Fara í efni

Sveitarstjórn

273. fundur
27. október 2015 kl. 16:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Heiða Hilmarsdóttir boðaði forföll og varamaður, Þórhalla Karlsdóttir, mætti í hennar stað.

1. varaforseti, Valdemar Þór Viðarsson, stjórnaði fundi.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 746, frá 17.09.2015.
Málsnúmer 1509014F
1.1 Frá 268. fundi umhverfisráðs og 37. fundi veitu- og hafnaráðs; Vegna fjárhagsáætlunargerðar 2016 - fasteignagjöld.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september s.l. var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð hefur kynnt sér málið og frestar afgreiðslu þar til niðurstaða fæst úr úttekt og samanburði á tekjum og þjónustu sveitarfélaga, sem ákveðið var af byggðarráði að láta vinna fyrir sveitarfélagið."

Á 37. fundi veitu- og hafnaráðs þann 9. september s.l. var eftirfarandi bókað:
"Erindi frá 744. fundi byggðarráðs. Umræður urðu um erindið. Lagt fram til kynningar."
Lagt fram til kynningar.
1.2 Frá 268. fundi umhverfisráðs og 53. fundi menningarráðs; Erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016.
Kristján Guðmundsson vék af fundi undir þessum lið kl. 13:05 vegna vanhæfis.

Á 53. fundi menningaráðs þann 7. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Leikfélagi Dalvíkur vegna viðhalds á kjallara ungó. Leikfélagið hefur boðist til að leggja fram vinnu við endurbæturnar og lýsir menningarráð ánægju sinni yfir því. Eins og fram kom í skýrslu og tillögum vinnuhóps um Ungó þá er mjög aðkallandi að laga kjallarann. Menningarráð telur mikilvægt að farið verði í að koma kjallara Ungó í ásættanlegt horf og óskar eftir að gert verði ráð fyrir því í fjárhagsáætlunargerð eignasjóðs 2016."

Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð leggur til að kostnaður við efniskaup vegna viðhalds á kjallara Ungó verði greiddur af eignasjóði ( 31). Sviðsstjóra falið að hafa umsjón og eftirlit með verkinu. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi kostnaðaráætlun frá AVH varðandi endurnýjunar kjallara, snyrtingar, eldhúskróks og búningsherbergja að upphæð kr. 10.544.695 með vsk.

Kristján Guðmundsson kom á fundinn f.h. Leikfélags Dalvíkur sem gestur kl. 13:22.

Til umræðu ofangreint.

Kristján vék af fundi kl. 13:35.
Lagt fram til kynningar og byggðaráð óskar eftir upplýsingum og sundurliðun frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs hvað ofangreint varðar; þ.e. annars vegar efniskostnaður og hins vegar vinnukostnaður.
1.3 Frá 268. fundi umhverfiráðs; Íbúasamtökin á Árskógssandi; beiðni um styrk.
Kritján Guðmundsson kom á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 13:40.

Á 268. fundi umhverfisráðs var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð getur ekki fallist á að veita styrk til íbúasamtaka á Árskógsströnd vegna endurbóta á leiksvæði. Ráðið leggur þó áherslu á að þetta svæði verði ofarlega á verkefnalista næsta árs, og verði þær endurbætur gerðar í samráði við íbúasamtökin. Umhverfisráð vill þó taka fram að ráðið harmar hvernig staðið var að lagfæringum síðastliðið sumar og biðst afsökunar á seinaganginum."

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi greinargerð frá umhverfisstjóra um leiksvæði í Dalvíkurbyggð, sem byggðaráð óskaði eftir.

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir kostnaðaráætlun frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra ef sett yrði upp nýtt einfalt leiksvæði á Árskógssandi sem og kostnaðaráætlun yfir önnur atriði sem þarf að koma í lag á öðrum leikvöllum, sem eru á ábyrgð sveitarfélagsins, í Dalvíkurbyggð.
1.4 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Fjárhagsáætlun 2016; Herferð Dalvíkurbyggðar gegn ágengum plöntum.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð þakka Gittu fyrir góða ábendingu og felur umhverfisstjóra að kanna möguleika á samstarfi við Hörgársveit og aðkomu Vegagerðarinnar að verkefninu. "

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð ítrekar ósk um kostnaðaráætlun með áætlun um aðgerðir gegn ágengum plöntum.
1.5 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Umhverfismál í Túnahverfi. Vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2016.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð þakkar innsent erindi íbúa. Þar sem deiliskipulag svæðisins var ekki klárað á sínu tíma og er í vinnslu er óskum um gerð leiksvæðis vísað til þeirrar vinnu. Þær lagfæringar sem bent er á verða teknar til greina við gerð fjárhagsáætlunar 2016."
Lagt fram til kynningar.
1.6 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Fjárhagsáætlun 2016;; úrbætur í vegamálum ábúenda í Svæði.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var meðal annars eftirfarandi bókað:
"Umhverfisráð þakka Heiðu og Magnúsi innsent erindi og felur sviðsstjóra að gera kostnaðaráætlun fyrir verkið. Ráðið sér þó ekki að hægt verði að verða við þessu erindi við gerð fjárhagsáætlunar 2016, en gerir sér grein fyrir að verkefnið er þarft á næstu 2-3 árum. "
Lagt fram til kynningar.
1.7 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Fjárhagsáætlun 2016; Samningur við Náttúrusetrið á Húsabakka.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Til umræðu endurnýjun á samkomulagi við Náttúrusetrið á Húsabakka.
Umhverfisráð felur sviðsstjóra að endurskoða samkomulagið við Náttúrusetrið fyrir 31. maí 2016 með framlengingu í huga. Ráðið óskar einnig eftir greinagerð frá Náttúrusetrinu um ráðstöfun styrksins 2015."
Lagt fram til kynningar.
1.8 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Gjaldskrár umhverfis og tæknisvið 2016.
Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tillaga sviðsstjóra um hækkun gjaldskráa umhverfis- og tæknisviðs samkvæmt þeim vísitölum sem viðkomandi gjaldskrár eru tengdar við samþykkt. Þær gjaldskrár sem ekki eru tengdar vísitölu hækka um 3 %. Gjaldþátttaka íbúa er áfram 80% af kostnaði við almenna sorphirðu og gjald vegna dýrahræja hækkað úr 70% í 80% af kostnaði. Þar sem hækkun þessarar gjaldskrár er umfram hækkun vísitölu vill ráðið benda á að við gerð samnings um sorphirðu í Dalvíkurbyggð 1. september 2015 var þjónusta á gámasvæði aukin til muna, móttöku sorps frá sumarhúsum bætt við, og þjónusta við dreifbýli bætt. Ráðið vísar gjaldskrám sviðsins til staðfestingar í byggðarráði."

Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð frestar frekari umfjöllun og afgreiðslu til næsta fundar.
1.9 Frá 53. fundi menningaráðs; Framtíðarnýting á Ungó og Sigtúni.
Á 53. fundi menningaráðs þann 7. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Vinnuhópur um framtíðarnýtingu Ungós hefur fundað í alls sex skipti. Hópurinn fór og skoðaði aðstæður í Ungó og Sigtúni, þar sem meðal annars var rætt við eigendur Kaffihúss Bakkabræðra. Einnig komu fulltrúar frá Leikfélagi Dalvíkur á fund hópsins í tvígang. Báðir þessir aðilar fengu tækifæri til að koma á framfæri sínum athugasemdum um núverandi stöðu mála í húsunum auk þess að leggja fram sínar hugmyndir um framtíðarnýtingu og plön. Vinnuhópurinn auglýsti eftir tillögum eða hugmyndum frá almenningi vegna framtíðarnýtingar Ungós en engar bárust. Tillaga vinnuhópsins er eftirfarandi út frá þremur liðum sem Menningarráð setti fram: 1. Skoða hver nýtingin á húsnæðinu er, hvort önnur eða meiri starfsemi verði í húsinu/húsunum. Skoðað verði möguleiki á að ná í meiri sértekjur og að rekstrarkostnaður sveitarfélagsins vegna hússins verði því minni. Nýtingin á húsinu er frá september, þegar skólinn setur upp sína nemendasýningu, og fram í apríl, en eftir áramótin nýtir leikfélagið húsnæðið fyrir sína leiksýningu. Út af standa fjórir mánuðir á ári, frá maí og fram í ágúst en samkvæmt samningi hefur Bakkabræðrasetrið afnot af sal Ungós á þessum tíma. Á grundvelli þeirra samninga sem liggja fyrir við Bakkabræðrasetrið og Leikfélag Dalvíkur sér hópurinn ekki fyrir sér að svigrúm sé fyrir aukningu sértekna sveitarfélagsins nema að tilkomi leigutekjur vegna útleigu á sal Ungós. Nefndin leggur því til að útbúin verði gjaldskrá fyrir útleigu á sal Ungós, umfram hefbundna starfsemi leikfélagsins og kveðið er á í samningum, og samningar endurskoðaðir með tilliti til þess. Vinnuhópurinn leggur til að mynduð verði þriggja manna stjórn sem myndi hússtjórn yfir Ungó og Sigtúni. Í stjórninni sitji einn aðili frá Leikfélagið Dalvíkur, einn frá Bakkabræðrasetri og einn óháður aðili tilnefndur af menningarráði. Stjórnin þjóni hlutverki samráðsvettvangs fyrir starfsemi í húsinu. Hópurinn leggur jafnframt til að menningarráð setji stjórninni starfsreglur. 2. Hvaða framkvæmdir eru nauðsynlegar til skamms tíma. Jafnframt verði gerð áætlun um hvaða viðhald er talið æskilegt til lengri tíma litið. Framkvæmdir til skamms tíma: Mjög aðkallandi er að laga kjallarann í Ungó. Aðstaðan er orðin mjög léleg og úr sér gengin auk þess sem vatnstjón varð í kjallaranum haustið 2014. Meðfylgjandi er gróf kostnaðaráætlun hvað þennan lið varðar, með fyrirvara um ófyrirséðan kostnað vegna aldurs og ástands hússins. Félagar í Leikfélagi Dalvíkur hafa boðist til að leggja til vinnuframlag eins og hægt er. Gera aðgengi frá efri hæð Ungó yfir í herbergi leikfélagsins í Sigtúni og loka aðgengi inn í herbergið úr Sigtúni. Þar með þarf leikfélagið ekki lengur að nýta inngang í Sigtún að norðan og hægt að taka það ákvæði út úr samningum. Á sama tíma hættir leikfélagið að nýta tvö minni herbergi í austurhluta hússins og getur Bakkabræðrasetrið fengið þau til afnota. Breyta þarf samningum í samræmi við þetta. Framkvæmdir til lengri tíma: Nefndin leggur til að farið verið í hönnunarvinnu á húsinu inni ásamt viðbyggingu sem kæmi norðan við húsið og myndi leysa klósettmálin og mögulega aðstöðu fyrir búningageymslu leikfélagsins. Opna gluggana innanfrá og setja hlera fyrir sem loka fyrir birtu inn í salinn. Ljóst er að fyrir liggur viðhald á Sigtúni en lagfæra þarf ytra byrgði útveggja, þak, glugga og hurðir. 3. Nefndin taki afstöðu til annarra mála, s.s. slétt eða hallandi gólf í salnum, hvort sýningarvélarnar frá dögum bíósins eiga heima þarna, geri tillögu um nýtingu skúrs á baklóð og fleira sem upp kann að koma þessu tengt. Nefndin telur að varðveita eigi sérstöðu hússins og halda áfram að hafa gólf í salnum hallandi. Salurinn nýtist samt sem áður vel til tónleikahalds, bíósýninga, funda og ráðstefnuhalds. Nefndin leggur til að skúrinn á baklóðinni verður seldur en leikfélagið hefur fest kaupa á öðru betra húsnæði fyrir smíði og geymslu leikmuna. Nefndin er sammála um að mikilvægt sé að varðveita sýningarvélarnar ásamt öðrum innanstokksmunum sem tilheyra kvikmyndasýningunum og leggur til að leitað verði álits safnstjóra Byggasafnsins Hvols um frekari varðveislu. Varðandi núverandi rými sýningarvéla er það herbergi það sem rætt hefur verið um sem aðstöðu fyrir loftræstibúnað. Sú staðsetning er talin afar hentug og jafnvel sú eina sem kemur til greina fyrir loftræstibúnaðinn. Menningarráð þakkar vinnuhópnum fyrir og samþykkir að senda skýrsluna til kynningar hjá Byggðaráði. Menningarráð mun taka skýrsluna til frekari umfjöllunar á næsta fundi ráðsins."
Lagt fram til kynningar.
1.10 Frá fjárlaganefnd Alþingis; Fundur með sveitarstjórnum haustið 2015
Tekið fyrir erindi frá fjárlaganefnd Alþings, dagsett þann 10. september 2015, þar sem fjárlaganefnd býður fulltrúum sveitarfélaga og/eða landshlutasamtaka þeirra til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps fyrir árið 2016. Fundardagar eru áætlaðar fyrir hádegi 23. september, 5., 7., og 9. október. Auk þess er gert ráð fyrir fjarfundum eftir hádegi 9. október. Mælt er með að sveitarfélögin nýti sér fjarfundarfyrirkomulagið. Hverjum fundi eru ætlaðar 15 til 20 mínútur. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri reyni að fá fund með nefndinni fyrir hádegi 23. september n.k.
1.11 Frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga; Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2015.
Tekið fyrir bréf frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, dagsett þann 8. september 2015, þar sem boðað er til ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga miðvikudaginn 23. september n.k. kl. 16:00 á Hilton Reykavík Nordica. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
1.13 Frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs; Dalvíkurhöfn, dýpkun 2015.
Undir þessum lið kom á fundinn Þorsteinn K. Björnsson, sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs kl. 15:03.

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs, bréf dagsett þann 15. september 2015, þar sem fram kemur að unnið er að dýpkun fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar. Umfang þess hefur orðið meira en ráð var fyrir gert og því óskað eftir aukafjárveitingu til verkefnsins. Óskað er eftir kr. 10.000.000 til viðbótar í verkefnið. Við yfirferð veitu- og hafnaráðs á framkvæmdum yfirstandandi árs ákvað það að óska eftir því við byggðaráð að flytja kr. 5.000.000 af lykli 4610 Viðhald fasteigna og leiguhúsnæðis. Einnig að áætlaðar tekjur verði hækkaðar um kr. 20.000.000 þar sem í stefnir að tekjur ársins verði um kr. 106.000.000 og því um 20 m.kr. hærri en áætlað var. Óskað er eftir að kr. 5.000.000 af þeirri tekjuaukningu verði nýttar í dýpkunina.

