Fara í efni

Sveitarstjórn

286. fundur
22. nóvember 2016 kl. 16:15 - 16:58
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 804, frá 17.11.2016.
Málsnúmer 1611010F
Til afgreiðslu:2. liður.6. liður.8. liður.9. liður.
1.2 Framkvæmdir á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar og í Ráðhúsi Dalvíkur vegna öryggismála; tilboð í verkið.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Þorsteinn K. Björnsson, sviðstjóri veitu- og hafnasviðs, kl. 13:00 í forföllum sviðstjóra umvhverfis- og tæknisviðs.

Á 802. fundi byggðaráðs þann 27. október 2016 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Ingvar Kristinsson, umsjónarmaður fasteigna, kl. 13:00. Á 801. fundi byggðaráðs þann 20. október s.l. var eftirfarandi bókað: "Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðstjóri umhverfis- og tæknisviðs. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillögur að breytingum á húsnæði Skrifstofa Dalvíkurbyggðar ásamt drög að kostnaðaráætlun. Til umræðu ofangreint. Börkur Þór vék af fundi kl. 14:13. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður á fundinum ." Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga #2 að útfærslu. Til umræðu ofangreint. Ingvar vék af fundi kl. 13:24.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að farið verði í framkvæmdir skv. tillögu #1 með þeim breytingum sem um hefur verið rætt. Byggðaráð felur sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að skoða hvort og/eða hvaða svigrúm er innan fjárhagsramma Eignasjóðs vegna viðhalds 2016. Byggðaráð leggur áherslur á að farið verði í þessar breytingar sem allra fyrst."

Gerð var verðfyrirspurn og barst eitt tilboð frá Tréverki sem var opnað s.l. þriðjudag kl. 14:00. Kostnaðaráætlun var kr. 4.490.100 og tilboð frá Tréverki hljóðar upp á kr. 4.932.000.

Með fundarboði fylgdu eftirtalin gögn:
Gögn vegna verðkönnunar vegna breytinga á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar.
Tilboð frá Tréverki og samanburður við kostnaðaráætlun.
Tilboð frá Tréverki og samanburður við áætlun um efniskostnað.

Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður við breytingar og búnaðarkaup á Skrifstofum Dalvíkurbyggðar verði um 12,1 m.kr. samkvæmt samantekt sem Þorsteinn kynnti á fundinum.

Þorsteinn vék af fundi kl. 14:36.






a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka nr. 31 /2016 við fjárhagáætlun allt að 8,1 m.kr. við málaflokk 31. Samkvæmt upplýsingum frá Eignasjóði er um 4,0 m.kr. svigrúm innan viðhaldsáætlunar Eignasjóðs 2016. Viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé og lækkun á rekstrarafkomu Eignasjóðs.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að gengið verði til samninga við Tréverk á grundvelli tilboðs.
Niðurstaða a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs.
b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs.
1.3 Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirtaldar tillögur að gjaldskrám fyrir árið 2017:

Gjaldskrá sorphirðu
Gjaldskrá Slökkviliðs Dalvíkur - til upplýsingar
Gjaldskrá fyrir markað á Fiskidaginn mikla
Gjaldskrá gatnagerðargjalda
Gjaldskrá fyrir leigu í Böggvisstaðaskála
Gjaldskrá byggingafulltrúa
Gjaldskrá fyrir upprekstur á búfé
Gjaldskrá fyrir leiguland
Gjaldskrá fyrir kattahald
Gjaldskrá fyrir hundahald
Gjaldskrá fyrir fjallskil
Gjalskrá fyrir búfjárleyfi og lausagöngu búfjár
Gjaldskrá Vatnsveitu
Gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða
Gjaldskrá Hafnasjóðs
Gjaldskrá Fráveitu
Gjaldskrá fyrir lengda viðveru
Gjaldskrá fyrir heimilsþjónustu
Gjaldskrá fyrir Frístund
Gjaldskrá fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskaga
Gjaldskrá Dalvíkurskóla
Gjaldskrá Árskóga
Gjaldskrá leikskóla
Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar
Gjaldskrá fyrir Félagsmiðstöðina Týr
Gjaldskrá fyrir Byggðasafnið Hvol.
Gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns.

Til umræðu ofangreint.




Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar tillögur að gjaldskrám eins og þær liggja fyrir og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.
1.4 Ákvörðun um útsvarsprósentu 2017
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi eftirfarandi tillaga að álagningu útsvars Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017:


Útsvarsprósenta 2017 14,52%

Miðað er við að útsvarshlutfall fyrir árið 2017 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundvelli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn ofangreinda tillögu að útsvari Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017.
1.5 Fasteignaskattur og fasteignagjöld 2017
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að álagningu fasteignaskatts fyrir árið 2017 og álagningu fasteignagjalda:

Álagning fasteigna- og þjónustugjalda 2017

Álagningin byggir á fasteignamati samkvæmt Landsskrá fasteigna frá 1. febrúar 2016.

a) Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkur
Íbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.
Fasteignaskattur A 0,50% af fasteignamati húss og lóðar (var 0,49% árið 2016).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá.)
Sorphirðugjald kr. 40.192 ,- á íbúð (var kr. 34.638 á íbúð).


b) Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkur
Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005
Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

c) Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkur
Aðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.
Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).
Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).
Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).

d) Lóðarleiga
Lóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar (óbreytt á mill ára).
Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).
Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).


e) Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.





Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til ofangreinda tillögu við sveitarstjórn.
1.6 Reglur um styrkt til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að reglum um styrki til greiðslu fasteignaskatts til félaga og félagasamtaka skv. 2. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995 og skv. 7 gr. reglugerðar um fasteignaskatts nr. 1160/2005. Um er að ræða óbreytta tillögu á milli ára. Um er að ræða heimildarákvæði í lögum en ekki skyldu sveitarfélaga að veita umrædda styrki. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar reglur eins og þær liggja fyrir.
1.7 Afsláttur fasteignaskatts 2017 til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega
Með fundarboði fylgdi gildandi reglur sveitarfélagsins um lækkun og niðurfellingu fasteignaskatts tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar. Ekki eru tillögur um efnislega breytingar en byggðaráð þarf að taka afstöðu til fjárhæðar afsláttar af fasteignaskatti sem og fjárhæð tekjutengingar, annars vegar vegna einstaklinga og hins vegar vegna hjóna og sambýlisfólks. Sveitarstjórn er heimilt að lækka eða fella niður fasteignaskatt sem tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða en skylt er að setja þar sérstakar reglur um.

Heildarfjárhæð afsláttar árið 2016 var kr. 2.227.132, áætlað kr. 2.121.000.

Til umræðu ofangreint.

Frestað.
1.8 Frá Félagi eldri borgara; Umsókn um styrk á móti fasteignaskatti
Tekið fyrir erindi frá Félagi eldri borgara, dagsett þann 10. nóvember 2016, þar sem sótt er um styrk á móti fasteignagjöldum.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum umsóknina og felur sviðstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs að afgreiða ofangreint erindi samkvæmt umræðum á fundinum og samkvæmt reglum um styrk á móti greiðslu fasteignaskatts til félaga- og félagasamtaka.
1.9 Frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns; Breyting í bókhaldi
Á 779. fundi byggðaráðs þann 7. júní 2016 var eftirfarandi bókað:
2"01605140 - Breyting í bókhaldi

Tekið fyrir erindi frá forstöðumanni bóka- og héraðsskjalasafns, bréf dagsett þann 27. maí 2016, þar sem óskað er eftir heimild til að flytja af liðum í fjárhagsáætlun 2016; af 05310-4390 kr. 200.000 og 05310-4685 kr. 200.000 og yfir á launalið 05310-1010.

Um er að ræða vinnu vegna skráningar á gömlum ljósmyndum í Fotostation.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að vísa ofangreindu til umsagnar sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs sem og að fá samantekt á því hver staða skráninga á ljósmyndum í Héraðsskjalasafni Svarfdæla er og hvernig framhaldið er áætlað."


Með fundarboði byggðaráðs fylgdi greinargerð um stöðu skráningar á ljósmyndum á Héraðsskjalasafni Svarfdæla,dagsett þann 13. júní 2016, og umsögn sviðstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dagsett þann 7. nóvember 2016, þar sem fram kemur að lagt er til að færa kr. 400.000 af liðum 05310-4390 og 053104-4685 og flytja á launalið 05310-1010. Fram kemur einnig að það liggur fyrir að þegar er búið að framkvæma stærstan hluta þeirrar vinnu sem þessi tilfærsla á að dekka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að ekki er hægt að verða við beiðni um tilfærslu á milli liða í fjárhagsáætlun 2016 samkvæmt ofangreindu erindi þar sem fyrir liggur að þegar er búið að framkvæma stærstan hluta þeirrar vinnu sem þessi tilfærsla á að dekka.
1.10 Ritun fundargerða
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs frá 7. nóvember 2016, þar sem fylgir með til upprifjunar leiðbeiningar um ritun fundargerða. Fram kemur að í 15. gr. Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar er að finna kafla I um "Fundarsköp" og kafla II um "Ritun fundargerða", sjá á heimasíðu Dalvíkurbyggðar:http://www.stjornartidindi.is/Advert.aspx?ID=95297b19-c4b8-43c2-beba-96e807ff5f4f.


