Fara í efni

Sveitarstjórn

314. fundur
14. maí 2019 kl. 16:15 - 17:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson forseti
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 904, frá 23.04.2019
Málsnúmer 1904016F
Til afgreiðslu:4. liður.9. liður.10. liður.11. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 905, frá 02.05.2019
Málsnúmer 1904018F
Til afgreiðslu:3. liður.5. liður.6. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 906, frá 09.05.2019.
Málsnúmer 1905006F
Til afgreiðslu:1. liður sér liður á dagskrá.5. liður,11. liður.13. liður.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 44, frá 08.05.2019
Málsnúmer 1905003F
Til afgreiðslu:3. liður.
5.
Fræðsluráð - 238, frá 08.05.2019
Málsnúmer 1905002F
Til afgreiðslu:7. liður.8. liður, sér liður á dagskrá.10. liður.11. liður.
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 111, frá 02.05.2019
Málsnúmer 1905001F
7.
Landbúnaðarráð - 127, frá 02.05.2019
Málsnúmer 1904009F
Til afgreiðslu:3. liður.
8.
Umhverfisráð - 320, frá 03.05.2019
Málsnúmer 1904017F
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður.
9.
Umhverfisráð - 321, frá 06.05.2019
Málsnúmer 1905005F
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 85, frá 08.05.2019
Málsnúmer 1905004F
Til afgreiðslu:1. liður.5. liður sér liður á dagskrá.6. liður sér liður á dagskrá.7. liður sér liður á dagskrá.
11.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 32, frá
Málsnúmer 1904015F
12.
Frá skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga, fundargerð nr. 14 frá 03.05.2019.
Málsnúmer 201902084
Jón Ingi Sveinsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:40.
Enginn tók til máls.