Til umræðu ofangreint.

Þorsteinn vék af fundi kl. 15:27.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi um beiðni um viðauka vegna dýpkunar í Dalvíkurhöfn. Samkvæmt 63. gr. sveitarstjórnarlaga, 2. mgr., þá er óheimilt að samþykkja viðauka vegna kostnaðar sem þegar er fallinn til en þar segir m.a.:“Óheimilt er að víkja frá fjárhagsáætlun skv. 1. mgr. nema sveitarstjórn hafi áður samþykkt viðauka við áætlunina. Á þetta við um hvers kyns ákvarðanir, samninga eða aðrar fjárhagslegar ráðstafanir sem hafa í för með sér breytingar á tekjum, útgjöldum, skuldbindingum eða tilfærslur milli liða í fjárhagsáætlun í þegar samþykktri áætlun“

Dýpkun hafnarinnar var ekki á samþykktri starfs- og fjárhagsáætlun 2015 en á 737. fundi byggðaráðs þann 11. júní 2015 var samþykkt beiðni frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs um viðauka við fjárhagsáætlun vegna þessa verkefnis að upphæð kr. 7.500.000.
Byggðaráð gerir sér því grein fyrir mikilvægi þessa verkefnis sem og mikilvægi þess að klára nauðsynlega dýpkun hafnarinnar þar sem tækin eru á staðnum og dýrt er að flytja þau.

Í ofangreindu erindi, dagsettu þann 15. september 2015, kemur fram tillaga um að flytja kr. 5.000.000 af lið 4610, þar sem ekki á að mála verbúðir eins og til stóð, og að tekjur Hafnasjóðs verði kr. 20.000.000 hærri í árslok en áætlað var. Byggðaráð óskar eftir að fá nýtt erindi vegna þessa.
1.14 Frá sviðsstjóra félagsmálasviðs; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015; Heimilisþjónusta
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra félagsmálsviðs, dagsett þann 15. september 2015, þar sem fram kemur að á fundi félagsmálaráðs þann 8. september 2015 var fjallað um málefni heimilisþjónustu og var félagsmálastjóra falið að sækja um viðbótar stöðuhlutfall til byggðaráðs svo að hægt sé að veita öllum þjónustu en 8 heimili eru nú á biðlista. Óskað er eftir heimild til að ráða í 50% viðbótarstöðuhlutfall. Kostnaður vegna þessa fyrir september - desember 2015 er áætlaður kr. 997.601 - laun og launatengd gjöld. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka á deild 02150, kostnaður kemur til lækkunar handbæru fé. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 747, frá 30.09.2015.
Málsnúmer 1509019F
2.2 Frá Velferðarráðuneytinu; svar við ósk um undanþágu frá 8.000 íbúa viðmiði.
Á 740. fundi byggðaráðs þann 9. júlí 2015 var eftirfarandi bókað:
"Með vísan til undanþágubeiðnar samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðs fólks sem dagsett er 3. maí 2015 og send til félagsmálaráðherra þá var tilkynnt úrsögn Dalvíkurbyggðar úr Rótum bs. þann 30.júní s.l. með bréfi sem er meðfylgjandi fundarboði byggðaráðs. Úrsögn þessi var gerð með eftirfarandi fyrirvörum: Að ráðherra samþykki undanþágubeiðnina. Að félagsmálaráð Dalvíkurbyggðar hafi fengið ráðrúm til að fjalla um málið og veiti umsögn. Að sveitarstjórn/byggðaráð Dalvíkurbyggðar staðfesti úrsögn úr Rótum bs. Tilkynning þessi er gerð með 6 mánaða fyrirvara eins og fram kemur í 12. gr samþykkta Róta bs. og miðast því úrsögn við áramótin 2015/2016. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi einnig afrit af umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga til Velferðarráðuneytisins um þrjú erindi sveitarfélaga sem varða undanþágur frá lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða í málefnum fatlaðs fólks. Umrædd sveitarfélög eru: Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð, Grindavíkurbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tilkynningu um úrsögn úr Rótum bs. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi erindi frá Velferðarráðuneytinu, bréf dagsett þann 22. september 2015, þar sem fram kemur ráðuneytið fellst á þau rök umsækjanda, Dalvíkurbyggðar og Fjallabyggðar, að landfræðilegar aðstæður geti hamlað samstarfi til vesturs og tekur undir þau sjónarmið að sveitarfélögin séu líkleg til þess að geta leyst verkefnið saman með góðum árangri, enda samgöngur greiðar milli sveitarfélaganna. Í ljósi þess fellst ráðherra á að veita sveitarfélögunum sameiginlega undanþágu frá lágmarksíbúatölu þjónustusvæðis. Undanþágan er tímabundin í eitt ár frá og með 1. janúar 2016. Ráðuneytið leggur áherslu á að undanþágutíminn verði nýttur til þess að kanna gaumgæfilega möguleika á samstarfi til austurs, það er til Eyjafjarðarsvæðisins.
Byggðaráð fagnar niðurstöðunni og felur sveitarstjóra að hafa samband við Fjallabyggð um sameiginlegan fund sveitarfélaganna um ofangreint.
2.3 Fjárhagsáætlun 2015; viðauki vegna starfsmats - laun og launatengd gjöld.
Á 741. fundi byggðaráðs þann 6. ágúst 2015 var eftirfarandi bókað:
"Niðurstaða vinnu við endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaganna, SAMSTARFS liggur nú fyrir ásamt starfsmatsniðurstöðum sem unnar voru samkvæmt bókun með gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélaga innan BSRB og ASÍ, sem samið hafa um starfsmat.
Ljóst er að nær allir starfsmenn Dalvíkurbyggðar sem eru hjá Einingu-Iðju eða hjá Kili hækka um launaflokka samkvæmt þessum starfsmatsniðurstöðum og er breytingin afturvirk til 1.maí 2014.
Lagt fram til kynningar."

Niðurstöður útreikninga vegna ofangreinds liggja fyrir og fylgdu fundarboði byggðarráðs, skipt niður á einstakar deildir.
Hækkunin er kr. 10.510.000 með launatengdum gjöldum.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2015 í samræmi við ofangreint. Ofangreindum hækkunum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 748, frá 1.10.2015.
Málsnúmer 1509020F
3.1 Frá Landsbankanum; Vegna samruna Sp.Norðurlands og Landsbanka.
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs kl. 13:00 Arnar Páll Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans á Akureyri og Jónas M. Pétursson, útibússtjóri á Dalvík.

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi bréf dagsett þann 18. september 2015 frá Landsbankanum til Dalvíkurbyggðar sem viðskiptavinar Sparisjóðs Norðurlands þar sem fram kemur að þann 4. september 2015 tók samruni Landsbankans og Sparisjóðs Norðurlands formlega gildi, eftir að hann var samþykktur af eftirlitsaðilum. Bankaráð Landsbankans samþykkti sama dag samrunann fyrir hönd bankans en áður hafði fundur stofnfjárhafa Sparisjóðsins veitt samþykki sitt. Fram kemur að sameinað fyrirtæki hefur verið rekið undir nafni Landsbankans frá og með mánudeginum 7. september 2015. Starfsmenn sjóðsins eru nú starfsmenn Landsbankans, allar eignir og skuldbindingar sparisjóðsins hafa runnið inn í bankann og hann tekið við rekstri allra útibúa sjóðsins.

