Fara í efni

Sveitarstjórn

290. fundur
21. mars 2017 kl. 16:15 - 16:54
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 812, frá 23.02.2017
Málsnúmer 1702010F
Til afgreiðslu:2. liður.
1.1 Kauptilboð í Árskóg lóð 1.
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs,Freydís Dana Sigurðardóttir, og Guðröður Ágústsson, tilboðsgjafi í Árskóg lóð 1, kl. 13:00.

Á 811. fundi byggðaráðs þann 16. febrúar 2017 var eftirfarandi bókað:
"Til umfjöllunar kauptilboð í Árskóg lóð 1; einbýlishús ásamt bílskúr. Börkur Þór vék af fundi kl. 10:45.
Byggðaráð felur sveitarstjóra að gera gagntilboð í samræmi við umræður á fundinum. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að tilboðsgjafi komi á næsta fund byggðaráðs."

Til umræðu óskir tilboðsgjafa um stærri lóð undir íbúðarhúsi og um langtímaleigusamning um land.

Freydís Dana og Guðröður viku af fundi kl. 13:49.
Börkur Þór vék af fundi kl. 14:01.
Byggðaráð tekur jákvætt í stækkun lóðar ef umsókn um stækkun húss berst.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera samninga um beitarhólf í samræmi við umræður á fundinum.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að framlengja gagntilboð Dalvíkurbyggðar um eina viku.
1.2 Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur; lokun / opnun í Sundlaug Dalvíkur og í Sundskála Svarfdæla á framkvæmdartíma
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Hlynur Sigursveinsson, sviðstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 14:02.

Á 811. fundi byggðaráðs þann 16. febrúar 2017 var eftirfarandi m.a. samþykkt:
"c) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að leggja fyrir byggðaráð áætlun um opnun á Íþróttamiðstöð á framkvæmdatíma og opnun á Sundskála Svarfdæla á framkvæmdatíma."

Til umræðu tilaga íþrótta- og æskulýðsfulltrúa.

Lagt er til eftirfarandi opnun vegna endurbóta á sundlauginni á Dalvík vorið 2017:

Íþróttamiðstöðin á Dalvík (ræktin):
Mánudaga-fimmtudaga: 6:15-20:00
Föstudaga: 6:15-19:00
Laugardaga og sunnudag: 9:00-12:00
Hér er nánast sami opnunartími og verið hefur, nema aðeins styttri opnun um helgar. Einnig verður starfsmaður áfram eins og verið hefur fram á kvöld þegar þarf vegna notkunar á íþróttasal.

Sundskáli Svarfdæla:
Mánudaga og miðvikudaga: 7:00-11:00
Fimmtudaga: 17:00-21:00
Laugardaga og sunnudaga: 13:00-17:00
Það mun koma til einhver aksturskostnaður vegna opnunar sundskála, en hann er óverulegur á þessu stutta tímabili (gæti verið á bilinu 30-50.000).

Núverandi launaáætlun getur staðið undir þessari opnun, sem og að áætlun íþróttamiðstöðvar ráði við þennan aksturskostnað.

Vinnuskylda allra starfsmanna er ekki að fullu nýttur með þessari opnun og er hugmyndin sú að það sem upp á vantar fari í vinnu í íþróttamiðstöðinni á Dalvík við ýmsar endurbætur og aðstoð á viðhaldstíma Einnig eru verkefni sem farið er í í hefðbundinni lokun á vorin.

Á fjárhagsáætlun sundskálans (06570) er gert ráð fyrir heitu vatni og rafmagnskostnaði. Einnig minniháttar viðhaldi. Er ljóst að einhver kostnaður mun myndast við að reka skálann. Það má teljast líklegt að þessi áætlun dugi langt varðandi þann rekstrarkostnað sem til fellur vegna opnunar í 2 mánuði.

Lagt er til að ekki verði rukkaður aðgangseyrir í sundskálann á meðan á lokun sundlaugarinnar stendur.

Gísli Rúnar og Hlynur viku af fundi kl. 14:32.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu sem taki gildi þegar framkvæmdir við Sundlaug Dalvíkur hefjast.
1.3 Frá Eyþingi; fundir 24. febrúar um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga
Tekinn fyrir rafpóstur þann 14. febrúar 2017 frá Eyþingi þar sem fram kemur að föstudaginn 24. febrúar nk. er boðað til samráðsfundar á vegum verkefnisstjórnar um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn verður haldinn á Hótel Kea, Akureyri, og hefst kl. 9:00.


Verkefninu, sem er á forsvari innanríkisráðuneytis, er ætlað að greina tækifæri og leiðir til að styrkja sveitarstjórnarstigið enn frekar.


Samkvæmt verkefnaáætlun eru megin markmið verkefnisins að leggja fram tillögur sem stuðla að :

- stærri, öflugri og sjálfbærum sveitarfélögum

- breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,

- markvissari samskiptum ríkis og sveitarfélaga,

- nýtingu rafrænnar tækni við stjórnsýslu og

- lýðræðislegri þátttaka íbúa í stefnumörkun og ákvarðanatöku á öllum sviðum.

Lagt fram til kynningar.
1.4 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; XXXI. Landsþing - landsþingsfulltrúar
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 17. febrúar 2017, þar sem fram kemur að þann 24. mars nk. verður XXXI. landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga haldið í Reykjavík. Rétt til setu á landsþinginu eiga 151 fulltrúi frá 74 sveitarfélögum. Að auki eiga seturétt á landsþinginu með málfrelsi og tillögurétti bæjar- og sveitarstjórar, formenn og framkvæmdastjórar landshlutasamtaka sveitarfélaga og þeir stjórnarmenn í sambandinu sem ekki eru kjörnir landsþingsfulltrúar fyrir sitt sveitarfélag.

Fulltrúar Dalvíkurbyggðar eru:
6400 Dalvíkurbyggð 1.867 íb. 2 fltr.