Samkvæmt 13. gr. um Verkefni byggðaráðs í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar þá er meðal annars verkefni byggðaráðs að hafa eftirlit með stjórnsýslu sveitarfélagsins.



Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
1.11 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Umsögn sambandsins um erindi er varða lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 31. október 2016, þar sem kynnt er umsögn Sambandsins til velferðarráðuneytis um erindi er varða lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks. Fram kemur m.a. í umsögninni að starfshópur hefur skilað tillögu til ráðherra þann 14. október s.l. sem felur í sér að fallið verði frá því fyrirkomulagi að þjónustusvæði fyrir fatlað fólk innihaldi að lágmarki 8.000 íbúa, með tiltölulega þröngum undanþáguheimildum. Lagt er til að tekið verði upp sama fyrirkomulag og gilt hefur skv. lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, þar sem sveitarfélögum er í raun frjálst að mynda með sér þjónustusvæði eftir því sem best hentar.

Byggðaráð Dalvíkurbyggðar fagnar þessari breyttu afstöðu sem fram kemur í ofangreindri umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga sem er í takt við samstarf Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar um málefni fatlaðra.
1.12 Frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytingu; Auglýsing umsóknar um byggðakvóta fiskveiðiársins 2016/2017
Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið undir umræðu.

Tekið fyrir svarbréf frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, dagsett þann 31. október 2016, þar sem fram kemur að ráðuneytið hefur fjallað um umsókn Dalvíkurbyggðar og er niðurstaðan að úthluta byggðakvóta til sveitarfélagsins sem skiptist á byggðarlög sem hér segir:

Dalvík, 70 þorskígildistonn.
Hauganes, 15 þorskígildistonn.
Árskógssandur, 270 þorskígildistonn.


Fram kemur einnig að vilji sveitarstjórn leggja til við ráðuneytið að sett verði sérstök skilyrði varðandi úthlutun byggðakvóta sveitarfélagsins eða einstakra byggðarlaga skal hún skila rökstuddum tillögum sínum til ráðuneytisins eigi síðar en 30. nóvember n.k.

Upplýst var á fundinum að atvinnumála- og kynningaráð mun fjalla um reglur Dalvíkurbyggðar hvað varðar úthlutun á byggðakvóta á fundi sínum þann 23. nóvember n.k.
Lagt fram til kynningar.
1.13 Frá Greiðslustofu húsnæðisbóta; Húsnæðisbætur - Heimasíða - Reiknivél - Ný þjónustuskrifstofa
Tekið fyrir erindi frá Greiðslustofu Húsnæðisbóta, rafbréf dagsett þann 11. nóvember 2016, þar sem fram kemur að þann 1. janúar 2017 munu ný lög um húsnæðisbætur taka gildi og Greiðslustofa húsnæðisbóta tekur við því hlutverki að greiða húsnæðisbætur fyrir landið allt. Þjónustuskrifstofan á Sauðárkróki hóf formlega starfsemi sína 16. nóvember s.l. og áætlað er að opna fyrir umsóknir þann 21. nóvember n.k.

Fram kemur að það sé talið mikilvægt að eiga beint samtal við starfsfólk sveitarfélaga sem hefur dýrmæta þekkingu og reynslu í framkvæmd húsaleigubóta. Óskar er því eftir með formlegum hætti að hefja þessar samræður.