Til umræðu ofangreint.

Arnar Páll og Jónas viku af fundi kl. 13:20.
Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð fagnar því að útibú verði áfram starfandi með óbreyttu sniði og störf haldist í sveitarfélaginu.
Byggðaráð óskar Landsbankanum velfarnaðar með nýtt útibú í Dalvíkurbyggð.
3.3 Fjárhagsáætlun 2016; leikvellir og kostnaðaráætlun.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Valur Þór Hilmarsson, umhverfisstjóri, kl. 14:48.


Á 746. fundi byggðaráðs þann 17. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Kristján Guðmundsson kom á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 13:40. Á 268. fundi umhverfisráðs var meðal annars eftirfarandi bókað: "Umhverfisráð getur ekki fallist á að veita styrk til íbúasamtaka á Árskógsströnd vegna endurbóta á leiksvæði. Ráðið leggur þó áherslu á að þetta svæði verði ofarlega á verkefnalista næsta árs, og verði þær endurbætur gerðar í samráði við íbúasamtökin. Umhverfisráð vill þó taka fram að ráðið harmar hvernig staðið var að lagfæringum síðastliðið sumar og biðst afsökunar á seinaganginum." Með fundarboði byggðaráðs fylgdi greinargerð frá umhverfisstjóra um leiksvæði í Dalvíkurbyggð, sem byggðaráð óskaði eftir. Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir kostnaðaráætlun frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra ef sett yrði upp nýtt einfalt leiksvæði á Árskógssandi sem og kostnaðaráætlun yfir önnur atriði sem þarf að koma í lag á öðrum leikvöllum, sem eru á ábyrgð sveitarfélagsins, í Dalvíkurbyggð. "


Með fundarboði byggðaráðs fylgdi:
Úttekt á opnum leiksvæðum á Hauganesi og Árskógssandi 2015, unnið af Þórey Agnarsdóttur, heilbrigðisfulltrúa, en gerð var rekstrarskoðun þann 10. september s.l. með umhverfisstjóra Dalvíkurbyggðar.
Kostnaðaráætlun frá umhverfis- og tæknisviði hvað varðar viðhald á leiksvæði á Hauganesi, viðhald á leiksvæði á Árskógssandi og viðhald á leiksvæði í Skógarhólum.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.4 Fjárhagsáætlun 2016; Herferð Dalvíkurbyggðar gegn ágengum plöntum.
Á 746. fundi byggðaráðs þann 17. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var meðal annars eftirfarandi bókað: "Umhverfisráð þakka Gittu fyrir góða ábendingu og felur umhverfisstjóra að kanna möguleika á samstarfi við Hörgársveit og aðkomu Vegagerðarinnar að verkefninu. " Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð ítrekar ósk um kostnaðaráætlun með áætlun um aðgerðir gegn ágengum plöntum. "

Með fundarboði fylgdi aðgerðaráætlun umhverfisstjóra um eyðingu illgresis ásamt kostnaðaráætlun.

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
3.5 Frá umhverfis- og tæknisviði; Lúpína og kerfill
Á 738. fundi byggðaráðs þann 18. júní 2015 var eftirfarandi bókað:
"Á 693. fundi byggðaráðs þann 20. mars 2014 samþykkti byggðaráð að fela umhverfisstjóra að leggja fyrir aðgerðaráætlun hvað varðar heftingu á útbreiðslu á lúpínu, kerfils og njóla. Með fundarboði byggðaráðs fylgdi aðgerðaáætlun umhverfisstjóra en reiknað er með að verkefnið taki um fimm ár. Þá verði sveitarfélagið kortlagt að nýju og gerð aðgerðaráætlun í kjölfarið. Fram kemur að landeigendum verður kynnt þessi aðgerðaráætlun bæði á fundum og með bréfpósti þar sem farið varður fram á samstarf þeirra í þessu átaksverkefni.
Byggðaráð samþykkir með 3 atkvæðum að óska eftir kostnaðaráætlun og að skýrt liggi fyrir hver aðkoma Dalvíkurbyggðar á að vera. Byggðaráð óskar eftir að umhverfisstjóri komi á fund byggðaráðs í aðdraganda vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2016-2019. "

Með fundarboði byggðaráðs fylgdi aðgerðaráætlun umhverfistjóra um eyðingu illgresis ásamt kostnaðaráætlun, sbr. mál 201508092 hér að ofan.

Til umræðu ofangreint.

Valur Þór vék af fundi kl. 15:35.
Lagt fram til kynningar.
3.6 Fjárhagsáætlun 2016; Varðar erindi frá Leikfélagi Dalvíkur vegna kjallara í Ungó.
Frestað.
3.7 Frá 268. fundi umhverfisráðs; Gjaldskrár umhverfis og tæknisvið 2016
Á 746. fundi byggðaráðs þann 17. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var eftirfarandi bókað: "Tillaga sviðsstjóra um hækkun gjaldskráa umhverfis- og tæknisviðs samkvæmt þeim vísitölum sem viðkomandi gjaldskrár eru tengdar við samþykkt. Þær gjaldskrár sem ekki eru tengdar vísitölu hækka um 3 %. Gjaldþátttaka íbúa er áfram 80% af kostnaði við almenna sorphirðu og gjald vegna dýrahræja hækkað úr 70% í 80% af kostnaði. Þar sem hækkun þessarar gjaldskrár er umfram hækkun vísitölu vill ráðið benda á að við gerð samnings um sorphirðu í Dalvíkurbyggð 1. september 2015 var þjónusta á gámasvæði aukin til muna, móttöku sorps frá sumarhúsum bætt við, og þjónusta við dreifbýli bætt. Ráðið vísar gjaldskrám sviðsins til staðfestingar í byggðarráði." Til umræðu ofangreint.
Byggðaráð frestar frekari umfjöllun og afgreiðslu til næsta fundar. "

Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar en umhverfisráð mun fjalla um gjaldskrár umhverfis- og tæknisviðs á fundi sínum þann 2. október n.k.
3.9 Frá umhverfis- og tæknisviði; Samningur um sorphirðu 2015.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu eftirtaldi samningar á milli Gámaþjónustu Norðurlands ehf. og Dalvíkurbyggðar sem undirritaðar hafa verið með fyrirvara um samþykki sveitarstjórnar.
Viðaukasamningur vegna eftirstöðva á verði íláta.
Viðaukasamningur vegna leiðréttingar í reikningsgerð Gámaþjónustu Norðurlands gagnvart Dalvíkurbyggð.
Verksamningur um Sorphirður í Dalvíkurbyggð og þjónusta við endurvinnslustöð 2015-2020.

Ofangreindir samningar fara til umfjöllunar og afgreiðslu umhverfisráðs á fundi ráðsins á morgun og þaðan til afgreiðslu í sveitarstjórn.

Til umfjöllunar ofangreint.

