Fara í efni

Sveitarstjórn

312. fundur
2. apríl 2019 kl. 16:15 - 17:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson forseti
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Katrín Sif Ingvarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Í upphafi fundar innti forseti sveitarstjórnar eftir athugasemdum við fundarboðun þessa aukafundar. Engar athugasemdir voru gerðar. Guðmundur St. Jónsson boðaði forföll og varamaður hans, Katrín Sif Ingvarsdóttir, mætti á fundinn í hans stað.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 901, frá 21.03.2019
Málsnúmer 1903013F
Til afgreiðslu:2. liður; sér liður á dagskrá.3. liður.14. liður.
1.1 Leiga á Böggvisstaðaskála - tillaga að auglýsingu
Á 900. fundi byggðaráðs þann 14. mars 2019 var samþykkt að óska eftir við starfsmenn Eignasjóðs að koma með tillögu að auglýsingu um útleigu á Böggvisstaðaskála.

Með fundarboði fylgdi tillaga að auglýsingu.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að auglýsingu með nokkrum breytingum sem gerðar voru á fundinum. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.2 Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Göngustígur frá Olís að Árgerði - beiðni um viðauka
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 15. mars 2019, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.756.080 vegna hlutdeildar Dalvíkurbyggðar í hönnun á göngustíg frá Olís að Árgerði. Þar sem óskað hefur verið eftir þessu framlagi Vegagerðarinnar til fjölda ára og nú loks komið fjármagn í verkefnið er afar mikilvægt að veita fjármagn í það.

Á 316. fundi umhverfisráðs þann 15. mars 2019 var sviðsstjóra falið að óska eftir ofangreindum viðauka.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 1.756.080, viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun 2019, málaflokkur og deild 32200 og lykill 11900. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Niðurstaða Lagt fram til kynningar, er sér liður á dagskrá.
1.3 Frá Lánasjóði sveitarfélaga; Boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 29. mars 2019
Tekinn fyrir rafpóstur frá Lánasjóði sveitarfélaga, dagsettur þann 11. mars 2019, þar sem boðað er til aðalfundar sjóðsins föstudaginn 29. mars n.k. í Reykavík. Vakin er athygli á því að allir sveitarstjórnarmenn eiga rétt á að sækja aðalfundinn og sveitarstjóri fer með atkvæðisrétt á fundinum eða sá sem hann hefur veitt skriflegt umboð

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita sveitarstjóra umboð til að sækja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og fara með atkvæðisrétt fyrir hönd Dalvíkurbyggðar. Niðurstaða Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
1.4 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Áform fjármálaráðherra um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 18. mars 2019, þar sem kynnt er bókun stjórnar Sambandsins og erindi til fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðrar skerðingar á framlögum til Jöfnunarsjóðs um 3,3 m.kr. á næstu tveimur árum.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að rýna í ofangreindar upplýsingar og áhrif á fjárhag Dalvíkurbyggðar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.5 Frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga; fjárfestingar 2019
Tekið fyrir erindi til sveitarstjóra frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dagsett þann 18. mars 2019, er varðar almennt eftirlit með því að fjármál og fjármálastjórn sveitarfélaga sé í samræmi við lög og reglur. Fram kemur að nefndin hefur ákveðið að taka til umfjöllunar með hvaða hætti sveitarfélög standa að eftirliti og framkvæmd fjárfestinga á árinu 2019.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi einnig til umfjöllunar veitu- og hafnaráðs og umhverfisráðs. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.8 Starfsemi og rekstur Dalvíkurbyggðar - úrvinnsla úr tillögum vinnuhópa og fagráða.
Á 900. fundi byggðaráðs þann 14. mars 2019 var eftirfarandi bókað:
"Á 899. fundi byggðaráðs þann 7. mars 2019 var meðal annars eftirfarandi bókað. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindum tillögum til fagráðanna eftir því sem við á til umfjöllunar, sem trúnaðarmál á vinnslustigi. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir þeim umfjöllunum sem hafa farið fram um ofangreint í fræðsluráði, ungmennaráði og félagsmálaráði. Lagt fram til kynningar."

Áframhaldandi umræða og yfirferð á tillögum vinnuhópanna.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.9 Mánaðarlegar stöðuskýrslur bókhalds vs. áætlun 2019; janúar - febrúar
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu bókhalds janúar - febrúar 2019 í samanburði við fjárhagsáætlun 2019.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.10 Frá 21. fundi Ungmennaráðs þann 12.03.2019; Vinabæjarmót í Borgå Finnlandi 26.-28.06.2019
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi kl. 15:49 vegna vanhæfis.


