Sveitarstjórn
281. fundur
17. maí 2016
kl.
16:15
-
00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Kristján Guðmundsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 775, frá 04.05.2016.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 776, frá 12.05.2016
2.2
Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Stöðumat stjórnenda janúar - mars 2016.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti skil og mat stjórnenda Dalvíkurbyggðar hvað varðar mat á stöðu bókhalds í samanburði við fjárhagsáætlun 2016, janúar - mars.
Heilt yfir eru græn ljós en gul ljós eru við fjárhagsaðstoð, veikindalaun í leikskólum og Dalvíkurskóla, lífeyrisskuldbindingu, rautt ljós við snjómokstur þar sem framlag vegna snjómoksturs fyrir árið er uppurið.
Gera þarf viðauka við fjárhagsáætlun 2016 vegna launaáætlunar þar sem nýir kjarasamningar liggja fyrir að mestu. Lagt fram til kynningar.

2.3
Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra; Átaksverkefni á opnum svæðum 2016
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra, dagsett þann 10. maí 2016, þar sem óskað er eftir að ráða Jón Arnar Sverrison, garðyrkjufræðing, tímabundið til starfa í sumar, allt að þrjá mánuði, vegna átaksverkefnis á opnum svæðum.
Áætlaður kostnaður er um 1,6 m.kr. Fram kemur að svigrúm er á lið 11410-4396 til að mæta þessum kostnaði. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi.
Áætlaður kostnaður er um 1,6 m.kr. Fram kemur að svigrúm er á lið 11410-4396 til að mæta þessum kostnaði. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint erindi.
2.4
Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Húsabakki, umsókn um rekstrarleyfi
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 29. apríl 2016, þar sem fram kemur að Auðunn Bjarni Ólafsson sækir um sem forsvarsmaður fyrir Húsabakka ehf., kt. 540312-1170, endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu gistinga og veitingu í Húsabakka, Svarfaðardal, 621. Dalvík. Sótt er um rekstrarleyfi gististaður; flokkur V.
Meðfylgjandi eru umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
Meðfylgjandi eru umsagnir slökkviliðsstjóra og byggingafulltrúa Dalvíkurbyggðar. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
2.5
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Uppbygging ferðamannastaða
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 2. maí 2016, þar sem fram kemur að Samband íslenskra sveitarfélaga og Stjórnstöð ferðamála hafa komist að samkomulagi um að sambandið vinni að því, í samvinnu við umhverfis- og auðlindaráðuneytið og verkefnisstjórn, sem skipuð verður á grundvelli laga um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum, að tryggja yfirsýn um ástand og uppbyggingarþörf á ferðamannastöðum um land allt.
Til að samstarfið milli sambandsins og sveitarfélaga gangi sem best er þess óskað að hvert sveitarfélag tilnefni tengilið sem taki að sér að safna saman upplýsingum fyrir þessa áætlanagerð.
Fram kemur að sambandið hefur ráðið sérfræðing, Örn Þór Halldórsson, arkitekt, til að sinna verkefninu af þess hálfu. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, verði tengiliður Dalvíkurbyggðar í þessu verkefni.

