Fara í efni

Sveitarstjórn

277. fundur
16. febrúar 2016 kl. 16:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Kristján Hjartarson Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Guðmundur St. Jónsson boðaði forföll og varamaður hans, Kristján Hjartarson, mætti á fundinn í hans stað.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 765, frá 21.01.2016.
Málsnúmer 1601008F
1.2 Frá umhverfis- og tæknisviði; Endurbætur á rými nr. 3 á 2. hæð.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 19. janúar 2016, þar sem óskað er eftir viðauka vegna endurbóta á rými nr. 3 á annarri hæð Ráðhúss Dalvíkur. Um er að ræða rými sem Sýslumaður á Norðurlandi eystra hefur ákveðið að taka á leigu. Þær endurbætur sem þarf að gera eru áætlaðar að kosti kr. 1.500.00 og óskað er eftir að mæta þeim kostnaði með flutningi fjármagns annars vegar af 31350-4610 (Ráðhús sameign) og kr. 750.000 og hins vegar 31800-4610 (Sameiginlegur kostnaður eignasjóðs) kr. 750.000 á 31300-4610 (Ráðhús 2. hæð).

Til upplýsingar fylgdu einnig drög að leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Sýslumannsins á Norðurlandi eystra.

Byggðaráð fór í vettvangsskoðun í húsnæðið á gangi á 2. hæð.

Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs kom inn á fundinn kl. 14:10 undir þessum lið. Til umræðu ofangreint.

Börkur Þór vék af fundi kl. 14:23.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni um viðauka allt að kr. 700.000 á deild 31300 og á móti er skorið niður viðhald af deildum 31350 og 31800, lykill 4610.
1.4 Málefni Húsabakka.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessu máli vegna vanhæfis kl. 14:43.
Varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn.

Á 764. fundi byggðaráðs þann 14. janúar 2016 var eftirfarandi bókað:
"Á 763. fundi byggðaráðs þann 7. janúar 2016 var meðal annars eftirfarandi bókað: "Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við stjórn Húsabakka ehf. á grundvelli draga að samkomulagi um lok leigusamningsins og á grundvelli greinargerðar sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og veitu- og hafnasviðs. Stefnt skuli að því að málið verði tekið fyrir að nýju á næsta fundi ráðsins." Sveitarstjóri gerði grein fyrir símafundi með framkvæmdastjóra Húsabakka ehf. þann 12. janúar s.l. en þann fund sátu einnig sviðsstjórar umhverfis- og tæknisviðs og veitu- og hafnasviðs, en framkvæmdastjóri og stjórn Húsabakka ehf. hafa fengið til sín drög að samkomulagi um lok á leigusamningi sem og yfirferð sviðsstjóranna á þeim viðhaldsframkvæmdum sem gerðar hafa verið á leigutímanum, byggt á gögnum frá Húsabakka ehf. annars vegar og hins vegar úr bókhaldi Dalvíkurbyggðar, málakerfi sveitarfélagsins og upplýsingum frá starfsmönnum. Sveitarstjóri gerði einnig grein fyrir samskiptum við forsvarsmenn Húsabakka ehf. eftir símafundinn sem og að gert er ráð fyrir fundi í næstu viku með forsvarsmönnum Húsabakka ehf. til að ræða ofangreint með því markmiði að ná samkomulagi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sviðsstjórar veitu- og hafnasviðs og umhverfis- og tæknisviðs og Guðmundur St. Jónsson sitji ofangreindan fund ásamt sveitarstjóra. "

Sveitarstjóri og Guðmundur St. Jónsson gerðu grein fyrir fundi með forsvarsmönnum Húsabakka ehf. 20. janúar s.l. um ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að koma með tillögu að tilboði til Húsabakka ehf. í samræmi við umræður á fundinum og í samráði við lögmann sveitarfélagsins.
1.5 Heimsóknir byggðaráðs í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar; a) Krílakot og b) Kátakot, kl. 14:50.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju undir þessu máli kl. 15:05.

Byggðaráð fór ásamt sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs í heimsókn í leikskólann Krílakot og leikskólann Kátakot. Einnig var nýr sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs með í för.

Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 766, frá 28.01.2016.
Málsnúmer 1601012F
2.2 Málefni Húsabakka
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 09:27 vegna vanhæfis og varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn.

Sveitarstjóri gerði grein fyrir tillögu til Húsabakka ehf., Samkomulag um lok leigusamnings milli Dalvíkurbyggðar og Húsabakka ehf. um húsnæði að Húsabakka, Svarfaðardal.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
2.3 Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra;Umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 09:52 og tók við fundarstjórn að nýju.

Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, rafbréf dagsett þann 21. janúar 2016, þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um umsókn Grzegorz Tomasz Maniakowski, kt. 091162-2029, Bárugötu 3, 620 Dalvík, sem sækir um sem forsvarsmaður fyrir Gregdalvík ehf. kt. 691111-0910, endurnýjun á rekstrarleyfi til sölu veitingu veitinga á Gregors PUB, Goðabraut 3, 620 Dalvík. Um er að ræða flokk II.
Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
2.4 Frá allsherjar- og mennamálanefnd Alþingis; Fundarboð - fimmtudaginn 28. janúar kl. 9:40
Sveitarstjóri vék af fundi kl. 09:57 til annarra starfa.

Tekinn fyrir rafpóstur frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dagsettur þann 21. janúar 2016, þar sem fram kemur að formaður nefndarinnar óskar eftir að Dalvíkurbyggð komi á fund nefndarinnar fimmudaginn 28. janúar kl. 9:40.

Fundarefnið er:
Mál. 16, Styrking leikskóla og fæðingarorlofs http://www.althingi.is/altext/145/s/0016.html

Sveitarstjóri upplýsti að Dalvíkurbyggð tekur þátt í fundinum í gegnum símafund. Fulltrúar Dalvíkurbyggðar eru sveitarstjóri og sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.

Lagt fram til kynningar.
2.6 Frá fjármála- og stjórnsýslusviði.Leiðrétting launa skv. nýjum kjarasamningum 2015
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu upplýsingar frá fjármála- og stjórnsýlusviði hvað varðar leiðréttingu launa vegna nýrra kjarasamninga. Um er að ræða leiðréttingu að upphæð kr. 22.462.605 vegna starfsmanna sem eru í Kili, Einingu-Iðju, Félagi leikskólakennara og Félagi leikskólastjórnenda.

Áður var búið að leiðrétta laun árið 2015 vegna nýrra kjarasamninga sem hér segir:
Starfsmat, starfsmenn í Kili og Einingu-Iðju, kr. 10.510.000. (Viðauki)
Félags tónlistarkennara og Félag skólastjóra í grunnskóla, kr. 8.690.000. (Viðauki).

Alls kr. 41.662.605.

Ósamið er við eftirtalin félög:
BHM félög
Landssamband sjúkra- og slökkviliðsmanna
Tæknifræðingafélag Íslands.
Félag tónlistarkennara.
Félag grunnskólakennara er með lausa samninga 1.6.2016.

Lagt fram til kynningar
2.7 Frá fjármála- og stjórnsýslusviði; Stöðumat janúar - desember 2015.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi til upplýsingar bókfærð staða málaflokka og deilda þann 26. janúar 2016 í samburði við fjárhagsáætlun, janúar - desember 2015. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 767, frá 04.02.2016
Málsnúmer 1602003F
3.1 Frá 75. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 2.2.2016: Endurnýjun líkamsræktartækja
Undir þessum lið kom á fundinn Hlynur Sigursveinsson, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:00.

Á 75. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 2.2.2016 var eftirfarandi bókað:

"Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram tilboð frá Erninum um endurnýjun líkamsræktartækja. Tilboðið hljóðar upp á að fá búnað á endurnýjunaráætlun árið 2016 og 2017 afhentan strax en greiða sem nemur 3.100.000.- í ár, sem er í fjárhagsáætlun og 3.000.000.- í byrjun árs 2017.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir því við sveitarstjórn að íþrótta- og æskulýðsfulltrúa verði veitt heimild til kaupana á þessu ári og þessar þrjár milljónir verði settar á áætlun og greiddar árið 2017."

