Sveitarstjórn
307. fundur
20. nóvember 2018
kl.
16:15
-
00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Katrín Sigurjónsdóttir
aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson
aðalmaður
Þórunn Andrésdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 886, frá 08.11.2018
Til afgreiðslu:1. liður- sérliður á dagskrá.9. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 887, frá 15.11.2018
Til afgreiðslu:1. liður sér liður á dagskrá.2. liður sér liður á dagskrá.
3.
Atvinnumála- og kynningarráð - 38, frá 07.11.2018.
4.
Félagsmálaráð - 223, frá 13.11.2018
Til afgreiðslu:5. liður.
5.
Fræðsluráð - 231, frá 14.11.2018
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 104 frá 06.11.2018
Til afgreiðslu:2. liður.
7.
Landbúnaðarráð - 122, frá 15.11.2018
Til afgreiðslu:2. liður.4. liður.5. liður.7. liður.
8.
Umhverfisráð - 312, frá 07.11.2018
Til afgreiðslu:1. liður.7. liður; vísa til byggðaráðs.
9.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 80, frá 09.11.2018
Til afgreiðslu:3. liður; vísa til byggðaráðs.
10.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 16, frá 29.10.2018
Til kynningar.
11.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2019. Síðari umræða.
Á 306. fundi sveitarstjórnar þann 30.10.2018 var eftirfarandi bókað:"Á 78. fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað: "Kynntar voru breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur, sem taka mun gildi 1. janúar 2019. Gjaldskránni var síðast breytt 1. janúar 2017. Í þeim tillögum sem liggja fyrir ráðinu er gert ráð fyrir að gjaldskráin taki breytingum vísitölu byggingarkostnaðar frá desember 2017, 136,1 stig til september 2018, 139,9 stig eða um 2,79%. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða, með fimm atkvæðum, framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar. " Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur til síðari umræðu í sveitarstjórn. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur sem taki gildi 1. janúar 2019.
12.
Tillaga að álagningu útsvars 2019.
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga um álagningu útsvars fyrir árið 2019. Lagt er til að útsvarsprósentan verði óbreytt á milli ára, hámarksútsvar, 14,52%Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að útsvarsprósentan verði óbreytt á milli ára og verði því fyrir árið 2019 14,52%.
13.
Fjárhagsáætlun 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022. Síðari umræða.
Á 306. fundi sveitarstjórnar þann 30. október 2018 var tillaga að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022 tekin til fyrri umræðu. Sveitarstjórn samþykkti samhljóða með 7 atkvæðum að vísa áætluninni til byggðaráðs á milli umræðna í sveitarstjórn.Á fundum byggðaráðs á milli umræðna voru gerðar breytingar á fjárhagsáætlunarfrumvarpinu hvað varðar nýja verðbólguspá og fjárfestingar Eignasjóðs. Einnig voru gerðar breytingar á launaáætlun safna í málaflokki 05 vegna breytinga í starfsmannahaldi safnanna.Til máls tók;Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu breytingum á milli umræðna og helstu niðurstöðum.2019:Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B-hluta kr. 118.621.000 jákvættRekstrarniðurstaða Aðalsjóð kr. - 12.662.000 neikvæð.Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs kr. 78.387.000 jákvæð. Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 328.150.000 og kr. 16.251.000 vegna framlags til Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hes. Áætluð lántaka kr. 135.000.000. Veltufé frá rekstri kr. 359.371.000 Veltufjárhlutfall 1,10. 2020: Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B-hluta kr. 141.752.000 jákvætt Rekstrarniðurstaða Aðalsjóð kr. - 19.173.000 neikvæð. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs kr. 102.802.000 jákvæð. Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr.136.690.000. Áætluð lántaka kr. 0. Veltufé frá rekstri kr. 390.966.0002021: Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B-hluta kr 149.683.000 jákvætt Rekstrarniðurstaða Aðalsjóð kr. - 31.757.000 neikvæð. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs kr. 118.566.000 jákvæð. Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 138.870.000 Áætluð lántaka kr. 0. Veltufé frá rekstri kr. 400.677.0002022: Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B-hluta kr. 155.520.000 jákvætt Rekstrarniðurstaða Aðalsjóð kr. - 47.358.000 neikvæð. Rekstrarniðurstaða Eignasjóðs kr. 135.293.000 jákvæð. Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 118.270.000. Áætluð lántaka kr. 0. Veltufé frá rekstri kr. 407.956.000. Einnig tóku til máls:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.Jón Ingi Sveinsson.
