerðin er í 21 lið.Liðir 4, 5, 6, 7, 9,10, 11, 12, 13 og 14 eru sérliðir á dagskrá.Annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu.Til máls tókuum lið 15 á dagskrá um boðun á Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga; Katrín Sigurjónsdóttir, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, Jón Ingi Sveinsson, Guðmundur St. Jónsson, Þórhalla Karlsdóttir og Dagbjört Sigurpálsdóttir.
Lagt fram til kynningar.
5.
Atvinnumála- og kynningarráð - 59, frá 02.12.2020.
Málsnúmer 2011025F
Fundargerðin er í 7 liðum og ekkert þarfnast afgreiðslu.Enginn tók til mál sum fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
6.
Félagsmálaráð - 245, frá 08.12.2020
Málsnúmer 2012004F
Fundargerðin er í 10 liðum.Liður 4 er sér liður á dagskrá.Annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fræðsluráð - 254, frá 09.12.2020
Málsnúmer 2012002F
Fundargerðin er í 9 liðum.Ekkert þarfnast afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
8.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 125, frá 01.12.2020
Málsnúmer 2011024F
Fundargerðin er í 4 liðum.Til afgreiðslu:1. liður.Annað þarfnast ekki afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.
8.1 Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál.
Lögð fram tillaga til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum.
Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin. Stefnan verði tímasett samhliða því að tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við afreksfólk. Ráðherra leggi fram á Alþingi tímasetta stefnu um afreksfólk í íþróttum fyrir 1. júní 2021
Íþrótta- og æskulýðsráð gerir ekki athugsemdir við þingsályktunina og fagnar því að stefnt skuli að því að gera heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum. Niðurstaða Sveitarstjórn tekur undir ofangreinda bókun íþrótta- og æskulýðsráðs.
9.
Umhverfisráð - 345, frá 04.12.2020
Málsnúmer 2011026F
Fundargerðin er í 11 liðum.Liðir 8 og 11 eru sér liður á dagskrá.Annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.
Lagt fram til kynningar.
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 100, frá 02.12.2020
Málsnúmer 2011019F
Fundargerðin er í 8 liðum.Til afgreiðslu:2. liður.5. liður.Annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu.Enginn tók til máls um fundargerðina.
10.2 Frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003, er í samráðsgátt.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá er það jafnframt til innleiðingar á ákvæðum EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í fjármálum hafna.
Umsagnarfrestur er liðinn (10.11.2020-23.11.2020).

Fyrir fundinum liggur umsögn Hafnasambands Íslands um drög að frumvarpi til breytinga á hafnalögum 2020. Sviðsstjóri hefur merkt sérstaklega í framangreindri umsögn það sem gæti snert starfsemi Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með samhljóða fimm atkvæðum að gera fyrirliggjandi umsögn Hafnasambands Íslands að sinni umsögn því mörg atriði sem upp eru talin þar skipta verulegu máli í starfsemi Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar. Niðurstaða Sveitarstjórn tekur undir ofangreinda umsögn veitu- og hafnaráðs.
10.5 Jöfnun húshitunarkostnaðar 2020
Fyrir fundinum liggur útreikningur á jöfnun húshitunarkostnaðar fyrir árið 2020. Í honum er tekið tillit til breytinga á gjaldskrám veitufyrirtækja og er gjaldið nú 241,20 kr/m3 húss.
Heildarkostnaður Hitaveitu Dalvíkur er því um kr. 2.602.933,-.

Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum framlagðan útreikning á jöfnun húshitunarkostnaðar og lista yfir þá sem fá greiðslu vegna hans.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs hvað varðar styrki á móti jöfnun húshitunarkostnaðar.
11.
Frá 967. fundi byggðaráðs þann 26.11.2020; Frá umhverfis- og tæknisviði; Beiðni um viðauka vegna launa vinnuskóla
Málsnúmer 202011101
Á 967. fundi byggðaráðs þann 26.11.2020 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 18. nóvember 2020, þar sem óskað er eftir launaviðauka vegna tilflutnings á áætlun á milli deilda 11410 og 06270 samkvæmt meðfylgjandi skjali með útreikningum þar sem áætlun fór á aðra deild en launin bókast á. Um er að ræða launaviðauka sem samþykktur var fyrr á árinu vegna átaksstarfa.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 38 við fjárhagsáætlun 2020 að upphæð kr. 8.636.114 af deild 11410 og yfir á deild 06270. Þar sem um sömu fjárhæð er að ræða á milli deilda þá þarf ekki að bregðast sérstaklega við þessum viðauka."
