Fara í efni

Sveitarstjórn

315. fundur
18. júní 2019 kl. 16:15 - 17:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson forseti
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 907, frá 16.05.2019
Málsnúmer 1905009F
Til afgreiðslu:2. liður a)2. liður b)3. liður6. liður.7. liður.8. liður.12. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 908, frá 23.05.2019
Málsnúmer 1905014F
Til afgreiðslu:1. liður a)3. liður sér liður á dagskrá.9. liður.11. liður.12. liður.15. liður.16. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 909, frá 06.06.2019
Málsnúmer 1906004F
1. liður a) og b) er sér liður á dagskrá.5. liður.7. liður.9. liður.10. liður.11. liður.13. liður.15. liður.
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 910, frá 13.06.2019
Málsnúmer 1906007F
Til afgreiðslu:6. liður.
5.
Atvinnumála- og kynningarráð - 45. fundur, frá 05.06.2019.
Málsnúmer 1906003F
6.
Félagsmálaráð - 229, frá 14.05.2019
Málsnúmer 1905007F
7.
Félagsmálaráð - 230, frá 23.05.2019
Málsnúmer 1905013F
Til afgreiðslu:3. liður er sér liður á dagskrá.
8.
Fræðsluráð - 239, frá 12.06.2019
Málsnúmer 1906005F
9.
Menningarráð - 74, frá 06.06.2019
Málsnúmer 1906002F
Til afgreiðslu:5. liður.
10.
Umhverfisráð - 322, frá 31.05.2019
Málsnúmer 1905016F
Til afgreiðslu:2. liður.4. liður sér liður á dagskrá.5. liður sér liður á dagskrá.13. liður.
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 86, frá 05.06.2019
Málsnúmer 1906001F
´Til afgreiðslu:5. liður.
12.
Reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur, endurskoðun 2019. Síðari umræða.
Málsnúmer 201902129
Á 314. fundi sveitarstjórnar þann 14. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Á 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað: "Reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur var send lögfræðingi sveitarfélagsins til skoðunar. Lagði hann til minniháttar breytingar á þeim drögum sem hafa verið kynnt á fundum ráðsins. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að sviðstjóri sendi fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur til staðfestingar. " Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu að reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur til síðari umræðu í sveitarstjórn."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að reglugerð Hitaveitu Dalvíkur.
13.
Hafnarreglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar. Síðari umræða.
Málsnúmer 201902137
Á 314. fundi sveitarstjórnar þann 14. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Á 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað: "Reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar var send lögfræðingi sveitarfélagsins til skoðunar. Lagði hann til minniháttar breytingar á þeim drögum sem hafa verið kynnt á fundum ráðsins. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að sviðstjóri sendi fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar til staðfestingar." Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu að reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar til síðari umræðu í sveitarstjórn. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar.
14.
Frá 908. fundi byggðaráðs þann 23.05.2019; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 frá Árskógarskóla
Málsnúmer 201905112
Á 908. fundi byggðaráðs þann 23. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá skólastjóra Árskógarskóla, dagsett þann 14. maí 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 3.014.258 vegna veikindalauna, deild 04240. Um er að ræða kostnað vegna tímabundinnar ráðningar, 100% starf, frá júní og til loka árs 2019. Lagt er til að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Heildarviðaukinn vegna annarra breytinga á launum samkvæmt kjarasamningum er kr. 3.563.277, með vísan í skýringar frá launafulltrúa. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun deildar 04240 vegna 2019, viðauka nr. 10 /2019, að upphæð kr. 3.563.277 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka við fjárhagsáætlun deildar 04240 vegna 2019, viðauka nr. 10 /2019, að upphæð kr. 3.563.277 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé.
15.