Aðalfulltrúar:

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, formaður byggðarráðs

Valdís Guðbrandsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi


Varafulltrúar:
Heiða Hilmarsdóttir, forseti sveitarstjórnar.
Kristján Guðmundsson, sveitarstjórnarfulltrúi
Lagt fram til kynningar.
1.5 Frá Eyþingi; fundargerðir stjórnar nr. 291 og 292.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu fundargerðir stjórnar Eyþings, 291. fundur og 292. fundur. Lagt fram til kynningar.
1.6 Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar og eru því þeir liðir í fundargerðinni lagðir fram til kynningar í sveitartjórn.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 813, frá 02.03.2017
Málsnúmer 1702013F
Til afgreiðslu:3. liður.
2.1 Heimsóknir byggðaráðs í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar; Árskógarskóli og félagsheimilið Árskógur kl. 13:00 - 14:15.
Byggðaráð ásamt sveitarstjóra, sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa fóru í heimsókn í Árskógarskóla og félagsheimilið Árskóg kl. 13:00.

Hlynur og Gísli Rúnar viku af fundi kl. 13:50.

Kristján Guðmundsson kom á fundinn kl. 13:55 vegna annarra starfa.
Lagt fram til kynningar.
2.2 Íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar, staða mála hvað varðar sölu og leigu, kl. 14:30.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Íris Daníelsdóttir, þjónustu- og innheimtufulltrúi, kl. 14:30.

Til umræðu staða mála hvað varðar íbúðir í eigu Dalvíkurbyggðar, leiga og sala.


Íris vék af fundi kl.15:16.
Lagt fram til kynningar.
2.3 Nefndalaun til kjörinna fulltrúa - varðar launatengd gjöld
Til umræðu greiðsla á launatengdum gjöldum af launum til kjörinna fulltrúa í endurhæfingarsjóð og mótframlag í séreignarlífeyrissjóð. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að áfram verði greitt framlag í endurhæfingarsjóð og mótframlag í séreignarlífeyrissjóð.
2.4 Frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar; Ósk um viðræður vegna viðbyggingar við Stekkjarhús
Tekið fyrir erindi frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðarafréttar, dagsett þann 5. febrúar 2017, þar sem óskað er eftir viðræðum um framtíð Stekkjarhús.

Fram kemur m.a. að árið 2011 var gerður samningur milli Gangnamannafélagsins og sveitarfélagsins þess efnis að félagið sæi um viðhald og rekstur á húsinu og hefur því verið sinnt af félagsmönnum. Með auknum fjölda ferðamanna undanfarin ár og þá sérstaklega göngu og fjallafólks hefur notkun á húsinu aukist.

Hugmynd félagsins er að reist verði viðbygging við norðvestur hlið hússins. Gerð hefur verið efniskostnaðaráætlun sem hljóðar upp á um kr. 2.200.000. Hugmynd félagsins er að sveitarfélagið leggi til 50% af efniskostnaði og Gangnamannafélagið greiði hin 50% og að auki munu félagsmenn Gangnamannafélagsins leggja til alla vinnu, verkfæri og önnur tæki sem til þarf við framkvæmdina.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá fulltrúa Gangnamannafélagsins á fund.
2.5 Frá Eignahaldsfélagi Brunabótafélagi Íslands; Styrktarsjóður EBÍ 2017
Tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélagi Íslands, dagsett þann 23. febrúar 2017, þar sem Dalvíkurbyggð er boðið að senda inn umsókn um stuðning við verkefni sem fellur undir reglur sjóðsins. Umsóknarfrestur er til aprílloka. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjórn að koma með tillögu um verkefni sem á að sækja um styrk fyrir.
2.6 Frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar; Boð á 96. ársþing UMSE
Tekið fyrir bréf frá UMSE, dagsett þann 23. febrúar 2017, þar sem fram kemur að 96. ársþing UMSE verður haldið í félagsheimilinu Árskógi 9. mars n.k. og hefst kl. 18:00. UMSE býður fulltrúa frá Dalvíkurbyggð að sitja þingið. Byggðaráð leggur til að fulltrúi úr íþrótta- og æskulýðsráði mæti á þingið fyrir hönd Dalvíkurbyggðar og felur formanni íþrótta- og æskulýðsráðs að hlutast til um það.
2.7 Frá Eyþingi; Fundir 7. mars um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga
Tekinn fyrir rafpóstur frá Eyþingi, dagsettur þann 28. febrúar 2017, þar sem fram kemur að þriðjudaginn 7. mars n.k. er boðað til tveggja samráðsfunda á vegum verkefnisstjórnar um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga. Fundurinn verður haldinn á Hótel KEA, Akureyri, kl. 9 - 11

Verkefninu, sem er á forsvari innanríkisráðuneytis, er ætlað að greina tækifæri og leiðir til að styrkja sveitarstjórnarstigið enn frekar.

Samkvæmt verkefnaáætlun eru megin markmið verkefnisins að leggja fram tillögur sem stuðla að :
- stærri, öflugri og sjálfbærum sveitarfélögum
- breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga,
- markvissari samskiptum ríkis og sveitarfélaga,
- nýtingu rafrænnar tækni við stjórnsýslu og
- lýðræðislegri þátttaka íbúa í stefnumörkun og ákvarðanatöku á öllum sviðum.

Boðaðir eru fulltrúar í sveitarstjórn og framkvæmdastjóri.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Eginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 814, frá 09.03.2017
Málsnúmer 1703003F
Til afgreiðslu:5. liður.
3.1 Frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar; Ósk um viðræður vegna viðbyggingar við Stekkjarhús
Undir þessum lið kom á fund Atli Þór Friðriksson fyrir hönd Gangnamannafélags Sveinsstaðaafréttar, kl. 13:00.

Á 813. fundi byggðaráðs þann 2. mars 2017 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðarafréttar, dagsett þann 5. febrúar 2017, þar sem óskað er eftir viðræðum um framtíð Stekkjarhús. Fram kemur m.a. að árið 2011 var gerður samningur milli Gangnamannafélagsins og sveitarfélagsins þess efnis að félagið sæi um viðhald og rekstur á húsinu og hefur því verið sinnt af félagsmönnum. Með auknum fjölda ferðamanna undanfarin ár og þá sérstaklega göngu og fjallafólks hefur notkun á húsinu aukist. Hugmynd félagsins er að reist verði viðbygging við norðvestur hlið hússins. Gerð hefur verið efniskostnaðaráætlun sem hljóðar upp á um kr. 2.200.000. Hugmynd félagsins er að sveitarfélagið leggi til 50% af efniskostnaði og Gangnamannafélagið greiði hin 50% og að auki munu félagsmenn Gangnamannafélagsins leggja til alla vinnu, verkfæri og önnur tæki sem til þarf við framkvæmdina. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá fulltrúa Gangnamannafélagsins á fund."