Börkur Þór vék af fundi kl. 15:48.
Lagt fram til kynningar.
3.10 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Forsendur með fjárhagsáætlun 2016- uppfærðar upplýsingar.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sbr. rafpóstur þann 15. september 2015, er varðar vinnslu fjárhagsáætlana vegna áranna 2016-2019.
Til upplýsingar er niðurstöður þjóðhagsspár fyrir árin 2014-2019 eins og þær birtast með frumvarpi til fjárlaga.
Lagt fram til kynningar.
3.12 Frá Fljótdalshéraði; Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga 8. og 9. október 2015.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Fljótdalshéraði, dagsettur þann 15. september 2015, þar sem boðað er til landsfundar jafnréttisnefnda sveitarfélaga 8.-9. október 2015. Landsfundurinn er opinn fulltrúum jafnréttisnefnda sveitarfélaga eða þeim nefndum sem hefur verið falið þeirra hlutverk. Einnig er annað sveitarstjórnarfólk velkomið ásamt því starfsfólki sem vinnur að jafnréttismálum. Lagt fram til kynningar.
3.13 Frá forsætisráðuneytinu; Eigendastefna fyrir þjóðlendur, verkefnalýsing.
Tekið fyrir erindi frá forsætisráðuneytinu, bréf dagsett þann 23. september 2015, þar sem fram kemur að ráðuneytið telur mikilvægt að fyrir liggi skýr stefna um það hvernig ríkið rækir landeigenda- og umsýsluhlutverk sitt á þjóðlendum samkvæmt lögum nr. 58/1998 og hefur því ákveðið að vinna drög að eigendastefnu fyrir þjóðlendur. Hjálögð eru drög að lýsingu á því hvernig ráðuneytið hyggst vinna að þessu verkefni. Verkefnislýsingin er send þeim sem ráðuneytið telur helst að hafi hagsmuna að gæta og þeim sem áhrif geta haft á stefnumörkunina. Óskað er eftir umsögnum og ábendingum fyrir 9. október n.k. Lagt fram til kynningar.
3.14 Frá stjórn Eyþings; Fundargerðir Eyþings 2015, nr. 270 og nr. 271.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdu fundargerðir stjórnar Eyþings; nr. 270 frá 26. ágúst 2015 og nr. 271 frá 14. september 2015. Lagt fram til kynningar.
3.15 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Fundargerðir 2015, fundur stjórnar nr. 830.
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 830 frá 11. september 2015. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
4.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 749, frá 7.10.2015.
Málsnúmer 1510004F
5.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 750, frá 8.10.2015.
Málsnúmer 1510005F
5.4 Fjárhagsáætlun 2016; Frá Leikfélagi Dalvíkur; Erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016.
Undir þessum lið sat fundinn Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.

Kristján Guðmundsson vék af fundi kl. 15:55 vegna vanhæfis.

Á 268. fundi umhverfisráðs þann 14. september 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs frá Leikfélagi Dalvíkur, ódagsett en móttekið þann 15. júlí 2015, er varðar neðri hæðina í Ungó. LD leggur til við Dalvíkurbyggð að félagsmenn leikfélagsins taki á sig alla vinnu við að gera upp neðri hæðina og Dalvíkurbyggð myndi greiða efniskostnaðinn.
Umhverfisráð leggur til að kostnaður við efniskaup vegna viðhalds á kjallara Ungó verði greiddur af eignasjóði ( 31). Sviðsstjóra falið að hafa umsjón og eftirlit með verkinu."

Fyrir liggur gróf kostnaðaráætlun frá AVH að upphæð kr. 10.544.695 vegna vinnu og efnis vegna endurnýjunar kjallara, snyrtingar, eldhúskróks og búningsherbergis.
Gróf skipting annars vegar á efniskostnaði og vinnukostnaði hins vegar er 48% / 52%,þ.e. efni áætlað kr. 5.061.454.

Kristján kom inn á fundinn að nýju kl. 15:59.

Börkur Þór vék af fundi kl. 16:00
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
6.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 751, frá 12.10.2015.
Málsnúmer 1510006F
6.2 Frá 197. fundi fræðsluráðs þann 7.10.2015; Málefni tónlistarskóla 2015-2016; viðhald húsnæðis.
Á 197. fundi fræðsluráðs þann 7. október 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar bauð fræðsluráði í heimsókn í húsakynni skólans með það að markmiði að kjörnir fulltrúar sæju ástand húsnæðisins og þáði ráðið boðið.
Fræðsluráð tekur undir með stjórnendum skólans að afar mikilvægt sé að farið verði í töluvert viðhald á húsnæðinu. Leggur fræðsluráð til við byggðaráð að það fari í heimsókn og skoði húsakynni skólans og leggur mikla áherslu á að forgangsraðað verði í þágu hans við núverandi fjárhagsáætlanagerð. Jafnframt óskar ráðið eftir við sviðsstjóra umhverfis- og tækisviðs að gerð verði heilsufarsleg úttekt á húsnæði skólans og brugðist strax við, reynist ástæða til. Fræðsluráð þakkar starfsfólki Tónlistarskólans fyrir boðið og móttökurnar."

Til umræðu ofangreint.

Ingvar vék af fundi kl. 15:43.
Lagt fram til kynningar.
6.3 Fjárhagsáætlun 2015; beiðni um viðauka; Framkvæmdir og viðhald við sundlaug Dalvíkur.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 8. október 2015, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna endurbóta og framkvæmda við Sundlaug Dalvíkur.

Þar sem tilboði sem barst við endurbætur á Sundlaug (dúklögn) var hafnað í haust er ljóst að ekki er þörf á öllu því fjármagni sem áætlað er árið 2015. Engu að síður er búið að setja í ferli vinnu við hönnun og útboð þar sem stefnt er á að hægt verði að bjóða út alla verkþætti á næsta ári, sem kæmu til framkvæmda á árunum 2016 og 2017. Er því óskað eftir því að tæknideild fái heimild til að nýta af þeim kr. 25.000.000 sem áætlaðar voru til framkvæmda allt að kr. 5.000.000 árið 2015 til að hanna og gera útboðsgögn vegna endurbótanna, þannig að liður 32-200-11603 verði kr. 7.035.000 og liður 32-200-11603 verði kr. 0.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um breytingu á fjárhagsáætlun 2015.
6.4 Fjárhagsáætlun 2015; Beiðni um viðauka; Viðbygging við Krílakot.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 8. október 2015, þar sem óskað er eftir breytingu á fjárhagsáætlun 2015 vegna framkvæmda við Krílakot. Gert var ráð fyrir á árinu 2015 kr. 88.200.000, en skv. tilboði og samningi verður upphæðin á árinu 2015 kr. 80.283.370. Um er að ræða lækkun að upphæð kr. 7.917.000 á lið 32200-11601.