Á 21. fundi Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar þann 12. mars 2019 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir bréf frá Jukka-pekka Ujula, borgarstjóra í Borgå í Finnlandi. Boðið er til vinabæjarmóts í Borgå dagana 26.-28.06.2019. Reiknað er með 2-6 þátttakendum og 2-6 ungmennum frá hverjum vinabæ. Skila skal þátttökutilkynningu fyrir 14.apríl 2019. Byggðaráð samþykkti á fundi sínum að vísa ofangreindu máli til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og ungmennaráðs til umsagnar. Einnig var íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að kanna fyrir umfjöllun Ungmennaráðs hvort og hvaða styrkir eru í boði ef lagt er til að ungmenni frá Dalvíkurbyggð sæki vinabæjamótið.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir þeim styrkjum sem mögulegt er að sækja um ef ungmennaráð myndi sækja vinabæjarmótið. Besti möguleiki á að fá styrk er í gegnum Nordplus, en umsóknarfrestur rann út í febrúar og því ekki hægt að sækja um þar fyrir komandi vinabæjarmót. Fræðilega er möguleiki á að setja vinabæjarmótið upp sem ungmennaskipti, en þá þurfa öll löndin í vinabæjarsamstarfinu að koma að verkefninu og heppilegast er að slík umsókn færi fram hjá gestgjafa. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi þekkir ekki fleiri staði sem hægt væri að sækja um styrki. Ungmennaráð tekur mjög jákvætt í erindið og telur þetta góðan vettvang til að ræða jafn mikilvægt málefni og umhverfismál. Allir aðalmenn ráðsins eru tilbúnir að gefa kost á sér að fara til Finnlands í sumar ef eftir því verður leitað. Ef aðilar ungmennaráðs fara út á slíkt vinabæjarmót telur ráðið mikilvægt að þeir sem fara, muni miðla af reynslunni til annarra ungmenna. "

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð frestar erindinu og vísar því til íþrótta-og æskulýðsfulltrúa að kanna frekar möguleikann um ofangreinda hugmynd um sameiginlega styrkumsókn með hinum vinarbæjum vegna ungmennaskipta. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.11 Frá Útlendingastofnun; Forathugun á vilja bæjarráðs / sveitarstjórnar til að gera þjónustusamning við Útlendingastofnun vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd
Guðmundur St.Jónsson kom aftur inn á fundinn kl. 15:55.

Tekið fyrir erindi frá Útlendingastofnun, dagsett þann 13. mars 2019, er varðar forathugun á vilja byggðaráðs / sveitarstjórnar til að gera þjónustusamningi við Útlendingastofnun vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þjónustan snýr m.a. að því að veita umsækjendum um alþjóðlega vernd húsaskjól, fæði og félagslegan stuðning.

Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.12 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 13. mars 2019, þar sem Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 27. mars nk.
Lagt fram til kynningar Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.13 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi, 647.mál
Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 14. mars 2019, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.), 647. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. mars nk.

Til unmræðu ofangreint.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að skoða umsögn á milli funda. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
1.14 Frá nemendafélaginu Trölla - styrkbeiðni
Tekið fyrir erindi frá nemendafélaginu Trölla, rafbréf dagsett þann 18. mars 2019, þar sem óskað er eftir styrk í formi rútu fyrir nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga frá Dalvíkurbyggð sem kæmu til með að sækja árshátíð skólans 4. apríl n.k.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum og með vísan til jafnræðisreglu að hafna ofangreindu erindi. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru því lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn. 2. liður er sér liður á dagskrá.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 902, frá 28.03.2019
Málsnúmer 1903017F
Til afgreiðslu:1. liður.3. liður a) og b) 4. liður.5. liður a) 6. liður, sér liður á dagskrá.7. liður10. liður.11. liður.12. liður.13. liður.15. liður.17. liður.
2.1 Frá Umhverfisstofnun; Samningur um Friðland Svarfdæla - drög
Á 857. fundi byggðaráðs þann 22. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 13:50. Á 301. fundi umhverfisráðs þann 2. febrúar 2018 var eftirfarandi bókað: "Til kynningar og umræðu drög að nýjum umsjónasamningi frá Umhverfisstofnun fyrir Friðland Svarfdæla. Undir þessum lið koma á fundinn Hjörleifur Hjartarsson kl.09:00 Hjörleifur vék af fundli kl. 09:33 Umhverfisráð þakkar Hjörleifi fyrir yfirferðina og leggur áherslu á að umsjónasamningur um Friðland Svarfdæla verði undirritaður sem fyrst, með þeim breytingum sem ráðið leggur til. Samþykkt með fimm atkvæðum." Til umræðu ofangreind drög að samningi. Börkur Þór vék af fundi kl. 14:48.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að eiga fund með Umhverfisstofnun um ofangreind samningsdrög og koma ábendingum sem fram hafa komið á framfæri."