Til umræðu ofangreint.

Atli Þór vék af fundi kl. 13:16.
Byggðaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum frá Gangnamannafélaginu.
3.2 Frá forsætisráðuneytinu; fundur um þjóðlendur á Akureyri
Tekið fyrir bréf frá forsætisráðuneytinu, dagsett þann 3. mars 2017, þar sem fram kemur að ráðuneytið hyggst halda fund fimmtudaginn 1. júní n.k. kl.14:00 á Akureyri um málefni þjóðlendna. Vísað til umhverfisráðs.
3.3 Kauptilboð í Árskóg lóð 1.
Á 812. fundi byggðaráðs þann 23. febrúar s.l. var eftirfarandi bókað:

"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs,Freydís Dana Sigurðardóttir, og Guðröður Ágústsson, tilboðsgjafi í Árskóg lóð 1, kl. 13:00. Á 811. fundi byggðaráðs þann 16. febrúar 2017 var eftirfarandi bókað: "Til umfjöllunar kauptilboð í Árskóg lóð 1; einbýlishús ásamt bílskúr. Börkur Þór vék af fundi kl. 10:45. Byggðaráð felur sveitarstjóra að gera gagntilboð í samræmi við umræður á fundinum. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir að tilboðsgjafi komi á næsta fund byggðaráðs." Til umræðu óskir tilboðsgjafa um stærri lóð undir íbúðarhúsi og um langtímaleigusamning um land. Freydís Dana og Guðröður viku af fundi kl. 13:49. Börkur Þór vék af fundi kl. 14:01.
Byggðaráð tekur jákvætt í stækkun lóðar ef umsókn um stækkun húss berst. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera samninga um beitarhólf í samræmi við umræður á fundinum. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að framlengja gagntilboð Dalvíkurbyggðar um eina viku. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs drög að leigusamningum um beitiland úr landi Árskógsstrandar, annars vegar 13.364,2 m2 og hins vegar 51.336,7 m2.

Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kom á fundinn undir þessum lið kl. 13:27.


Til umræðu ofangreint.

Börkur vék af fundi kl. 13:45.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera breytingar á ofangreindum drögum að leigusamningum í samræmi við umræður á fundinum. Samningarnir kæmu síðan aftur fyrir byggðaráð.
3.4 Frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu; Kennslumínútnafjöldi í list- og verkgreinum í grunnskólum
Tekið fyrir erindi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, rafpóstur dagsettur þann 7. mars 2017 þar sem fram kemur að meðfylgjandi sendist slóð á fréttatilkynningu mennta- og menningarmálaráðuneytis með niðurstöðum úrvinnslu á upplýsingum frá Hagstofu Íslands um kennslustundafjölda í list- og verkgreinum í grunnskólum fyrir skólaárin 2013-2014, 2014-2015 og 2015-2016. https://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/forsidugreinar/rettur-nemenda-til-kennslu-i-list-og-verkgreinum-ekki-naegilega-virtur

Í ljósi niðurstaðna þeirrar úrvinnslu leggur ráðuneytið áherslu á að sveitarstjórnir sjái til þess að framvegis fái allir nemendur þann lágmarkskennslumínútnafjölda á skólaári sem þeim ber samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla frá 2011 og vísast í því sambandi til ákvæða 5. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008 um ábyrgð sveitarfélaga á skólahaldi í grunnskólum.
Vísað til fræðsluráðs.
3.5 Frá 214. fundi fræðsluráðs þann 8.3.2016; Umsókn um ráðningu leikskólakennara/þroskaþjálfa
Á 214. fundi fræðsluráðs þann 8. mars 2016 var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði fylgdi greinargerð Hlyns Sigursveinssonar, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, þar sem gerð er grein fyrir aukinni sérkennsluþörf í leikskólanum sem nemur einu stöðugildi. Auk þess vantar, vegna fyrirséðra langtímaveikinda og aðstæðna á leikskólanum, starfsmann í 100% stöðu fram að sumarlokun leikskólans og annan í 100% stöðu til áramóta.
Fræðsluráð samþykkir erindið með 5 atkvæðum og felur Hlyni Sigursveinssyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarmála, að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja það síðan fyrir byggðaráð Dalvíkurbyggðar."

Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs kl. 13:49.

Til umræðu ofangreint.