Börkur Þór vék af fundi kl. 15:55.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um lækkun á fjárhagsáætlun 2015.
7.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 752, frá 12.10.2015.
Málsnúmer 1510007F
7.2 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga 2016.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur þann 8. október 2015, þar sem fram kemur að hag- og upplýsingasvið Sambandsins hefur gefið út staðgreiðsluáætlun sveitarfélaga fyrir árin 2015 og 2016.
Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
8.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 753, frá 15.10.2015.
Málsnúmer 1510010F
8.1 Frá 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs; Framtíðarrekstur Tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð.
Á 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 6. október 2015 var eftirfarandi bókað:
"Íþrótta- og æskulýðsráð ræddi möguleikann á að bjóða út rekstur tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð. Íþrótta- og æskulýðsráð telur ekki heppilegt að bjóða út reksturinn að svo stöddu og leggur til að reksturinn verði með óbreyttu sniði næsta sumar. "
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að beina því til íþrótta- og æskulýðsráðs að hugað verði að útboði á tjaldsvæðum Dalvíkurbyggðar á árinu 2016 með því markmiði að þessu verkefni verði útvistað á árinu 2017.
8.2 Frá 71. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs; Laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar 2016.
Á 71. fundi íþrótta - og æskulýðsráðs þann 6. október 2015 var eftirfarandi bókað en þessu máli var vísað úr sveitarstjórn þann 15. september 2015 til ráðsins aftur til skoðunar:
"íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti samanburð launa vinnuskóla við önnur sveitarfélög. Laun eru í sumum tilfellum hærri og sumum lægri. Íþrótta- og æskulýðsráð stendur við fyrri bókun og leggur til að laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar hækki um 3% fyrir árið 2016."
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækkun launa Vinnuskóla 2016 verði 6,95% sem er hækkun á launavísitölu yfir 12 mánaða tímabil.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að hækka fjárhagsramma Vinnuskóla, deild 06-27, um kr. 186.000 vegna þessa.
Byggðaráð beinir því til íþrótta- og æskulýðsráðs að laun Vinnuskóla verði framvegis tengd ákveðnum viðmiðum, s.s. þróun á launavísitölu.
8.5 Boð á stofnfund Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga
Frestað.
8.6 Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2015.
Frestað.
8.7 Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Fundargerð fulltrúaráðs EBÍ 2015.
Frestað. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
9.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 754, frá 16.10.2015.
Málsnúmer 1510011F
9.3 Boð á stofnfund Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga
Tekið fyrir erindi frá Jónínu Magnúsdóttur, formaður undirbúningshóps stofnfundar Soroptimistaklúbbs Tröllaskaga, en stofnfundur verður í Menntaskólanum á Tröllaskaga kl. 17:00 en hátíðarkvölderður í Tjarnarborg kl. 19:00. Með bréfi þessum er fulltrúa frá Dalvíkurbyggð boðið til hátíðarkvöldverðar. Soroptimistaar eru aðalþjóðleg samtök sem stuðla að velferð stúlkna og kvenna með fjölþjóðlegu tengslaneti og verkefnum sem styðja m.a. við menntun og eflingu leiðtogahæfni þeirra. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Valdís Guðbrandsdóttir verði fulltrúi Dalvíkurbyggðar, ef hún hefur tök á.
9.4 Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Ágóðahlutagreiðsla 2015.
Tekið fyrir erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 6. október 2015, þar sem fram kemur að á aðalfundi fulltrúaráðs EBÍ sem haldinn var 23. september s.l. var samþykkt að greiða 50 m.kr. af hagnaði félagsins til aðildarfélaganna í formi ágóðahlutar. Hlutdeild Dalvíkurbyggðar í Sameignarsjóði EBÍ er 1,684% og greiðsla ársins þann 16. október n.k. verður þá kr. 842.000. Lagt fram til kynningar.
9.5 Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Fundargerð fulltrúaráðs EBÍ 2015
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi fundargerð aðalfundar fulltrúaráðs EBÍ frá 23. september s.l. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
10.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 755, frá 22.10.2015.
Málsnúmer 1510013F
10.1 Fjárhagsáætlun 2015; Heildarviðauki II. Fjárhagsáætlunarlíkan.
a) Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs og sveitarstjóri kynntu tillögu að heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2015; þ.e. þeir viðaukar sem samþykktir hafa verið við fjárhagsáætlun 2015 eftir 16. júní s.l.

b) Bókað í trúnaðarmálabók.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa tillögu að heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2015 til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar, með þeirri breytingu að áætluð staðgreiðsla ársins verði hækkuð um 8 m.kr.

10.3 Frá sveitarstjóra; Sjávarútvegssaga Dalvíkurbyggðar.
Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra er varðar ritun sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar.

Markmið verkefnisins er að gefa eins heildstæða mynd af sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar á 20. öld og fram á þá 21. eins og frekast er unnt. Sagan tekur til sjávarútvegs í tveimur af þeim þremur sveitarfélögum sem sameinuðust í sveitarfélagið Dalvíkurbyggð árið 1998 þ.e. Dalvíkurbæ og Árskógshreppi. Í því skyni þarf víða að leita fanga. Ritaðar heimildir liggja víða, fundagerðarbækur, greinar í blöðum, bókum og tímaritum, ýmis gögn frá sjávarútvegsfyrirtækjum á Dalvík og síðast en ekki síst verði tekin viðtöl við fjölmarga þá sem stóðu í eldlínunni t.d. stjórnendur fyrirtækja, sjómenn og aðra, til þess að varpa skemmtilegu, áhugaverðu og lifandi ljósi á viðfangsefnið. Fyrsta skrefið þarf að vera söfnun munnlegra heimilda og ljósmynda. Samkvæmt kostnaðaráætlun er miðað við að öll heimildaöflun kosti samtals um 3,3 milljónir. Lagt er til að árið 2016 verji Dalvíkurbyggð 1/3 af þeirri upphæð eða um 1,1 milljón til að afla munnlegra heimilda og ljósmynda.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við menningaráð að koma ofangreindu verkefni af stað árið 2016 með fyrstu áherslu á öflun munnlegra heimiilda sem og gera heildstæða áætlun um verkefnið.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við menningaráð að ofangreindu verkefni verði fundið svigrúm innan fjárhagsramma málaflokks 05 á árinu 2016.
10.4 Frá Íbúðalánasjóði; Erindi Íbúðalánasjóðs til sveitarstjórnar
Tekið fyrir erindi frá Íbúðalánasjóði, bréf dagsett þann 8. október 2015, þar sem fram kemur að Íbúðalánasjóður er um þessar mundir að hafa samband við sveitarfélög þar sem sjóðurinn á fasteignir og bjóða þeim til viðræðna um að kaupa eignirnar af sjóðnum.

Í Dalvíkurbyggð á Íbúðalánasjóður samtals 11 eignir en þá eru ekki meðtaldar þær eignir sem dótturfélag Íbúðalánasjóðs, Leigufélagið Klettur ehf., kann að eiga í sveitarfélaginu.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir fundi með forsvarsmönnum Íbúðalánasjóðs varðandi eignir sjóðsins í Dalvíkurbyggð.
Sveitarstjóra falið að hafa samband við Íbúðalánasjóð varðandi ofangreint.
10.5 Frá innanríkisráðuneytinu; Drög að nýrri reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga til umsagnar
Tekinn fyrir rafpóstur frá innanríkisráðuneytinu, dagsettur þann 16. október 2015, þar sem fram kemur að reikningsskila- og upplýsinganefnd hefur unnið drög að endurskoðari reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga. Reglugerðardrögin eru nú til kynningar og er unnt að senda ráðuneytinu umsagnir til og með 30. október n.k. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
11.
Atvinnumála- og kynningarráð - 12, frá 7.10.2015.
Málsnúmer 1510002F
11.1 Fyrirtækjaþing 2015
Fyrirtækjaþing atvinnumála- og kynningarráðs verður nú haldið í 9. sinn. Fjallað hefur verið um málið á nokkrum fundum ráðsins en samþykkt hefur verið að umfjöllunarefni þingsins verði samvinna og samstarf fyrirtækja.