Vísað til félagsmálasviðs.
1.14 Frá Sjúkrahúsinu á Akureyri; Stefnumótun SAk
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sjúkrahúsinu á Akureyri, dagsettur þann 11. nóvember 2016 þar sem fram kemur að í gangi er vinna við stefnumótun Sjúkrahússins á Akureyri frá 2017-2021. Fram kemur að allt innlegg í stefnumótun er vel þegið og verður skoðað. Meðfylgjandi eru einnig nokkrar spurningar sem hægt er að svara einni eða öllum. Óskað er svara fyrir 21. nóvember n.k. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls og annað þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar í fundargerðinni, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu er því lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
2.
Félagsmálaráð - 203, frá 8.11.2016.
Málsnúmer 1611004F
Til afgreiðslu:9. liður.
2.1 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201611036 Bókað í trúnaðarmálabók
2.2 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201611037 Bókað í trúnaðarmálabók
2.3 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201610079 Bókað í trúnaðarmálabók
2.4 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201611052 Bókað í trúnaðarmálabók
2.5 Stöðumat fjárhags fyrir árið 2016
Farið var yfir stöðumat fjárhags fyrir janúar til september 2016. Lagt fram til kynningar
2.6 Gjaldskrár 2017
Lagðar fram gjaldskrár félagsmálasvið fyrir árið 2017 til yfirferðar og afgreiðslu. Félagsmálaráð samþykkir gjaldskrárnar eins og þær liggja fyrir og vísa þeim til afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.7 Frá foreldrum fatlaðra ungmenna í Dalvíkurbyggð
Lagt er fyrir bréf frá foreldrum fatlaðara ungmenna í Dalvíkurbyggð, bréf dagsett þann 25.ágúst 2016, þar sem fram koma áhyggjur þeirra af búsetumálum ungmennanna sem fullorðnum einstaklingum í sveitarfélaginu. Félagsmálaráð tekur undir með foreldrum fatlaðra ungmenna um þörf á búsetuúrræði þeirra til framtíðar. Búið er að skipa vinnuhóp og vonandi fljótlega á nýju ári verði farið í gang með frekari undirbúningsvinnu vegna byggingar íbúðarkjarna. Félagsmálaráð mun óska eftir því við vinnuhópinn að vera upplýst um gang mála.
2.8 Umsögn sambandsins um erindi er varða lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða í málaflokki fatlaðs fólks
Lagt fram rafbréf frá Sambandi íslenska sveitarfélaga dagsett 31.október 2016, þar sem umsögn sem sambandið hefur látið Velferðarráðuneytinu í té um erindi er varðar lámarksíbúafjölda þjónustusvæða. Lagt fram til kynningar
2.9 Um fjárbeiðni Stígamóta fyrir árið 2017
Lagt fram bréf um beiðni frá Stígamótum dagsett 10.október 2016, þar sem óskað er eftir fjárstyrk fyrir samtökin fyrir árið 2017. Félagsmálaráð hafnar erindi Stígamóta um fjárstyrk fyrir árið 2017. Niðurstaða Til máls tók:
Valdís Guðbrandsdóttir.

Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, þeir liðir sem ekki þarfnast afgreiðslu sveitarstjórnar eru því lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
3.
Fræðsluráð - 210, frá 9.11.2016
Málsnúmer 1610019F
3.1 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2017
Með fundarboði fylgdi tillaga sviðsstjóra að skiptingu fjárhagsramma fræðslumála (04) fyrir árið 2017 og er tillagan innan samþykkts fjárhagsramma.


Fræðsluskrifstofa
28.746.037
Fræðsluráð
1.696.903
Stuðningur
6.718.155
Krílakot
170.056.432
Dagvistun

Sameiginlegir liðir
200.004
Dalvíkurskóli
395.874.099
Árskógur
89.871.639
Tónlistarskólinn á Tröllaskaga
32.593.280
Frístund
7.581.676
Ferðastyrkur v/náms
1.700.001
Umferðarskólinn
93.510
Framhaldsskólar Eyjafjarðar
3.607.354
Námsver
873.801
Samtals
739.612.891


Umræða varð um tölvutengingu í Dalvíkurskóla. Unnið er eftir fyrirliggjandi endurnýjunaráætlun og ekki er komið að endurnýjun á Multicid kerfinu fyrr en á árinu 2018. Sama kerfi er í notkun í Árskógarskóla og staðan þar er eins. Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum rammann eins og hann liggur fyrir.
3.2 2017 Gjaldskrá - Fræðsluráð
Með fundarboði fylgdu gjaldskrár ársins 2017 fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskaga, útleigu á Dalvíkurskóla, Frístund og leikskólana í Dalvíkurbyggð eins og þær líta út eftir 3,9% hækkun á gjaldskrám ársins 2016. Nákvæm hækkun gjaldskráa samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
3.3 Breytingar á lögum um grunnskóla nr. 91/2008
Með fundarboði fylgdu lög um breytingar á lögum um grunnskóla nr. 91/2008 sem undirrituð voru 16. júní 2016 og skýringar við frumvarp um breytingu á lögum um grunnskóla dags. 2. ágúst 2016. Lagt fram til kynningar.
3.4 Samræmd próf 2016
Gísli Bjarnason, skólastjóri Dalvíkurskóla og Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla gerðu grein fyrir niðurstöðum samræmdra prófa í 4. og 7. bekk Dalvíkurskóla og 4. bekk Árskógarskóla. Gögn þar að lútandi fylgdu með fundarboði. Fræðsluráð þakkar skólastjórunum fyrir upplýsingarnar.
3.5 Námsárangur
Með fundarboði fylgdu fundargerðir 27. og 28. fundar vinnhóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla. Gísli og Dóróþea svöruðu fyrirspurnum um fundargerðirnar. Fræðsluráð þakkar upplýsingarnar og fagnar þessari vinnu.
4.
Landbúnaðarráð - 108, frá 10.11.2016
Málsnúmer 1611007F
Til afgreiðslu:4. liður.
4.1 Flutningur á fé
Undir þessum lið komu Bjarni Th Bjarnason og Sigurður Bjarni Sigurðsson inn á fundinn kl. 10:10

Með innsendu erindi dags. 8. nóvember óskar Sigurður Bjarni Sigurðsson eftir því að landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar taki til umræðu meinta fjárflutninga án vitneskju og eða samþykkis eiganda.
Landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar þakkar Sigurði Bjarna fyrir veittar upplýsingar.
Ráðið vill brýna fyrir bændum að gert sé við fjallgirðingar að vori eins fljótt og hægt er eftir að snjóa leysir.
Þurfi að flytja ókunnugt fé af heimalöndum til afréttar sé það gert í samráði við eiganda viðkomandi fjár.