Sveitarstjóri gerði grein fyrir fundi sínum ásamt sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs með Umhverfisstofnun þann 4. mars s.l. Með fundarboði byggðaráðs fylgdu uppfærð drög að samningi um Friðland Svarfdæla. Samningsdrögin voru til umfjöllunar á fundi umhverfisráðs þann 27. mars 2019 og gerði umhverfisráð ekki efnislegar athugasemdir við framlögð gögn og samþykkti samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til að gengið verið frá samningnum.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu og felur sveitarstjóra og sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að koma ábendingum byggðaráðs um samningsdrögin, er varða aðallega starf landvarðar, til Umhverfisstofnunar. Niðurstaða Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.2 Samvinna byggðaráðs og eldri borgara; tilnefningar
Á 886. fundi byggðaráðs þann 8. nóvember 2018 var samþykkt samhljóða að óska eftir tilnefningum á þremur fulltrúum í Öldungaráð frá vettvangi eldri borgara og einum fulltrúa frá Heilsugæslunni.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirfarandi tilnefningar:
a) Frá HSN: Lilja Vilhjálmsdóttir.
b) Frá Félagi eldri borgara:
Fulltrúar eldri borgara í öldungaráði eru:
Kolbrún Pálsdóttir kt. 090837-4789, Kirkjuvegi 9, 620 Dalvík
Þorgerður Sveinbjarnardóttir kt. 200737-4909, Stórhólsvegi 3, 620 Dalvík

Til vara:
Helga Mattína Björnsdóttir kt. 150844-2589, Karlsrauðatorgi 26, 620 Dalvík
Elín Rósa Ragnarsdóttir kt. 110650-2139, Sunnubraut 7, 620 Dalvík
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til fundar Öldungaráðs í apríl. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.3 Samstarfssamnngur um Tónlistarskólann á Tröllaskaga - uppfærsla á viðaukum
Á 896. fundi sveitarstjórnar þann 14. febrúar s.l. var endurskoðaður samstarfssamningur um Tónlistarskólann á Tröllaskaga samþykktur samhljóða.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
a) Endurskoðaður verksamningur við fjármála- og stjórnsýslusvið Dalvíkurbyggðar um framkvæmd og umsjón með launavinnslum og bókhaldi
b) Eignalisti fyrir TÁT.

Til umræðu ofangreint.
a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi verksamning um framkvæmd og umsjón með launavinnslum og bókhaldi og að hann verði fylgiskjal með samstarfssamningi um TÁT, vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar.
b) Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi eignalisti og samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hann verði fylgiskjal með samstarfssamningi um TÁT.
Niðurstaða a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að samningi um framkvæmd og umsjón með launavinnslum og bókhaldi.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.4 Frá 898. fundi byggðaráðs; Samningur um skólaakstur
Á 898. fundi byggðaráðs þann 28. febrúar 2019 var til umfjöllunar samningur um skólaakstur og tillaga fræðsluráðs frá 234. fundi þann 20. febrúar s.l. um að nýta ákvæði í útboði og samningi um framlengingu á samningnum til tveggja ára þannig að samningurinn gildi út árið 2022. Byggðaráð samþykkti að fela sveitarstjóra að gera tillögu að breytingum á samningum hvað varðar gildistíma um framlengingu eitt ár í senn, en að hámarki í tvö ár, og setja inn uppsagnarákvæði.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi drög að ofangreindum samningi við Ævar og Bóas ehf. um skólaakstur með breytingum á 8. lið um gildistíma. Einnig eru gerðar leiðréttingar á liðum 4.5, 4.7, 4.9 og 6.2. svo að samningsdrögin séu í samræmi við útboðsgögn frá árinu 2017.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning um skólaakstur við Ævar og Bóas ehf. með áorðnum breytingum sem gerðar voru á milli funda og á fundi byggðaráðs og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og fyrirliggjandi tillögu að samningi um skólaakstur við Ævar og Bóas ehf.
2.5 Frá vinnuhópi um uppbygging á vallarsvæði UMFS á Dalvík - drög að samningum
Á 899. fundi byggðaráðs þann 7. mars 2019 var m.a. eftirfarandi bókað:
"Byggðaráð leggur áherslu á að fyrir liggi frá UMFS endanleg kostnaðaráætlun með fjármögnun ásamt rekstraráætlun fyrir framkvæmdinni áður en gengið verður frá samningi um uppbyggingu á íþróttasvæðinu."