Á starfs- og fjárhagsáætlun 2016 er gert ráð fyrir kr. 4.000.000 á lið 06500-2810 vegna endurnýjunar á líkamsræktartækjum og búnaði.

Til umræðu ofangreint.

Hlynur vék af fundi kl. 13:17.
Afgreiðslu frestað.
3.2 frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 13. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 29. janúar 2016 þar sem óskað er umsagnar frumvarp til laga um verslun með áfengi og tóbak o.fl. (smásala áfengis), 13. mál.

Óskað er umsagnar eigi síðar en 11. febrúar n.k.
Lagt fram til kynningar.
3.3 Frá forsætisráðuneytinu; Upplýsingar um tekjur af nýtingu lands og landsréttinda innan þjóðlendna.
Tekinn fyrir rafpóstur dagsettur þann 26. janúar 2016 frá forsætisráðuneytinu þar sem óskað er eftir upplýsingum frá sveitarfélögum um þær tekjur sem þau hafa haft á árinu 2015 fyrir nýtingu á landi og landsréttingum innan þjóðlenda. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um ráðstöfun tekna af nýtingu lands og landsréttinga innan þjóðlenda, þ.e. í hvaða verkefni voru tekjurnar notaðar í. Óskað er svara eigi síðar en 26. febrúar n.k.

Skv. 5. mgr. 3. gr. laga nr. 58/1998 um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta skal ráðherra árlega gefa Alþingi skýrslu um ráðstöfun landa og landsréttinda innan þjóðlendna og tekna af gjöldum fyrir slík réttindi.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs til afgreiðslu.
3.4 Málefni Húsabakka
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 13:33 vegna vanhæfis og varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn.

Á 766. fundi byggðaráðs þann 28. janúar 2016 var eftirfarandi bókað:
"Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson vék af fundi undir þessum lið kl. 09:27 vegna vanhæfis og varaformaður, Kristján Guðmundsson, tók við fundarstjórn. Sveitarstjóri gerði grein fyrir tillögu til Húsabakka ehf., Samkomulag um lok leigusamnings milli Dalvíkurbyggðar og Húsabakka ehf. um húsnæði að Húsabakka, Svarfaðardal. Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar."

Sveitarstjóri kynnti drög að samkomulagi um lok leigusamnings milli Dalvíkurbyggðar og Húsabakka ehf., um húsnæði að Húsabakka.
a. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreint samkomulag eins og það liggur fyrir.
b. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að hefja undirbúning á sölu húseignanna Húsabakka.
Niðurstaða Til máls tók Kristján Hjartarson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.
Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.

Kristján og Gunnþór viku af fundi við umfjöllumn og afgreiðslu á þessum lið kl. 16:24.

4. liður a); Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs, Kristján Hjartarson og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
4. liður b); Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs, Kristján Hjartarson og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson taka ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
3.5 Sala á Grundargötu 1, Sigtún.
Formaður byggðaráðs kom inn á fundinn að nýju kl. 13:51 undir þessum lið og tók við fundarstjórn.

Á 763. fundi byggðaráðs þann 7. janúar 2016 var meðal annars eftirfarandi bókað:
"a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum drög að samkomulagi um riftun leigusamnings á milli Dalvíkurbyggðar og Gísla, Eiríks og Helga ehf. um húsnæðið við Grundargötu 1, eins og það liggur fyrir.
b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillögu að auglýsingu eins og hún liggur fyrir en án allra kvaða, ásamt því að fela fasteignasölunni Hvammi að auglýsa eignina til sölu. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að tilboðsfrestur verði til og með 31. janúar 2016. "

Fyrir liggur að eitt kauptilboð barst í Grundargötu 1,frá Gísla, Eiríki og Helga ehf., að upphæð kr. 12.200.000.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreint kauptilboð að upphæð kr. 12.200.000 og samþykkir sölu á eigninni við Grundargötu 1, Sigtún. Niðurstaða Kristján Hjartarson og Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson komu inn á fundinn að nýju kl. 16:26.

