Fara í efni

Sveitarstjórn

308. fundur
18. desember 2018 kl. 16:15 - 17:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Katrín Sigurjónsdóttir aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 888; frá 29.11.2018
Málsnúmer 1811012F
Til afgreiðslu:1. liður; sér liður á dagskrá.2. liður; sér liður á dagskrá.3. liður.4. liður; sér liður á dagskrá.6. liður.7. liður.9. liður; sér liður á dagskrá.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 889, frá 06.12.2018
Málsnúmer 1812003F
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður; sér liður á dagskrá.5. liður; sér liður á dagskrá.8. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 890, frá 13.12.2018
Málsnúmer 1812008F
Til afgreiðslu:2. liður, sér liður á dagskrá.3. liður, sér liður á dagskrá.4. liður, sér liður á dagskrá.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 39, frá 05.12.2018
Málsnúmer 1811014F
Til afgreiðslu:1. liður.
5.
Félagsmálaráð - 224, frá 11.12.2018
Málsnúmer 1812006F
Til afgreiðslu:3. liður.
6.
Fræðsluráð - 232, frá 12.12.2018
Málsnúmer 1812007F
Til afgreiðslu:1. liður.
7.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 105, frá 04.12.2018
Málsnúmer 1811015F
8.
Landbúnaðarráð - 123, frá 13.12.2018
Málsnúmer 1812002F
Til afgreiðlu:1. liður.
9.
Menningarráð - 70, frá 06.12.2018
Málsnúmer 1811013F
Til afgreiðslu:2. liður.
10.
Umhverfisráð - 313; frá 14.12.2018
Málsnúmer 1812005F
Til afgreiðslu:7. liður; sér liður á dagskrá.12. liður.
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 81, frá 05.12.2018
Málsnúmer 1812001F
Til afgreiðslu:7. liður.
12.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 17
Málsnúmer 1811011F
Til kynningar.
13.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 18
Málsnúmer 1812004F
Til kynningar.
14.
Frá stjórn Dalbæjar; fundargerð stjórnar frá 10.12.2018
Málsnúmer 201806017
Jóni Ingi Sveinsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:45.

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

Enginn tók til máls.
15.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar 2019
Málsnúmer 201808068
1) Á 889. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018 voru eftirtaldar tillögur að gjaldskrám til umfjöllunar og afgreiðslu og byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi gjaldskrár og vísaði þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar:a) Vatnsveitu Dalvíkur b) Útleigu verbúða c) Hafnasjóð d) Fráveitu Dalvíkurbyggðar e) Búfjárhald og lausaganga búfjár f) Slökkvilið Dalvíkur g) Sorphirðu h) Byggingarfulltrúa i) Upprekstur á búfé j) Leigulönd k) Refaveiðar l) Kattahald m) Fjallskil o) Hundahald 2) Á 890. fundi byggðaráðs þann 06.12.2018 voru eftirtaldar tillögur að gjaldskrám til umfjöllunar og afgreiðslu og byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi gjaldskrár og vísaði þeim til afgreiðslu sveitarstjórnar:a) Árskógur félagsheimili. b) Bóka- og héraðsskjalasafn. c) Byggðasafnið Hvoll. d) Dalvíkurskóli. e) Frístund. f) Skólamatur. g) Mjólkuráskrift. h) Leikskólar. i) Tónlistarskólinn á Tröllaskaga. j) Íþróttamiðstöð. k) Félagsmiðstöðin Týr. l) Reglur um útleigu á Íþróttamiðstöð fyrir aðra starfsemi en íþróttaviðburði ásamt gjaldskrá. m) Heimilsþjónustu. n) Lengd viðvera. o) Dagmæður, leiðbeinandi gjaldskrá.3) Á 891. fundi byggðaráðs þann 13.12.2018 var eftirtalin tillaga að gjaldskrá til umfjöllunar og afgreiðslu og samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá og vísaði henni til afgreiðslu sveitarstjórnar:a) Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkur, leiðrétting á orðalagi í 1. gr. og verði svo hljóðandi:"Vatnsgjald "Hafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi."4) Á 313. fundi umhverfisráðs þann 14.12.2018 var gjaldskrá Slökkviliðs Dalvíkur samþykkt með 5 atkvæðum.Til máls tóku:Guðmundur St. Jónsson, sem leggur fram eftirfarandi breytingu á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er varðar 5.fl.: Aflagjald.Fellt út: Heimilt er að semja sérstaklega við stórnotendur.Inn komi í staðinn: Þeir viðskiptavinir Hafnasjóðs Dalvíkur sem landa meira en 15.000 tonnum á ári greiða 1,27% aflagjald af ferskum fiski. Miðað er við heildarafla ársins á undan.Katrín Sigurjónsdóttir.Jón Ingi Sveinsson.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindar tillögur að gjaldskrám Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2019 eins og þær liggja fyrir með breytingartillögu Guðmundur St. Jónssonar hvað varðar gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
16.
