Sveitarstjórn
317. fundur
31. október 2019
kl.
16:15
-
17:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
forseti
Guðmundur St. Jónsson
aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Felix Rafn Felixson
varamaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 919
Til afgreiðslu1. liður3. liður8. liðurLiðir 7 og 10 eru sér liðir á dagskrá.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 920
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður.5. liður.6. liður.7. liður.11. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 921
Til afgreiðslu.2. liður6. liður
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 922
5.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 923
Til afgreiðslu:2. liður.
6.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 924
Til afgreiðslu:4. liður.7. liður.10. liður.11. liður.Liður 12. er sér liður á dagskrá.
7.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 925
8.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 926
Til afgreiðslu:7. liður9. liður10. liðurLiðir 4, 5, 6, 11 og 12 eru sér liðir á dagskrá.
9.
Atvinnumála- og kynningarráð - 47. fundur
10.
Félagsmálaráð - 233
11.
Fræðsluráð - 241
Til afgreiðslu3. liður
12.
Fræðsluráð - 242
13.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 113
14.
Landbúnaðarráð - 129
15.
Menningarráð - 75
16.
Umhverfisráð - 327
Til afgreiðslu:8. liður.9. liður.10. liður.11. liður.12. liður.14. liður.Liðir 15 og 16 eru sér liðir á dagskrá.
17.
Umhverfisráð - 328
Til afgreiðslu:2. liður.
18.
Ungmennaráð - 23
19.
Ungmennaráð - 24
20.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 88
Lagt fram til kynningar.
Enginn tók til máls. Ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu og hún því lögð fram til kynningar í sveitarstjórn.
Enginn tók til máls. Ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu og hún því lögð fram til kynningar í sveitarstjórn.
21.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 89
Til afgreiðslu.4. liður.
22.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 16
23.
Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun vegna sérfræðiþjónustu.
Á 919. fundi byggðaráðs þann 19. september 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 við deild 21, fjármála- og stjórnsýslusvið,kr. 2.610.000. Ástæðan er vegna veikinda starfsmanna, þörf á aðkeyptri sérfræðiþjónustu vegna vinnu við fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan viðauka við deild 21010, fjármála- og stjórnsýslusvið, sérfræðiþjónusta, að upphæð kr. 2.610.000, viðauki nr. 28/2019."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 28/2019.
24.
Beiðni um viðauka v. veikindalauna Dalvíkurskóli
Á 919. fundi byggðaráðs þann 19. september 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, dagsett 13. september 2019, beiðni um launaviðauka við deild 04210, Dalvíkurskóla, vegna langtímaveikinda starfsmanna að upphæð kr. 2.600.697. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum launaviðauka við deild 04210, Dalvíkurskóla, að upphæð kr. 2.600.697 skv. ofangreindu erindi. Viðauki nr. 29/2019, viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 29/2019.
25.
Beiðni um viðauka tölvubúnaðar Dalvíkurskóli
Á 924. fundi byggðaráðs þann 17. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Á 919. fundi byggðaráðs þann 19. september 2019 var tekið fyrir erindi frá skólastjóra Dalvíkurskóla, dagsett 13. september 2019, beiðni um viðauka fyrir Dalvíkurskóla vegna kaupa á tölvum, prentara og hugbúnaði kr. 1.250.000. Beiðninni fylgdi rökstuðningur ásamt ósk um að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Byggðaráð hefur ásamt fræðsluráði fjallað um beiðnina á fundum sínum og einnig farið yfir stefnu í upplýsinga- og tæknimennt í Dalvíkurskóla sem var unnin í vor.Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum viðauka nr. 30/2019 að fjárhæð kr. 1.250.000 við deild 04210, fjárhagslykil 2850, vegna kaupa á tölvum, prentara og hugbúnaði við Dalvíkurskóla samkvæmt ofangreindri beiðni frá skólastjóra. Upphæð fjárhagslykils var 672.907 kr en verður eftir viðaukann kr. 1.922.907 kr. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 30/2019.