Til máls tóku:
Valdemar Þór Viðarsson.
Kristján Hjartarson.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu byggðaráðs með 6 atkvæðum, Valdemar Þór Viðarsson greiðir atkvæði á móti.
3.6 Frá Eyþingi; fundargerð stjórnar frá 13.01.2016
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Eyþings frá 13.01.2016. Lagt fram til kynningar.
3.7 Heimsóknir byggðaráðs í stofnanir og fyrirtæki Dalvíkurbyggðar
a) Heimsókn á Skrifstofur Dalvíkurbyggðar í Ráðhúsi Dalvíkur.

Byggðaráð fór í heimsókn á Skrifstofur Dalvíkurbyggðar þar sem ráðið kynnti sér starfsemina og húsakynnin.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 16, frá 03.02.2016
Málsnúmer 1602001F
4.1 Heimsóknir í fyrirtæki.
Atvinnumála- og kynningarráð hefur það að stefnu sinni að heimsækja fyrirtæki í sveitarfélaginu eða að fá hópa fyrirtækja í heimsókn til sín.

Að þessu sinni fór ráðið í heimsókn í Bruggsmiðjuna.
Atvinnumála- og kynningarráð þakkar móttökurnar.
Lagt fram til kynningar.
4.2 Atvinnu- og auðlindastefna
Emil Björnsson, Símey, kom inn á fundinn kl. 14:20

Haldið áfram að vinna að gerð atvinnu- og auðlindastefnu Dalvíkurbyggðar. Á þessum fundi var sérstaklega farið yfir með hvaða hætti aðkoma Dalvíkurbyggðar gæti orðið að atvinnulífinu ásamt því að fara yfir námskeiðs- og fræðslumöguleika fyrir starfsmenn fyrirtækja í sveitarfélaginu.

Upplýsingafulltrúi lagði fyrir ráðið drög að vinnureglum um aðkomu Dalvíkurbyggðar að atvinnulífinu.

Emil Björnsson yfirgefur fundinn kl. 15:05.
Ráðið þakkar Emil fyrir góða kynningu.
Lagt fram til kynningar.
4.3 Ímynd Dalvíkurbyggðar, skv. starfsáætlun 2014
Verkefnið um Ímynd Dalvíkurbyggðar hefur verið í gangi nú um nokkurt skeið en unnið er að verkefninu í þremur hlutum: Dalvíkurbyggð sem vinnustaður, Dalvíkurbyggð sem þjónustuveitandi og Dalvíkurbyggð sem samfélag. Vinna við fyrstu tvo hlutana er langt komið eða lokið. Búið er að skipa vinnuhóp fyrir síðasta hluta verkefnisins, Dalvíkurbyggð sem samfélag og hefur hann fundað einu sinni. Á þeim fundi var ákveðið að nota rýnihópa til að kanna betur ímynd íbúa Dalvíkurbyggðar af sveitarfélaginu. Upplýsingafulltrúi leggur fyrir ráðið drög að skiptingu í rýnihópa.



Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir að Rúna Kristín Sigurðardóttir taki sæti Lilju Bjarkar Ólafsdóttir í vinnuhóp en hún hefur hætt störfum fyrir ráðið.

4.4 Fyrirtækjaþing 2015
Á 14. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var bókað:
"Þann 5. nóvember síðastliðinn fór fram fyrirtækjaþing atvinnumála- og kynningarráðs undir yfirskriftinni "samvinna og samstarf fyrirtækja". Hannes Ottósson, frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sá um framkvæmd þingsins. Auk þess að fá almenna fræðslu um samvinnu og samstarf fyrirtækja unnu þátttakendur að tillögum að samstarfsverkefnum.

Til dæmis komu fram hugmyndir að Dekurdögum í Dalvíkurbyggð, orkuklasa, Dalvíkurbyggð sem kennsluþorp, samstarf í kringum fólkvanginn og fleira í Böggvisstaðafjalli og klasinn Fjöllin-ströndin-víkin-dalurinn.

Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að boða til fyrsta fundar í hverju verkefni fyrir sig. Upplýsingafulltrúa falið að fylgja fundunum eftir. "

Farið nánar yfir hvaða klasa á að boða til fundar.