Engin tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 38 við fjárhagsáætlun 2020 að upphæð kr. 8.636.114 sem er flutt af deild 11410 vegna launa og yfir á deild 06270. Ekki þarf að bregðast sérstaklega við þessum viðauka þar sem um flutning á milli málaflokka og deilda er um að ræða. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að vísa viðaukanum til heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2020.
12.
Frá 968. fundi byggðaráðs þann 03.12.2020; Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Viðauki vegna framlaga frá Jöfnunarsjóði 2020 - hækkun
Málsnúmer 202012006
Á 968. fundi byggðaráðs þann 3. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Formaður byggðaráðs datt tímabundið út af fjarfundi 15:37 og tók því ekki þátt í umfjöllun og afgreiðslu. Varaformaður tók við fundarstjórn. Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2020 vegna deildar 00100 að upphæð kr. -48.195.305 vegna hækkana á framlögum úr Jöfnunarsjóði samkvæmt áætlun sjóðsins.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka, nr. 39 við fjárhagsáætlun 2020, við deild 00100 að upphæð kr. -48.195.305. Áætluð framlög verða því samtals kr. -568.773.487 í stað kr. -520.578.182. Byggðaráð samþykkir jafnframt að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 39 við fjárhagsáætlun 2020 við deild 00100, tekjur að upphæð kr. -48.195.305 vegna aukinna framlaga úr Jöfnunarsjóði. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða að viðaukanum verði mætt með hækkun á handbæru fé og vísar honum til heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2020.
15.
Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Ósk uk viðbótarstyrk vegna bilunar á skíðalyftu
Málsnúmer 202012042
Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, rafpóstur dagsettur þann 10. desember 2020 þar sem óskað er eftir styrk að upphæð kr. 1.200.000 vegna bilunar á skíðalyftu félagsins. Upphæðin yrði notuð til að kaupa varahluti í lyftuna. Um er að ræða neðri lyftuna og er hún ónothæf þar til verðgerð hefur farið fram á drifmótor. Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi einnig minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 11. desember 2020, þar sem þeir leggja til svið sveitarstjórn að sveitarfélagið verði við ósk Skíðafélags Dalvíkur. Vinna við verkið verði unnin í sjálfboðavinnu samkvæmt bréfi frá félaginu.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum styrk til Skíðafélags Dalvíkur að upphæð allt að kr. 1.200.000 vegna bilunar í skíðalyftu á móti reikningum til kaupa á varahlutum. Styrkurinn bókist á deild 06800.
17.
Frá 967. fundi byggðaráðs þann 26.11.2020; Frá fræðslu- og menningarsviði; Niðurfelling á gjöldum á fræðslusviði vegna COVID - 19
Málsnúmer 202011124
Á 967. fundi byggðaráðs þann 26. nóvember 2020 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 23. nóvember 2020, er varðar niðurfellingu á gjöldum vegna lokunar á stofnunum sem heyra undir sviðið á Covid19 tímum og er eftirfarandi lagt til: a) Vegna lokunar á Krílakoti í sex daga vegna sóttkvíar verði gjöld felld niður, alls kr. 850.000 vegna leikskólagjalda og fæðis. b) Vegna lokunar í sundlaug og heilsurækt þá verði lengt í tímabilskortum sem lokun varir í sundlaug og heilsurækt eins og gert var í vor.a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu. b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og a) vegna lokunar á Krílakoti í 6 daga vegna sóttkvíar verði gjöld felld niður alls áætlað kr. 850.000 vegna leikskólagjalda og fæðis og b) vegna lokunar í Sundlaug og heilsurækt þá verði lengt í timabilskortum sem lokun varir í Sundlaug og heilsurækt eins og gert var í vor.
19.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2021 og 3ja ára áætlun 2022-2024. Síðari umræða.