Hlynur vék af fundi kl. 14:04.
Með vísan í erindi frá sviðstjóra fræðslu- og menningarsvis, dagsett þann 8. mars 2017, samþykkir byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 3 / 2017 við fjárhagsáætlun 2017, deild 04140, að upphæð kr. 8.800.000. Hækkuninni verður mætt með lækkun á handbæru fé. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreindan viðauka nr. 3/2017 við fjárhagsáætlun 2017, deild 04140, að upphæð kr. 8.800.000. Hækkuninni verður mætt með lækkun á handbæru fé.
3.6 Heimsóknir byggðaráðs í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar; Sundskáli Svarfdæla kl. 14:00.
Byggðaráð fór ásamt sveitarstjóra og sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í heimsókn í Sundskála Svarfdæla þar sem íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og sviðstjóri fræðslu- og menningarsvið tóku á móti byggðaráði. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 815, frá 16.03.2017
Málsnúmer 1703007F
Til afgreiðslu:2. liður.3. liður.5. liður.9. liður.11. sérliður á dagskrá.
4.1 Frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðaafréttar; Ósk um viðræður vegna viðbyggingar við Stekkjarhús
Á 814. fundi byggðaráðs þann 9. mars 2017 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund Atli Þór Friðriksson fyrir hönd Gangnamannafélags Sveinsstaðaafréttar, kl. 13:00. Á 813. fundi byggðaráðs þann 2. mars 2017 var eftirfarandi bókað: "Tekið fyrir erindi frá Gangnamannafélagi Sveinsstaðarafréttar, dagsett þann 5. febrúar 2017, þar sem óskað er eftir viðræðum um framtíð Stekkjarhús. Fram kemur m.a. að árið 2011 var gerður samningur milli Gangnamannafélagsins og sveitarfélagsins þess efnis að félagið sæi um viðhald og rekstur á húsinu og hefur því verið sinnt af félagsmönnum. Með auknum fjölda ferðamanna undanfarin ár og þá sérstaklega göngu og fjallafólks hefur notkun á húsinu aukist. Hugmynd félagsins er að reist verði viðbygging við norðvestur hlið hússins. Gerð hefur verið efniskostnaðaráætlun sem hljóðar upp á um kr. 2.200.000. Hugmynd félagsins er að sveitarfélagið leggi til 50% af efniskostnaði og Gangnamannafélagið greiði hin 50% og að auki munu félagsmenn Gangnamannafélagsins leggja til alla vinnu, verkfæri og önnur tæki sem til þarf við framkvæmdina. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá fulltrúa Gangnamannafélagsins á fund." Til umræðu ofangreint. Atli Þór vék af fundi kl. 13:16.
Byggðaráð frestar afgreiðslu til næsta fundar þar sem óskað var eftir frekari upplýsingum frá Gangnamannafélaginu. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ársuppgjör Gangnamannafélags Sveinsstaðaafréttar fyrir árið 2016.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til gerðar fjárhagsáætlunar 2018 og 2019-2021.
Byggðaráð tekur jákvætt í málið en vísar erindinu til endanlegrar afgreiðslu við gerð fjárhagsáætlunar 2018.
4.2 Samvinna byggðaráðs og eldri borgara
Á 802. fundi byggðaráðs þann 27. október 2016 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Félagi eldri borgara í Dalvíkurbyggð, dagsett þann 17. október 2016, þar sem fram kemur að á haustfundi félagsins þann 14. október s.l. var samþykkt að kjósa þriggja manna nefnd til að annast samskipti hvað varðar samstarf Félags eldri borgara við Dalvíkurbyggð í stað þess að stofna sérstakt Öldungaráð. Eftirtaldir voru kosnir í nefndina: Kolbrún Pálsdóttir. Helgi Björnsson. Þorgerður Sveinbjarnardóttir. Til vara: Helga Mattína Björnsdóttir.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að gera drög að samkomulagi við Félag eldri borgara hvað varðar samráðsvettvang með byggðaráði ásamt sviðsstjóra félagsmálasviðs. Fyrsti fundur yrði haldinn fyrir jól. "

Með fundarboð byggðaráðs fylgdi drög að samkomulagi um stofnun samráðsvettvangs á milli kjörinna fulltrúa og fulltrúa eldri borgara, undirritað af formanni Félags eldri borgara.

Til umræðu ofangreint.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint samkomulag og óskar eftir að fulltrúar Félags eldri borgara komi á fund byggðaráðs við fyrsta tækifæri.
4.3 Kauptilboð í Árskóg lóð 1; samningsdrög um leigu vegna beitilands
Á 814. fundi byggðaráðs þann 9. mars 2017 var til umfjöllunar kauptilboð í Árskóg lóð 1 og drög að samningum um beitiland. Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að gera breytingar á drögum að leigusamningum í samræmi við umræður á fundinum.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
a) Drög að leigusamningi um beitiland, 13.364,2 m2.
b) Drög að leigusamningi um beitiland, 15.336,7 m2.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda leigusamninga eins og þeir liggja fyrir með þeirri breytingu að sett verði í samningana ákvæði um að ef sveitarfélagið þurfi á þessu landi að halda til mannvirkjagerðar eða af annarri ástæðu er varðar almannahag þá sé hægt að segja þessum samningum upp með 6 mánaða fyrirvara. Sveitarfélagið muni leitast við að finna sambærilegt land í staðinn í næstu grend að höfðu samráði vð leigutaka.
4.4 Lögreglusamþykkt Dalvíkurbyggðar; endurskoðun 2017
Til umfjöllunar endurskoðun á Lögreglusamþykkt Dalvíkurbyggðar en gildandi samþykkt er frá júlí 2008. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela framkvæmdastjórn að koma með tillögur að breytingum í samræmi við umræður á fundinum.
Einnig er óskað eftir umsögn frá lögreglu.
4.5 Fjárhagsáætlunarferli- endurskoðun
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögur að breytingum á fjárhagsáætlunferli Dalvíkurbyggðar en í megin atriðum er um uppfærslu að ræða í samræmi við breytingar sem hafa orðið.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar breytingar og vísar til umræðu í framkvæmdastjórn.
4.6 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um orlof húsmæðra (afnám laganna), 119. mál.
Tekið fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þannn 10. mars 2017, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um orlof húsmæðra, eigi síðar en 24. mars n.k. Lagt fram til kynningar.
4.7 Frá nefndasviði Alþingis; Til umsagnar frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga (afnám lágmarksútsvars), 120. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur, dagsettur þann 14. mars 2017, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um tekjustofna sveitarfélaga, eigi síðar en 30. mars n.k.
4.8 Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti stöðu bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun fyrir janúar - febrúar 2017. Lagt fram til kynningar.
4.9 Frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar; Hækkun framlaga sveitarfélaga
Á 811. fundi byggðaráðs þann 16. febrúar 2017 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar, dagsett þann 1. febrúar 2017, þar sem fram kemur að stjórn AFE mun leggja til 20% hækkun á framlögum sveitarfélaga á aðalfundi félagsins í apríl n.k. og mun hækkunin gilda afturvirkt frá áramótum. Framlag Dalvíkurbyggðar árið 2017 yrði þá kr. 3.065.440 en var árið 2016 kr. 2.553.920. Í fjárhagsáætlun 2017 er gert ráð fyrir kr. 2.581.462.
Byggðaráð hefur skilning á því að hækka þurfi framlög sveitarfélaga til AFE vegna uppsafnaðs misgengis launa- og neysluvísitölu undanfarinna ára. Hækkunin er nokkuð mikil eða sem nemur 20% og ekki gert ráð fyrir slíku í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins og gildir það sjálfsagt um fleiri sveitarfélög. Finna þarf leið til þess að hækkanir á framlögum sveitarfélaga til AFE verði ákveðnar áður en fjárhagsáætlunarvinna sveitarfélaga fer fram að hausti. Byggðaráð vonast til þess að á aðalfundi AFE í apríl n.k. verði umræður um ofangreint og að jafnframt verði umræður um sameiningu atvinnuþróunarfélaganna og Eyþings. Byggðaráð fagnar því að stjórn Eyþings hafi ákveðið á fundi sínum þann 23. nóvember sl. að fela formanni og framkvæmdastjóra að ræða við forsvarsmenn RHA um að gera úttekt varðandi sameiningu atvinnuþróunarfélaganna og Eyþings. Ljóst er að með slíkri sameiningu og/eða með jafnvel enn víðari sameiningu á samstarfsverkefnum sveitarfélaga verði hægt að mynda miklu sterkara hagsmunaafl á Eyþingssvæðinu gagnvart ríkisvaldinu. Nýting fjármagns og mannauðs ætti að batna með sameiningu auk þess sem leiða má líkur til þess að öll stjórnsýsla og skjalavarsla verði agaðri og í samræmi við þau lög sem sveitarfélög þurfa að vinna eftir."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra umboð til að samþykkja ofangreinda tillögu um hækkun framlaga til AFE um 20% á aðalfundi félagsins.
Ef af verður þá er hækkun framlaga frá Dalvíkurbyggð áætluð um kr. 516.000.
4.10 Austurgarður
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 15:30.