2.6
Frá Tækifæri; Aðalfundur Tækifæris 2016.
Tekið fyrir erindi frá Tækifæri hf., dagsett þann 3. maí 2016, þar sem fram kemur að aðalfundur verður haldinn þriðjudaginn 17. maí n.k. á Akureyri og hefst fundurinn kl. 14:00.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
2.7
Frá Málræktarsjóði; Aðalfundur Málræktarsjóðs 2016
Tekið fyrir erindi frá Málræktarsjóði, dagsett þann 6. maí 2016, þar sem fram kemur að aðalfundar sjóðsins verður haldinn föstudaginn 3. júní n.k kl. 15:00 á Hótel Sögu í Reykjavík. Dalvíkurbyggð hefur rétt að tilnefna fulltrúa í fulltrúaráðið. Tilnefningar þurfa að berast eigi síðar en 23. maí n.k.
Lagt fram.
2.8
Frá Flokkun ehf.; Aðalfundur Flokkunar 2016
Tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður ehf., dagsett þann 27. apríl 2016, þar sem boðað er til aðalfundar Flokkunar Eyjaförður þriðjudaginn 17. maí n.k. kl. 13:00 á Hótel Kea á Akureyri.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn f.h. Dalvíkurbyggðar.
2.9
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; fundargerð stjórnar nr. 838
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 838 frá 29. apríl 2016.
Lagt fram til kynningar.
Niðurstaða
Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
3.
Atvinnumála- og kynningarráð - 19, frá 04.05.2016.
3.1
Heimsóknir í fyrirtæki.
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín.
Frestað.
Frestað.
3.2
Mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir fagráð og byggðaráð
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnir mánaðarlegar stöðuskýrslur fyrir þær deildir sem tilheyra atvinnumála- og kynningarráði.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.3
Atvinnuuppbygging í Dalvíkurbyggð
Atvinnumála- og kynningarráð lýsir ánægju sinni með alla þá atvinnuuppbyggingu sem á sér stað í sveitarfélaginu sem sýnir glöggt að almennur vöxtur á sér stað á svæðinu. Atvinnuhúsnæði hefur verið að rísa á Hauganesi, Árskógssandi, Árskógsströnd, Svarfaðardal og á Dalvík. Einnig er ánægjulegt að fyrir liggja umsóknir um atvinnulóðir.
3.4
Hvatasamningur, umsókn.
Á síðsta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:
"Tekin fyrir umsókn um gerð hvatasamnings milli Þorsteins Más Aðalsteinssonar, fyrir hönd fyrirtækisins Erlent ehf kt. 711008-1950, og Dalvíkurbyggðar, dagsett þann 17.02.2016.
Atvinnumála- og kynningarráð lýsir yfir ánægju sinni með umsóknina og felur upplýsingafulltrúa að vinna áfram að málinu á milli funda, miðað við umræður á fundinum. "
Upplýsingafulltrúi leggur fram umbeðin gögn frá Erlent ehf. auk þess að leggja fyrir tillögu að hvatasamningi milli Dalvíkurbyggðar og Erlent ehf. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að ráðið muni leggja til við byggðaráð að gerður verði hvatasamningur við Erlent ehf. Atvinnumála- og kynningarráði er ljóst að fjárhæðir vegna hvatasamnings eru ekki á fjárhagsáætlun þessa árs.
Áður en að gengið verður frá samningsdrögum þarf Erlent ehf að leggja fram nánari útlistun á gjöldum til Dalvíkurbyggðar sem til falla á næstu þremur árum.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

3.5
Atvinnu- og auðlindastefna
Á síðasta fundi atvinnumála- og kynningarráðs þann 6. apríl var eftirfarandi bókað:
"Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að SVOT greiningin verði hluti af atvinnu- og auðlindastefnu sveitarfélagsins og að unnið verði áfram með hana á milli funda ráðsins."
Upplýsingafulltrúi leggur fram tillögu að SVOT greiningu fyrir Dalvíkurbyggð. Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með fjórum atkvæðum SVOT greininguna eins og hún liggur fyrir með breytingum sem hafa verið gerðar á milli funda. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.

4.
Fræðsluráð - 205, frá 13.05.2016.
4.2
Skólastarf í Árskógi
Á fundi sveitarstjórnar þann 4. maí s.l. samþykkti sveitarstjórn samhljóða með 7 atkvæðum að vísa þessu máli aftur til fræðsluráðs til endurskoðunar.
Fræðsluráð tók aðra umræðu um málið og stendur við fyrri ákvörðun sína sem var tekin að vel athuguðu máli og vísar málinu áfram til byggðaráðs. Nauðsynlegt er að eyða allri óvissu um framtíð Árskógarskóla. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.

5.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 78, frá 03.05.2016.
5.1
Skólastarf í Árskógi
Á 204. fundi fræðsluráðs var lagt til að ákvörðum um fyrirkomulag á rekstri félagsheimilisins Árskógar yrði vísað til íþrótta-og æskulýðsráðs sem skoði málið samhliða vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun á komandi hausti.
Skýrsla starfshóps um eflingu og framtíð Árskógarskóla og starfsemi í Árskógi lögð fram til kynningar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka málið samhliða gerð starfs- og fjárhagsáætlunar í haust.