Á fundinum var farið yfir drög að eftirtöldum samningum:

a) Gagnkvæmur afnotaréttarsamningur um gervigrasvöll milli Dalvíkurbygðgar og UMFS
b) Samningur um gervigrasvöll milli Dalvíkurbyggðar og UMFS

Á fundinum var farið yfir eftirtalin fylgigögn frá UMFS með samningsdrögum:

a) Kostnaðaráætlun framkvæmdarinnar og fjármögnun.
b) Greiðsluáætlun.
c) Rekstaráætlun fyrir gervigrasvöllinn á ársgrundvelli.



a)Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að útfæra fyrirliggjandi drög að samningum með þeim markmiðum að hægt sé að afgreiða ofangreinda samninga á næsta fundi sveitarstjórnar, Guðmundur St. Jónsson situr hjá þar sem gögn komu inn rétt fyrir fundinn og því ekki svigrúm til að kynna sér þau til hlítar.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla upplýsinga frá sviðsstjóra veitu- og hafnasvið um fyrirkomulag framkvæmda veitna við gervigrasvöllinn.
Niðurstaða Til máls tók:
Dagbjört Sigurpálsdóttir, sem leggur fram eftirfarandi bókun hvað varðar a) lið:
"J-listinn er ekki tilbúinn að ganga frá samningi um gervigrasvöll við UMFS fyrr en allri óvissu um byggingar og rekstrarkostnað hefur verið eytt. "

Einnig tóku til máls:
Jón Ingi Sveinsson.
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem leggur jafnframt fram eftirfarandi bókun til að gera grein fyrir atkvæði sínu:
"Hvað varðar óvissuþætti um byggingar og rekstarkostnað tel ég að búið sé að leggja mikla vinnu í að sjá fyrir þessa þætti eins og hægt er og leita til sérfræðinga hvað það varðar. Fyrir liggja samningar og skjöl þess efnis undir málinu."

a) Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum fyrirliggjandi samninga við UMFS um uppbyggingu gervigrasvallar, Dagbjört Sigurpálsdóttir og Katrín Sif Ingvarsdóttir greiða atkvæði á móti.
b) Lagt fram til kynningar.

2.7 Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Ósk um leyfi til sölu á bifreiðinni BA443 Ford Transporter
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 25. mars 2019, þar sem óskað er eftir heimild til að selja bifreiðina Ford Transporter nr. BA443 en ekki er talin þörf á þessum bíl lengur. Þess er óskað jafnframt að söluandvirði bifreiðarinnar fáist nýtt til kaupa á smærri bíl fyrir vinnuskólann.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að heimila sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs söluna á ofangreindri bifreið og jafnframt er veitt heimild til að ráðstafa söluandvirði bifreiðarinnar til kaupa á bifreið sem hentar starfsseminni í samræmi við gildandi fjárhagsáætlun 2019. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.8 Tilboð í leigu á Ungó
Samkomuhúsið Ungó var auglýst til leigu og var frestur til að skila inn leigutilboðum til og með 25. mars 2019, sjá nánar á heimasíðu sveitarfélagsins: https://www.dalvikurbyggd.is/is/frettir/category/1/husnaedi-til-leigu-ungo

