Sveitarstjórn
302. fundur
17. apríl 2018
kl.
16:15
-
17:17
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Kristján Guðmundsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Íris Hauksdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
sveitarstjóri
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 861, frá 28.03.2018.
Til afgreiðslu:1. liður sér liður á dagskrá.2. liður sér liður á dagskrá.6. liður.7. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 862, frá 05.04.2018.
Til afgreiðslu:1. liður, sér liður á dagskrá.2. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 863, frá 11.04.2018.
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður er sérliður á dagskrá.3. liður er sérliður á dagskrá.4. liður er sérliður á dagskrá.6. liður er sérliður á dagskrá.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 33, frá 04.04.2018.
5.
Félagsmálaráð - 217, frá 10.04.2018.
6.
Fræðsluráð - 225, frá 11.04.2018.
Til afgreiðslu:2. liður.
7.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 99, frá 03.04.2018
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður.3. liður.
8.
Menningarráð - 67, frá 21.03.2018.
Til afgreiðslu:1. - 9. liður: vantar að vísa á liði í fjárhagsáætlun 201810. liður.
9.
Umhverfisráð - 304, frá 12.04.2018
Til afgreiðslu:4. liður sérliður á dagskrá.5. liður.7. liður.8. liður.9. liður.10. liður.11. liður.12. liður.
10.
Ungmennaráð - 16, frá 28.03.2018
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 73, frá 11.04.2018
Til afgreiðslu:5. liður.
12.
Fundagerðir skólanefndar TÁT, fundargerð nr. 8 frá 20.03.2018.
Til afgreiðslu:2. liður.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum 2. lið fundargerðarinnar, skóladagatal. Aðrir liðir eru lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
13.
Frá 861. fundi byggðaráðs frá 28.03.2018; Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur; viðauki vegna rennibrautar.
Á 861. fundi byggðaráðs þann 28. mars 2018 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Ingvar Kristinsson, umsjónarmaður fasteigna, Hlynur Sigursveinsson, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, og Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, kl. 8:00. Tekið fyrir erindi frá byggingarnefnd um endurbætur á Sundlaug Dalvíkur, dagsett þann 26. mars 2018, þar sem fram kemur að á 5. fundi nefndarinnar var farið yfir tilboð innflutningsaðilum í rennibrautir. Bygginganefnd mælir með að keypt verði tvöföld vatnsrennibraut fyrir sundlaugina samkvæmt tilboði frá Spennandi dagsett þann 7. mars 2018. Heildarkostnaður með uppsetningu, endurbótum á lóð og á búnaði er áætlaður samtals kr. 49.931.020. Í fjárhagsáætlun 2018 er heimild vegna rennibrautar kr. 35.000.000. Óskar er því eftir viðauka að upphæð kr. 15.000.000 á 32200-11603-E1809. Til umræðu ofangreint. Ingvar Kr. vék af fundi kl. 08:37. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 15.000.000 við fjárhagsáætlun 2018, viðauki nr. 4 / 2018, liður 32200-11603-E1809. Viðaukanum mætt með lækkun á handbæru fé. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 4 við fjárhagsáætlun 2018, liður 32200-11603-E1809 og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Sveitarstjórn samþykkir samhliða samhljóða með 7 atkvæðum að samið verði við Spennandi á grundvelli ofangreinds tilboðs.
14.
Frá 861. fundi byggðaráðs frá 28.03.2018; Hjólabraut - viðauki
Á 861. fundi byggðaráðs þann 28. mars 2018 var eftirfarandi bókað."Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, bréf dagsett þann 26. mars 2018, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð kr. 915.000 vegna kaupa á hjólabraut frá Alexandra Kárasyni. Í fjárhagsáætlun 2018 er heimild vegna hjólabrautar kr. 5.900.000, sem er grunnkostnaður á brautinni. Það sem vantar upp á er flutningur og samsetning. Einnig er óskað eftir að fá að kaupa svokallað entrykit á brautina. Til umræðu ofangreint. Hlynur og Gísli Rúnar viku af fundi kl. 08:48. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka að upphæð kr. 915.000, viðauki nr. 5/2018 við deild 32200. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að viðaukanum sé mætt með lækkun á handbæru fé."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka að upphæð kr. 915.000, viðauki nr. 5/2018 við deild 32200, og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Samhliða samþykkir sveitarstjórn samhljóða með 7 atkvæðum að gengið verði til samninga við Alexandra Kárason um kaup á hjólabrautinni skv. ofangreindu.