Málsnúmer 202005082
Á 329. fundi sveitarstjórnar þann 24. nóvember 2020 var frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024 tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að vísa áætluninni til byggðaráðs á milli umræðna.Til máls tóku:Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir breytingum á milli umræðna og helstu niðurstöðum.Helstu niðurstöður 2021:Rekstrarniðurstaða A-hluta, kr. - 56.424.000 neikvæð.Rektsrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta, kr. - 50.881.000 neikvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 142.959.500Lántaka Samstæðu A- og B- hluta, kr. 60.000.000.Veltufé frá rekstri Samstæðu A- og B- hluta, kr. 195.126.000.Helstu niðurstöður 2022:Rekstrarniðurstaða A-hluta, kr. -48.492.000 neikvæð.Rektsrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta, kr. -38.308.000 neikvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 189.040.000.Lántaka Samstæðu A- og B- hluta, kr. 110.000.000.Veltufé frá rekstri Samstæðu A- og B- hluta, kr. 195.126.000.Helstu niðurstöður 2023:Rekstrarniðurstaða A-hluta, kr. -59.618.000 neikvæð.Rektsrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta, kr. -44.802.000 neikvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 372.000.000.Lántaka Samstæðu A- og B- hluta, kr. 280.000.000.Veltufé frá rekstri Samstæðu A- og B- hluta, kr. 213.963.000.Helstu niðurstöður 2024:Rekstrarniðurstaða A-hluta, kr. -69.707.000 neikvæð.Rektsrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta, kr. -57.403.000 neikvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 346.950.000.Lántaka Samstæðu A- og B- hluta, kr. 255.000.000.Veltufé frá rekstri Samstæðu A- og B- hluta, kr. 217.303.000.Einnig tók til máls: Guðmundur St. Jónsson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2021 og þriggja ára áætlun 2022-2024.

Sveitarstjórn tekur undir þakkir sveitarstjóra til sviðsstjóra, stjórnenda og starfsmanna.
20.
Frá 970. fundi byggðaráðs þann 10.12.202020; Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga; beiðni um útkomuspá 2020
Málsnúmer 202010043
Á 970. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2020 þá var eftirfarandi bókað:"Með rafpósti þann 9. október sl. óskaði Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið eftir upplýsingum um til hvaða fjárhagslega aðgerða sveitarstjórn hyggst grípa eða hefur gripið til vegna Covid-19 ástandsins. Á 960. fundi byggðaráðs fól ráðið sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að taka saman minnisblað um ofangreint og leggja fyrir byggðaráð. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að svarbréfi til ráðuneytisins.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að svarbréfi og vísar því til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu og meðfylgjandi tillögu að svarbréfi.
21.
Frá 970. fundi byggðaráðs þann 10.12.2020; Afsláttur fasteignaskatts 2021 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Málsnúmer 202012039
"Á 970. fundi byggðaráðs Dalvíkurbyggðar þann 10. desember 2020 var eftirfarandi bókað:Með fundarboði byggðaráðs fylgdu drög að reglum um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2021. Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fram lagðar reglur um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2021 og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögur að reglum um afslátt fasteignaskatts til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega fyrir árið 2021.
22.
Frá 970. fundi byggðaráðs þann 10.12.2020; Reglur um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka
Málsnúmer 202012035
Á 970. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka fyrir árið 2021. Um er að ræða óbreyttar reglur frá fyrra ári. Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir reglurnar samhljóða með 3 atkvæðum og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögu að reglum um styrk á móti fasteignaskatti til félaga og félagasamtaka fyrir árið 2021.
23.
Frá 970. fundi byggðaráðs þann 10.12.2020; Tillaga að tímabundinni niðurfellingu eða afslætti á gatnagerðargjöldum í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201701040
Á 970. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2020 var eftirfarandi bókað:T"il umfjöllunar reglur Dalvíkurbyggðar um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda en málinu var vísað til byggðaráðs frá sveitarstjórn til nánari útfærslu. Með fundarboði fylgdu uppfærð drög að reglum frá sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs. Upplýst var á fundinum að sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs er búinn að rýna drögin á milli funda.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum reglur um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda með áorðnum breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögu að reglum um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda.
24.
Frá 245. fundi félagsmálaráðs þann 08.12.2020; íþrótta- og tómstundastyrkir til barna á lágtekjuheimilum - reglur.
Málsnúmer 202009035
Á 245. fundi félagsmálaráðs þann 8. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir drög að reglum Dalvíkurbyggðar um úthlutun á íþrótta- og tómstundastyrk vegna barna á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021Félagsmálaráð samþykkir reglur Dalvíkurbyggðar til úthlutunar á íþrótta- og tómstundastyrk vegna barna á tekjulágum heimilum fyrir skólaárið 2020-2021."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu félagsmálaráðs og tillögu að reglum Dalvíkurbyggðar til úthlutunar á íþrótta- og tómstundastyrk vegna barna á tekjulágum heimilum fyrir skólaárið 2020-2021.