26.
Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna Hóla- og Túnhverfis
Á 327. fundi umhverfisráðs þann 27. september 2019 var eftirfarandi bókað:"Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar var tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem gert er ráð fyrir að íbúðarsvæði 312-Íb stækki til norðurs yfir óbyggt svæði. Stækkunin nemur einni parhúsalóð. Skipulagsstofnun gerði athugasemd við fyrirhugaða málsmeðferð og er tillagan því tekin til afgreiðslu að nýju.Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda uppfærða tillögu til Skipulagsstofnunar til athugunar. Ráðið leggur til að tillagan verði auglýst skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að fengnu áliti stofnunarinnar. Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs.
27.
Breytingar á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis
Á 327. fundi umhverfisráðs þann 27. september 2019 var eftirfarandi bókað:"Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar var tekin fyrir að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfisins á Dalvík, Dalvíkurbyggð. Skipulagsstofnun benti á nokkur atriði sem taka þyrfti til skoðunar áður en fyrirhuguð deiliskipulagstillaga yrði auglýst og var uppfærð tillaga lögð fram.Umhverfisráð leggur til að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa uppfærða deiliskipulagstillögu vegna Hóla- og Túnahverfisins skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhjóða með fimm atkvæðum."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs.
28.
Viðaukabeiðni heilsueflandi samfélag apríl 2019
Á 926. fundi byggðaráðs þann 24. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Frá sveitarstjóra; leiðrétting viðauka vegna heilsueflandi samfélag. Á 903. fundi byggðaráðs var tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 3. apríl 2019, þar sem óskað var eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 876.053 vegna fundaþóknana stýrihóps um Heilsueflandi samfélag, deild 06030. Lagt var til að viðaukanum yrði mætt af lið 06030-4915 þannig að nettó áhrifin eru 0. Óskað er eftir leiðréttingu á viðauka þar sem fjárhæð færslu á milli liða hafi átt að vera kr. 326.520.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda leiðréttingu á viðauka vegna Heilsueflandi samfélags."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda leiðréttingu á viðauka vegna Heilsueflandi samfélags.
29.
Beiðni um viðauka vegna tekjujöfnunarframlags 2019
Á 926. fundi byggðaráðs þann 24. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir beiðni um viðauka frá sveitarstjóra vegna tekjujöfnunarframlags frá Jöfnunarsjóði 2019 að upphæð 41.341.356 kr. Viðaukinn er nr. 31/2019 og kemur til hækkunar tekna á lið 00100-0111, á móti til hækkunar á eigin fé.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 31/2019, liður 00100-0111 að upphæð kr. 41.341.356 vegna tekjujöfnunarframlags frá Jöfnunarsjóði, á móti kemur hækkun á eigin fé."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 31/2019.
30.
Lokastígur 2, íbúð 201, sala á eigninni
Á 926. fundi byggðaráðs þann 24. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Frá sveitarstjóra; Viðauki vegna sölu Lokastígs 2 -201 Á 912. fundi byggðaráðs var tekin fyrir sala á íbúð Lokastíg 2 -201 að fjárhæð kr. 16.200.00. Samhliða lá ekki fyrir tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2019 vegna meðferðar sölunnar. Óskað er eftir viðauka vegna söluhagnaðar í félagslegum íbúðum að fjárhæð kr. 11.838.048 og hækkunar á handbæru fé kr. 5.002.922. Viðauki nr. 32/2019.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 32/2019 við deild 57, vegna söluhagnaðar í félagslegum íbúðum að fjárhæð kr. 11.838.048 og hækkunar á handbæru fé kr. 5.002.922."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 32/2019.
31.