15.
Frá 863. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2018; Erindi vegna flotbryggju á Hauganesi - viðauki.
Á 863. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Á 861. fundi byggðaráðs þann 28. mars 2018 var meðal annars eftirfarandi bókað: "Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir tillögu að lausn frá siglingasviði Vegagerðarinnar en starfsmenn siglingasviðs skoðuðu aðstæður á Hauganesi á dögunum. Á undanförnum vikum og mánuðum hefur byggðaráð farið yfir málið og farið í vettvangsskoðun á Hauganes. Markmiðið sé að leysa aðgengismál fyrir farþega hvalaskoðunar til framtíðar. Byggðaráð felur hafnastjóra að hafa samband við siglingasvið Vegagerðarinnar varðandi ofangreint." Á 73. fundi veitu- og hafnaráðs þann 11. apríl 2018 var eftirfarandi bókað: "Fyrir fundinum liggur tilboð frá Króla ehf í flotbryggju með uppsetningu og öllum frágangi. Tilboðsverð er kr. 10.550.000 m/VSK og fyrirhuguð afgreiðsla er um miðjan júní n.k. Verkkaupi þarf að sjá um að ná í flotbryggjuna til Akureyrar. Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagt tilboð frá Króla ehf í flotbryggju fyrir Hauganes og óskar jafnframt eftir viðauka vegna þessara framkvæmdar að fjárhæð kr. 4.000.000,-." Á fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 er gert ráð fyrir kr. 5.000.000 vegna þessa verkefnisins. Mismunurinn kr. 1.550.000 er vegna virðisaukaskatts. Þorsteinn vék af fundi kl. 13:25. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2018, viðauki nr. 7. Vísað á deild 42200 og mætt með lækkun á handbæru fé. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2018. Vísað á deild 42200 og mætt með lækkun á handbæru fé, vegna kaupa á flotbryggju af Króla ehf á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs.
16.
Frá 863. fundi byggðaráð þann 11.04.2018; Starfsmannamál veitna- ráðning vegna skönnunar á teikningum - viðauki.
Á 863. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Tekin fyrir beiðni frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs um ráðningu starfsmanns vegna skönnunar á teikningum veitna. Um er að ræða stöðuhlutfall sem nemur 62,5% stöðuhlutfall, þ.e. 50% í maí og 12,5% í apríl. Áætlaður kostnaður með launatengdum gjöldum er kr. 277.045. Á móti kemur lækkun á deild 48200 vegna áætlunar um uppfærslu á gagnagrunni. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun 2018. Þar sem um er að ræða innbyrðis færslur þá þarf ekki að bregðast við þessari ráðstöfun með öðrum hætti. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun 2018 vegna ráðningar tímabundið á starfsmanni á veitu- og hafnasviði vegna skönnunar á teikningum veitna. Þar sem um er að ræða innbyrðis færslur þá þarf ekki að bregðast við þessari ráðstöfun með öðrum hætti.
17.
Frá 863. fundi byggðaráðs þann 11.04.2018; Ósk um viðauka á fjárhagsáætlunar vegna kostnaðar við leiktæki á Hauganesi - viðauki.
Á 863. fundi byggðaráðs þann 11. apríl 2018 var eftirfarandi bókað. "Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 6. apríl 2018 þar sem óskað er eftir viðauka á fjárhagsáætlun 2018 vegna kostnaðar við leiktæki á Hauganesi. Beiðnin er tilkomin vegna erindis frá íbúasamtökunum á Hauganesi, dagsett þann 5. apríl 2018, þar sem óskað er eftir breytingu á fyrirhuguðum leiktækjakaupum. Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 204.000 við 32200-11608-E1818, en á áætlun 2018 er kr. 1.500.000. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2018, viðauki nr. 8/2018, að upphæð kr. 204.000. Vísað á deild 32200 og lið 11608, verkefni nr. E1818. Byggðaráð samþykkir jafnframt með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Byggðaráð leggur áherslu á að leiktækin verði sett niður sem allra fyrst og fagnar frumkvæði íbúanna. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun 2018 að upphæð kr. 204.000. Vísað á deild 32200 og lið 11608, verkefni nr. E1818. Sveitarstjórn samþykkir jafnframt samhljóða með 7 atkvæðum að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
18.