Fasteignaálagning 2019; tillaga
Málsnúmer 201806121
Á 889. fundi byggðaráðs þann 06.12.2018 var eftirfarandi bókað:"Á 885. fundi byggðaráðs þann 25.10.2018 var eftirfarandi bókað: "Sveitarstjóri kynnti og lagði fram tillögu að álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2019. Lagt er til að álagningarprósenta fasteignaskatts og lóðarleigu verði óbreytt á milli ára og álagning fasteignagjalda verði samkvæmt fyrirliggjandi tillögum að gjaldskrám vatnsveitu og fráveitu. Gjaldskrár vegna sorphirðu er í vinnslu. Lagt er til að fjöldi gjalddaga verði áfram 10. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindri tillögu til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar." Á 306. fundi sveitarstjórnar þann 30.10.2018 var samþykkt að fresta afgreiðslu á ofangreindri tillögu. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi uppfærð tillaga þar sem búið er að bæta inn gjaldskrá vegna sorphirðu.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar."Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2019:Fasteignaskattur A 0,50% af fasteignamati húss og lóðar (var 0,50% árið 2018).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá.)Sorphirðugjald kr. 43.852 ,- á íbúð (var kr. 42.443 á íbúð).Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkurFasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkurFasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).LóðarleigaLóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).VatnsgjaldHafi vatnsveita verið tengd við mannvirki á fasteign ber að greiða af henni árlegt vatnsgjald til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 4.798,66- kr. pr. íbúð og 176,12- kr. pr. fermetra húss. (óbreytt á milli ára.)b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 14.690,73- kr. pr. eign og 194,22 kr. pr. fermetra húss. (óbreytt á milli ára)c)Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum. (óbreytt)d)Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,1% af fasteignarmati allra húsa og lóða. (var 0,2% árið 2018).FráveitugjaldFráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins.a)Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 16.281,29- kr. pr. íbúð og 339,76 kr. pr. fermetra húss. (var gjald 15.839,05- kr. pr. íbúð og 330,53- kr. pr. fermetra húss)b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 37.513,99 kr. pr. eign og 339,76 kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 36.495,03- kr. pr. eign og 330,53 - kr. pr. fermetra húss.)c)Árlegt rotþróargjald verði, fast gjald kr. 16.270,66 kr. pr. losunarstað og þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár er kr. 12.621,72 (var kr. 15.828,71 og kr. 12.278,89).d)Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða (var 0,47% og 0,25%). Gjalddagar og greiðsla fasteignagjaldaGjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu að álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda 2019.
17.
