Fara í efni

Sveitarstjórn

309. fundur
15. janúar 2019 kl. 16:15 - 17:09
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson forseti
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Felix Rafn Felixson varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 891, frá 20.12.2018
Málsnúmer 1812011F
Til afgreiðslu:7. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 892, frá 10.01.2019
Málsnúmer 1901005F
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður.5. liður.8. liður.9. liður.12. liður, sér liður á dagskrá.13. liður, sér liður á dagskrá.15. liður, sér liður á dagskrá.16. liður, sér liður á dagskrá.
3.
Atvinnumála- og kynningarráð - 40, frá 09.01.2019
Málsnúmer 1901002F
Til afgreiðslu:2. liður; sér liður á dagskrá.
4.
Fræðsluráð - 233, frá 09.01.2019
Málsnúmer 1901001F
5.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 106, frá 08.01.2019
Málsnúmer 1901003F
6.
Menningarráð - 71, frá 19.12.2018
Málsnúmer 1812010F
7.
Ungmennaráð - 18, frá 20.12.2018
Málsnúmer 1812014F
8.
Umhverfisráð - 314, frá 11.01.2019
Málsnúmer 1901006F
Til afgreiðslu:3. liður, sér liður á dagskrá.5. liður, sér liður á dagskrá.
12.
Frá 892. fundi byggðaráðs þann 10.01.2019; Beiðni um launaviðauka frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.
Málsnúmer 201901040
Á 892. fundi byggðaráðs þann 10. janúar 2019 var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir beiðni frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 9. janúar 2019, um viðauka við fjárhagsáætlun 2019, deild 06500, vegna afleysingar vegna veikinda starfsmanns að upphæð kr. 1.009.930. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um launaviðauka nr. 4 / 2019 við fjárhagsáætlun 2019, deild 06500 Íþróttamiðstöð, að upphæð kr. 1.009.930 og ráðstöfun á móti sé lækkun á handbæru fé. Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs hvað varðar viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2019 vegna veikindalauna deild 06500 Íþróttamiðstöð að upphæð kr. 1.009.930. Viðaukanum verður mætt með lækkun á handbæru fé.
13.
Frá 40. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 09.01.2019; Atvinnustefna ásamt aðgerðaráætlun.
Málsnúmer 201601026
Á 40. fundi Atvinnumála- og kynningarráðs þann 9. janúar 2019 var eftirfarandi bókað:"Á 39. fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 5. desember 2018 var þjónustu- og upplýsingafulltrúa falið að vinna að aðgerðaráætlun að teknu tilliti til niðurstaðna vinnuhópanna ásamt tillögum ráðsins að afgreiðslu. Með fundarboði atvinnumála- og kynningarráðs fylgdu uppfærð drög. Til umræðu ofangreint. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum fyrirliggjandi Atvinnustefnu Dalvíkurbyggðar og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar. "Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi ofangreind tillaga að Atvinnustefnu Dalvíkurbyggðar.Til máls tók:Katrín Sigurjónsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að Atvinnustefnu Dalvíkurbyggðar og fagnar henni.
14.
Frá 314. fundi umhverfisráðs þann 11.01.2019; Deiliskipulag Hauganesi
Málsnúmer 201901044
Á 314. fundi umhverfisráðs þann 11. janúar 2019 var eftirfarandi bókað:"Til kynningar samantekt á gögnum fyrir deiliskipulag Hauganess. Undir þessum lið kom inn á fundinn kl. 09:08 Ágúst Hafsteinsson skipulagsráðgjafi. Ágúst Hafsteinsson vék af fundi kl. 10:18 Umhverfisráð leggur til að hafin verði vinna við deiliskipulagstillögu Hauganess samkvæmt eftirfarandi. Reitur 752-Ib verði mörk deiliskipulagsins að norðan, reitur 753-Ib deiliskipulagsmörk að sunnan. Austurmörk svæðisins til sjávar og vesturmörk samkvæmt gildandi þéttbýlismörkum aðalskipulags. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfisráðs um að hafin verði vinna við deiliskipulagstillögu Hauganess samkvæmt eftirfarandi: Reitur 752-Ib verði mörk deiliskipulagsins að norðan, reitur 753-Ib deiliskipulagsmörk að sunnan. Austurmörk svæðisins til sjávar og vesturmörk samkvæmt gildandi þéttbýlismörkum aðalskipulags.
15.
Frá 314. fundi umhverfisráðs þann 11.01.2019; Tillaga að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021
Málsnúmer 201812073
Á 314. fundi umhverfisráðs þann 11. janúar 2019 var eftirfarandi bókað:"Lagt fram erindi dags 17. desember 2018 frá sveitarfélaginu Skagafirði þar sem óskað er eftir umsögn vegna tillögu að breytingum á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021. Umverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og gerir ekki athugasemdir við framlagðar tillögur hvað varðar breytingar á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.
16.
Frá Auði Helgadóttur; Beiðni úr lausn úr skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Málsnúmer 201901045
Tekið fyrir erindi frá Auði Helgadóttur, rafpóstur dagsettur þann 10. janúar 2019, þar sem Auður óskar eftir lausn úr skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Auði Helgadóttur lausn frá störfum í skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga.
17.
Frá Guðríði Sveinsdóttur; Beiðni um lausn frá störfum sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði
Málsnúmer 201901047
Tekið fyrir erindi frá Guðríði Sveinsdóttur, rafbréf dagsett þann 14. janúar 2019, þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði þar sem hún hefur misst kjörgengi sitt vegna lögheimilsflutninga úr sveitarfélaginu.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Guðríði Sveinsdóttur lausn frá störfum sem varamaður í þrótta- og æskulýðsráði.
18.
Kosningar í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201901046
Til máls Guðmundur St. Jónsson sem leggur fram eftirfarandi tillögu:a) Aðalmaður í skólanefnd Tónlistarskólans á TröllaskagaDagbjört Sigurpálsdóttir, kt. 050478-3279 í stað Auðar Helgadóttur.b) Varamaður í Íþrótta- og æskulýðsráðMarinó Þorsteinsson, kt. 281058-2749 í stað Guðríðar Sveinsdóttur.Fleiri tóku ekki til máls.
Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Dagbjört og Marinó réttkjörin.
20.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 19, frá 17.12.2018
Málsnúmer 1812012F
Til kynningar.
21.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 20, frá 19.12.2018
Málsnúmer 1812013F
Til kynningar.
22.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 21, frá 04.01.2019
Málsnúmer 1901007F
Til kynningar.
23.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 22, frá 09.01.2019
Málsnúmer 1901008F
Til kynningar.
24.
Sveitarstjórn - 308, frá 18.12.2018.
Málsnúmer 1812009F
Til kynningar.
Jón Ingi Sveinsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:47.

Fundargerðin lögð fram til kynningar og enginn tók til máls.