Eitt tilboð barst frá Gísla,Eiríki og Helga ehf. Óskað er eftir leigu á Ungó á ársgrundvelli og er hugmynd að mánaðarlegri leigu kr. 35.000.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela umsjónarmanni fasteigna að gera forsvarsmönnum Gísla, Eiríks og Helga ehf. gagntilboð í samræmi við umræður á fundinum. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.9 Starfsemi og rekstur Dalvíkurbyggðar - tillögur vinnuhópa
Á 901. fundi umhverfisráðs þann 21. mars 2019 var áframhaldandi umræða um tillögur vinnuhópanna um starfssemi og rekstur Dalvíkurbyggðar. Sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs var falið að flokka tillögur vinnuhópanna þannig byggðaráði hafi yfirsýn yfir hvaða tillögur byggðaráð fjalli beint um og hvaða tillögur ættu að fara áfram til umfjöllunar í fagráðunum.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi flokkun og yfirlit frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til fagráðanna til umfjöllunar og afgreiðslu eftir því sem við á. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.10 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Áform fjármálaráðherra um skerðingu tekna Jöfnunarsjóðs - greining
Á 901. fundi byggðaráðs þann 21. mars 2019 var eftirfarandi bókað:
"Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 18. mars 2019, þar sem kynnt er bókun stjórnar Sambandsins og erindi til fjármálaráðherra vegna fyrirhugaðrar skerðingar á framlögum til Jöfnunarsjóðs um 3,3 m.kr. á næstu tveimur árum. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að rýna í ofangreindar upplýsingar og áhrif á fjárhag Dalvíkurbyggðar."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi samantekt sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs innanhúss hvað ofangreint varðar. Til umræðu.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að draga saman helstu upplýsingar um ofangreindri samantekt og senda á fjármálaráðherra og afrit á Samband íslenskra sveitarfélaga. Niðurstaða Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.11 Frá Skíðafélagi Dalvíkur; Kaffisamsæti á skíðamóti Íslands
Tekið fyrir erindi frá Skíðafélagi Dalvíkur, rafpóstur dagsettur þann 23. mars 2019, þar sem fram kemur að Skíðasamband Íslands hefur óskað eftir því við Skíðafélag Dalvíkur að félagið haldi alpagreinahluta Skíðamóts Íslands sem átti að fara fram á Ísafirði 6. - 7. apríl n.k. Gönguhlutinn verður eftir sem áður á Seljalandsdal. Óskað er eftir að Dalvíkurbyggð bjóði keppendum og gestum mótsins til samsætis með veitingum laugardaginn 6. apríl n.k.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum styrk allt að upphæð kr. 150.000, vísað á deild 21500, risna, gegn framvísun reiknings. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.12 Frá Símenntunarstöð Eyjafjarðar; Ársfundur Símey 2019
Tekið fyrir fundarboð, rafpóstur dagsettur þann 22. mars 2019, frá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar þar sem boðað er til ársfundar miðvikudaginn 10. apríl n.k. kl. 14:15-kl. 15:00 á Akureyri. Að loknum ársfundi mun Jafnréttisstofa halda erindi um Kynjasamþættingu. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að sækja fundinn ef hann hefur tök á. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.13 Frá Eyþingi; Aukaaðalfundur Eyþings
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagsettur þann 26. mars 2019, þar sem boðað er til aukaaðalfundar Eyþings á Hótel Kea 9. apríl n.k. Efni fundarins er að ræða viðræður um sameiningu Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna á svæðinu og niðurstöðu starfshóps um form samstarfs og samvinnu þessara þriggja aðila á sviði atvinnu- og byggðamála til framtíðar. Byggðaráð Dalvíkurbyggðar tekur jákvætt í tillögu sem liggur fyrir aukaaðalfundi Eyþings hvað varðar undirbúning að stofnun nýs félags sem taki við verkefnum Eyþings, AÞ og AFE. Hvað varðar höfuðstöðvar finnst byggðaráði Dalvíkurbyggðar mikilvægara að horfa til þeirrar augljósu hagræðingar og skilvirkni sem verður af sameiningu félaganna heldur en að staðsetningar aðalskrifstofu sé gerð að bitbeini. Byggðaráð setur spurningamerki við hagræði af því að hafa fjórar skilgreindar starfsstöðvar í staðinn fyrir tvær auk starfa brothættra byggða. Þá telur byggðaráð eðlilegt og samræmast byggðasjónarmiðum að ráða hæfustu umsækjendur í störf án staðsetningar eins og hægt er m.t.t. nútímatækni og fjarfundamenningar og skilgreina starfslýsingar þannig að starfsmenn séu reglulega á ferð og í góðu samstarfi við sveitarstjórnarfólk á starfssvæðinu.
Byggðaráði Dalvíkurbyggðar líst vel á skipulag nýs félags og skipan stýrihóps eins og það er tilgreint í tillögunni.
Niðurstaða
Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu og bókun byggðaráðs.
2.14 Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar; Tillaga frá aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar (BSE) um innkaup mötuneyta.
Tekið fyrir erindi frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, dagsett þann 21.mars 2019, þar sem kynnt er tillaga frá aðalfundi sambandsins um innkaup mötuneyta. Skorað er á allar bæjar- og sveitarstjórnir í Eyjafirði að beita sér fyrir að mötuneyti grunn- og leikskóla á þeirra vegum noti sem mest af íslensku hráefni.

