Fara í efni

Sveitarstjórn

303. fundur
15. maí 2018 kl. 16:15 - 17:14
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Íris Hauksdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Bjarni Theódór Bjarnason sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 864, frá 18.04.2018
Málsnúmer 1804010F
3. liður; sér liður á dagskrá.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 865, frá 26.04.2018.
Málsnúmer 1804011F
Til afgreiðslu:4. liður.5. liður.6. liður.10. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 866, frá 03.05.2018.
Málsnúmer 1805001F
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 867, frá 11.05.2018
Málsnúmer 1805006F
Til afgreiðslu:2. liður a), 2. liður c). 2. liður b) er sér liður á dagskrá.3. liður a), 3. liður b) er sér liður á dagskrá.5. liður.
5.
Atvinnumála- og kynningarráð - 34, frá 02.05.2018
Málsnúmer 1804014F
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður.3. liður, varðandi tillögu um að gengið verði til samninga við Hype.
6.
Landbúnaðarráð - 117, frá 11.05.2018
Málsnúmer 1805004F
Til afgreiðslu:3. liður4. liður.
7.
Umhverfisráð - 305, frá 11.05.2018
Málsnúmer 1805005F
Til afgreiðslu:5. liður.6. liður.7. liður.8. liður.11. liður, fyrsta málsgrein til afgreiðslu varðandi framkvæmdir.12.liður, sér liður á dagskrá.13. liður, sér liður á dagskrá.14. liður, sér liður á dagskrá.
8.
Ungmennaráð - 17, frá 25.04.2018.
Málsnúmer 1804012F
Til afgreiðslu:2. liður.
9.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 74, frá 11.05.2018
Málsnúmer 1805003F
10.
Frá 861. fundi byggðarráðs; Endurnýjun á reykköfunarbúnaði slökkviliðs Dalvíkur, beiðni um viðauka.
Málsnúmer 201804031
Á 864. fundi byggðaráðs þann 18. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, og Vilhelm Anton Hallgrímsson, slökkviliðsstjóri, kl. 14:05. Á 304. fundi umhverfisráðs þann 12. apríl 2018 var eftirfarandi bókað: "Til umræðu endurnýjun á reykköfunarbúnaði slökkviliðs Dalvíkur. Undir þessum lið kom á fundinn Vilhelm Anton Hallgrímsson slökkvilisstjóri Vilhelm anton vék af fundi kl. 08:50 Umhverfisráð leggur til við byggðarráð að farið verði strax í kaup á umbeðnum búnaði samkvæmt innsendu erindi slökkviliðsstjóra dags. 19. mars 2018. Samþykkt með fimm atkvæðum." Til umræðu ofangreint. Vilhelm Anton vék af fundi kl. 14:20 Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi og viðauka nr. 10 / 2018 við deild 07210 allt að upphæð kr. 5.214.000. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé." Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 10 / 2018 við deild 07210 allt að upphæð kr. 5.214.000. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
11.
Frá 867. fundi byggðaráðs þann 11.05.2018; Endurnýjun og/eða viðhald á stoðvegg á lóðarmörkum við Hafnarbraut 16 og 18; beiðni um viðauka
Málsnúmer 201708036
Á 867. fundi byggðaráðs þann 11. maí 2018 var m.a. bókað:b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 11/2018 við fjárhagsáætlun 2018, allt að kr. 2.000.000, við deild 09290, lykill 4620, og að viðaukanum sé mætt með lækkun á handbæru fé. Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs og viðauka nr. 11/2018 við fjárhagsáætlun 2018, allt að kr. 2.000.000, við deild 09290, lykill 4620, og að viðaukanum sé mætt með lækkun á handbæru fé.
13.
Frá 305. fundi umhverfisráðs þann 11.05.2018; Breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028
Málsnúmer 201804095
Á 305. fundi umhverfisráðs þann 11. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Með rafpósti dags. 23.apríl 2018 óskar Íris Stefánsdóttir fyrir hönd Fjallabyggðar eftir umsögn vegna breytinga á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við breyting á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028. Samþykkt með fjórum atkvæðum. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og gerir ekki athugasemdir við breytingu á aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028.
14.
Frá 305. fundi umhverfisráðs þann 11.05.2018; Breyting á Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna íþróttasvæðis á Dalvík.
Málsnúmer 201801050
Á 305. fundi umhverfisráðs þann 11. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 var auglýst 28. febrúar 2018. Athugasemdafrestur var frá 1. mars til 12. apríl. Engar athugasemdir bárust. Umhverfisráð leggur til að tillagan verði samþykkt og send til Skipulagsstofnunar, ásamt athugasemdum og umsögnum um þær, til staðfestingar."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu umhverfisráðs og samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og að hún verði send til Skipulagsstofnunar, ásamt athugasemdum og umsögnum um þær, til staðfestingar.
15.
Frá 305. fundi umhverfisráðs þann 11.05.2018; Deiliskipulag íþróttasvæðis
Málsnúmer 201708069
Á 305. fundi umhverfisráðs þann 11. maí 2018 var eftirfarandi bókað:"Tillaga að deiliskipulagi íþróttasvæðis Dalvíkur var auglýst skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 28. febrúar 2018. Athugasemdafrestur var frá 1. mars til 12. apríl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir frá umsagnaraðilum voru án athugasemda. Umhverfisráð samþykkir deiliskipulagsgögnin sem eru í formi greinagerðar, skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs og deiliskipulagstillögu íþróttasvæðis í formi greinagerðar og skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
16.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2017. Síðari umræða.
Málsnúmer 201711059
Á 302. fundi sveitarstjórnar þann 17. apríl 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta er jákvæð um kr. 231.954.000. Veltufé frá rekstri er jákvætt um kr. 343.382.000 og handbært fé frá rekstri er jákvætt um kr. 378.526.000. Fjárfestingar samstæðu er kr. 502.176.000 og fjárfesting í félögum kr. 4.360.000. Söluverð eigna kr. 102.400.000. Tekin voru langtímalán að upphæð kr. 187.000.000 og afborganir langtímalána var kr. 156.988.000. Til máls tók: Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreikningsins. Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2017 til síðari umræðu í sveitarstjórn. Til máls tóku:Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri.Heiða Hilmarsdóttir, forseti sveitarstjórnar, sem færði samstarfsmönnum kærar þakkir fyrir samstarfið.Sveitarstjórn færir þakkir til sveitarstjóra, starfsmanna og sviðstjóra sveitarfélagsins fyrir vel unnin störf á kjörtímabilinu.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2018 og áritar reikninginn því til staðfestingar.

17.
Kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar 26. maí n.k.
Málsnúmer 201805061
Samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna nr. 5/1998 er það hlutverk sveitarstjórnar að sjá um að kjörskrár séu gerðar.Á fundinum var lögð fram kjörskrá vegna kosningar til sveitarstjórnar í Dalvíkurbyggð laugardaginn 26. maí n.k. Á kjörskrá samkvæmt kjörskrárstofni eru 1.363, þar af 706 karlar og 657 konur.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi kjörskrá.

Á 302. fundi sveitarstjórnar þann 17. apríl s.l. samþykkti sveitarstjórn að veita byggðarráði fullnaðarumboð til að ganga frá kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 26. maí 2018. Jafnframt veitir sveitarstjórn byggðarráði fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir sem kunna að berast vegna framlagðrar kjörskrár sbr. ákv. 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5. frá 6. mars 1998 með síðari breytingum.
18.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 8, frá 26.04.2018
Málsnúmer 1804013F
19.
Sveitarstjórn - 302, frá 17.04.2018
Málsnúmer 1804009F
Lögð fram til kynningar.