Sveitarstjórn
296. fundur
7. nóvember 2017
kl.
16:15
-
16:52
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Sölvi H Hjaltason
varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 840, frá 18.10.2017
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 841, frá 19.10.2017
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 842, frá 26.10.2017
Til afgreiðslu:1. liður c)
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 843, frá 1.11.2017.
Til afgreiðslu:1. liður.2. liður.3. liður er sér liður á dagskrá.
5.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 68, frá 30.10.2017
6.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Á 294. fundi sveitarstjórnar þann 19. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Á 831. fundi byggðaráðs þann 24. ágúst 2017 var ofangreint mál á dagskrá. Tekið fyrir erindi frá SÍS dags. 21. ágúst 2017 um „Fullnaðaruppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila sem starfrækt eru á ábyrgð sveitarfélaga“. Í lok júní 2017 náðist samkomulag á milli SÍS og ríkisins um forsendur uppgjörs. Í erindinu kemur m.a. fram að: „Mikilvægt er að hvert og eitt sveitarfélag tilkynni fjármála- og efnahagsráðuneytinu að það hyggist ganga frá samkomulagi á grundvelli framangreinds fyrir 30. september nk. og veiti framkvæmdastjóra þess formlegt umboð til að skrifa undir samkomulag þess efnis og sönnun þess þarf að fylgja tilkynningunni til ráðuneytisins.“ Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu: "Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá tilkynningu til ráðuneytisins og veitir honum jafnframt umboð til undirritunar samkomulags við ráðuneytið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar." Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra og felur honum að ganga frá tilkynningu til ráðuneytisins og veitir honum jafnframt umboð til undirritunar samkomulags við ráðuneytið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar." Með fundarboði fylgdi rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 1. nóvember 2017, ásamt sýnishornum af samningum til kynningar. Um er að ræða endanlega samninga sem ekki er gert ráð fyrir breytingum á. Samningarnir hafa verið undirritaðir af fjármála- og efnahagsráðherra. Gert er ráð fyrir að sveitarstjórar komi að eigin frumkvæði í húsnæði ráðuneytisins til að undirrita samningana. Æskilegt er að undirritun fari á næstu dögum. Ef hjúkrunarheimili sveitarfélags hefur sjálfstæðan fjárhag, en er ekki rekið sem deild innan sveitarfélags, þarf forstöðumaður hjúkrunarheimilis jafnframt að undirrita samninginn.
Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021. Fyrri umræða.
Á 843. fundi byggðaráðs þann 1. nóvember 2017 var eftirfarandi bókað:"Á fundinum var lagt fram og kynnt frumvarp að fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021. Til umræðu ofangreint. a) Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir að miðað við áætlun framlaga Jöfnunarsjóðs fyrir árið 2018 sem birt var á vef Jöfnunarsjóðs í gær, 31.10.2017, þá séu forsendur fyrir því að hækka áætlun framlaga Jöfnunarsjóðs allt að kr. 76.382.000. b) Uppgjör við Brú lífeyrissjóð: Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs gerði grein fyrir áætluðum fjárhæðum skv. upplýsingum frá Brú þann 1.11.2017 og reikningshaldslegri meðferð í áætlun. Byggðaráð samþykkir með 2 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 til fyrri umræðu í sveitarstjórn þann 7. nóvember 2017 með áorðnum breytingum samkvæmt a) lið og b) lið hér að ofan, Valdís Guðbrandsdóttir situr hjá og óskar eftir að fært verði til bókar: Ég sit hjá við afgreiðslu á Fjárhagsáætlun 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 með vísan í fyrri bókun kjörinna fulltrúa J-listans um gervigrasvöll frá 840. byggðaráðsfundi þann 18.10 2017." Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum og forsendum fjárhagsáætlunar:Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluta: 2018: Kr. 94.805.000 jákvæð.2019: Kr. 122.429.000 jákvæð.2020: Kr. 123.423.000 jákvæð.2021: Kr. 125.457.000 jákvæð.Rekstrarniðurstaða A-hluta (Aðalsjóður og Eignasjóður):2018: Kr. 72.509.000 jákvæð.2019: Kr. 90.872.000 jákvæð.2020: Kr. 86.453.000 jákvæð.2021: Kr. 86.189.000 jákvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B-hluta:2018: Kr. 261.407.000.2019: Kr. 267.415.000.2020: Kr. 107.690.0002021: Kr. 125.270.000Lántaka Samstæðu A- og B-hluta:2018: Kr. 169.500.000 vegna uppgjörs við Brú lífeyrissjóð.2019: Kr. 02020: Kr. 02021: Kr. 0Afborgun langtímalána Samstæðu A- og B-hluta:2018: Kr. 117.984.0002019: Kr. 100.228.0002020: Kr. 79.170.0002021: Kr. 80.409.000.Veltufé frá rekstri Samstæðu A- og B-hluta:2018: Kr. 305.183.0002019: Kr. 343.382.0002020: Kr. 348.624.0002021: Kr. 353.922.000Einnig tóku til máls:Guðmundur St. Jónsson.
Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 til síðari umræðu í sveitarstjórn og til byggðaráðs á milli umræðna í sveitarstjórn. Guðmundur St. Jónsson og Valdís Guðbrandsdóttir sitja hjá og leggja fram eftirfarandi bókun:
"Með vísan til bókunar J listans í byggðaráði um gervigrasvöll sitja fulltrúar listans hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021. Í áðurnefndri bókun kemur m.a. fram að við teljum að ,,gervigrasvöllur í fullri stærð sé of stór fjárfesting fyrir sveitafélagið okkar sem telur innan við 1900 íbúa.“ Og einnig að við komum til með að ,,styðja fyrri ákvörðun um hálfan gervigrasvöll sem kæmi til með að fullnægja sem æfingaraðstaða allt árið fyrir þá flokka sem æfa í Dalvíkurbyggð.“
Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021 til síðari umræðu í sveitarstjórn og til byggðaráðs á milli umræðna í sveitarstjórn. Guðmundur St. Jónsson og Valdís Guðbrandsdóttir sitja hjá og leggja fram eftirfarandi bókun:
"Með vísan til bókunar J listans í byggðaráði um gervigrasvöll sitja fulltrúar listans hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2018 og þriggja ára áætlun 2019-2021. Í áðurnefndri bókun kemur m.a. fram að við teljum að ,,gervigrasvöllur í fullri stærð sé of stór fjárfesting fyrir sveitafélagið okkar sem telur innan við 1900 íbúa.“ Og einnig að við komum til með að ,,styðja fyrri ákvörðun um hálfan gervigrasvöll sem kæmi til með að fullnægja sem æfingaraðstaða allt árið fyrir þá flokka sem æfa í Dalvíkurbyggð.“
8.
Sveitarstjórn - 295, frá 17.10.2017
Fundargerðin lögð fram til kynningar.