Fara í efni

Sveitarstjórn

287. fundur
13. desember 2016 kl. 16:15 - 17:03
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 805, frá 09.12.2016.
Málsnúmer 1612006F
Til afgreiðslu:3. liður a og b.5. liður.6. liður.
2.
Atvinnumála- og kynningarráð - 22, frá 23.11.2016
Málsnúmer 1611011F
Til afgreiðslu:1. liður.
3.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 84. 06.12.2016
Málsnúmer 1612001F
4.
Menningarráð - 60, frá 8.12.2016.
Málsnúmer 1612004F
Til afgreiðslu:2. liður.
5.
Umhverfisráð - 285, frá 02.12.2016
Málsnúmer 1611015F
4. liður sér liður á dagskrá.
6.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 56, frá 07.12.2016
Málsnúmer 1612002F
Til afgreiðslu:4. liður.
7.
Frá 285. fundi umhverfisráðs þann 2.12.2016: Deiliskipulag Skáldalæk-Ytri
Málsnúmer 201606032
Á 285. fundi umhverfisráðs þann 2. desember 2016 var eftirfarandi bókað:"Deiliskipulagstillagan var auglýst í skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þann 12. nóvember 2016 með athugasemdafresti til 25. nóvember 2016. Engin athugasemd barst á auglýsingatíma.Umhverfisráð samþykkir tillöguna og felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun hana til yfirferðar ásamt samantekt um málsmeðferð. Geri Skipulagsstofnun ekki athugasemdir við samþykkta tillögu skal sviðsstjóri auglýsa gildistöku deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum"Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs.
8.
Fjárhagsáætlun 2016; tillaga að heildarviðauka III.
Málsnúmer 201611092
Á 805. fundi byggðaráðs þann 8. desember 2016 var eftirfarandi bókað:"Sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti tillögu að heildarviðauka við fjárhagsáætlun III þar sem búið er að taka inn í eftirfarandi áður samþykkta viðauka: a) Málsnr. 201504045:Viðauki 20; Sala á færanlegri kennslustofu. Málsnr. 201608023:Viðauki 22; Sala á Lokastíg 1, íbúð 0203. Málsnr. 201608057:Viðauki 25; Sala á Öldugötu 4a- 4d. Málsnr. 201503150: Viðauki 26; Sala á Húsabakka. Málsnr. 201609041: Viðauki 27; Sala á Lokastíg 1, íbúð 0304 Málsnr. 201609079; Viðauki 28; Acute búnaður slökkviliðs - hefur ekki áhrif á áætlun. Málsnr. 201610028; Viðauki 29; Greið leið ehf.; aukning á hlutafé. Máls nr. 201602098; Viðauki 30; Snjómokstur Málsnr. 201610067; Viðauki 31; Breytingar á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar. b) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig minnisblað frá sviðstjóra veitu- og hafnasviðs, dagsett þann 7. desember 2016; þar sem óskað er eftir breytingu á fjárfestingaáætlun Hafnasjóðs vegna löndunaraðstöðu, lækkun um kr. 21.000.000. Undir þessum lið kom á fund Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs kl. 13:55. Til umræðu ofangreint. Þorsteinn vék af fundi kl. 14:00. c) Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsettur þann 7. desember 2016, þar sem lagt er til að 80% áætlaður kostnaður vegna breytinga á Skrifstofum verði eignfært og 20% verði fært á viðhald, sbr. viðauki #31 hér að ofan. d) Í fjárhagsáætlun 2016 er gert ráð fyrir að verðbólga ársins verði 2,50% en skv. endurskoðaðri Þjóðhagsspá frá 4. nóvember 2016 er gert ráð fyrir 1,8% verðbólgu á árinu 2016. Lagt er til að sú áætlun verði notuð í fjárhagsáætlunarlíkani með heildarviðauka III. Til umræðu ofangreint.a) - d) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögur að heildarviðauka III samkvæmt liðum a. - d. og tillögu að heildarviðauka eins og hann liggur fyrir og vísar honum til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn."Enginn tók til máls.Rekstrarniðurstaða Samstæðu A- og B- hluti, kr. 124.876.000 jákvæð.Rekstrarniðurstaða Aðalsjóðs, kr. 107.601.000, neikvæð.Rekstrarniðurstaða Sveitarsjóðs A- hluta, kr. 9.562.000 jákvæð.Fjárfestingar Samstæðu A- og B- hluta, kr. 290.670.000.Sala eigna Samstæðu A- og B- hluta, kr. 123.260.000.Áætluð lántaka Samstæðu A- og B- hluta kr. 150.000.000.Afborganir og uppgreiðslur lána Samstæðu A- og B- hluta, kr. 173.802.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum heildarviðauka III við fjárhagsáætlun 2016 eins og hann liggur fyrir.
9.
Frá Valdemar Þór Viðarssyni; Beiðni um leyfi frá störfum vegna fæðingarorlofs
Málsnúmer 201612050
Tekið fyrir erindi frá Valdemar Þór Viðarssyni, rafpóstur dagsettur þann 9. desember 2016, þar sem óskað er eftir leyfi frá störfum vegna fæðingarorlofs frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. mars 2017. Óskað er eftir leyfi í skertu starfshlutfalli, þ.e. leyfi frá störfum í ráðum en áframhaldandi setu í sveitarstjórn.Til máls tók:Valdimar Þór Viðarsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:48.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum að veita Valdemar Þór Viðarsyni tímabundna lausn frá störfum vegna fæðingarorlofs í samræmi við ofangreint, Valdemar Þór Viðarsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
10.
Kosningar í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2016, 46. gr. með síðari breytingum.
Málsnúmer 201612052
Valdemar Þór Viðarsson kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 16:49.Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:a) Aðalmaður og formaður menningarráðs í stað Valdemars Þórs Viðarssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Guðrún Anna Óskarsdóttir.Varamaður í stað Guðrúnar Önnu Óskarsdóttur frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.b) Aðalmaður í fræðsluráði í stað Valdemars Þórs Viðarssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Kristinn Ingi Valsson.Varamaður í stað Kristins Inga Valssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Freyr Antonsson.c) Varamaður í byggðaráði í stað Valdemars Þórs Viðarssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Lilja Björk Ólafsdóttir.d) Varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði í stað Valdemar Þórs Viðarssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.e) Varamaður í atvinnumála- og kynningaráði í stað Valdemar Þórs Viðarssonar frá og með 1. janúar 2017 og til og með 31. mars 2017:Haukur Gunnarsson.Fleiri tóku ekki til máls.
Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því ofangreind réttkjörin.
11.
Sveitarstjórn - 285, frá 22.11.2016
Málsnúmer 1611005F
Lagt fram til kynningar.