Fara í efni

Sveitarstjórn

294. fundur
19. september 2017 kl. 16:15 - 17:42
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Íris Hauksdóttir Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 833, frá 07.09.2017.
Málsnúmer 1709003F
Til afgreiðslu:2. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 834, frá 14.09.2017.
Málsnúmer 1709008F
4. liður, viðauki við fjárhagsáætlun 2017.
3.
Atvinnumála- og kynningarráð - 26, frá 06.09.2017.
Málsnúmer 1709002F
4.
Félagsmálaráð - 210, frá 12.09.2017.
Málsnúmer 1708006F
11. liður sér liður á dagskrá.
5.
Fræðsluráð - 219, frá 13.09.2017.
Málsnúmer 1709005F
4. liður, sér liður á dagskrá.
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 92, frá 05.09.2017
Málsnúmer 1709001F
7.
Landbúnaðarráð - 113, frá 14.09.2017
Málsnúmer 1709007F
Til afgreiðslu:1. liður.6. liður, sér liður á dagskrá.
8.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 5, frá 12.09.2017.
Málsnúmer 1709006F
Til afgreiðslu:1. liður.
9.
Umhverfisráð - 293, frá 01.09.2017.
Málsnúmer 1708009F
Til afgreiðslu:4. liður.5. liður.6. liður.9. liður.11.liður, sér liður á dagskrá.12. liður, sér liður á dagskrá.13. liður, sér liður á dagskrá.14. liður
10.
Umhverfisráð - 294, frá 06.09.2017.
Málsnúmer 1709004F
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 65, frá 06.09.2017.
Málsnúmer 1708011F
Til afgreiðslu:3. liður.4. liður.7. liður, vantar upplýsingar um breytingar á framkvæmdaáætlun..
12.
Frá íbúasamtökum Hauganesi; Borgarafundur-krafa frá íbúasamtökum Hauganesi.
Málsnúmer 201709105
Tekið fyrir erindi frá íbúasamtökum á Hauganesi, dagsett þann 13. september 2017, þar sem fram kemur að krafist er þess að efnt verði til borgarafundar um hestabúgarð við Árskógarskóla og félagsheimili Árskógsstrandar 29. september 2017 í Félagsheimili Árskógssands kl. 20:00. Farið er fram á að sveitarstjóri geri grein fyrir þeim ráðstöfunum sem sveitarfélagið hefur gert til stofnunar hestabúgarðs á ofangreindum stað og hvers vegna og svarir því hvers vegna beitarlandi í eigur bæjarins er ráðstafað án opinberrar auglýsingar þar sem öllum er gefinn kostur að sækja um. Verði ekki við þessu orðið munu íbúasamtökin knýja fram borgarafund á grundvelli 108. gr. sveitarstjórnarlaga.Þess er krafist að sveitarfélagið stöðvi nú þegar allar aðgerðir vegna ofangreinds málefnis og mótmælt er harðlega að tiltölulega nýlega uppgróið móland í nágrenni Hauganess sé leigt til hrossabeitar. Einnig er mótmælt harðlega byggingu hestabúgarðs á fyrirhuguðum stað. Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Mál er tengjast stækkun lóðar og fyrirhugaðri byggingu hesthúss norðan Árskógarskóla eru enn í skoðun og aflað er upplýsinga og umsagna. Það er því ekki tímabært að gefa út ákveðna dagsetningu fyrir íbúafund að svo stöddu. Sveitarstjórn felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknimála að leggja fram upplýsingar og umsagnir þegar þeirra hefur verið aflað og í framhaldinu verður tekin ákvörðun um íbúafund." Einnig tóku til máls:Guðmundur St. Jónsson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Bjarna Th. Bjarnasonar.
13.
Frá 210. fundi félagsmálaráðs; Gjaldskrár 2018
Málsnúmer 201709076
Á 210. fundi félagsmálaráðs þann 12. september 2017 var eftirfarandi samþykkt:"Teknar voru fyrir gjaldskrár félagsmálasviðs, um heimilisþjónustu, lengda viðveru, dagmæður og fjárhagsaðstoð. Gjaldskrárnar voru hækkaðar samkvæmt neysluvísitölu miðað við septembermánuð til viðmiðunar um hækkun ársins. Lagt er til að gjaldskrár næsta árs verði hækkaðar miðað við þessa tillögu nema miklar breytingar verði á vísitölunni.Félagsmálaráð samþykkir að hækka gjaldskrár samkvæmt vísitölu um áramót 2017/2018."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu félagsmálaráðs á gjaldskrám 2018;
Dagmæður niðurgreiðsla.
Heimilsþjónusta
Lengd viðvera.
Fjárhagsaðstoð, framfærslukvarðar.
14.
Frá 219. fundi fræðsluráðs 13.09.2017; Gjaldskrá 2018
Málsnúmer 201709043
Á 219. fundi fræðsluráðs þann 13. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Sviðsstjóri lagði fram tillögu að gjaldskrám fræðslusviðs ársins 2018. Tillagan felur í sér 1,003% hækkun á gjaldskrám ársins 2017.Fræðsluráð samþykkir, með fimm atkvæðum, gjaldskrána fyrir árið 2018 þegar félagsheimilið Árskógur hefur verið tekið út úr gjaldskránni og skerpt hefur verið á ákvæði um afturvirka endurgreiðslu leikskólagjalda til foreldra í námi."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu fræðsluráðs á gjaldskrám 2018;
Frístund
Leikskólar
Dalvíkurskóli
15.