Til umræðu.
4.5 Upplýsingar til nýrra íbúa
Farið yfir möguleika á að koma upplýsingum til nýrra íbúa í sveitarfélaginu. Upplýsingafulltrúi upplýsir ráðið um hvernig staðið er að þessu í dag. Frestað. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
5.
Félagsmálaráð - 196, frá 09.02.2016
Málsnúmer 1602004F
5.1 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 20160242 Bókað í trúnaðarmálabók
5.2 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201602045 Bókað í trúnaðarmálabók
5.3 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201602044 Bókað í trúnaðarmálabók
5.4 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201602046 Bókað í trúnaðarmálabók
5.5 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201602046 Bókað í trúnaðarmálabók
5.6 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
5.7 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
5.8 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
5.9 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
5.10 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201602063 Bókað í trúnaðarmál
5.11 Hækkun á framfærslukvarða 2016
Félagsmálastjóri lagði fram tillögu að hækkun á framfærslukvarða fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2016. Félagsmálaráð samþykkir hækkun á framfærslukvarða um 3% og vísar erindinu til sveitastjórnar til afgreiðslu.
5.12 Mannréttindastefnan
Félagsmálastjóri lagði fram drög að endurnýjaðri Mannréttindastefnu. Frestað til næsta fundar
5.13 Breyting á lögræðislögum
Félagsmálastjóri lagði fram rafbréf frá Innanríkisráðuneytinu dags. 23.nóvember 2015. Gerðar voru breytingar á lögræðislögum nr 78/1997 sem tóku gildi þann 1.janúar 2016. Lagt fram til kynningar
5.14 Félagsþjónustuskýrsla 2015
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Hagstofu Íslands dags. 03.02.2016 þar sem óskað er eftir upplýsingum um fjárhagsaðstoð sveitarfélagsins, heimilisþjónustu og dagmæður. Hagstofa Íslands sér um söfnun og vinnslu upplýsinga um félagsþjónustur sveitarfélaga með vísun til 1. mgr.5.gr.og 1. mgr.7.gr. laga um Hagstofu Íslands og opinberra hagskýrslugerðar nr. 163/2007. Upplýsingar eru notaðar til að birta tölfræði um félagsþjónustu sveitarfélaganna í landinu. Félagsmálaráð felur starfsmönnum félagsþjónustu að klára skýrslurnar.
5.15 Atvinnumál fatlaðs fólks
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 26.01.2016 til upplýsinga um stöðuna á yfirfærslu atvinnumála fatlaðs fólks til ríkisins. Vinnumálastofnun vinnur nú að því að taka við atvinnumálum fatlaðs fólks frá sveitarfélögum samkvæmt samkomulagi þar um. Eitt af fyrstu skrefunum er að eiga samtal og samráð við fulltrúa þjónustusvæða málefna fatlaðs fólks og félagsmálastjóra í landinu um verkefnin sem Vinnumálastofnun er að taka við. Samkomulagið felur m.a. í sér að Vinnumálastofnun og sveitarfélög muni deila með sér ábyrgð á verkefninu þar sem sveitarfélögin reka áfram vinnu- og hæfingarstöðvar. Fyrirhugað samtal félagsþjónustu og Vinnumálastofnunar er í næstu viku. Frestað til næsta fundar þar sem frekari upplýsingar liggja þá fyrir eftir fund félagsþjónustu og Vinnumálastofnunar.
5.16 Drög að reglugerðum um kröfur til búsetuþjónustu og kröfur til húsnæðis í málaflokki fatlaðs fólks
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 22.01.2016 um drög að tveimur reglugerðum um kröfur til búsetuþjónustu og kröfur um húsnæðis í málaflokki fatlaðs fólks. Frestað til næsta fundar
5.17 Úrskurðarnefnd velferðarmála
Félagsmálastjóri lagði fram erindi frá Sambandi oslenskra sveitarfélaga dags. 21.01.2016 um breytingu á úrskurðar- og kærunefnd sem starfað hafa á málefnasviði velferðarráðuneytisins og voru sameinaðar í eina nefnd sem ber heitið Úrskurðarnefnd velferðarmála. Þær stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru innan félagsþjónustu sveitarfélaga, og áður voru kæranlegar til úrskurðarnenfdar félagsþjónustu og húsnæðismála, munu héðan í frá koma til kasta úrskurðarnefndar velferðarmála. Kærufrestur til nefndarinnar er þrír mánuðir frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun. Lagt fram til kynningar.
5.18 Rauntímaskráning heimaþjónustu - Curron
Félagsmálastjóri kynnti fyrir nefndarmönnum fund er starfsmenn félagsþjónustu áttu með forsvarsmönnum fyrirtækisins Curron sem býður upp á rauntímaskráningu heimaþjónustu. Lagt fram til kynningar og ákveðið að bíða með frekari kynningu/kaup á kerfinu þar til einhver reynsla er komin á kerfið hjá þeim sveitarfélögum sem hafa keypt sér aðgang.
5.19 Beiðni um afhendingu á jafnréttisáætlun ásamt framkvæmdaáætlun
Félagsmálastjóri lagði fram framkvæmdaáætlun v. jafnréttismála sem farið var yfir á fundi félagsmálaráðs í nóvember 2015 með viðbættum athugasemdum og hugmyndum frá nefndarmönnum félagsmálaráðs. Félagsmálaráð samþykkir framkvæmdaáætlunina og vísar henni til samþykktar í sveitarstjórn. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
6.
Fræðsluráð - 201, frá 10.02.2016
Málsnúmer 1602006F
6.1 Nýr sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Hlynur Sigursveinsson, nýr sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs, kynnti sig fyrir fræðsluráði. Fræðsluráð býður Hlyn velkominn til starfa.