Lagt fram til kynningar.
13.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2018. Síðari umræða.
Málsnúmer 201811033
Á 313. fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl 2019 var ársreikningur Dalvíkurbyggðar tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða að vísa honum til sveitarstjórnar til síðari umræðu.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2018 eins og hann liggur fyrir og undirritar ársreikninginn því til staðfestingar ásamt ábyrgðar - og skuldbindingaryfirliti.
14.
Frá 238. fundi fræðsluráðs þann 08.05.2019; Ráðning skólastjóra Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201905011
Á 238. fundi fræðsluráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu-og menningarsviðs gerði grein fyrir umsóknum um starf skólastjóra við Dalvíkurskóla en umsóknarfrestur rann út þann 26.apríl. Alls voru umsækjendur þrír en þar af dró einn umsókn sína til baka. Fræðsluráð leggur til að Friðrik Arnarson verði ráðinn í starf skólastjóra Dalvíkurskóla. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu fræðsluráðs um að Friðrik Arnarsson verði ráðinn í starf skólastjóra Dalvíkurskóla.
Sveitarstjórn óskar Friðriki velfarnaðar í starfi.
15.
Frá 906. fundi byggðaráðs þann 09.05.2019; Varðar umsóknir um lóðir við Hringtún 17 og Hringtún 19, breytingar á deiliskipulagi og andmæli íbúa.
Málsnúmer 201902027
15.a):Á 906. fundi byggðaráðs þann 9. maí 2019 var eftirfarandi bókað:a) Tillaga umhverfisráð um breytingar á deiliskipulagi í Túnahverfi vegna lóða 17 og 19 við Hringtún:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögur umhverfisráðs frá 316.fundi ráðsins þann 15.mars þar sem umhverfisráð leggur til deiliskipulagsbreytingu vegna lóða 17 og 19 við Hringtún. Í þeirri tillögu er tekið tillit til athugasemda nágranna um að eðlilegra sé að breytingartillagan lúti málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga og verði auglýst sem deiliskipulagsbreyting. Með þessari samþykkt fer umsókn um lóðir 17 og 19 og deiliskipulagsbreytingin í auglýsingu og kynningarferli þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir á auglýsingatíma.15.b)Á 906. fundi byggðaráðs þann 9. maí 2019 var eftirfarandi bókað:Svar og rökstuðningur byggðaráðs vegna erindis og andmælum frá íbúum í Túnahverfi, dagsett þann 17.04.2019: Almennt séð er ekki grundvallarmunur á yfirbragði parhúsa og einbýlishúsa. Ekki er séð að parhús muni breyta yfirbragði hverfisins, svo fremi sem þau verða í svipuðum mælikvarða og sú byggð sem er þegar komin. Markmið sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar er að þétta byggð á þegar tilbúnum lóðum við þegar tilbúnar götur. Raðhús og parhús eru í byggingu við Hringtún nú þegar og áform um frekari byggingar samkvæmt gildandi deiliskipulagi og úthlutun lóða. Túnahverfi hefur verið lengi í uppbyggingu og það er metið eðlilegt að skipulag geti tekið breytingum í tímans rás til þess að mæta þörfum íbúanna á hverjum tíma og tíðaranda. Samandregið þá er það mat byggðaráðs að það væri ekki úr takti ef frekari parhús eða raðhús munu rísa í framtíðinni í Túnahverfi. Að lokum; Ferli deiliskipulagsbreytinga í auglýsingu er lýðræðislegt ferli þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir sínar á auglýsingatíma. Fjallað er um og tekin afstaða til allra athugasemda sem berast á kynningartíma skipulagstillögu. Sjá nánar leiðbeiningar um aðkomu almennings á heimasíðu Skipulagsstofnunar: http://www.skipulag.is/skipulagsmal/adkoma-almennings/ 15.c)Á 906. fundi byggðaráðs þann 9. maí 2019 var eftirfarandi bókað:Til umræðu tillögur umhverfisráðs um svæði á Dalvík við þegar tilbúnar götur þar sem hægt er að koma fyrir minni eignum, fjölbýli, par- og ráðhúsum, sbr. fundargerð umhverfisráðs frá 11. apríl s.l. Umhverfisráð leggur til að eftirfarandi svæði verði tekin til endurskoðunar. 1. Deiliskipulag Hóla- og túnahverfis tillögur 5,6,7 og 9. 2. Deiliskipulag Lokastígsreits tillaga 1. 3. Nýtt deiliskipulag við Svarfaðarbraut tillaga 10. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögur umhverfisráðs og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. Til máls tóku Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem leggur fram eftirfarandi tillögu að bókun sveitarstjórnar:Á 313.fundi sveitarstjórnar þann 16.apríl var umhverfisráði falið að fara vel yfir og kortleggja öll svæði á Dalvík við þegar tilbúnar götur þar sem hægt væri að koma fyrir minni eignum, fjölbýli, par-og raðhúsum með þeim rökstuðningi að það sé stefna sveitarstjórnar að fjölga íbúum í Dalvíkurbyggð. Einnig er það stefna sveitarstjórnar að tryggja nægt magn fjölbreyttra íbúðalóða. Eftirspurn í nýbyggingum undanfarin ár hefur verið mest í minni eignir og eins og er er engin skipulögð lóð laus fyrir parhús eða raðhús á Dalvík. Ef fasteignaauglýsingar í Dalvíkurbyggð eru skoðaðar í dag sést að ekkert framboð er á eignum í par-, rað- eða fjölbýlishúsum á Dalvík. Þetta hamlar íbúafjölgun og framþróun á byggingarmarkaði og því áríðandi að leitað sé lausna. Ofangreindir 3 kostir snúa allir að því að þétta byggð, nýta betur þegar tilbúnar götur og þá fjárfestingu sem búið er að leggja í gatna-og veitukerfin og fjölga íbúðakostum. Með því að taka deiliskipulag þessara svæða til endurskoðunar gefst nágrönnum og hagsmunaaðilum kostur á að koma með athugasemdir á auglýsingatíma.Stefna sveitarstjórnar er láta vinna deiliskipulag fyrir nýja íbúabyggð og er æskilegt að sú vinna hefjist sem fyrst.Einnig tóku til máls:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.
15. a): Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu og tillögu umhverfisráðs og byggðaráðs vegna deiliskipulagsbreytinga vegna lóða 17 og 19 við Hringtún.
Í þeirri tillögu er tekið tillit til athugasemda nágranna um að eðlilegra sé að breytingartillagan lúti málsmeðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga og verði auglýst sem deiliskipulagsbreyting. Með þessari samþykkt fer umsókn um lóðir 17 og 19 og deiliskipulagsbreytingin í auglýsingu og kynningarferli þar sem íbúum gefst kostur á að koma með athugasemdir á auglýsingatíma.

15. b): Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir ofangreind rök og svar byggðaráðs til íbúa í Túnahverfi við erindi dagsettu þann 17. apríl 2019.