Frá 113. fundi landbúnaðarráðs; Gjaldskrár 2018
Málsnúmer 201709098
Á 113. fundi landbúnaðarráðs þann 14. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Til umræðu og afgreiðslu gjaldskrár landbúnaðarráðs 2018.Ráðið samþykkir framlagða vísitöluhækkun á öllum gjaldskrám og einnig að greiðsla vegna refaveiða hækki samkvæmt umræðum á fundinum. Ráðið hefur þegar farið fram á hækkun framlags frá UST vegna minkaveiða. Samþykkt með fimm atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu landbúnaðarráðs á gjaldskrám 2018;
Búfjárleyfi og lausaganga búfjár.
Fjallskil.
Hundahald.
Kattahald.
Leiguland
Reglur vegna refaveiða.
Upprekstur á búfé.
16.
Frá 293. fundi umhverfisráðs þann 1.9.2017; Breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020: Landnotkun við Árskógarskóla
Málsnúmer 201708082
Á 293. fundi umhverfisráðs þann 1. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram skipulagslýsing þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum. Samþykkt með fimm atkvæðum"Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Lagt er til að fresta ákvörðun um breytingu á aðalskipulagi við Árskógarskóla þangað til frekari gögn um málið liggja fyrir."Einnig tók til máls:Guðmundur St. Jónsson.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Bjarna Th. Bjarnasonar.
17.
Frá 293. fundi umhverfisráðs þann 1. september 2017; Deiliskipulag íþróttasvæðis 2017
Málsnúmer 201708069
Á 293. fundi umhverfisráðs þann 1. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Lögð var fram skipulagslýsing á íþróttasvæði Dalvíkur, deiliskipulag og breyting á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum. Samþykkt með fimm atkvæðum."Til máls tóku:Valdís Guðbrandsdóttir.Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.Valdemar Þór Viðarsson.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs um að fela skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum.
18.
Frá 293. fundi umhverfisráðs þann 1.9.2017; Deiliskipulag Lokastígsreitur_2017
Málsnúmer 201708070
Á 293. fundi umhverfisráðs þann 1. september 2017 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram skipulagslýsing af deiliskipulagi Lokastígsreits þar sem m.a. er gerð grein fyrir viðfangsefni og helstu forsendum.Umhverfisráð felur skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum. Samþykkt með fimm atkvæðum"Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs um að fela skipulagsfulltrúa að kynna lýsinguna almenningi og hagsmunaraðilum og senda hana umsagnaraðilum.
19.
Frá Eyþingi; Skýrsla RHA
Málsnúmer 201706058
Á 825. fundi byggðaráðs þann 15. júní 2017 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram skýrsla RHA um kosti og galla sameiningar Eyþings og atvinnuþróunarfélaganna í samræmi við samþykkt aðalfundar 2016. Skýrslan var kynnt á stjórnarfundi Eyþings 7. júní og var til umfjöllunar á fundi fulltrúaráðs 8. júní 2017. Hún mun síðan verða til frekari umræðu á aðalfundi Eyþings í haust að lokinni umfjöllun í sveitarstjórnum innan Eyþings.Lagt fram til kynningar."Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Sveitarstjórn fagnar framkominni skýrslu sem RHA gerði fyrir EYÞING. Mikilvægt er að vinnu við sameiningu stoðstofnana á EYÞINGS svæðinu verði framhaldið. Huga skal að víðtækari sameiningu stoðstofnana en fram kemur í skýrslu RHA og má í því sambandi benda á símenntunarmiðstöðvar, Ferðamálastofu, skipulagsnefndir ofl. Samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum."Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Bjarna Th. Bjarnasonar.
20.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga:Lífeyrisskuldbindingar hjúkrunarheimila
Málsnúmer 201612123
Á 831. fundi byggðaráðs þann 24. ágúst 2017 var ofangreint mál á dagskrá.Tekið fyrir erindi frá SÍS dags. 21. ágúst 2017 um „Fullnaðaruppgjör á lífeyrisskuldbindingum hjúkrunarheimila sem starfrækt eru á ábyrgð sveitarfélaga“. Í lok júní 2017 náðist samkomulag á milli SÍS og ríkisins um forsendur uppgjörs. Í erindinu kemur m.a. fram að: „Mikilvægt er að hvert og eitt sveitarfélag tilkynni fjármála- og efnahagsráðuneytinu að það hyggist ganga frá samkomulagi á grundvelli framangreinds fyrir 30. september nk. og veiti framkvæmdastjóra þess formlegt umboð til að skrifa undir samkomulag þess efnis og sönnun þess þarf að fylgja tilkynningunni til ráðuneytisins.“Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga frá tilkynningu til ráðuneytisins og veitir honum jafnframt umboð til undirritunar samkomulags við ráðuneytið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar."Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra og felur honum að ganga frá tilkynningu til ráðuneytisins og veitir honum jafnframt umboð til undirritunar samkomulags við ráðuneytið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
21.
Sveitarstjórn - 293
Málsnúmer 1706010F
Lagt fram til kynningar.
22.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 826
Málsnúmer 1707001F
Lagt fram til kynningar.
23.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 827
Málsnúmer 1707002F
Lagt fram til kynningar.
24.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 828
Málsnúmer 1707004F
Lagt fram til kynningar.
25.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 829
Málsnúmer 1708004F
Lagt fram til kynningar.
26.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 830
Málsnúmer 1708005F
Lagt fram til kynningar.
27.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 831
Málsnúmer 1708008F
Lagt fram til kynningar.
28.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 832
Málsnúmer 1708010F
Lagt fram til kynningar.