Til kynningar framkvæmdir við Austurgarð við Dalvíkurhöfn.

Þorsteinn vék af fundi kl. 16:01.
Lagt fram til kynningar.
4.11 Rafræn könnun vegna golfvallar í fyrirhuguðu deiliskipulagi í fólkvanginum í Böggvisstaðafjalli - Niðurstaða úr könnun
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 16:02.

Á 289. fundi sveitarstjórnar þann 21. febrúar s.l. var samþykkt með 5 atkvæðum tillögu byggðaráðs um rafæna könnun.

"Að hugur íbúa í Dalvíkurbyggð, 18 ára og eldri, verði kannaður með rafrænni könnun á heimasíðu Dalvíkurbyggðar í mars 2017 eftir annan fund sveitarstjórnar 2017, frá og með 1. mars til og með 15. mars 2017 og leggja til að spurningin sem lögð verði fyrir hljóði þannig: 'Vilt þú að gert verði ráð fyrir 9 holu golfvelli í fyrirhuguðu deiliskipulagi Fólkvangsins í Böggvisstaðafjalli ?' Svarmöguleikanir verði 'Já' eða 'Nei'. Um er að ræða rafræna könnun en ekki formlega kosningu skv. sveitarstjórnarlögum. Niðurstöður könnunarinnar eru því ekki bindandi fyrir deiliskipulagsvinnuna en höfð til hliðsjónar við deiliskipulagsvinnuna."

Niðurstaða úr ofangreindri könnun liggur fyrir og er eftirfarandi:
386 manns tóku þátt.
"Já" sögðu 99 eða 25,65%.
"Nei" sögðu 287 eða 74,35%

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa ofangreindu til íþrótta- og æskulýðsráðs og umhverfisráðs til umfjöllunar. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að beina því til umhverfisráðs að hlustað verði á raddir fólksins við vinnu við deiliskipulagið við fólkvanginn, þegar að því kemur, þar sem að vilji fólksins er skýr úr ofangreindri könnun.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum niðurstaðan verði kynnt á vefmiðlum sveitarfélagsins.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðini þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar,11. liður er sérliður á dagskrá, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar lagðir fram til kynningar.
5.
Félagsmálaráð - 207, frá 14.03.2017
Málsnúmer 1703006F
5.1 Til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 106. mál.
Tekið fyrir erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 3. mars 2017. Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak o.fl. Óskað er umsagnar sveitarfélaga. Félagsmálaráð hvetur þingmenn til að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum (86/2011) um verslun með áfengi og tóbak. Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á aukna forvarnarfræðslu barna og unglinga í sveitarfélaginu. Rannsóknir benda til að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu meðal barna og unglinga. Alþingi hefur nýlega lögfest Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það er þversagnarkennt að auðvelda aðgengi að áfengi sem ætla má að gæti haft neikvæð áhrif á líf og uppvöxt barna og ungmenna. Niðurstaða Til máls tóku:
Valdís Guðbrandsdóttir, sem leggur til að sveitarstjórn taki undir bókun félagsmálaráðs.
Guðmundur St. Jónsson.
Valdemar Þór Viðarsson.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu Valdísar Guðbrandsdóttur, Bjarni Th. Bjarnason greiðir atkvæði á móti.
5.2 Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Farið var yfir fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2016. Einnig var farið yfir frávikagreiningu vegna fjárhagsáætlunar ársins 2016. Lagt fram til kynningar.
5.3 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál nr. 201702089 Bókað í trúnaðarmálabók
5.4 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál nr. 201702101 Bókað í trúnaðarmálabók
5.5 Heimsókn í Iðjuna Siglufirði
Farið var í heimsókn í Iðjuna á Siglufirði. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því allir liðir fundargerðarinnar lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
6.
Fræðsluráð - 214, frá 08.03.2017
Málsnúmer 1703001F
Til afgreiðslu:2. liður.
6.1 Beiðni um fjölgun stöðugilda á Krílakoti
Með fundarboði fylgdi greinargerð Hlyns Sigursveinssonar, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, þar sem gerð er grein fyrir aukinni sérkennsluþörf í leikskólanum sem nemur einu stöðugildi. Auk þess vantar, vegna fyrirséðra langtímaveikinda og aðstæðna á leikskólanum, starfsmann í 100% stöðu fram að sumarlokun leikskólans og annan í 100% stöðu til áramóta.

Fræðsluráð samþykkir erindið með 5 atkvæðum og felur Hlyni Sigursveinssyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarmála, að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja það síðan fyrir byggðaráð Dalvíkurbyggðar.


