Sveitarstjórn
301. fundur
20. mars 2018
kl.
16:15
-
17:03
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Kristján Guðmundsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 857, frá 22.02.2018
Til afgreiðslu:6. liður.7. liður.10. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 858, frá 01.03.2018
Til afgreiðslu:6. liður f).7. liður.10. liður.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 859, frá 08.03.2018
Til afgreiðslu:4. liður.7. liður.
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 860, frá 15.03.2018
Til afgreiðslu:5. liður.6. liður.
5.
Atvinnumála- og kynningarráð - 32, frá 07.03.2018.
Til afgreiðslu:1. liður.
6.
Félagsmálaráð - 216, frá 13.03.2018
Ekkert til afgreiðslu.
7.
Fræðsluráð - 224, frá 14.03.2018
Til afgreiðslu:4. liður sér liður á dagskrá.
8.
Landbúnaðarráð - 116, frá 15.03.2018
Til afgreiðslu:5. liður.6. liður.
9.
Ungmennaráð - 15, frá 28.02.2018.
10.
Umhverfisráð - 303, frá 16.03.2018
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður.3. liður.4. liður.5. liður.6. liður.7. liður.8. liður.9. liður.10. liður.11. liður.12. liður.13. liður.14. liður.16. liður.17. liður.19. liður- sér mál á dagskrá.20. liður.21. liður.23. liður.
11.
Frá skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga; 7. fundur.
Enginn tók til máls,
Ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og er hún því lögð fram til kynningar í sveitarstjórn.
12.
Frá 224. fundi fræðsluráðs þann 14.03.2018; Grunnskóli - sérkennslustefna
Á 224. fundi fræðsluráðs þann 14. mars 2018 var eftirfarandi bókað:"Dóróþea Reimarsdóttir, sérfræðingur á fræðslusviði Dalvíkurbyggðar, kynnti endurskoðaða stefnu um þjónustu Dalvíkurbyggðar við börn með sérþarfir í grunnskólum sveitarfélagsins. Eldri stefna hefur verið í gildi frá árinu 2011.Fræðsluráð samþykkir endurskoðaða stefnuna með 4 atkvæðum."Til máls tók:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllunar og afgreiðslu kl. 16:35.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum stefnu grunnskóla Dalvíkurbyggðar um þjónustu við nemendur með sérþarfir, Gunnþór Eyfjörð greiðir ekki atkvæði vegna vanhæfis.
13.
Frá 303. fundi umhverfisráðs þann 16.03.2018; Deiliskipulag Lokastígsreitur
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:36.Á 303. fundi umhverfisráðs þann 16. mars 2018 var eftirfarandi bókað:"Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 11. janúar 2018 með athugasemdafresti til 23. febrúar 2018. Engar athugasemdir á auglýsingatíma. Umsagnir frá umsagnaraðilum voru án athugasemda.Umhverfisráð samþykkir deiliskipulagsgögnin sem eru í formi greinagerðar, skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum deiliskipulagsgögnin sem eru í formi greinagerðar, skipulagsuppdráttar og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
14.
Frá Bjarna Th. Bjarnasyni; Beiðni um lausn frá störfum í sveitarstjórn
Tekið fyrir erindi frá Bjarna Th. Bjarnasyni, dagsett þann 16. mars 2018, þar sem hann óskar lausnar frá störfum sem aðalmaður í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar frá og með 21. mars 2018.Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason sem m.a. gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi undir þessum lið kl. 16:40.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum að veita Bjarna Th. Bjarnasyni lausn frá störfum sem aðalmaður í sveitarstjórn frá og með 21. mars 2018, Bjarni Th. Bjarnason tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
Sveitarstjórn færir Bjarna Th. Bjarnasynni þakkir fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn færir Bjarna Th. Bjarnasynni þakkir fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
15.
Frá Felix Jósafatssyni; Ósk um lausn frá störfum í kjörstjórn.
Bjarni Th. Bjarnason kom á fundinn að nýju kl. 16:41.Tekið fyrir erindi frá Felix Jósafatssyni, dagsett þann 19. mars 2018, þar sem hann óskar eftir vegna persónulegra aðstæðna að verða leystur undan setu í kjörstjórn Dalvíkurbyggðar.Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum um að veita Felix Jósafatssyni lausn frá störfum sem aðalmaður og formaður kjörstjórnar.
Sveitarstjórn færir Felix Jósafatssyni þakkir fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn færir Felix Jósafatssyni þakkir fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
16.
Kosningar í ráð og nefndir skv. 46. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með siðari breytingum.
a) Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillöguAðalmaður í sveitarstjórn í stað Bjarna Th. Bjarnasonar; Íris Hauksdóttir, Hjarðarslóð 1f, 620, Dalvík.Varamaður í sveitarstjórn í stað Írisar Hauksdóttur; Jón Ingi Sveinsson, Ytra-Kálfsskinni, 621, Dalvík.b) Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Aðalmaður og formaður kjörstjórnar í stað Felix Jósafatssonar; Helga Árnadóttir, Varamaður í kjörstjórn í stað Helgu Árnadóttur; Hákon Sigmundsson, Stórhólsvegi 7.Fleiri tóku ekki til máls.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Íris Hauksdóttir og Jóni Ingi Sveinsson réttkjörin.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Helga Árnadóttir og Hákon Sigmundsson réttkjörin.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Helga Árnadóttir og Hákon Sigmundsson réttkjörin.
17.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses - 5, frá 28.02.2018
Enginn tók til máls.
Ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar og eru hún því lögð fram til kynningar í sveitarstjórn.
18.
Sveitarstjórn - 300, frá 20.02.2018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.