5.2
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2016
Undir þessum lið og það sem eftir var fundar komu eftirfarandi aðilar á fundinn til að kynna niðurstöður ársreiknings og skýrslu sem og til samráðs um aðra þætti:
Einar Hafliðason - Þorsteinn Svörfuður
Kristján Ólafsson - UMFS
Ingibjörg María Ingvadóttir -Frjálsíþróttadeild UMFS
Margrét Víkingsdóttir - Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS
Eva Björg Guðmundsdóttir - Fimleikadeild UMFS
Stefán Garðar Níelsson - Dalvík-Reynir
Gísli Bjarnason og Marsibil Sigurðardóttir - Golfklúbburinn Hamar
Lilja Björk Reynisdóttir - Hestamannafélagið Hringur
Snæþór Arnþórsson - Skíðafélag Dalvíkur
Marinó Þorsteinsson - Ungmennafélagið Reynir
Elín B Unnarsdóttir - Sundfélagið Rán
Guðríður Sveinsdóttir - Blakfélagið Rimar
Kári Ellertsson - Framkvæmdarstjóri Skíðafélagsins og Golfklúbbsins.
Formaður bauð fundarmenn velkomna og boðið var upp á kaffiveitingar. Kvenfélaginu Hvöt eru færðar bestu þakkir fyrir góðar veitingar.
Í framhaldinu var umræða um eftirfarandi þætti:
Eineltisáætlanir íþróttafélaganna:
Farið var yfir stöðuna varðandi eineltisáætlanir íþróttafélaganna í Dalvíkurbyggð. Aðilar samþykkir því að það þurfi að skerpa á þessum hlutum og mun íþrótta- og æskulýðsfulltrúi stýra því verkefni og mun hann kalla saman félögin eftir þörfum.
Fræðsluakedemía:
Margrét Víkingsdóttir, formaður Barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar UMFS, kynnti hvað er búið að gera í tengslum við verkefnið. Búið er að halda námskeið fyrir börn og ungmenni og eru aðilar sammála því að halda þurfi einnig utanum þjálfara.
Uppbygging á aðstöðu íþróttafélaganna:
Rætt um aðstöðumál og framtíðaruppbyggingu íþróttafélaganna.

5.3
Ársreikningar íþróttafélaga 2015
Gerðu fulltrúar íþróttafélaganna grein fyrir helstu verkefnum og lykiltölum í ársreikningum félaganna.
Almennt er blómlegt starf í öllum félögunum en fjárhagsleg staða þeirra misjöfn.
Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs þakkaði fundarmönnum kærlega fyrir fundinn og ítrekaði hversu dýrmætt það væri fyrir félögin að hafa sjálfboðaliða að störfum sem margir hverjir leggja mikið á sig. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.

6.
Umhverfisráð - 277, frá 13.05.2016.
6.1
Garðveggur við Aðalbraut 6, Árskógsströnd.
Með innsendu erindi dags. 1. maí óskar þau Rúnar Þór Ingvarsson og Þórunn Andrésdóttir eigendur að Aðalbraut 6, Árskógssandi, eftir úrbótum á lóðarmörkum.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að ræða við bréfritara um frekari hugmyndir að úrbótum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.2
Fundargerðir 2016
Til kynningar fundargerð HNE frá 9. mars 2016.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar felur sviðsstjóra að kalla eftir nánari upplýsingum um í hvaða farvegi úrbætur á heitloftsþurrkun sjávarafurða á Dalvík eru í. Að öðru leyti gerir ráðið ekki athugasemdir við framlagða fundargerð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.3
Ósk um skráningu lögheimilis
Með innsendu erindi dags. 27. apríl 2016 óska þau Sigurður Hafsteinn Pálsson og Svanfríður Jónsdóttir eftir afstöðu umhverfisráðs til breytinga á deiliskipulagi frístundabyggðarinnar að Hamri.
Erindið lagt fram til kynningar, en þar sem ekki liggur fyrir álit lögmanns sveitarfélagsins er afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.4
Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670. mál.
Til umsagnar 670. mál frá nefndasviði Alþingis.
Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670. mál.
Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar telur ekki þörf á að sveitarfélagið sendi inn umsögn vegna ofnagreinds frumvarps til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum

6.5
Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020, Atvinnu- og íbúasvæði Árskógssandi, Dalvíkurbyggð.
Til kynningar skipulagslýsing dags. 11. maí 2016 vegna aðalskipulagsbreytingar og deiliskipulags fyrir Atvinnu- og íbúasvæði Árskógssandi, Dalvíkurbyggð.
Fyrirhugað er m.a. að stækka iðnaðar- , viðskipta- og þjónustusvæði.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um hana hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Fyrirhugað er m.a. að stækka iðnaðar- , viðskipta- og þjónustusvæði.
Sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs er falið að leita umsagnar um hana hjá umsagnaraðilum og Skipulagsstofnun og að kynna hana almenningi í samræmi við 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.6
Breytingar á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 - Hafnarsvæði Dalvík
Lögð fram tillaga að breytingum á aðalskipulagi hafnarsvæðis á Dalvík ásamt umhverfisskýrslu. Á breytingarblaðinu er einnig gert ráð fyrir vegtengingu á milli Böggvisbrautar og Upsa yfir Brimnesá. Einnig lagðir fram minnispunktar frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar skal auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum
6.7
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða ásamt umhverfisskýrslu og minnispunktum frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með 4 atkvæðum,Helga Íris Ingólfsdóttir situr hjá.
Helga Íris óskar eftir að eftirfarandi verði bókað:
1. Skipulagsuppdráttur er í mkv. 1:10.000. Æskilegt væri að helstu framkvæmdarsvæði væru sýnd á nákvæmari uppdráttum svo allir skilmálar skili sér með skýrum hætti.
2. Mörkun skipulagssvæðisins tel ég að nái of langt til suðurs. Skipuleggja ætti byggð við Sandskeið með þeirri byggð sem þar er sunnan við.
3. Ekki eru færð nægilega sterk rök fyrir landfyllingu norðan við ferjubryggju ( 1.3). Æskilegt væri að strandlínan fengi að halda sér, en að gert yrði ráð fyrir aðgengi almennings.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.