Frá 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018. Beiðni um viðauka vegna varaafls;
Málsnúmer 201811141
Á 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018 var eftirfarandi bókað:"Á 80.fundi veitu-og hafnaráðs þann 9.nóvember 2018 var eftirfarandi bókað: "Í fjárhagsáætlun Hitaveitu Dalvíkur þessa árs er gert ráð fyrir kaupum á færanlegum varaaflstöðvum. Fyrir fundinum liggur tilboð frá Merkúr ehf í tvær stöðvar 10 kw og 20 kw ásamt vagni undir hvorri stöð. Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir kr. 1.500.000,- til kaupanna en tilboðið hljóðar uppá kr. 2.800.000,- án vsk en með flutningi. Sviðsstjóri leggur til að gengið verði að þessu tilboði og kr. 1.300.000,- verði teknar af lóðarfrágangi við dælustöðvar hitaveitu, en gert var ráð fyrir kr. 2.000.000,- til þess verkefnis á yfirstandandi ári. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum tillögu sviðsstjóra og leggur til við byggðaráð að kr. 1.300.000,- verði teknar af lóðarfrágangi við dælustöðvar hitaveitu, en gert var ráð fyrir kr. 2.000.000,- til þess verkefnis á þessu ári." Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs um viðauka nr. 41 við fjárhagsáætlun 2018 þannig: Málaflokkur 48200-11504 Verknúmer KD005 lagfæring á lóðum lækki um 1.300.000 kr. Málaflokkur 48200-11504 Verknúmer KD002 varaafl hækki um 1.300.000 kr. Um tilfærslu er að ræða á milli liða í fjárfestingum og því ekki þörf á ákvörðun hvernig skal mæta viðaukanum.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 41 við málaflokk 48 í fjárhagsáætlun 2018 og er eftirfarandi: Liður 48200-11504 Verknúmer KD005 lagfæring á lóðum lækki um 1.300.000 kr. Liður 48200-11504 Verknúmer KD002 varaafl hækki um 1.300.000 kr. Um tilfærslu er að ræða á milli liða í fjárfestingum og því ekki þörf á ákvörðun hvernig skal mæta viðaukanum.

18.
Frá 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018; Beiðni um viðauka vegna félagsþjónustu - lækkun á deildum
Málsnúmer 201811142
Á 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018 var eftirfarandi bókað:"Lögð fyrir beiðni frá sviðsstjóra félagsmálasviðs dags.19. nóvember 2018, óskað er eftir viðauka á eftirfarandi liði: 02-11-9150 fjárhagsaðstoð. Lækkun kr. 3.500.000,- 02-18-9165 sérstakar húsaleigubætur. Lækkun kr. 2.000.000,- 02-30-4970 vistun. Lækkun 1.000.000 Alls er óskað eftir lækkun á ramma félagsmálasviðs fyrir árið 2018 um kr. 6.500.000,- Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 42 við fjárhagsáætlun 2018 og kemur hann til hækkunar á handbæru fé."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 42 við fjárhagsáætlun 2018 og er hann eftirfarandi:Liður 02-11-9150 fjárhagsaðstoð, lækkun kr. 3.500.000. liður 02-18-9165 sérstakar húsaleigubætur, lækkun kr. 2.000.000. Liður 02-30-4970 vistun, lækkun 1.000.000. Alls er samþykkt lækkun á ramma félagsmálasviðs fyrir árið 2018 um kr. 6.500.000 og kemur hann til hækkunar á handbæru fé.
19.
Frá 890. fundi byggðaráðs 13.12.2018; Framlög Jöfnunarsjóðs 2018 - viðauki
Málsnúmer 201812040
Á 890. fundi byggðaráðs þann 13.12.2018 var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti samantekt í samræmi við upplýsingar af vef Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna úthlutunar framlaga 2018 til Dalvíkurbyggðar. Gera má því ráð fyrir að áætlað framlag í fjárhagsáætlun 2018 hækki um 38.645.764 nettó, aðallega vegna hækkunar á þjónustuframlagi og framlagi vegna málefna fatlaðra. Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð kr. 38.645.764 við deild 00100, áætluð hækkun tekna er mætt með hækkun á handbæru fé."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs á viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2018 sem er svo hljóðandi: Hækkun á áætluði framlagi frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að upphæð kr. 38.645.764 við deild 00100 samkvæmt fyrirliggjandi sundurliðun,áætluð hækkun tekna er mætt með hækkun á handbæru fé.
20.