Frá 909. fundi byggðaráðs frá 06.06.2019; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2019 frá félagsmálasviði
Málsnúmer 201904051
Á 909. fundi byggðaráðs þann 6. júní 2019 var eftirfarandi bókað:"Á 908. fundi byggðaráðs þann 23.maí 2019 var eftirfarandi bókað: "Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra félagsmálasviðs, dagsett þann 14. maí 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019: a) Óskað er eftir viðauka við lykil 02180-9161, húsaleigubætur 15-17 ára, þannig að heimildin verði kr. 4.087.000 en er kr. 0 á þessum lykli. Bókfærð staða er kr. 1.362.800. Heimild vegna húsaleigubóta er nú kr. 1.500.000 og bókað kr. vegna húsleigubóta 15-17 ára og sérstakra húsaleigubóta kr. 1.773.981. b) Óskað er eftir viðauka við laun félagsmálaráðs. Við gerð fjárhagsáætlunar 2019 voru laun vegna formanns félagsmálaráðs ekki rétt skilgreind í þarfagreiningu. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 127.815 til að leiðrétta áætlunina. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu og fá frá sviðsstjóra félagsmálasviðs rýni á málaflokkinn í heild og hvort hægt sé að mæta þessum viðaukum með því að lækka aðrar deildir innan málaflokksins á móti." Lögð fram samantekt sviðsstjóra félagsmálasviðs á stöðu málaflokksins í heild ásamt viðaukabeiðnum skv.liðum a) og b) hér að ofan. a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun deildar 02180 lykil 9161 vegna 2019, viðauka nr. 11/2019, að upphæð kr. 2.724.200 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé. Bókfærð staða er við umsókn um viðauka kr. 1.362.800 og sú fjárhæð er því dregin frá ofangreindri beiðni um viðauka þar sem ekki er heimilt að leiðrétta áætlun fyrir þeim kostnaði sem fallinn er til. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun deildar 02020 lykil 1030 vegna 2019, viðauka nr. 12/2019, að upphæð kr. 127.815 og að honum sé mætt með lækkun á lið 02010-4311, lögfræðiþjónusta. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. "Til máls tók:Þórhalla Karlsdóttir, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:44.Fleiri tóku ekki til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka við fjárhagsáætlun deildar 02180 lykil 9161 vegna 2019, viðauka nr. 11/2019, að upphæð kr. 2.724.200 og að honum sé mætt með lækkun á handbæru fé. Bókfærð staða er við umsókn um viðauka kr. 1.362.800 og sú fjárhæð er því dregin frá ofangreindri beiðni um viðauka þar sem ekki er heimilt að leiðrétta áætlun fyrir þeim kostnaði sem fallinn er til, Þórhalla Karlsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka við fjárhagsáætlun deildar 02020 lykil 1030 vegna 2019, viðauka nr. 12/2019, að upphæð kr. 127.815 og að honum sé mætt með lækkun á lið 02010-4311, lögfræðiþjónusta, Þórhalla Karlsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
16.
Frá 322. fundi umhverfisráðs frá 31.05.2019; Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna Hóla- og Túnhverfis
Málsnúmer 201905163
Þórhalla Karlsdóttir kom inn á fundinn að nýju kl. 16:45.Á 322. fundi umhverfisráðs frá 31. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, vegna Hóla- og Túnahverfis. Breytingin felur í sér stækkun á reit 312-Íb til norðurs yfir óbyggt svæði. Stækkunin nemur einni þriggja íbúða raðhúsalóð. Drög að breytingunni voru kynnt á opnum íbúafundi þann 11.apríl 2019. Eftir fund með formanni sóknarnefndar Dalvíkurprestakalls leggur umhverfisráð til að stækkun á reit Íb-312 til norðurs verði minnkuð til vesturs. Sviðsstjóra falið að óska eftir breytingum á skipulagsuppdrætti. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs um að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að óska eftir breytingum á skipulagsuppdrætti þannig að stækkun á reit Íb-312 til norðurs verði minnkuð til vesturs.
17.
Frá 322. fundi umhverfisráðs þann 31.05.2019; Breytingar á deiliskipulagi Hóla- og Túnahverfis
Málsnúmer 201905162
Á 322. fundi umhverfisráðs þann 31. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi íbúðarbyggðar í Hóla- og Túnahverfi á Dalvík ásamt greinagerð. Umhverfisráð leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu. Lóð 18-22 við Hringtún verði breytt úr R1 í P1 (raðhúsalóð í parhúsalóð). Lóðir við Skógarhóla verði sameinaðar í eina R1 lóð (raðhúsalóð). Ráðið felur sviðsstjóra að leggja uppfærð gögn fyrir næsta fund ráðsins. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs að leggja til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu:Lóð 18-22 við Hringtún verði breytt úr R1 í P1 (raðhúsalóð í parhúsalóð). Lóðir við Skógarhóla verði sameinaðar í eina R1 lóð (raðhúsalóð) og að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að leggja uppfærð gögn fyrir næsta fund ráðsins.
