Sveitarstjórn
279. fundur
19. apríl 2016
kl.
16:15
-
00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Kristján Guðmundsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Bjarni Jóhann Valdimarsson
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 771, frá 17.03.2016.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 772, frá 31.03.2016.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 773, frá 14.04.2016.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 18, frá 06.04.2016.
5.
Félagsmálaráð - 198, frá 12.04.2016.
6.
Fræðsluráð - 203, frá 13.04.2016.
7.
Landbúnaðarráð - 104, frá 14.04.2016.
8.
Umhverfisráð - 275, frá 15.04.2016.
9.
Ungmennaráð - 10, frá 07.04.2016.
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 46, frá 06.04.2016.
11.
Frá Kristni Inga Valssyni; varðar ósk um tímabundna lausn frá störfum - breytingar.
Á 275. fundi sveitarstjórnar þann 15. desember 2015 var eftirfarandi bókað:"Tekið fyrir erindi frá Kristni Inga Valssyni, rafpóstur dagsettur þann 25. nóvember 2015, þar sem hann óskar eftir tímabundnu leyfi frá störfum sem formaður í íþrótta- og æskulýðsráði á tímabilinu febrúar - júlí 2016. Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Kristni Inga tímabundið leyfi frá störfum sem formaður íþrótta- og æskulýðsráðs frá og með 1. febrúar 2016 til og með 31. júlí 2016." Tekið fyrir erindi frá Kristni Inga Valssyni, dagsett þann 22. mars 2016, þar sem fram kemur að það er orðið ljóst að ekkert verður að fyrirhugaðri vinnutörn erlendis og óskar hann því eftir að taka aftur við formennsku i íþrótta- og æskulýðsráði.
Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreint erindi Kristins Inga Valssonar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreint erindi Kristins Inga Valssonar.
12.
Frá Valdemar Þór Viðarssyni; Beiðni um leyfi frá störfum vegna fæðingarorlofs.
Til máls tóku:Valdemar Þór Viðarsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:53.Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.Tekið fyrir erindi frá Valdemar Þór Viðarssyni, dagsett þann 10. apríl 2016, þar sem Valdemar óskar eftir leyfi frá störfum í ráðum Dalvíkurbyggðar vegna fæðingarorlofs sem verður dreift á lengri tíma samhliða vinnu í skertu starfshlutfalli.Óskað er eftir leyfi frá og með 20.04.2016 og til og með 30.06.2016 hvað varðar eftirtalin ráð:Aðalmaður í menningarráði.Aðalmaður í fræðsluráði.Varamaður í byggðaráði.Varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði ( að teknu tilliti til afgreiðslu á erindi frá Kristni Inga Valssyni). Fram kemur einnig að þar sem fundir sveitarstjórnar eru seinnipart dags þá mun undirritaður sitja þá fundi í fæðingarorlofi og starfa sem aðalmaður í sveitarstjórn samhliða fæðingarorlofi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum að veita Valdemar Þór Viðarsson tímabundna lausn frá störfum í ráðum vegna fæðingarorlofs, Valdemar Þór tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
13.
Kosningar skv. 46. gr. Samþykkta Dalvíkurbyggðar, 19.04.2016.
Valdemar Þór Viðarsson kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 16:54.a) Vegna erindis frá Kristni Inga Valssyni.Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Formaður íþrótta-og æskulýðsráðs: Kristinn Ingi Valsson (D).Varaformaður íþrótta- og æskulýðsráðs: Jón Ingi Sveinsson (B).Fleiri tóku ekki til máls.b) Vegna erindis frá Valdemari Viðarssyni.Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Formaður menningaráðs: Guðrún Anna Óskarsdóttir (D).Varamaður í stað Guðrúnar Önnu Óskarsdóttur: Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson (D).Aðalmaður í fræðsluráði: Kristinn Ingi Valsson (D).Varamaður í fræðsluráði í stað Kristins Inga: Freyr Antonsson (D).Varamaður í byggðaráði: Lilja Björk Ólafsdóttir (D).Fleiri tóku ekki til máls.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Kristinn Ingi og Jón Ingi réttkjörnir.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Guðrún Anna, Gunnþór Eyfjörð, Kristinn Ingi, Freyr og Lilja Björk réttkjörin.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Guðrún Anna, Gunnþór Eyfjörð, Kristinn Ingi, Freyr og Lilja Björk réttkjörin.
14.
Sveitarstjórn - 278, frá 15.03.2016.
Til kynningar.
Lagt fram.