6.2 Skóladagatöl 2017-2018
Með fundarboði fylgdu tillögur að skóladagatali Árskógarskóla og Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2017-2018. Tillaga að skóladagatali Krílakots fyrir skólaárið 2017-2018 var lagt fram á fundinum. Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og Krílakots með 5 atkvæðum. Niðurstaða Til máls tók:
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:26.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu fræðsluráðs, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
6.3 Fríar flensusprautur fyrir starfsfólk leik- og grunnskóla
Í ljósi erfiðrar stöðu sem getur skapast þegar árlegur flensufaraldur gengur yfir leitaði Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, álits fræðsluráðs á því hvort bjóða ætti starfsmönnum skólanna í Dalvíkurbyggð flensusprautur þeim að kostnaðarlausu. Fræðsluráð mælir samhljóða með að starfsmönnum allra skólanna standi slíkt til boða og gert verði ráð fyrir þessu við gerð næstu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins. Niðurstaða Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn kl. 16:27.
6.4 Innleiðing á nýjum námsmatskvarða við lok grunnskóla
Með fundarboði fylgdi bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu dags. 7. febrúar 2017 þar sem áréttað er að frá og með vori 2017 skulu allir grunnskólar með 10. bekk hafa lokið innleiðingu á nýjum námsmatskvarða A-D við lok 10. bekkjar grunnskóla. Gísli Bjarnason gerði grein fyrir stöðunni í Dalvíkurskóla en þar var s.l. vor unnið samkvæmt þessu kerfi við útskrift 10. bekkjar.
6.5 Vegvísir - verkáætlun 2017
Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kynnti vinnu sem farin er af stað í samstarfi Dalvíkurbyggðar og kennara við grunnskólana í að uppfylla ákvæði bókunar 1 í kjarasamningi grunnskólakennara. Með fundarboði fylgdi Vegvísir samstarfsnefdnar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara vegna málefna grunnskólans og spurningalisti sem hafður er til hliðsjónar við að greina vinnuumhverfið í grunnskólanum. Fyrir 1. maí 2017 skulu fulltrúar sveitarfélags og fulltrúar kennara ásamt skólastjóra kynna kennurum umbótaáætlun sveitarfélagsins fyrir skólann. Fyrir 1. júní 2017 skal skila lokaskýrslu til samstarfsnefndarinnar. Lagt fram til kynningar.
6.6 Námsárangur í Dalvíkurskóla
Með fundarboði fylgdi 34. og 35. fundargerð stýrihóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla. Gísli og Dóróþea gerðu nánari grein fyrir því sem verið er að gera. Fræðsluráð fagnar öflugu starfi vinnuhópsins og starfsfólks Dalvíkurskóla. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
7.
Menningarráð - 61, frá 02.03.2017
Málsnúmer 1702012F
7.1 Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Jóhann Antonsson mætti undir þessum dagskrárlið og gaf munnlega stöðuskýrslu á framvindu verkefnisins. Fram kom að Jóhann hefur verið að skrifa undanfarið um Aðalstein Loftsson, útgerðarfélagið Röðul og Bjarma útgerðina sem nýtast munu sem heimildir í verkið. Jóhann hefur hafið undirbúning m.a. með því að ræða við fólk og undirbúa það með frekari viðtöl. Jóhann metur það svo að frekari gagnaöflun muni standa út árið 2017.
Mennnigarráð þakkar Jóhanni Antonssyni fyrir komuna og upplýsingarnar. Jóhann Antonnsson mun koma aftur á fund ráðsins í apríl með skriflega verk og kostnaðaráætlun.
7.2 Styrkveitingar Menningar- og viðurkenningarsjóðs 2017
Árlegar styrkveitingar úr Menningarsjóði til umræðu. Samþykkt var að setja auglýsingu um styrkumsóknir í Menningarsjóð Dalvíkurbyggðar sem fyrst og mun umsóknarfrestur renna út 3. apríl. Sviðsstjóra falið að ganga frá því.
7.3 Varðar aðkomu sveitarfélgsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna
Undir þessum lið kom inn á fundinn Hjörleifur Hjartarson, kl 09:25. Tekið fyrir innsent erindi frá Hjörleifi um aðkomu sveitarfélagsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna.
Hjörleifur óskar eftir framtíðarsýn hvað varðar fuglasýninguna og öll þau verkefni sem eru í gangi vegna Friðlands Svarfdæla.
Menningarráð þakkar Hjörleifi Hjartarsyni fyrir komuna. Menningarráð telur mikilvægt að sveitarfélagið leiti leiða um mótun og framtíðarsýn fyrir sýninguna Friðland fuglanna.
7.4 Fjölmenningarstefna Dalvíkurbyggðar 2017
Lagt fram til kynningar. Menningarráð fagnar því að sveitarfélagið hefur hafið vinnu við mótun heildar stefnu sveitarfélagsins í fjölmenningarmálum.
7.5 Skráning menningarminja; fornleifa, húsa og mannvirkja - skil á gögnum
Fyrir liggur að sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs Dalvíkurbyggðar hefur sent umbeðin gögn til Minjastofnunar og að auki hefur Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Byggðasafnsins Hvoll sent Minjastofnun gögn er lúta að skráningu á húsum byggðum fyrir 1950 í Dalvíkurbyggð. Lagt fram til kynningar bréf frá Minjastofnun.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því allir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
8.
Umhverfisráð - 288, frá 10.03.2017
Málsnúmer 1703004F
Til afgreiðslu:4.liður.5. liður.6. liður.7. liður.10. liður.11. liður.13. liður.15. sérliður á dagskrá.16. sérliður á dagskrá.
8.1 Þjónustukannanir
Margrét Víkingsdóttir mun kynna niðustöðu þjónustukönnunar umhverfis- og tæknisviðs.
8.2 Meðferð úrgangs í námu neðan við Hringsholt
Til umræðu bréf dags. 16. desember frá HNE vegna meðferðar á úrgangi í námu neðan við Hringsholt ásamt tillögum að úrbótum frá húseigendafélaginu dags. 17. febrúar 2017.
Einnig er á dagskrá samvinna HNE og Dalvíkurbyggðar.
Ráðið þakkar þeim Alfred og Vali fyrir gagnlega umræðu og leggur til að fulltrúar frá húseigendafélags Hringsholts ásamt fulltrúum frá HNE verði boðaðir á fund sem fyrst vegna þessa máls.
8.3 Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Til kynningar mánaðarlega stöðuskýrsla. Lagt fram til kynningar.
8.4 Umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við fjós mhl 20
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Gunnsteinn Þorgilsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við fjós mhl 20 að Sökku Svarfaðardal samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.5 Umsókn um byggingarleyfi
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Þorleifur Kristinn Karlsson eftir byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við fjós mhl 15 að Hóli samkvæmt meðfylgjandi gögnum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.6 Umsókn um byggingarleyfi fyrir mhl 02 baðhús
Með innsendu erindi dags. 8. mars 2017 óskar Kristján E Hjartarsson eftir byggingarleyfi fyrir sturtuhús mhl 02 samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi þegar öll gögn vegna málsins hafa borist.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.7 Leyfi til að losa kjarna á grjótnámu í Sauðanesi.
Með innsendu erindi dags. 7. mars 2017 óskar Þorsteinn K. Björnsson fyrir hönd Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar eftir leyfi til efnistöku í grjótnámu við Sauðanes samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi til Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.8 Varðar aðkomu sveitarfélgsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna
Til umræðu innsent erindi Hjörleifs Hjartarssonar frá 8. febrúar 2017 vegna aðkomu sveitarfélgsins að Friðlandi Svarfdæla og Friðlandi fuglanna ásamt ársskýrslu 2016. Þar sem samningur Dalvíkurbyggðar við Umhverfisstofnun um Friðland Svarfdæla er í endurskoðun ásamt verndaráætlun fyrir svæðið eru ekki forsendur til að gera umsjónarsamning um Friðland Svarfdæla. Ráðið vill einnig benda á að samkomulagið við Náttúrusetrið á Húsabakka rann út 31.maí 2016 en var ekki sagt upp eins og fram kemur í innsendu erindi.
Ráðið leggur áherslu á að gengið sé eftir því við Umhverfisstofnun að lokið sé við gerð samningsins svo hægt sé að tryggja áframhaldandi uppbyggingu Friðlands Svarfdæla.
8.9 Varðar rafhleðslustöð og tengingu á henni
Til umræðu innsent erindi frá Ísorku móttekið 15. febrúar 2017 vegna uppsetningar og tengingar á rafhleðslustöð sem sveitarfélaginu barst að gjöf frá Orkusölunni ehf. Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar þakkar Orkusölunni fyrir sitt framlag. Ráðið leggur til að gert verði ráð fyrir að stöðinn verði sett upp á bílastæði vestan við Ráðhús Dalvíkurbyggðar. Ráðið bendir á að ekki var gert ráð fyrir fjármagni til uppsetningar á stöðinni í fjárhagsáætlun 2017.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.10 Múlagöng - sameiginlegt bréf frá Slökkviliðum Fjallabyggðar og Dalvíkurbyggðar
Til kynningar viðbragðaáætlun frá Vegagerðinni dags. 21. febrúar 2017. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við framlagða viðbragðsáætlun Vegagerðarinnar vegna Múlaganga.
8.11 Framkvæmdarleyfi vegna borunar eftir heitu vatni í landi Syðri Haga, Víkurbakka og Ytri Víkur.
Til afgreiðslu umsókn Norðurorku dags.18.02.2017 um framkvæmdarleyfi í landi Syðri-Haga. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið framkvæmdarleyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
8.12 Lýsing á þjóðvegum í þéttbýli
Til kynningar erindi frá Vegagerðinni dag. 23.febrúar 2017 vegna breytinga á fyrirkomulagi götulýsingar í þéttbýli. Sviðsstjóri upplýsir að engir misbrestir séu á greiðslum frá Vegagerðinni til handa sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.
8.13 Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028
Með innsendu erindi dags. 6. mars 2017 óskar Fjallabyggð eftir umsögn vegna breytingar á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2008-2028 Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við breytinguna.
8.14 Svæðisskipulag 2012-2024
Til kynningar fundargerð Svæðiskipulagsnefndar Eyjafjarðar Lagt fram til kynningar
8.15 Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal
Umsagnir vegna skipulagslýsingar lagðar fram til kynningar. Deiliskipulag í landi Snerru,Svarfaðardal, Dalvíkurbyggð.
Lögð fram drög að deiliskipulagi í landi Snerru í Svarfaðardal ásamt greinagerð.

Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.16 Deiliskipulag við Kirkjuveg, Dalvík
Deiliskipulag við Kirkjuveg á Dalvík

Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 19. janúar 2017 með athugasemdafresti til 2. mars 2017. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma. Umsagnir lagðar fram til kynningar.
Umhverfisráð samþykkir tillöguna ásamt húsakönnun og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun gögnin til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, liðir 15. og 16. eru sérliðir á dagskrár, eru því þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu lagðir fram til kynningr í sveitarstjórn.
9.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 59, frá 10.03.2017
Málsnúmer 1702011F
9.1 Bókun um fjárframlög til hafnarframkvæmda
Í bréfi sem Hafnasamband Íslands sendi innanríkisráðherra þann 13. janúar sl. var óskað eftir staðfestingu á því hvert framlag ríkisins til framkvæmda í höfnum yrði árið 2017, en misvísandi upplýsingar höfðu fengist úr stjórnkerfinu.

Þann 14. febrúar barst svar við ofangreindu erindi.

Í kjölfar svarbréfsins var sent erindi til Vegagerðarinnar þar sem óskað var eftir upplýsingum um hvaða framkvæmdir væri að ræða í tölum ráðuneytisins.

Svör Vegagerðarinnar voru eftirfarandi:

"Eftirtalin verkefni er stefnt að farið verði í og að auki verkefni sem voru inn á samgönguáætlun árið 2016:

Rifshöfn, endurbygging Norðurkants
Siglufjörður, þekja og lagnir
Hafnasamlag Norðurlands, dráttarbátur
Vopnafjörður dýpkun innsiglingarrennu
Þorlákshöfn dýpkun snúningssvæðis
Grindavík, endurbygging Miðgarðs
Hornafjörður o.fl. viðhaldsdýpkun"