18.
Frá 230. fundi félagsmálaráðs þann 23.05.2019; Tillaga að skipan notendaráðs fatlaðs fólks
Málsnúmer 201905123
Á 230. fundi félagsmálaráðs þann 23. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga þjónustuteymis fatlaðra, Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggar um sameiginlegt notendaráð fatlaðs fólks á þjónustusvæði Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar. Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga segir í 2. mgr. 42. gr. að í hverju sveitarfélagi eða í sveitarfélögum sem eigi samstarf um þjónustu við fatlað fólk, skuli starfa formlegur samráðsvettvangur er nefnist samráðshópur um málefni fatlaðs fólks þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar. Í samráðshópnum skulu að lágmarki sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn og þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Fundurinn samþykkir einróma að leggja til við sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar og bæjarstjórn Fjallabyggðar að sveitarfélögin standi sameiginlega að myndun notendaráðs fyrir fatlað fólk á þjónustusvæði sveitarfélaganna, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 40/1991. Tillaga fundarins er að hvort sveitarfélag fyrir sig skipi tvo kjörna fulltrúa í ráðið og auglýst verði eftir einstaklingum í setu í notendaráði, tveimur fulltrúum frá hvoru sveitarfélagi. Alls yrðu þá 8 einstaklingar í notendaráðinu. "Til máls tók:Þórhalla Karlsdóttir sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun kl. 16:47.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu og tillögu félagsmálaráðs, Þórhalla Karlsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
19.
Kosning í nefndir og ráð samkvæmt Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201906043
Þórhalla Karlsdóttir kom inn á fundinn að nýju kl. 16:49.Til afgreiðslu:a) Byggðaráð til eins árs.Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem leggur fram eftirfarandi tillögu hvað varðar kosningu í byggðaráð til eins árs:Byggðaráð: Óbreytt á milli ára, Jón Ingi Sveinsson formaður, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson varaformaður Guðmundur St. Jónsson aðalmaðurVaramenn: Þórhalla Franklín Karlsdóttir Þórunn Andrésdóttir Dagbjört Sigurpálsdóttir Fleiri tóku ekki til máls.b) Skipan notendaráðs fatlaðs fólks, sbr. 14. liður.Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem leggur fram eftirfarandi tillögu hvað varðar skipan í notendaráð fatlaðs fólks.Notendaráð fatlaðs fólks; 2 kjörnir fulltrúar frá Dalvíkurbyggð:Lilja GuðnadóttirMagni Þór ÓskarssonFleiri tóku ekki til máls.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Jón Ingi, Gunnþór, Guðmundur St., Þórhalla, Dagbjört og Þórunn réttkjörin sem aðalmenn og varamenn í byggðaráði.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Lilja og Magni réttkjörin i notendaráð fatlaðs fólks.
20.
Tillaga um frestun funda sveitarstjórnar 2019
Málsnúmer 201906042
Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2019.Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 19. júní 2018 til og með 31. ágúst 2019."Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar um sumarleyfi sveitarstjórnar.
21.
Frá stjórn Dalbæjar; fundargerðir stjórnar nr. 11 og nr. 12
Málsnúmer 201902116
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Dalbæjar nr. 11. og nr. 12.Til máls tók:Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Lagt fram til kynningar.
22.
Frá stjórn Menningarfélagsins Berg ses; fundargerðir nr. 85, nr. 86 og frá aðalfundi félagsins
Málsnúmer 201811021
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Menningarfélagsins Bergs ses nr. 85, nr. 86 og fundargerð frá aðalfundi félagsins 2019.Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
23.
Sveitarstjórn - 314, frá 14.05.2019
Málsnúmer 1905008F
Fundargerð sveitarstjórnar nr. 314 frá 14. maí 2019 lögð fram til kynningar.Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.