8.
Breytingar á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 - Hafnarsvæði Dalvík.
Á 277. fundi umhverfisráðs þann 13. maí 2016 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að breytingum á aðalskipulagi hafnarsvæðis á Dalvík ásamt umhverfisskýrslu. Á breytingarblaðinu er einnig gert ráð fyrir vegtengingu á milli Böggvisbrautar og Upsa yfir Brimnesá. Einnig lagðir fram minnispunktar frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016 Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar skv. 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar skal auglýsa tillöguna skv. 31. gr. sömu laga. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum." Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að auglýsa ofangreinda tillögu að breytingum á aðalskipulagi hafnarsvæði á Dalvík skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
9.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða
Á 277. fundi umhverfisráðs þann 13. maí 2016 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða ásamt umhverfisskýrslu og minnispunktum frá opnum íbúafundi sem haldin var 10.05.2016. Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samþykkt með 4 atkvæðum,Helga Íris Ingólfsdóttir situr hjá.Helga Íris óskar eftir að eftirfarandi verði bókað: 1. Skipulagsuppdráttur er í mkv. 1:10.000. Æskilegt væri að helstu framkvæmdarsvæði væru sýnd á nákvæmari uppdráttum svo allir skilmálar skili sér með skýrum hætti. 2. Mörkun skipulagssvæðisins tel ég að nái of langt til suðurs. Skipuleggja ætti byggð við Sandskeið með þeirri byggð sem þar er sunnan við. 3. Ekki eru færð nægilega sterk rök fyrir landfyllingu norðan við ferjubryggju ( 1.3). Æskilegt væri að strandlínan fengi að halda sér, en að gert yrði ráð fyrir aðgengi almennings. Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum."Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að ofangreind tillaga að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða verði auglýst skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
10.
Samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð. Síðari umræða.
Á 280. fundi sveitarstjórnar þann 4. maí 2016 var eftirfarandi bókað:"Á 47. fundi veitu- og hafnaráðs þann 27. apríl 2016 var eftirfarandi bókað: "Á síðasta fundi ráðsins var eftirfarandi fært til bókar. "Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að senda endurskoðuð drög til lögfræðings Dalvíkurbyggðar til yfirferðar." Nú hefur Ásgeir Örn Blandon Jóhannsson, lögfræðingur Dalvíkurbyggðar, yfirfarið drög að Samþykktum um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð. Athugasemdir hans snéru einungis að minniháttar orðalagsbreytingum. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að senda Samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð til sveitarstjórnar til endanlegrar samþykktar. " Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa tillögu að Samþykktum um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð til síðari umræðu í sveitarstjórn. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að Samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð.
11.
Tillaga vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016; kjörskrá, kjördeildir og kjörstaður.
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga:Tillaga vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016.a)Umboð til byggðarráðs Dalvíkurbyggðar til að staðfesta kjörskrá vegna forsetakosninga sem fram fara þann 25. júni 2016 og fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir.Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarumboð til að ganga frá kjörskrá vegna forsetakosninga sem fram fara þann 25. júní 2016. Jafnframt veitir sveitarstjórn byggðarráði fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir sem kunna að berast vegna framlagðrar kjörskrár, sbr. ákvæði 27. gr. VI. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24 frá 16. maí 2000 með síðari breytingum.b)Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna forsetakosninga laugardaginn 25. júní 2016, sbr. 10. gr. III. kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24 frá 16. maí 2000 og sbr. 68. gr. XIII. kafla laga um kosningar til Alþingis með síðari breytingumSbr. 10. gr og 68. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24 frá 16. maí 2000 með síðari breytingum samþykkir sveitarstjórn eina kjördeild í Dalvíkurbyggð og verður hún í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar. Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu eins og hún liggur fyrir.
12.
Sveitarstjórn - 280, frá 04.05.2016.
Lagt fram til kynningar.