Sigurður Bjarni Sigurðsson vék af fundi kl. 10:25
4.2 Samningur við gangnamannafélag Sveitsstaðaafréttar.
Til umræðu samningur Dalvíkurbyggðar við gangnmannafélag Sveinsstaðaafréttar frá 2011. Ráðið felur sviðsstjóra að ræða endurskoðun á gildandi samningi við gangnamannafélagið og afla upplýsinga um forsendur samningsins.

Bjarni Th Bjarnason sveitarstjóri vék af fundi kl. 11:15
4.3 Ritun fundargerða
Til umræðu ritun fundargerða. Lagt fram til kynningar.
4.4 Umsókn um leyfi til búfjárhalds
Með innsendu erindi dags. 24. október 2016 óskar Sólborg Friðbjörnsdóttir eftir búfjárleyfi fyrir fjórar hænur samkvæmt meðfylgjandi umsókn. Ráðið gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
4.5 Stöðumat janúar - september 2016
Til kynningar stöðumat umhverfis- og tæknisviðs fyrir janúar-september 2016 Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlagt stöðumat.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og aðrir liðir í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
5.
Menningarráð - 59, frá 15.11.2016
Málsnúmer 1611009F
Til afgreiðslu:2. liður- vantar að vísa á lið.
5.1 Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Tekið til umræðu og hver eru næstu skref.

Engin fylgigögn eru með þessu máli.
Sviðsstjóra er falið að hafa sambandi við Jóhann Antonsson varðandi rammasamning er snýr að tímaramma og kostnaði við gagnaöflun á Sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar.
5.2 Umsókn um styrk
Tekin fyrir umsókn frá höfundunum Hermanni Stefánssyni, Sigurlínu Bjarneyju Gísladóttur, Atla Sigurþórssyni, Valgarði Egilssyni og Heimi Frey Hlöðverssyni um styrk til að halda upplestrar og spjallfund um Látra-Björgu. Menningarráð tekur vel í að haldið verði málþing um Látra-Björgu í tilefni að því að liðin eru 300 ár frá fæðingu hennar og í tengslum við fyrirhugaða afhjúpun af minnismerki hennar í Dalvíkurbyggð sem Menningarsjóður styrkti.

Menningarráð samþykkir að veita styrk að fjárhæð 50 þúsund vegna málþings um Látra-Björgu.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu menningarráðs og að vísa þessu á fjárhagslið 05810-9145.
5.3 Umsókn um styrk úr Menningar- og viðurkenningarsjóði
Fyrir liggur umsókn frá stjórn UMSE um styrkveitingu vegna skráningar á sögulegum gögnum vegna 100 ára afmælis UMSE. Afgreiðslu frestað.
5.4 Tillaga að breytingu á fyrirkomulagi Menningarráðs
Til umræðu er tillaga að menningarráð verði fært frá fræðslu og menningarsviði undir atvinnumála og kynningarráð.

Engin fylgigögn eru með þessu máli.
Menningarráð óskar eftir betur útfærðum tillögum til að geta tekið afstöðu til málsins.

Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og aðrir liðir í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því aðrir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
6.
Skólanefnd Tónlistarskólans á Tröllaskaga - 2
Málsnúmer 1611002F
Til afgreiðslu:1. liður.
6.1 Erindisbréf skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Uppfært erindisbréf Skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga lagt fram til kynningar. Engar athugasemdir komu fram og erindinu því vísað áfram til samþykktar í sveita- og bæjarstjórnum. Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu skólanefndar Tónlistarskólans á Tröllaskaga.
6.2 Fjárhagsáætlun TÁT-2017
Uppfærð og samandregin fjárhagsáætlun Tónlistarskólans á Tröllaskaga lögð fram til samþykktar. Skólanefnd TÁT samþykkir framlagðan fjárhagsramma og vísar honum til samþykktar í sveita- og bæjarstjórnum.
6.3 TÁT - Starfsáætlun 2016-2017
Uppfærð starfsáætlun TÁT lögð fram til kynningar. Farið var yfir lykiltölur en annað í starfsáætluninni er óbreytt frá fyrri kynningu á henni. Starfsáætlun er samþykkt.
6.4 Starfslýsing deildarstjóra Tónlistarskólans á Tröllaskaga
Starfslýsingar deildarstjóra og aðstoðarskólastjóra TÁT lagðar fram og ræddar. Með vísan í 11. gr. í fyrirliggjandi drögum að erindisbréfi er lagt til að málinu verði vísað til endalegrar afgreiðslu í byggðaráðum sveitarfélagana.