Lagt fram til kynningar.
9.2 Austurgarður í Dalvíkurhöfn, ósk leyfi til framkvæmda.
Hönnun Austurgarðs er byrjuð og eru hér lagðar fram til kynningar teikningar af staðsetningu á þeim svæðum innan og utan hafnarinnar þar sem efnistaka mun eiga sér stað til fyllingar innan stálþils.
Sveitarstjóri og sviðsstjóri eru búnir að funda með ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnamála, á þeim fundum hefur komið fram að framkvæmdir við Austurgarð eru á samgönguáætlun 2015 - 2018.
Vinna við Austurgarð hófst í árslok 2016 með hönnun og gerð útboðsgagna, 2017 er gert ráð fyrir niðurrekstri á stálþili, fylling undir þekju og flutningi á varnargarði og lok verksins verður á árinu 2018 með frágangi á þekju og lýsingu.
Siglingasvið Vegagerðarinnar greiddi sinn hluta í kostnaði vegna þeirrar vinnu sem unnin var á árinu 2016 og er verkefnið því formlega hafið.
Í þeim samtölum sem ofangreindir áttu við ráðherra kom fram að í fjárheimildum vegna hafnaframkvæmda á árinu 2018 mun verða gert ráð fyrir kostnaði vegna Austurgarðs og að Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar muni þá fá greitt framlag ríkisins vegna framkvæmda á yfirstandandi ári.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að það feli byggðarráði að leita leiða til að tryggja að framkvæmdir við Austurgarð geti hafist sem fyrst.
9.3 Hafnargjöld og aflagjöld
Á fundinum var lagt fram minnisblað um aflagjald og álagningu þess sem Pacta lögmenn unnu fyrir Dalvíkurbyggð. Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að fá álit stjórnar Hafnasambands Íslands á framlögðu minnisblaði frá Pacta og að stjórn sambandsins hlutist til um að hafnalögum verði breytt þannig að innheimta aflagjalds geti verið með sama hætti og verið hefur.
9.4 Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum
Með bréfi sem dagsett er 22. febrúar 2017 boðar Umhverfisstofnun að starfsmaður þess komi í reglubundið eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum. Fram kom einnig í bréfinu að slíkt eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum skal framkvæma að lágmarki á fimm ára fresti. Lagt fram til kynningar.
9.5 Fundargerðir 2017
Fyrir fundinum lá fundargerð 392. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 17. febrúar sl. í Allsherjarbúð að Borgartúni 30 í Reykjavík. Lögð fram til kynningar.
9.6 Flotbryggjur í Dalvíkurhöfn.
Ósk hefur komið um viðbótaraðstöðu vegna fjölgunar skipa sem gera út á ferðaþjónustu. Sú hugmynd hefur verið rædd að fjölga viðlegum í Dalvíkurhöfn með nýrri flotbryggju og "fingrum".
Málefni um flotbryggjur er frestað til næsta fundar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að "fingur" verði komið fyrir á syðri flotbryggju samkvæmt tillögu yfirhafnavarðar og kostnaður færður á viðhaldslykil Hafnasjóðs. Sviðsstjóra falið að fá tilboð í "fingurinn".
9.7 Framkvæmdarleyfi vegna borunar eftir heitu vatni í landi Syðri Haga, Víkurbakka og Ytri Víkur.
Norðurorka, umsókn um leyfi til framkvæmda í landi Syðri-Haga, Dalvíkurbyggð. Um er að ræða borun eftir heitu vatni og lagfæring á mannvirkjum því tengdu. Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugasemd við fram komna umsókn Norðurorku.
9.8 Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal
Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, fyrir hönd Dalvíkurbyggðar, óskar eftir umsögn veitna Dalvíkurbyggðar vegna lýsingar á fyrirhugaðri deiliskipulagstillögu í landi Snerru, Svarfaðardal í Dalvíkurbyggð skv 3. mgr. 40. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
Jörðin Snerra er í einkaeigu og hefur eigandi jarðarinnar áform um að vinna deiliskipulag innan skipulagsreitsins.
Veitu- og hafnaráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi lýsingu á deiliskipulagstillögu í landi Snerru, Svarfaðardal. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert í fundargerðinni þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því allir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
10.
Frá 288. fundi umhverfisráðs; Skipulag í landi Snerru, Svarfaðardal
Málsnúmer 201701034
Á 288. fundi umhverfisráðs þann 10. mars 2017 var eftirfarandi bókað:"Umsagnir vegna skipulagslýsingar lagðar fram til kynningar. Deiliskipulag í landi Snerru,Svarfaðardal, Dalvíkurbyggð. Lögð fram drög að deiliskipulagi í landi Snerru í Svarfaðardal ásamt greinagerð.Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs.
11.
Frá 288. fundi umhverfisráðs þann 10.03.2017; Deiliskipulag við Kirkjuveg, Dalvík
Málsnúmer 201311291
Á 288. fundi umhverfisráðs þann 10. mars 2017 var eftirfarandi bókað:"Deiliskipulag við Kirkjuveg á Dalvík Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 19. janúar 2017 með athugasemdafresti til 2. mars 2017. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma. Umsagnir lagðar fram til kynningar.Umhverfisráð samþykkir tillöguna ásamt húsakönnun og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun gögnin til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu umhverfisráðs.
12.
Rafræn íbúakönnun vegna golfvallar í fyrirhuguðu deiliskipulagi í fólkvangi Böggvisstaðafjalla - Niðurstaða úr könnun
Málsnúmer 201610012
Á 815. fundi byggðaráðs þann 16. mars 2017 var eftirfarandi bókað:"Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 16:02. Á 289. fundi sveitarstjórnar þann 21. febrúar s.l. var samþykkt með 5 atkvæðum tillögu byggðaráðs um rafæna könnun. "Að hugur íbúa í Dalvíkurbyggð, 18 ára og eldri, verði kannaður með rafrænni könnun á heimasíðu Dalvíkurbyggðar í mars 2017 eftir annan fund sveitarstjórnar 2017, frá og með 1. mars til og með 15. mars 2017 og leggja til að spurningin sem lögð verði fyrir hljóði þannig: 'Vilt þú að gert verði ráð fyrir 9 holu golfvelli í fyrirhuguðu deiliskipulagi Fólkvangsins í Böggvisstaðafjalli ?' Svarmöguleikanir verði 'Já' eða 'Nei'. Um er að ræða rafræna könnun en ekki formlega kosningu skv. sveitarstjórnarlögum. Niðurstöður könnunarinnar eru því ekki bindandi fyrir deiliskipulagsvinnuna en höfð til hliðsjónar við deiliskipulagsvinnuna." Niðurstaða úr ofangreindri könnun liggur fyrir og er eftirfarandi: 386 manns tóku þátt. "Já" sögðu 99 eða 25,65%. "Nei" sögðu 287 eða 74,35%Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa ofangreindu til íþrótta- og æskulýðsráðs og umhverfisráðs til umfjöllunar. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að beina því til umhverfisráðs að hlustað verði á raddir fólksins við vinnu við deiliskipulagið við fólkvanginn, þegar að því kemur, þar sem að vilji fólksins er skýr úr ofangreindri könnun. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum niðurstaðan verði kynnt á vefmiðlum sveitarfélagsins."Til máls tóku:Guðmundur St. Jónsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:37.Bjarni Th. Bjarnason.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu byggðaráðs, Guðmundur St. Jónsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis og Valdís Guðbrandsdóttir situr hjá.
13.
Sveitarstjórn - 289, frá 21.02.2017
Málsnúmer 1702008F
Guðmundur St. Jónsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:42.