Fjárhagsáætlun 2019; heildarviðauki II
Á 926. fundi byggðaráðs þann 24. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga að heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2019. Helstu niðurstöður eru: Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um 16,6 m.kr. (var 65,7 m.kr.) en þar af er Aðalsjóður neikvæður um 58.1 m.kr (var 12,7 m.kr.). Rekstrarniðurstaða B-hluta er jákvæð um 55,5 m.kr. (var 70 m.kr.). Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta samtals er jákvæð um 54,8 m.kr. (var 118,6 m.kr.). Áætlaðar fjárfestingar eru samtals um 330,9 m.kr (voru 346,9 m.kr.). Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2019 með þeim viðaukum sem gerðir hafa verið og áorðnum breytingum á fjárhagsáætluninni."Til máls tók Guðmundur St. Jónsson.Katrín Sigurjónsdóttir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2019.
32.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023
Á 926. fundi byggðaráðs þann 24. október 2019 var eftirfarandi bókað:"Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir umfjöllun um málefni Golfklúbbsins Hamars. Lokayfirferð yfir framkvæmdir, fjárfestingar, búnaðarlista og viðhaldsliði fjárhagsáætlunar. Tekinn saman listi með athugasemdum byggðaráðs. Endurskoðandi hefur tekið frá tíma á mánudag til að setja upp fjárhagslíkan eftir athugasemdir. Því liggur fyrir tillaga um að fresta fundi sveitarstjórnar og fyrri umræðu til fimmtudagsins 31. október kl. 16:15.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að næsti fundur sveitarstjórnar verði fimmtudaginn 31. október kl. 16:15. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022 með áorðnum breytingum til fyrri umræðu í sveitarstjórn."Til máls tóku:Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem fór yfir vinnu stjórnenda og byggðaráðs undanfarnar vikur við gerð fjárhagsáætlunar 2020-2023. Einnig kynnti hún helstu niðurstöður frumvarpsins. Ljóst er að það þarf að fara í frekari vinnu í byggðaráði á milli umræðna til að ná fram markmiðum í rekstri og auka handbært fé í árslok 2020.Guðmundur St. Jónsson.Gunnþór E. Gunnþórsson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun 2020 og þriggja ára áætlun 2021-2023 til síðari umræðu í sveitarstjórn og til byggðaráðs á milli umræðna í sveitarstjórn.
33.
Beiðni um tímabundið leyfi frá sveitarstjórnarstörfum.
Tekið fyrir erindi frá Jóni Inga Sveinssyni, rafbréf dagsett þann 20. október 2019, þar sem hann óskar eftir fjögurra mánaða leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi vegna persónulegra aðstæðna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita Jóni Inga Sveinssyni fjögurra mánaða leyfi frá störfum sem kjörinn fulltrúi.
34.
Kosningar í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar.
Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir og leggur fram eftirfarandi tillögu:Vegna beiðni frá Jóni Inga Sveinssyni um tímabundið fjögurra mánaða leyfi frá sveitarstjórnarstörfum leggur sveitarstjóri fram eftirfarandi tillögu:Formaður byggðaráðs í leyfi Jóns Inga verði Guðmundur St. Jónsson.Aðalmaður í byggðaráði í leyfi Jóns Inga verði Þórhalla Karlsdóttir.Sem aðalmaður í sveitarstjórn í leyfi Jóns Inga tekur sæti Felix Rafn Felixson.
Ekki komu fram aðrar tillögur í ofangreind embætti og skoðast þau því rétt kjörin í tilgreind trúnaðarstörf hjá sveitarfélaginu næstu 4 mánuði.
35.
Hússtjórn Ráðhúss Dalvíkur; fundargerð 3.fundar frá 21. október 2019. Til kynningar.
Fundargerð hússtjórnar Ráðhúss lögð fram til kynningar.
Enginn tók til máls.
36.
Fundargerðir stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. Til kynningar
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses:Frá 16. október 2019, 40. fundur.Frá 23. október 2019, 41. fundur.Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir.
Lagt fram til kynningar.
37.
Sveitarstjórn - 316
Fundargerð sveitarstjórnar nr. 316, frá 17. september 2019 lögð fram til kynningar.
Enginn tók til máls.