Frá 863. fundi byggðaráðs þann 11.04.2018: Innleiðing á nýrri persónuverndarlöggjöf - þjónusta ráðgjafa - viðauki.
Á 863. fundi byggðáráðs þann 11. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá vinnuhópi vegna innleiðingar á nýrri persónuverndarlöggjöf, dagsett þann 9. apríl 2018, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun að upphæð kr. 4.300.000 við deild 21010 vegna ráðgjafar og aðstoðar frá verktaka við innleiðinguna. Lagt er til að samið verði við PACTA. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2018, viðauki nr. 9/2018, við deild 21010 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun 2018 við deild 21010 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Samhliða samþykkir sveitarstjórn samhljóða með 7 atkvæðum þá tillögu að samið verði við PACTA.
19.
Frá 304. fundi umhverfisráðs þann 12.04.2018; Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Á 304. fundi umhverfisráðs þann 12. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Til umræðu og afgreiðslu umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar 2018-2022 ásamt umsögnum. Umhverfisráð leggur til að Umferðaöryggisáætlun Dalvíkurbyggðar 2018-2022 verði samþykkt. Samþykkt með fimm atkvæðum. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 - 2022 eins og hún liggur fyrir.
20.
Kosning til sveitarstjórnar laugardaginn 26.05.2018; kjörskrá, kjördeildir og kjörstaðir.
Með fundarboði fylgdi eftirfarandi tillaga sem forseti sveitarstjórnar lagði fram:a)Umboð til byggðarráðs Dalvíkurbyggðar til að staðfesta kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 26. maí 2018 og fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir.Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarumboð til að ganga frá kjörskrá vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara þann 26. maí 2018. Jafnframt veitir sveitarstjórn byggðarráði fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir sem kunna að berast vegna framlagðrar kjörskrár sbr. ákv. 10. gr. laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5. frá 6. mars 1998 með síðari breytingum. b)Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna kosninga til sveitarstjórnar 26. maí 2018, sbr. 13. gr. IV. kafla laga um kosningar til sveitarstjórna nr. 5 frá 6. mars 1998 og sbr. 44 gr. IX. kafla sömu laga um kosningar til sveitarstjórna.Sbr. 13. og 44. gr. laga um kosningar til sveitarstjórnar nr. 5 frá 6. mars 1998 með síðari breytingum samþykkir sveitarstjórn eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og verður hún í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar. Enginn tók til máls.
a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu hvað varðar umboð til byggðráðs varðandi kjörskrá.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu hvað varðar fjölda kjörstaða og kjördeild.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu hvað varðar fjölda kjörstaða og kjördeild.
21.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2017. Fyrri umræða.
Á 862. fundi byggðaráðs þann 5. apríl 2018 var eftirfarandi bókað:"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Arnar Árnason, löggiltur endurskoðandi hjá KPMG Akureyri, Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, Valdís Guðbrandsdóttir, aðalmaður í sveitarstjórn, og Heiða Hilmarsdóttir, forseti sveitarstjórnar, kl. 13:00. Allir aðalmenn í sveitarstjórn og sviðstjórar voru boðaðir á fundinn undir þessum lið. Arnar Árnason fór yfir helstu niðurstöður og forsendur ársreiknings 2017. Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta er jákvæð um kr. 231.954.000. Veltufé frá rekstri er jákvætt um kr. 343.382.000 og handbært fé frá rekstri er jákvætt um kr. 378.526.000. Fjárfestingar samstæðu er kr. 502.176.000 og fjárfesting í félögum kr. 4.360.000. Söluverð eigna kr. 102.400.000. Tekin voru langtímalán að upphæð kr. 187.000.000 og afborganir langtímalána var kr. 156.988.000. Arnar, Eyrún, Þorsteinn, Börkur, Valdís, og Heiða viku af fundi kl. 14:21. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017 til fyrri umræðu í sveitarstjórn. Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum ársreikningsins.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ársreikningi Dalvíkurbyggðar 2017 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
22.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 6, frá 28.03.2018
23.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 7, frá 09.04.2018
24.
Sveitarstjórn - 301
Fundargerðin lögð fram til kynningar.