15. c): Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfisráðs og byggðaráðs að hvað varðar um á Dalvík við þegar tilbúnar götur þar sem hægt er að koma fyrir minni eignum, fjölbýli, par- og ráðhúsum, sbr. fundargerð umhverfisráðs frá 11. apríl s.l. og að eftirfarandi svæði verði tekin til endurskoðunar:
1. Deiliskipulag Hóla- og túnahverfis tillögur 5,6,7 og 9.
2. Deiliskipulag Lokastígsreits tillaga 1.
3. Nýtt deiliskipulag við Svarfaðarbraut tillaga 10.


Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra að bókun.
16.
Frá 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019; Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201905024
Á 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað og samþykkt:"Í núgildandi gjaldskrá fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar er álögðu aflagjaldi skipt í tvo gjaldflokka sem taka mið af lönduðum afla. Ábendingar hafa borist um ósanngirni þessarar skiptingar á gjaldinu frá viðskiptavinum Hafnasjóðs. Sviðsstjóri leggur til við veitu- og hafnaráð að gjaldskrá Hafnasjóðs verði breytt þannig að einungis verði um eitt aflagjald að ræða þ.e. 1,27%. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum tillögu sviðsstjóra um breytingu á álögðu aflagjaldi í gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar. "Til máls tóku:Guðmundur St. Jónsson.Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu veitu- og hafnaráðs að breytingu á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2019 sem og meðfylgjandi tillögu að gjaldskrá í heild sinni.
17.
Frá 85. fundi veitu- og hafnaráðs frá 08.05.2019; Hafnarreglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar. Fyrri umræða.
Málsnúmer 201902137
Á 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar var send lögfræðingi sveitarfélagsins til skoðunar. Lagði hann til minniháttar breytingar á þeim drögum sem hafa verið kynnt á fundum ráðsins. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að sviðstjóri sendi fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar til staðfestingar."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu að reglugerð fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar til síðari umræðu í sveitarstjórn.
18.
Frá 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 08.05.2019; Reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur, endurskoðun 2019. Fyrri umræða.
Málsnúmer 201902129
Á 85. fundi veitu- og hafnaráðs þann 8. maí 2019 var eftirfarandi bókað:"Reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur var send lögfræðingi sveitarfélagsins til skoðunar. Lagði hann til minniháttar breytingar á þeim drögum sem hafa verið kynnt á fundum ráðsins. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að sviðstjóri sendi fyrirliggjandi drög að reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur til staðfestingar. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu að reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur til síðari umræðu í sveitarstjórn.
19.
Frá Valdemar Þór Viðarssyni; Varðar stjórnarsetu í Menningarfélaginu Bergi ses
Málsnúmer 201905084
Tekið fyrir erindi frá Valdemar Þór Viðarssyni, rafpóstur dagsettur þann 12. maí 2019, þar sem fram kemur að Valdemar Þór gefur ekki áfram kost á sér sem aðalmaður í stjórn Menningarfélagsins Berg ses.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Valdamer Þór Viðarssyni lausn frá störfum úr stjórn Menningarfélagsins Bergs ses frá næsta aðalfundi félagsins.
Sveitarstjórn færir Valdemar bestu þakkir fyrir hans störf.
20.
Frá Margréti Víkingsdóttur; Úrsögn úr varastjórn Menningarfélagsins Bergs
Málsnúmer 201905030
Tekið fyrir erindi frá Margréti Víkingsdóttir, rafpóstur dagsettur þann 6. maí 2019, þar sem fram kemur að hún gefur ekki kost á sér áfram sem varamaður í stjórn Menningarfélagsins Berg ses fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Margréti lausn frá störfum sem varamaður í stjórn Menningarfélagsins Bergs ses frá næsta aðalfundi félagsins.
Sveitarstjórn færir Margréti bestu þakkar fyrir störf hennar.
21.
Kosning í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201905085
Til máls tók Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem leggur fram eftirfarandi tillögur:a) Tilnefning aðalmanns í stjórn Menningarfélagsins Bergs ses.Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.b) Tilnefning varamanns í stjórn menningarfélagsins Berg ses.Íris Hauksdóttir.
Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Gunnþór og Íris réttilega tilnefnd í stjórn Menningarfélagsins Bergs ses sem næstu aðal- og varamenn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
22.
Sveitarstjórn - 313, frá 16.04.2019. Til kynningar.
Málsnúmer 1904014F
Fundargerðin lögð fram til kynningar.Enginn tók til máls.