6.5 Trúnaðarmál
Afgreiðsla nefndar skráð í trúnaðarmálabók. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og aðrir liðir í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
7.
Umhverfisráð - 284, frá 15.11.2016.
Málsnúmer 1611008F
Til afgreiðslu:4. liður.
7.1 Friðland Svarfdæla Verndar- og stjórnunaráætlun 2017-2026
Til kynningar drög að verndar- og stjórnunaráætlun fyrir Friðland Svarfdæla frá Umhverfisstofnun dags. 03. nóvember 2016. Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
7.2 Drög að nýrri reglugerð um heimagistingu o.fl.
Lögð fram til kynningar drög að reglugerd um gisti- og veitingastaði. Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að reglugerd um gisti- og veitingastaði.
7.3 Ritun fundargerða
Til umræðu ritun fundagerða. Lagt fram til kynningar.
7.4 Umsókn um byggingarleyfi
Til afgreiðslu umsókn um byggingarleyfi dags. 19. september 2016 frá Bjórböðunum ehf fyrir bjórböð að Hinriksmýri á Árskógssandi. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir og felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
7.5 Stöðumat janúar - september 2016
Til kynningar stöðumat umhverfis- og tæknisviðs fyrir janúar-september 2016 Ráðið gerir ekki athugasemdir við framlagt stöðumat.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
7.6 Skýrsla stjórnar 2015- 2016 ásamt fylgigögnum.
Til kynningar skýrsla stjórnar Ferðafélags Svarfdæla 2015-2016 ásamt ársreikningi 2015. Ráðið þakkar greinagóða skýrslu og fagnar góðu starfi félagsins á liðnu ári.
7.7 Fundargerðir 2016
Til kynningar fundargerð HNE frá 15. september ásamt fjárhagsáætlun 2017. Lagt fram til kynningar.
7.8 Seiðaeldi við Árskógssand.
Með erindi dags. 6. nóvember 2016 óskar Guðmundur Valur Stefánsson fyrir hönd Laxós ehf eftir lóð fyrir seiðaeldiasstöð við ósa Þorvaldsdalsár á Árskógssandi. Umhverfisráði Dalvíkurbyggðar tekur jákvætt í umsóknina, en getur ekki veitt umbeðna lóð fyrr en skipulag svæðisins liggur fyrir.
Ráðið leggur áherslu á að í upphafi skipulagsferlisins sé haft samráð við aðliggjandi nágranna.
Samþykkt með fimm atkvæðum.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og aðrir liðir í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
8.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 55, frá 9.11.2016.
Málsnúmer 1611006F
Til afgreiðslu:4. liður.
8.1 Deiliskipulag Skáldalæk-Ytri
Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar óskar hér með eftir umsögn þinnar stofnunar vegna deiliskipulagstillögu á frístundasvæði í landi Skáldalæks ytri í Dalvíkurbyggð.
Jörðin Skáldalækur ytri er í einkaeigu og hefur eigandi jarðarinnar látið vinna tillögu að deiliskipulagi með fjórum frístundahúsalóðum innan skipulagsreitsins.
Veitu- og hafnaráð gerir engar athugasemdir við umrædda deiliskipulagstillögu á frístundasvæði í landi Skáldalæks ytri í Dalvíkurbyggð, en bendir á að stofnæð vatnsveitu liggur í gegnum svæðið og verður því að taka tillit til þess.
8.2 Stöðumat janúar - sept 2016
Á fundinum var kynnt stöðumat fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Lagt fram til kynningar.
8.3 Fundargerðir 2016
Fyrir fundinum lá fundargerð 388. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 12. október 2016.

