Sveitarstjórn
313. fundur
16. apríl 2019
kl.
16:15
-
17:13
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
forseti
Katrín Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Kristján Hjartarson
varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 903, frá 11.04.2019
Til afgreiðslu:2. liður, sér liður á dagskrá.3. liður.4. liður, sér liður á dagskrá.5. liður, sér liður á dagskrá.9. liður.
2.
Atvinnumála- og kynningarráð - 43, frá 03.04.2019
3.
Félagsmálaráð - 228, frá 09.04.2019
4.
Fræðsluráð - 237, frá 10.04.2019
Til afgreiðslu:6. liður.
5.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 110, frá 02.04.2019
6.
Menningarráð - 73, frá 03.04.2019
7.
Umhverfisráð - 318, frá 05.04.2019
Til afgreiðslu:9. liður.10. liður.
8.
Umhverfisráð - 319,frá 11.04.2019
9.
Ungmennaráð - 22, frá 09.04.2019
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 84, frá 03.04.2019
Til afgreiðslu:1. liður.4. liður, vantar að vísa á lið.5. liður, vantar að vísa á lið.9. liður.11. liður, vantar að vísa á lið.12. liður vantar að vísa á lið.
11.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 29, frá 21.03.2019
12.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 30, frá 29.03.2019
13.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 31, frá 02.04.2019
14.
Frá 903. fundi byggðaráðs þann 11.04.2019; Viðaukabeiðni íþróttamiðstöð apríl 2019
Jón Ingi Sveinsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:47 undir þessum lið.Á 903. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 3. apríl 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019, deild 06500, að upphæð kr. 1.979.218 vegna tímabilsins 1. apríl - 31. desember 2019. Á móti er áætluð endurgreiðsla frá Vinnumálastofnun að upphæð kr. 1.463.040. Nettó áhrif viðaukans er því kr. 516.178. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 516.178, viðauki nr. 8 við fjárhagsáætlun 2019, vegna deildar 06500 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. "Til máls tók:Þórhalla Karlsdóttir, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:47.Fleiri tóku ekki til máls.
Jón Ingi Sveinsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:47 undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 516.178 við deild 06500. Jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé, Þórhalla Karlsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 516.178 við deild 06500. Jafnframt að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé, Þórhalla Karlsdóttir tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
15.
Frá 903. fundi byggðaráðs þann 11.04.2019; Viðaukabeiðni heilsueflandi samfélag apríl 2019
Þórhalla Karlsdóttir kom inn á fundinn að nýju kkl. 16:49.Á 903. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 3. apríl 2019, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 876.053 vegna fundaþóknana stýrihóps um Heilsueflandi samfélag, deild 06030. Lagt er til að viðaukanum verði mætt af lið 06030-4915 þannig að nettó áhrifin eru 0. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2019, deild 06030, þannig að launaáætlun hækki um kr. 876.053 og liður 4915 lækki um sömu upphæð á móti. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs um viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2019, deild 06030, þannig að launaáætlun hækki um kr. 876.053 og liður 4915 lækki um söm upphæð á móti.
16.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2018. Fyrri umræða.
Á 903. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2019 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Arnar Árnason, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, Dagbjört Sigurpálsdóttir, aðalmaður í sveitarstjórn og Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 14:08. Allir aðalmenn í sveitarstjórn og sviðsstjórar fagsviða voru boðaðir á fundinn undir þessum lið. Arnar Árnason fór yfir helstu niðurstöður og forsendur ársreikning 2018. Arnar, Börkur og Dagbjört viku af fundi kl. 15:52. Byggðaráð þakkar Arnari Árnasyni fyrir komuna og góða yfirferð. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2018 til fyrri umræðu í sveitarstjórn. "Til máls tók:Katrín Sigurjónsdóttir, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöður ársreiknings Dalvikurbyggðar 2018.Rekstrarniðurstaða A-hluta er jákvæð um kr. 167.133.000 og áætlun gerði ráð fyrir kr. 114.658.000 með viðaukum ársins 2018.Rekstrarniðurstaða A- og B- hluta er jákvæð um kr. 222.344.000 og áætlun gerði ráð fyrir kr. 158.126.000 með viðaukum ársins 2018.Langtímaskuldir við lánastofanir voru í árslok 2018 kr. 737.246.000 en voru í árslok 2017 kr. 611.301.000. Á árinu 2018 var tekið lán að upphæð kr. 214.500.000 vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð.Fjárfestingar ársins 2018 fyrir samstæðuna voru kr. 293.878.000 og gerði áætlun með viðaukum ráð fyrir kr. 291.690.000.Afborganir langtímalána fyrir A- og B- hluta voru kr. 116.639.000.Veltufé frá rekstri var kr. 433.157.000 fyrir A- og B- hluta. Árið 2017 var veltufé frá rekstri kr. 343.382.000.Heildartekjur A- og B- hluta voru um 2.431,0 m.kr., þar af er útsvarið 40%, fasteignaskattur 4,9%, framlög úr Jöfnunarsjóði 25,7% og aðrar tekjur 29,5%.Laun og launatengd gjöld eru 1.242,5 m.kr. eða um 51,4% af tekjum. Veltufjárhlutfall A- og B- hluta var 1,22 og skuldahlutfallið 68,9%. Einnig tóku til máls:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.Þórhalla Karlsdóttir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2018 til síðari umræðu í sveitarstjórn, sem verður 14. maí n.k.
Sveitarstjórn færir starfsmönnum þakkir fyrir vinnuna við ársreikninginn.
Sveitarstjórn færir starfsmönnum þakkir fyrir vinnuna við ársreikninginn.
17.
Sveitarstjórn - 312, frá 02.04.2019
Enginn tók til máls og lagt fram til kynningar.