6.2 Umsókn um launalaust leyfi
Með fundarboði fylgdi umsókn Helgu Esterar Snorradóttur, kennara við Árskógarskóla, um launalaust leyfi skólaárið 2016-2017. Einnig álit skólastjóra Árskógarskóla, Gunnþórs E. Gunnþórssonar, varðandi leyfisveitinguna. Fræðsluráð samþykkir umbeðið leyfi og óskar henni velfarnaðar á nýjum slóðum.
6.3 Skólastefna Dalvíkurbyggðar
Magnús G. Ólafsson gerði grein fyrir stöðu innleiðingar á Skólastefnu Dalvíkurbyggðar í Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar. Fræðsluráð þakkar Magnúsi fyrir upplýsingarnar og lýsir ánægju sinni með þróunina í starfi skólans.
6.4 Ytra mat á grunnskólum
Með fundarboði fylgdi svar skólastjóra Dalvíkurskóla, Gísla Bjarnasonar, við bréfi frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu dags. 12. janúar 2016. Í bréfinu var óskað eftir upplýsingum um framkvæmd þeirra umbóta sem áætlaðar voru á árinu 2015 í framhaldi af úttekt ráðuneytisins sem gerð var í september 2014. Lagt fram til kynningar.
6.5 Námsárangur
Með fundarboði fylgdu fundargerðir 14. og 15. fundar starfshóps um námsárangur í Dalvíkurskóla. Lagt fram til kynnningar. Fræðsluráð lýsir mikilli ánægju sinni með vinnu starfshópsins. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast ekki afgreiðslu.
7.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 75, frá 02.02.2016.
Málsnúmer 1601013F
7.1 Skrifstofa UMSE
íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að næsti fundur verði þriðjudaginn 1. mars kl. 16:00 og stjórn og framkvæmdarstjóra UMSE verði boðið á fundinn til að ræða um skrifstofu UMSE.
7.2 Fjárhagsáætlun 2015; Möguleg ný staðsetning á nýjum Golfvelli GHD.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti skýrslu vegna möguleika á nýjum golfvelli sem unnin var af Edwin Roald.
7.3 Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2016
Samþykkt að vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs verði þriðjudaginn 3. maí kl. 16:00 í Árskógi. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að boða fulltrúa íþróttafélagana á fund og óska eftir tillögum að umræðuefni á fundinum.
7.4 Heilsueflandi Samfélag verkefni 2015/16
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti þau verkefni sem framundan eru í tengslum við verkefnið Heilsueflandi samfélag. Niðurstaða Til máls tók:
Valdís Guðbrandsdóttir.
7.5 Endurnýjun á Gúmmíi sparkvallar
Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um sem Um­hverf­is­stofn­un hef­ur fengið frá hinum lönd­un­um á Norður­lönd­um þykja rann­sókn­ir benda til þess að ekki sé ástæða til að banna dekkjak­url. Lagt fram til upplýsinga.
7.6 Endurnýjun líkamsræktartækja
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi lagði fram tilboð frá Erninum um endurnýjun líkamsræktartækja. Tilboðið hljóðar upp á að fá búnað á endurnýjunaráætlun árið 2016 og 2017 afhentan strax en greiða sem nemur 3.100.000.- í ár, sem er í fjárhagsáætlun og 3.000.000.- í byrjun árs 2017.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir því við sveitarstjórn að íþrótta- og æskulýðsfulltrúa verði veitt heimild til kaupana á þessu ári og þessar þrjár milljónir verði settar á áætlun og greiddar árið 2017.
Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
8.
Landbúnaðarráð - 102, frá 11.02.2016.
Málsnúmer 1602005F
8.1 Refa og minkaeyðing 2016
Til umræðu fyrirkomulag minka og refaeyðingar í sveitarfélaginu. Landbúnaðarráð þakkar Steinari fyrir góða umræðu og felur sviðsstjóra að afla frekari upplýsinga frá öðrum sveitarfélögum fyrir næsta fund. Ráðið leggur til að veiðimenn verði kallaði á fund ráðsins í mars.
8.2 Fjallgirðingar 2016
Til umræðu stofnun fjallskilasjóðar á Árskógsströnd og fyrirkomulag við gjaldtöku. Landbúnaðarráði lýst vel á framlagðar hugmyndir að innheimtu vegna viðgerðar og viðhalds fjallgirðingar á Árskógsströnd.
Ráðið felur sviðsstjóra að kynna þær hugmyndir fyrir forvarsmönnum landeigenda á Árskógsströnd.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
9.
Umhverfisráð - 273, frá 12.02.2016.
Málsnúmer 1602002F
9.1 Samningur við Vegargerðina. Framkvæmd vetrarþjónustu á helmingamokstursvegum í Dalvíkurbyggð.
Til umræðu vetrarþjónusta og aðrar framkvæmdir á vegum Vegagerðarinnar í Dalvíkurbyggð 2016. Ráðið þakkar þeim Pálma og Vali fyrir greinargóða yfirferð á stöðu mála. Pálmi kom með uppfært samkomulag um helmingamokstur og vetrarþjónustu Vegagerðarinnar til undirritunar.
Sviðsstjóra falið að stilla upp samanburði á nokkrum útfærslum á heimreiðamokstri fyrir næsta fund.
9.2 Leiðir til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa.
Til umræðu tillaga slökkviliðsstjóra á leiðum til innheimtu á útlögðum kostnaði við vöktun brunaviðvörunarkerfa. Umhverfisráð þakkar Vilhelmi Antoni fyrir greinargóðar skýringar og leggur til við byggðarráð að framlögð gjaldtaka verði innleidd vegna vöktunar á brunaviðvörunarkerfum stofnana.
9.3 Framlenging ákvæðis um B-gatnagerðargjald
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 23. desember 2015, þar sem athygli sveitarfélaga er vakin á því að Alþingi hefur samþykkt frumvarp innanríkisráðherra um framlengingu B-gatnagerðargjalds.