Til umræðu ofangreint.
Samkvæmt gildandi Skólastefnu Dalvíkurbyggðar er lögð áhersla á að nemendur fái góða og holla næringu.
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.15 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi, 647.mál
Á 901. fundi byggðaráðs þann 21. mars 2019 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, rafpóstur dagsettur þann 14. mars 2019, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.), 647. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. mars nk. Til unmræðu ofangreint.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að skoða umsögn á milli funda."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga sveitarstjóra að umsögn.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu að umsögn sveitarstjóra. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.16 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurími), 711. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 25. mars 2019, þar sem Velferðarnefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um ávana- og fíkniefni (neyslurími), 711. mál.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 15. apríl nk
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umfjöllunar í félagsmálaráði. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.17 Frá nefndasvði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, 710. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 22. mars 2019, þar sem Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð, 710. mál. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 29. mars nk. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að beina því til Atvinnuvegnanefndar Alþingis að sveitarfélögin fái sanngjarna hlutdeild í gjaldtökunni. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs.
2.18 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 869
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samband íslenskra sveitarfélaga nr. 869 frá 15. mars 2019. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
2.19 Frá Eyþingi; fundargerð stjórnar nr. 318
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings nr. 318 frá 12. mars 2019. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu eru því lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn. Liður 6 er sér liður á dagskrá.
3.
Fræðsluráð - 236, frá 27.03.2019
Málsnúmer 1903015F
3.1 Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
4.
Umhverfisráð - 317, frá 27.03.2019
Málsnúmer 1903014F
4.2 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál. Bókað í trúnaðarmálabók.
4.3 Fundargerðir Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar 2018-2022
Lögð fram til kynninga fundargerð Almannavarnarnefndar Eyjafjarðar frá 20.mars 2019 Lagt fram til kynningar Niðurstaða Til máls tók:
Katrín Sigurjónsdóttir.

Lagt fram til kynningar.
4.4 Samningur um Friðland Svarfdæla
Til kynningar og umræðu ný drög af umsjónarsamningi Friðlands Svarfdæla frá umhverfisstofnun. Umhverfisráð gerir ekki efnislegar athugasemdir við framlögð gögn og leggur til að gengið verði frá samningnum.

Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða Lagt fram til kynningar.
4.5 Frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga; fjárfestingar 2019
Tekið fyrir erindi til sveitarstjóra frá eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga, dagsett þann 18. mars 2019, er varðar almennt eftirlit með því að fjármál og fjármálastjórn sveitarfélaga sé í samræmi við lög og reglur. Fram kemur að nefndin hefur ákveðið að taka til umfjöllunar með hvaða hætti sveitarfélög standa að eftirliti og framkvæmd fjárfestinga á árinu 2019.
Byggðarráð vísar erindinu til umfjöllunar umhverfisráðs.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Lagt fram til kynningar.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því allir liðir hennar lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
5.
Frá 901. fundi byggðaráðs þann 21. mars 2019; Beiðni viðauka - Göngustígur frá Olís að Árgerði
Málsnúmer 201902085
Á 901. fundi byggðaráðs þann 21. mars 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 15. mars 2019, þar sem óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 1.756.080 vegna hlutdeildar Dalvíkurbyggðar í hönnun á göngustíg frá Olís að Árgerði. Þar sem óskað hefur verið eftir þessu framlagi Vegagerðarinnar til fjölda ára og nú loks komið fjármagn í verkefnið er afar mikilvægt að veita fjármagn í það. Á 316. fundi umhverfisráðs þann 15. mars 2019 var sviðsstjóra falið að óska eftir ofangreindum viðauka. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 1.756.080, viðauki nr. 7 við fjárhagsáætlun 2019, málaflokkur og deild 32200 og lykill 11900. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. "Til máls tók:Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr.7 við fjárhagsáætlun 2019 að upphæð kr. 1.756.080 við deild 32200 og lykil 11900. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
7.
Sveitarstjórn - 311, frá 19.03.2019
Málsnúmer 1903012F
Enginn tók til máls og fundargerðin lögð fram til kynningar.