Frá 890. fundi byggðaráðs 13.12.2018; Fjárhagsáætlun 2018; heildarviðauki IV
Málsnúmer 201812039
Á 890. fundi byggðaráðs þann 13.12.2018 var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 þar sem búið er að bæta við viðaukum samkvæmt málum 201811072, 201811071, 201811141, 20181142, 201812040 og leiðrétting á 201809107. Um er að ræða viðauka nr. 39-44 ásamt leiðréttingu á viðauka nr. 34. Áætluð niðurstaða Samantekið A- og B-hluta er fyrir árið 2018 kr. 158.127.000 og þar af A-hluti samtals kr. 114.658.000. Áætluð lántaka að upphæð 70 m.kr. vegna Eignasjóðs er tekin út og áætlaðar fjárfestingar eru kr. 291.690.000 og hafa lækkað um 6,4 m.kr. frá heildarviðauka III. Til umræðu ofangreint.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindan heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar."Til máls tók:Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhjóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu að heildarviðauka IV við fjárhagsáætlun 2018 eins og hann liggur fyrir.
21.
Frá 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018; Árskógur lóð 1, húsnæði á söluskrá
Málsnúmer 201810080
Á 888. fundi byggðaráðs þann 29.11.2018 var eftirfarandi bókað:"Þann 22.nóvember 2018 barst tilboð í eignina Árskóg lóð 1, að upphæð kr. 30.000.000,-. Tilboðið er gert með fyrirvara um sölu tilboðsgjafa á eign á Akureyri. Verði sú eign ekki seld innan 30 daga frá samþykki kauptilboðs þessa fellur tilboðið sjálfkrafa úr gildi.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint kauptilboð í eignina Árskóg lóð 1."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreint kauptilboð í eignina Árskóg lóð 1.
22.
Frá Valdemar Þór Viðarssyni; Beiðni um lausn frá störfum sem formaður Atvinnumála- og kynningarráðs
Málsnúmer 201811143
Tekið fyrir erindi frá Valdemar Þór Viðarssyni, rafbréf dagsett þann 27.11.2018, þar sem hann óskar lausnar úr Atvinnumála- og kynningarráði sem aðalmaður og formaður.Til máls tóku:Guðmundur St. Jónsson.Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Valdemar Þór Viðarssyni lausn frá störfum sem aðalmaður og formaður Atvinnumála- og kynningarráðs.
23.
Frá Eydísi Örnu Hilmarsdóttur; Beiðni um leyfi frá nefndarstörfum vegna fæðingarorlofs
Málsnúmer 201812080
Tekið fyrir rafbréf frá Eydísi Örnu Hilmarsdóttur, dagsett þann 17.12.2018, þar sem hún óskar eftir leyfi frá Íþrótta- og æskulýðsráði frá og með 20. desember 2018 og til og með 1. október 2019 vegna fæðingarorlofs.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Eydís Örnu leyfi frá störfum í Íþrótta- og æskulýðsráði skv. ofangreindri beiðni.
24.
Kosning í nefndir og ráð skv. Samþykk um stjórn Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201812064
a) Formaður Atvinnumála- og kynningarráðs.Til máls tók forseti sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Sigríður Jódís Gunnarsdóttir verði formaður í stað Valdemars og inn sem aðalmaður kemur Júlíus Magnússon kt. 071262-5109, Böggvisbraut 6 620 Dalvík.b) Aðalmaður í Íþrótta- og æskulýðsráðs vegna fæðingarorlofs.Til máls tók forseti sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Aðalmaður á meðan að á leyfi stendur verður Jónína Guðrún Jónsdóttir (B) kt. 051276-4269, núverandi varamaður í Íþr-og æskul.ráði.Varamaður í hennar stað fyrir sama tímabil verður Íris Hauksdóttir (B) kt. 010587-3449Fleiri tóku ekki til máls og ekki komu fram aðrar tillögur.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Sigríður Jódís og Júlíus réttkjörin.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Jónína Guðrún og íris réttkjörin.

25.
Sveitarstjórn - 307; frá 20.11.2018
Málsnúmer 1811010F
Lagt fram til kynningar og enginn tók til máls.