Þessi lagabreyting skiptir eingöngu máli fyrir þau sveitarfélög sem ekki hafa enn lokið framkvæmdum við lagningu bundins slitlags á eldri götur.
Lagt fram til kynningar
9.4 Fundargerðir 2015
Til kynningar fundagerð Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra frá 15. desember og 3. janúar síðastliðnum. Umhverfisráð Dalvíkurbyggðar gerir ekki athugasemdir við framlagðar fundargerðir HNE.
9.5 Óheimilar auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis
Til kynningar eftirfylgni við áður sent erindi frá Umhverfisstofnun vegna skilta utan þéttbýlis. Ráðið felur sviðsstjóra að senda erindi á þá aðila sem eru með auglýsingarskilti með þjóðvegum innan sveitarfélagsins. Einnig óskar ráðið eftir tillögum sviðsstjóra að reglum um auglýsingarskilti í sveitarfélaginu á næsta fund.
9.6 Umsókn um byggingar og framkvæmdaleyfi fyrir hönd eigenda 0201 að Hafnarbraut 10, Dalvík.
Með innsendu erindi, dags. 5. febrúar 2016, óskar Kristján E. Hjartarsson, fyrir hönd eigenda efri hæðar að Hafnarbraut 10 Dalvík, eftir byggingar -og framkvæmdarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð samþykkir innsenda umsókn með fyrivara um samþykki meðeigenda í húsinu og einnig skal framkvæmdin grendarkynnt nærliggjandi húsum áður en formlegt leyfi er veitt. Niðurstaða
Til máls tók Kristján E. Hjartarson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar.