Lögð fram til kynningar.
8.4 Farþegagjald, upplýsingaskylda aðila í ferðaþjónustu.
Umræður hafa verið innan veitu- og hafnaráðs hvernig upplýsingaskyldu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta sér aðstöðu hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar er háttað. Veitu- og hafnaráð samþykkir að frá og með áramótum skal ferðaþjónustuaðilum sem greiða farþegagjald til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar gert skylt að senda rafpóst við brottför skips þar sem fram kemur skipsnúmer ásamt fjölda farþega um borð. Niðurstaða Til máls tók:
Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarndi tillögu:
„Forsvarsfólk hvalaskoðunarfyrirtækja í Dalvíkurbyggð hefur mótmælt samþykkt veitu- og hafnaráðs frá 9. nóvember sl. og telur að það fyrirkomulag sem lagt er til um upplýsingaskyldu sé illframkvæmanlegt þ.e. að senda inn tölur um farþegafjölda fyrir hverja ferð. Sveitarstjórn leggur til að veitu- og hafnaráð taki málið upp að nýju og leiti leiða til að koma á fyrirkomulagi sem jafnt hafnasjóður og ferðaþjónustuaðilar geta sætt sig við.“


Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra.
8.5 Austurgarður, nýbygging og tilheyrandi
Á fund ráðsins var mættur Fannar Gíslason,verkfræðingur, starfamaður á Siglingasviði Vegagerðar ríkisins. Fannar kynnti þær tillögur sem eru til umræðu um staðsetningu á hafnargarðinum. Veitu- og hafnaráð samþykkir að væntanlegur austurgarður verði hannaður í samræmi við fyrirliggjandi deiliskipulag og mun Fannar sendi inn teikningu í samræmi framangreinda bókun. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls og aðrir liðir í fundargerðinni þarfnast ekki afgreiðslu sveitarstjórnar, eru því þeir liðir lagðir fram til kynningar í sveitarstjórn.
9.
Frá stjórn Dalbæjar, fundargerðir frá 19.09.2016 og 10.11.2016
Málsnúmer 201602099
Til kynningar fundargerðir stjórnar Dalbæjar frá 19.09.2016 og 10.11.2016.Enginn tók til máls.
10.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2017. Síðari umræða.
Málsnúmer 201608019
Á 285. fundi sveitarstjórnar þann 8. nóvember 2016 var eftirfarandi bókað:"Á 54. fundi veitu- og hafnaráðs þann 20. október 2016 var eftirfarandi bókað: "Kynntar voru breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur fyrir árið 2017. Gjaldskráin hefur tekið breytingum byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812%. Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið. Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar." Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur til fyrri umræðu. Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur eins og hún liggur fyrir til síðari umræðu í sveitarstjórn. " Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur eins og hún liggur fyrir.
11.
Gjaldskrár Dalvíkurbyggðar; tillögur fyrir árið 2017.
Málsnúmer 201609127
Á 804. fundi byggðaráðs þann 17. nóvember 2016 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirtaldar tillögur að gjaldskrám fyrir árið 2017: a) Gjaldskrá sorphirðu Gjaldskrá Slökkviliðs Dalvíkur - til upplýsingar b) Gjaldskrá fyrir markað á Fiskidaginn mikla c) Gjaldskrá gatnagerðargjalda d) Gjaldskrá fyrir leigu í Böggvisstaðaskála e) Gjaldskrá byggingafulltrúa f) Gjaldskrá fyrir upprekstur á búfé g) Gjaldskrá fyrir leiguland h) Gjaldskrá fyrir kattahald i) Gjaldskrá fyrir hundahald j) Gjaldskrá fyrir fjallskil k) Gjaldskrá fyrir búfjárleyfi og lausagöngu búfjár l) Gjaldskrá Vatnsveitu m) Gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða n) Gjaldskrá Hafnasjóðs o) Gjaldskrá Fráveitup) Gjaldskrá fyrir lengda viðveru q) Gjaldskrá fyrir heimilsþjónustu r) Gjaldskrá fyrir Frístund s) Gjaldskrá fyrir Tónlistarskólann á Tröllaskagat) Gjaldskrá Dalvíkurskóla u) Gjaldskrá Árskóga ú) Gjaldskrá leikskóla v) Gjaldskrá íþróttamiðstöðvar þ) Gjaldskrá fyrir Félagsmiðstöðina Týr æ) Gjaldskrá fyrir Byggðasafnið Hvol. ö) Gjaldskrá bóka- og héraðsskjalasafns. Til umræðu ofangreint. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar tillögur að gjaldskrám eins og þær liggja fyrir og vísar þeim til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn." Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögur að gjaldskrá Dalvíkurbyggðar 2017, a) - ö) liðir skv. ofangreindu.
12.
Ákvörðun um útsvarsprósentu 2017
Málsnúmer 201611062
Á 804. fundi byggðaráðs þann 17. nóvember 2016 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi eftirfarandi tillaga að álagningu útsvars Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017: Útsvarsprósenta 2017 14,52% Miðað er við að útsvarshlutfall fyrir árið 2017 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,48% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundvelli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn ofangreinda tillögu að útsvari Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017." Með fundarboði byggðaráðs fylgdi ofangreind tillaga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum eftirfarandi:
Miðað er við að útsvarshlutfall fyrir árið 2017 verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni, að viðbættri hækkun sem kveðið verður á um í lögum um tekjustofna sveitarfélaga á grundvelli fyrirhugaðs samkomulags milli ríkis og sveitarfélaga um endurmat á yfirfærslu þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga.