Sveitarstjórn færir starfsmönnum, stjórnendum, sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs og byggðaráði bestu þakkir fyrir vinnuna að fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2019 og þriggja ára áætlun 2020-2022.
14.
Frá 887. fundi byggðaráðs þann 15.11.2018; Ósk um viðauka vegna kaupa á rafbifreið fyrir umhverfis- og tæknisvið
Á 887. fundi byggðaráðs þann 15. nóvember 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagett þann 12. nóvember 2018, þar sem óskað er eftir að kr. 5.000.000 sem gert er ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2018 vegna kaupa á rafbifreið fyrir umhverfis- og tæknisvið verði fellt niður þar sem gert er ráð fyrir þessari fjárfestingu árið 2019. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 39 við fjárhagsáætlun 2018 til lækkunar á fjárfestingum að upphæð kr. 5.000.000 á deild 32200 og til hækkunar á móti á handbæru fé."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 39 við fjárhagsáætlun 2018 til lækkunar að fjárfestingum á deild 32200 að upphæð 5,0 m.kr. og til hækkunar á móti á handbæru fé.
15.
Frá 887. fundi byggðaráðs þann 15.11.2018; Ósk um viðauka vegna framlags Dalvíkurbyggðar til hraðhleðslustöðvar
Á 887. fundi byggðaráðs þann 15. nóvember 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 12. nóvember 2018, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 vegna framlags Dalvíkurbyggðar til hraðhleðslustöðvar. Óskað er eftir að áætlað framlag að upphæð kr. 1.400.000 verði fellt niður og sett verði upp millihleðslustöð en styrkur Dalvíkurbyggðar dugar fyrir þeim kostnaði. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 40 við fjárhagsáætlun 2018 til lækkunar að upphæð kr. 1.400.000 á deild 32200 og að honum verði mætt með hækkun á handbæru fé."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs hvað varðar viðauka nr. 40 við fjárhagsáætlun 2018 til lækkunar á deild 32200 að upphæð 1,4 m.kr. og að honum verði mætt með hækkun á handbæru fé.
16.
Kosningar í ráð og nefndir Dalvíkurbyggðar; Öldungaráð
Á 886. fundi byggðaráðs þann 8. nóvember 2018 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs frá Félagi eldri borgara í Dalvíkurbyggð Kolbrún Pálsdóttir, formaður, og Þorgerður Sveinbjarnardóttir, og Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, kl. 13:00.Samkvæmt samkomulagi við Félag eldri borgara frá 23. mars 2017 er gert ráð fyrir að minnsta kosti 2 fundum byggðaráðs á ári með Öldungaráði Félags eldri borgara og sviðsstjóra félagsmálasviðs.Samkvæmt nýjum lögum og breyttum lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga sem tóku gildi 1. október s.l. þá er meðal nýmæla að öldungaráð taki við því hlutverki sem þjónustuhópum aldraða hefur fram til þessa verið falið að sinna. Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettar þann 19. júní 2018 og 5. nóvember 2018, er varða staðsetningu og fyrirkomulag Öldungaráðs í stjórnsýslu sveitarfélaga.Til umræðu ofangreint sem og meðal annars bílastæðamál, samþætting þjónustu félagsþjónustu, Dalbæjar og HSN,kynning á heimilisþjónustu, upplýsingatækni, fleiri bekki úti, möguleika á akstursþjónustu, bílastæðamál við Berg, Heilsueflandi samfélag,húsnæðismál. Kolbrún og Þorgerður viku af fundi kl. 14:26.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tilnefningum á þremur fulltrúum í Öldungaráð frá vettvangi eldri borgara og einum fulltrúa frá Heilsugæslunni."Til máls tók forseti sem leggur fram þá tillögu að fulltrúar Dalvíkurbyggðar í Öldungaráði verði byggðaráð, eins og það er skipað á hverjum tíma, og með ráðinu starfi sviðsstjóri félagamálasviðs.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta um skipun í Öldungaráð að hálfu Dalvíkurbyggðar.
17.
Frá Dalbæ; Fundagerð stjórnar frá 15.11.2018
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Dalbæjar frá 15. nóvember 2018.
Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.
18.
Sveitarstjórn - 306, frá 30.10.2018
Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.