Kristján vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:36.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs, Kristján Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Kristján kom inn á fundinn að nýju kl. 16,37.


Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
10.
Ungmennaráð - 9, frá 27.01.2016.
Málsnúmer 1601010F
10.1 Ungt fólk og lýðræði 2016
Rætt um ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði. Ungmennaráðsmeðlimir eru áhugasamir um að fara og verður það skoðað.
10.2 Ráðstefnan Skipta raddir ungs fólks máli?
Rætt um ráðstefnuna Skipta raddir ungs fólks máli? Ungmennaráðsmeðlimir stefna á að fara á ráðstefnuna ásamt íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og forstöðumanni Víkurrastar. Stefnt er að því að fá fund með öðrum ungmennaráðum á höfuðborgarsvæðinu daginn eftir ráðstefnuna.
10.3 Verkefni Ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar
Rætt var um hvaða verkefni ungmennaráð ætti að sinna. Ákveðið hefur verið að fara á ráðstefnu þetta árið og um leið hitta og ræða við önnur ungmennaráð. Einnig kom til tals að halda ungmennaþing.
10.4 Yfirferð og endurskoðun á erindisbréfum fagráða
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
10.5 Kosningar í nefndir og ráð
Ungmennaráð samþykkir að Hera Margrét Guðmundsdóttir verði formaður og Björgvin Páll Hauksson varaformaður. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
11.
Frá 200. fundi fræðsluráðs frá 11.01.2016: Skólastarf í Árskógi
Málsnúmer 201512115
Á 200. fundi fræðsluráðs þann 11. janúar 2016 var eftirfarandi bókað:"Með fundarboði fylgdu drög að erindisbréfi starfshóps um skólastarf í Árskógi og kostnaðaráætlun vegna vinnu starfshópsins. Gunnþór kom inn á fundinn 8:25 Fræðsluráð samþykkir erindisbréfið með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum. Fræðsluráð leggur til að upplýsingar varðandi vinnuhópinn verði settar á heimasíðu sveitarfélagsins. Jafnframt óskar fræðsluráð eftir aukafjárveitingu við byggðaráð Dalvíkurbyggðar að upphæð 330.000 króna vegna áætlaðs kostnaðar við vinnu starfshópsins. Er því vísað á lið 04-24. "
Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 16:40.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum erindisbréfið eins og það liggur fyrir og eftirfarandi skipun fulltrúa í vinnuhópinn:

Arna Stefánsdóttir, fulltrúi foreldra nemenda í Árskógarskóla.
Hjördís Jóna Bóasdóttir, fulltrúi starfsmanna Árskógarskóla.
Felix Rafn Felixson, fulltrúi fræðsluráðs.

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Með vinnuhópnum starfar sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Dalvíkurbyggðar.

Fleiri tóku ekki til máls.
12.
Sveitarstjórn - 276, frá 19.01.2016. Til kynningar.
Málsnúmer 1601007F
Lagt fram til kynningar.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson kom inn á fundinn að nýju kl. 16:41.