Fara í efni

Sveitarstjórn

280. fundur
4. maí 2016 kl. 10:00 - 11:03
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Lilja Björk Ólafsdóttir Varamaður
Haukur Gunnarsson Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
2.
Umhverfisráð - 276, frá 29.04.2016.
Málsnúmer 1604013F
3.
Frá 276. fundi umhverfisráðs; Breytingar á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 - Hafnarsvæði Dalvík.
Málsnúmer 201602026
Á 276. fundi umhverfisráðs þann 29. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram drög að breytingum á aðalskipulagi hafnarsvæðis á Dalvík ásamt umhverfisskýrslu. Á breytingarblaðinu er einnig gert ráð fyrir vegtengingu á milli Böggvisbrautar og Upsa yfir Brimnesá. Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að kynna íbúum sveitarfélagsins, hagsmunaaðilum og aðliggjandi sveitarfélögum drögin skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið bendir á að í umhverfisskýrslu bls. 3 þarf að lagfæra í kaflanum menningarminjar að setninginn um flutning á verbúð verði felld út. Einnig óskar ráðið eftir því að opið svæði milli Hafnarbrautar 21 og 25 verði einnig inni á Aðalskipulagsuppdrætti. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum. "Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum eftirfarandi afgreiðslu umhverfisráðs: "Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að kynna íbúum sveitarfélagsins, hagsmunaaðilum og aðliggjandi sveitarfélögum drögin skv. 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."
4.
Frá 276. fundi umhverfisráðs; Deiliskipulag Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða
Málsnúmer 201401168
Á 276. fundi umhverfisráðs þann 29. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:"Lögð fram drög að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar og aðliggjandi svæða ásamt umhverfisskýrslu. Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að kynna íbúum sveitarfélagsins og hagsmunaaðilum drögin skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ráðið óskar eftir að á bls. 9 kafla 3.6.2 skipulagslýsing verði felld út heimild til að flytja verbúð. Samþykkt með 4 atkvæðum, Helga Íris Ingólfsdóttir situr hjá. Helga Íris óskar eftir að eftirfarandi verði bókað: 1. Skipulagsuppdráttur er í mkv. 1:10.000. Æskilegt væri að helstu framkvæmdarsvæði væru sýnd á nákvæmari uppdráttum svo allir skilmálar skili sér með skýrum hætti. 2. Mörkun skipulagssvæðisins tel ég að nái of langt til suðurs. Skipuleggja ætti byggð við Sandskeið með þeirri byggð sem þar er. 3. Ekki eru færð nægilega sterk rök fyrir landfyllingu norðan við ferjubryggju ( 1.3). Æskilegt væri að strandlínan fengi að halda sér, en að gert yrði ráð fyrir aðgengi almennings. 4. Gaman hefði verið að sjá hverfisvernd setta á verbúðirnar tvær sem eru eitt af helstu kennileitum Dalvíkur, bæði frá sjó og landi." Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum eftirfarandi tillögu umhverfisráðs: Umhverfisráð felur sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að kynna íbúum sveitarfélagsins og hagsmunaaðilum drögin skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 47, frá 27.04.2016.
Málsnúmer 1604011F
6.
Frá 47. fundi veitu- og hafnaráðs; Reglugerð um Fráveitu Dalvíkurbyggðar, endurskoðun 2014. Fyrri umræða.
Málsnúmer 201410237
Á 47. fundi veitu- og hafnaráðs þann 27. apríl 2016 var eftirfarandi bókað:"Á síðasta fundi ráðsins var eftirfarandi fært til bókar. "Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að senda endurskoðuð drög til lögfræðings Dalvíkurbyggðar til yfirferðar." Nú hefur Ásgeir Örn Blandon Jóhannsson, lögfræðingur Dalvíkurbyggðar, yfirfarið drög að Samþykktum um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð. Athugasemdir hans snéru einungis að minniháttar orðalagsbreytingum. Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að senda Samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð til sveitarstjórnar til endanlegrar samþykktar. "Enginn tók til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa tillögu að Samþykktum um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð til síðari umræðu í sveitarstjórn.
7.
Fræðsluráð - 204, frá 26.04.2016.
Málsnúmer 1604010F
8.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 774, frá 28.04.2016.
Málsnúmer 1604012F
9.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 77, frá 20.04.2016.
Málsnúmer 1604009F
10.
Frá stjórn Dalbæjar; fundargerð frá 23. mars 2016.
Málsnúmer 201602099
Til máls tók:Guðmundur St. Jónsson, sem tók til máls um 5. lið í fundargerðinni og leggur fram eftirfarandi bókun:"Fulltrúar J listans lýsa furðu sinni á því að í fundargerð stjórnar Dalbæjar frá 21.03.2016, kemur fram að fjármunir sem sveitarfélagið hafði lagt til viðhalds á húsnæðinu hafi verið notaðir í rekstur Dalbæjar. Rekstur Dalbæjar er samkvæmt lögum verkefni ríkisins en ekki sveitarfélagsins. Fulltrúar J listans vara við því að stjórnendur Dalbæjar seilist án heimilda í það fé sem sveitarfélagið hefur ætlað til viðhalds á húsnæði Dalbæjar. Hallarekstur Dalbæjar er á ábyrgð stjórnenda og honum verður ekki varpað á sveitarfélagið. Fulltrúar J listans kalla eftir því að það komi ótvírætt fram að sveitarfélagið sé ekki að taka að sér skyldur ríkisins og að þeir fjármunir sem ætlaðir voru til viðhalds á húsnæðinu verði nýttir til þess.Einnig er kallað eftir upplýsingum um það hvort stjórn Dalbæjar hafi verið upplýst um þessa ráðstöfun fjármuna."Einnig tóku til máls:Bjarni Th. BjarnasonFleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
11.
Sveitarstjórn - 279
Málsnúmer 1604008F
Lagt fram til kynningar.