25.
Fundargerðir starfs -og kjaranefndar frá 2020; Stytting vinnuvikunnar.
Málsnúmer 202003008
Á 970. fundi byggðaráðs þann 10. desember 2020 var til umfjöllunar fundargerð starfs- og kjaranefndar frá 17. nóvember s.l. og hún lögð fram til kynningar.Fram kemur í fundargerðinni undir 1. lið að farið var stuttlega yfir stöðumála hvað varðar styttingu vinnuvikunnar og á stjórnendafundi var rætt um að taka 13 mínútna styttingu á allar deildir í byrjun. Ítrekun var send frá launafulltrúa til stjórnenda með ósk um að fá til baka fyrir næsta fund starfs- og kjaranefndar ný samkomulög, eða fyrir 15. desember.
Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sem gerði grein fyrir fundi starfs- og kjaranefndar frá 15. desember, fyrirliggjandi samkomulögum, túlkun á sölu á kaffi- og matartímum og skilgreiningu á neysluhléum.

Lagt fram til kynningar.
27.
Frá 968. fundi byggðaráðs þann 03.12.2020; Húsnæðisáætlun - vinnuhópur- erindisbréf
Málsnúmer 202012002
Á 968. fundi byggðaráðs þann 3. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Formaður byggðaráðs kom aftur inn á fundinn undir þessum lið kl. 15:40 og tók við fundarstjórn að nýju. Tekin fyrir drög að erindisbréfi fyrir vinnuhóp vegna árlegrar endurskoðunar á Húsnæðisáætlun Dalvíkurbyggðar en sveitarstjóri leggur til að settur verði á laggirnar 3ja manna vinnuhópur vegna þessa verkefnis.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að erindisbréfi og að vinnuhópinn skipi sveitarstjóri, sviðsstjóri félagsmálasviðs og sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og meðfylgjandi tillögu að erindisbréfi og tillögu að skipun í vinnuhópinn.
28.
Frá 345. fundi umhverfisráðs frá 04.12.2020; Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Hvarfsvegar nr. 8072 af vegaskrá
Málsnúmer 202011098
Á 345. fundi umhverfisráðs þann 4. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir bréf frá Vegagerðinni sem barst þann 18. nóvember sl., tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Syðra-Hvarfsvegar nr. 8072-01 af vegaskrá.Umhverfisráði mótmælir að Syðra-Hvarfsvegur nr. 8072-01 verði tekin af vegaskrá. Með því að taka veginn af skrá er hoggið að jaðarbyggðum í sveitarfélaginu sem er andstætt vilja sveitarstjórnar."
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum bókun umhverfisráðs og mótmælir að Syðra-Hvarfsvegur nr. 8072-01 verði tekin af vegaskrá. Með því að taka veginn af skrá er hoggið að jaðarbyggðum í sveitarfélaginu.
29.
Frá 345. fundi umhverfisráðs þann 04.12.2020; Umsókn um svæði til aksturs vélsleða
Málsnúmer 202011187
Á 345. fundi umhverfisráðs þann 4. desember 2020 var eftirfarandi bókað:"Á 329. fundi sveitarstjórnar var ákveðið að vísa umsókn um skautasvell og æfingarsvæði fyrir vélsleða aftur til umhverfisráðs þar sem margvíslegar breytingar hafa orðið á umsókninni frá fyrri afgreiðslu ráðsinsUmhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina og leggur til að umbeðið leyfi verði veitt til reynslu í eitt ár. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."
Til máls tóku:
Guðmundur St. Jónsson.
Katrín Sigurjónsdóttir.
Dagbjört Sigurpálsdóttir.
Jón Ingi Sveinsson.
Þórhalla Karlsdóttir.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um að umbeðið leyfi á grundvelli umsóknar um skautasvell og æfingarsvæði fyrir vélsleða verði veitt til reynslu í eitt ár. Umsækjandi er Akstursíþróttafélagið Miðgarður.
33.
Fundargerðir stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses 2020; fundrgerð 57.
Málsnúmer 202007043
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses, fundargerð nr. 57 frá 8. desember s.l.
Lagt fram til kynningar.
34.
Fundargerðir stjórnar Dalbæjar 2020; fundargerð frá 17.09.2020
Málsnúmer 202002049
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórn Dalbæjar frá 17. september 2020.
Lagt fram til kynningar.