13.
Fasteignaskattur og fasteignagjöld 2017
Málsnúmer 201611063
Á 804. fundi byggðaráðs þann 17. nóvember 2016 samþykkti byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum tillögu til sveitarstjórnar hvað varðar álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2017.Með fundarboði sveitarstjórnar fylgir tillaga að álagningu fasteignaskatts og fasteignagjalda fyrir árið 2017 sem hér segir ásamt tillögu að gjalddögum og fjölda þeirra:Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A-skattflokkurÍbúðarhús og sumarbústaðir ásamt lóðum og lóðarréttindum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.Fasteignaskattur A 0,50% af fasteignamati húss og lóðar (var 0,49% árið 2016).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá.)Sorphirðugjald kr. 40.192 ,- á íbúð (var kr. 34.638 á íbúð).Fasteignagjöld stofnana: B-skattflokkurSjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. samanber reglugerð um fasteignaskatt nr.1160/2005Fasteignaskattur B 1,32% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fasteignagjöld atvinnuhúsnæðis: C-skattflokkurAðrar fasteignir en þær sem falla undir A og B flokk t.d. verslunar-, iðnaðar-, og skrifstofuhúsnæði ásamt lóðum og lóðarréttindum.Fasteignaskattur C 1,65% af fasteignamati húss og lóðar (óbreytt á milli ára).Vatnsgjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).Fráveitugjald Samkvæmt sérstakri gjaldskrá (var skv. sérstakri gjaldskrá).LóðarleigaLóðarleiga íbúðahúsalóða 1,28% af fasteignamati lóðar (óbreytt á mill ára).Lóðarleiga atvinnulóða 2,90 % af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).Lóðarleiga ræktarlands 3,00% af fasteignamati lóðar (óbreytt á milli ára).VatnsgjaldAf öllum fasteignum í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar, sem liggja við vegi eða opin svæði þar sem vatnsæðar liggja, ber að greiða vatnsgjald árlega til Vatnsveitu Dalvíkur og skal það vera eftirfarandi:a) Vatnsgjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 4.640,00- kr. pr. íbúð og 170,30,- kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 8.634,07,- kr. pr. íbúð og 205,05 ,- kr. pr. fermetra húss.)b) Vatnsgjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 14.250,00- kr. pr. eign og 187,80 kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 17.268,13- kr. pr. eign og 205,05- kr. pr. fermetra húss.)c)Árleg vatnsgjöld fyrir sveitabýli, eitt íbúðarhús og útihús á sömu kennitölu skulu vera eitt fastagjald og fullt fermetragjald af íbúðarhúsinu og 1/2 fermetragjald af öðrum húsum. (óbreytt)d)Álagning skv. a, b. og c. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,4% eða lægra en 0,2% af fasteignarmati allra húsa og lóða. (óbreytt).FráveitugjaldFráveitugjald skal greitt af öllum mannvirkjum sem tengd eru fráveitukerfum sveitarfélagsins.a)Fráveitugjald íbúðarhúsnæðis verði fast gjald 15.315,35- kr. pr. íbúð og 319,60 kr. pr. fermetra húss. (var gjald 12.951,10 - kr. pr. íbúð og 291,40- kr. pr. fermetra húss)b) Fráveitugjald af öðru húsnæði en íbúðum verði fast gjald 35.288,36 kr. pr. eign og 319,60 kr. pr. fermetra húss. (var fast gjald 32.377,74- kr. pr. eign og 291,40 - kr. pr. fermetra húss.)c)Árlegt rotþróargjald verði, fast gjald kr. 15.315,35 kr. pr. losunarstað og þar sem tæming á sér stað þriðja hvert ár er kr. 11.872,90 (var kr. 12.951,10 og kr. 11.872,90).d)Álagning skv. a og b. málsl. skal þó aldrei vera hærri en 0,47% eða lægra en 0,25% af fasteignarmati allra húsa og lóða (var 0,47% og 0,25%). Gjalddagar og greiðsla fasteignagjaldaGjalddagar fasteignagjalda eru tíu talsins og eru gjöldin innheimt frá 5. febrúar til 5. nóvember. Eindagi fasteignagjalda er 30 dögum eftir gjalddaga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.

Gjaldskrár vegna sorphirðugjalda 2017, fráveitu 2017, vatnsveitu 2017 voru til umfjöllunar og afgreiðslu samkvæmt 11. lið hér að ofan, málsnúmer 201609127.
15.
Sveitarstjórn - 285, frá 8.11.2016. Til kynningar.
Málsnúmer 1611005F
Enginn tók til máls.