Inn á fundinn kom, í gegnum fundarsíma, Hannes Ottósson verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, kl.13:00 en Hannes hefur meðal annars sérþekkingu á fyrirtækja og hugmyndaþróun og nýsköpun og frumkvöðlum.

Hannes vék af fundi kl.13:20.
Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fyrirtækjaþingið verði haldið fimmtudaginn 5. nóvember kl. 13:00.

Upplýsingafulltrúa falið að ganga frá framkvæmd þingsins miðað við umræður á fundinum.
11.2 Atvinnustefna Dalvíkurbyggðar
Undanfarið hefur atvinnumála- og kynningarráð rætt um gerð atvinnustefnu fyrir sveitarfélagið en upplýsingafulltrúi hefur unnið að henni í samræmi við umræður í ráðinu. Í henni kemur meðal annars fram hvernig aðkoma sveitarfélagsins að atvinnulífinu getur verið en drög þess efnis hafa verið lögð fyrir ráðið.

Á 10. fundi ráðsins var upplýsingafulltrúa falið að koma með nákvæmari drög að því hvernig sveitarfélagið getur komið að atvinnulífinu og fylgdu þau drög með fundarboði ráðsins.
Upplýsingafulltrúi fór yfir stöðu verkefnisins eins og það liggur fyrir núna.

Atvinnumála- og kynningarráð hefur fjallað um hver aðkoma Dalvíkurbyggðar að atvinnulífinu gæti verið og verður það kynnt samhliða því að lögð verður fram heildarstefna fyrir atvinnulífið.

Atvinnumála- og kynningarráð samþykkir með 5 atkvæðum að senda út spurningalista á fyrirtæki í sveitarfélaginu með það að markmiði að kanna núverandi stöðu atvinnumála í Dalvíkurbyggð.

Upplýsingafulltrúi vinnur áfram að verkefninu miðað við umræður á fundinum.
11.4 Upplýsingamiðstöð - skýrsla 2015
Á 11. fundi atvinnumála- og kynningarráðs var meðal annars bókað; "Atvinnumála- og kynningarráð leggur til að það fjármagn sem veitt verður til upplýsingamiðstöðvar árið 2016 verði ekki minna en árið 2015. Umræður um fyrirkomulag verður haldið áfram á næsta fundi ráðsins".

Meðfylgjandi er samantekt á þeim hugmyndum sem ræddar hafa verið í sambandi við framtíðarskipulag á starfsemi upplýsingamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar.
Upplýsingafulltrúa er falið að kanna hug ferðaþjónustuaðila varðandi framtíðarskipulag á starfsemi upplýsingamiðstöðvar Dalvíkurbyggðar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
12.
Félagsmálaráð - 191, frá 21.09.2015.
Málsnúmer 1509015F
12.1 Starfsáætlun 2016
Félagsmálastjóri kynnti starfsáætlun félagsþjónustu ársins 2016. Félagsmálaráð samþykkir starfsáætlun ársins fyrir félagsþjónustu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016.
12.2 fjárhagsáætlun 2016
Félagsmálastjóri kynnti drög að fjárhagsáætlun félagsmálasviðs fyrir árið 2016. Félagsmálastjóri fór yfir frávik frá fjárhagsáætlun en ljóst er að 18.000.000 króna gat er frá ramma að áætlun. Útskýringar á þessum frávikum eru aðallega launaskrið, minni tekjur frá Rótum bs, aukin fjárhagsaðstoð, 50% starf í heimilisþjónustu sbr. viðauka frá 17. september 2016, aukin þörf fyrir liðveislu, bæði fyrir börn og fullorðna auk sumarvinna fyrir ungmenni með fötlun. Félagsmálaráð fór yfir drög að áætlun sviðsins. Ljóst er að úthlutaður rammi fyrir árið 2016 dugar ekki í þjónustuna fyrir árið 2016 og samþykkir félagsmálaráð áætlun með fyrirvara um viðauka.
12.3 Forvarnarstefna
Vinnuhópur um forvarnarmál lagði fram fundargerð frá fundi hópsins frá september 2015. Einnig lagði vinnuhópurinn fram bréf til samstarfsaðila en halda á fund um miðjan október þar sem félögin kynna sín forvarnarverkefni og félagsmálaráð leggur fram áherslur ráðsins að forvörnum fyrir árið 2016 Félagsmálaráð samþykkir fundargerðina og bréf til samstarfsaðila. Niðurstaða Til máls tók:
Valdís Guðbrandsdóttir.


Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
13.
Félagsmálaráð - 192, frá 13.10.2015
Málsnúmer 1510008F
13.1 Tilkynning um úrsögn úr Rótum bs.
Félagsmálastjóri lagði fram bréf dags. 22. september 2015 frá Velferðarráðuneytinu þar sem ráðuneytið tekur fyrir bréf dags. 3. maí frá sveitarfélögunum Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð sem óska eftir undanþágu frá lágmarksíbúafjölda þjónustusvæða skv. 2. mgr.4.gr. laga nr. 59/1992. Sveitarfélögin hafa verið aðilar að byggðarsamlaginu Rótum frá stofnun þess í janúar 2014 en hyggst nú ætla að stofna eigið þjónustusvæði. Ráðuneytið fellst á rök umsækjenda að landfræðilegar aðstæður geti hamlað samstarfi til vesturs og tekur undir þau sjónarmið að sveitarfélögin séu líkleg til þess að geta leyst verkefnið saman með góðum árangri, enda samgöngur greiðar milli sveitarfélaganna. Í ljósi þess fellst ráðherra á, með vísan til 3. mgr.4.gr. laga nr. 59/1992 að veita sveitarfélögunum sameiginlega undaþágu frá lágmarksíbúatölu þjónustusvæða enda uppfylli þau ákveði 1. og 2. mgr. 8.gr. laganna um gerð stofnskjals og samstarfssamnings. Undanþágan er tímabundin í eitt ár frá og með 1. janúar 2016. Ráðherra leggur áherslu á að undanþágutíminn verði nýttur til þess að kanna gaumgæfilega möguleika til samstarfs til austur til Eyjafjarðarsvæðisins. Félagsmálaráð telur um krefjandi verkefni að ræða til eins árs og ljóst er að vanda þarf vel til verka við undirbúning og framkvæmd þessa verkefnis á milli tveggja sveitafélaga. Í þessu breytta umhverfi felast einnig spennandi tækifæri fyrir sveitarfélögin að veita góða þjónustu og innleiða nýtt verklag. Félagsmálaráð lítur svo á að í svari Velferðarráðuneytis felist tilvísun til þess að takist ekki vel til leggi ráðuneytið til samstarf með öðrum sveitarfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Félagsmálaráð telur að skoða verði vandlega þann ráðahag með tilliti til fyrri reynslu.
13.2 Fyrirspurn vegna innflytjenda
Félagsmálastjóri leggur fram bréf frá Fjölmenningarsetri dags. 16/9 2015 þar sem óskað er eftir upplýsingum um mótttökuáætlanir sveitarfélaga vegna innflytjenda. Félagsmálaráð felur félagsmálastjóra að svara erindinu en móttökuáætlun vegna innflytjenda er ekki til í Dalvíkurbyggð en tekið er tillit til erlendra íbúa í Mannréttindastefnu Dalvíkurbyggðar og skólum Dalvíkurbyggðar. Félagsmálaráð er tilbúið að koma að gerð slíkrar áætlunar en óskar eftir umræðum í byggðarráði um hvort gera skuli slíka móttökuáætlun.
13.3 Forvarnarfundur með samstarfsaðlium - undirbúningur
Vinnuhópur um forvarnarmál fer yfir umræðuefni fundar með samstarfsaðilum sem halda á 15. október n.k. Á fundinum verður farið yfir forvarnarstefnu, fara yfir með samstarfsaðilum hvað félögin hafa verið að standa sig vel í fjölbreyttum forvörnum, hveja félögin til að sameinast um forvarnir og treysta samstarf þessara ólíku samstarfsaðila. Félagsmálaráð þarf að fresta fundinum til 20. október n.k. þar sem boðað hefur verið til opins íbúafundar um umferðaröryggismál á sama tíma og gert var ráð fyrir forvarnarfundinum.
13.4 Til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar (hækkun lífeyris í 300 þús. kr.) 3. mál.
Félagsmálastjóri leggur fram erindi frá nefndarsviði Alþingis dags. 21. september 2015 þar sem óskað er umsagnar á frumvarpi til laga um almannatryggingar (hækkun lífeyris í 300. þús.kr.) 3. mál Lagt fram til kynningar
13.5 Vopnuð átök, vernd flóttamanna og fatlaðs fólks
Félagsmálastjóri leggur fram rafpóst frá Þroskahjálp dags. 24.09.2015 þar sem Þroskahjálp vekur athygli á vernd flóttamanna og fatlaðs fólks. Reynslan sýnir að þegar fólk flýr stríðsátök er mikil hætta á að fatlað fólk sé skilið eftir eða verði útilokað frá eða geti af öðrum ástæðum ekki nálgast þá aðstoð sem veitt er flóttafólki. Þá verður það við þessar aðstæður sérstaklega berskjaldað fyrir ofbeldi og misnotkun af ýmsu tagi. Landssamtökin Þroskahjálp vilja vekja athygli hlutaðeigandi stjórnvalda og félagasamtaka á því sem að framan er rakið og hvetur til að sérstaklega verði hugað að alþjóðlegum skyldum ríkja til að taka sérstakt tillit til þarfa fatlaðs fólks fyrir stuðning og vernd við mótun og framkvæmd stefnu í málefnum flóttafólks hér á landi. Félagsmálaráð telur þetta gott og þarft innlegg í flóttamannaumræðuna.
13.6 Skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum til umsagnar
Félagsmálastjóri leggur fram rafpóst dags. 05.10.2015 frá Innanríkisráðuneytinu þar sem vakin er athygli á að til umsagnar er nú hjá innanríkisráðuneytinu skýrsla um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum. Í skýrslunni er lagt til að lögfest verði ákvæði í barnalögum sem heimili skipta búsetu barns á grundvelli staðfests samkomulags foreldra, að uppfylltum skilyrðum. Lagt fram til kynningar
13.7 Til umsagnar frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og málefni aldraðra (uppfærsluréttur íbúðarréttar), 35. mál.
Félagsmálastjóri leggur fram rafpóst frá nefndarsviði Alþingis dags. 22.09.2015 þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsdagskrá og málefni aldraðra (uppfærsluréttur íbúðarréttar) Lagt fram til kynningar.
13.8 Styrkbeiðni frá Aflinu
Félagsmálastjóri leggur fram erindi frá Aflinu dags. 24.09.2015. Aflið, samtök gegn kynferðis og heimilisofbeldi á Norðurlandi, hóf starfsemi sína árið 2002. Þjónusta Aflsins er fyrir alla þá sem beittir hafa verið kynferðis- og/eða heimilisofbeldi í sinni víðustu mynd auk þess sem til Aflsins hafa leita margir þolendur eineltis. Aflið býður einnig upp á ráðgjöf fyrir aðstandendur. Í ársskýrslu Aflsins fyrir árið 2014 kemur fram að töluverð fjölgun er í einkaviðtölum frá ári til árs og er svo einnig þetta árið. Fyrirséð er að yfirstandandi ár verður Aflinu fjárhagslega erfitt þar sem lækkun varð á rekstrarstyrk frá Velferðarráðuneytinu m.a. og óskar Aflið eftir fjárhagslegum styrk svo mögulegt sé að halda áfram að reka Aflið og styðja þar með við þjónustu við brotaþola ofbeldis í heimabyggð. Félagsmálaráð veitir Aflinu styrk að upphæð 50.000 krónur tekið af lið 02-80-9145
13.9 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201510019 Bókað í trúnaðarmálabók
13.10 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
13.11 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók
13.12 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál Bókað í trúnaðarmálabók Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
14.
Fræðsluráð - 197, frá 7.10.2015.
Málsnúmer 1509010F
14.1 Skólanámskrár 2015-2016
Gunnþór E. Gunnþórsson, skólastjóri Árskógarskóla, gerði grein fyrir tillögum hans að ferli eineltismála í skólanum ásamt aðgerðaráætlun eineltisteymis Árskógarskóla. Fræðsluráð samþykkir framkomna tillögu og þar með skólanámskrá Árskógarskóla í heild sinni.
14.2 Þjóðarsáttmáli um læsi
Greinargerðir um hverju þurfi að breyta í starfsemi leik- og grunnskólanna í Dalvíkurbyggð og hvaða kostnaður fylgi því að Dalvíkurbyggð uppfylli sinn hlut í Þjóðasáttmála um læsi kynntar af Drífu Þórarinsdóttur, leikskólastjóra Kátakots og Krílakots, Gunnþóri E. Gunnþórssyni, skólastjóri Árskógarskóla og Gísla Bjarnasyni, skólastjóra Dalvíkurskóla. Með fundarboði fylgdu drög að kostnaðaráætlun frá leik- og grunnskólum sveitarfélagsins vegna þátttöku í verkefninu „þjóðarsáttmáli um læsi“
Umræða varð um verkefnið og kostnað vegna þess. Nákvæmari kostnaðaráætlun sem og hvort verkefnið rúmast innan fjárhagsramma stofnananna verði tekið fyrir á næsta fundi ráðsins.
14.3 Tillaga til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs
Tekið var fyrir erindi frá nefndasviði Alþingis, dagsett 28. september 2015. Í erindinu er óskað eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um styrkingu leikskóla og fæðingarorlofs.

Fræðsluráð felur varaformanni fræðsluráðs að vinna að umsögn um tillöguna í samræmi við umræður á fundinum.
14.4 Áætlun um spjaldtölvuvæðingu og upplýsingatækni í Dalvíkurskóla.
Gísli Bjarnason, skólastjóri, óskar eftir að endanlegri afgreiðslu þessa máls verði frestað til næsta fundar og var það samþykkt.
14.5 Námsárangur
Gísli Bjarnason, skólastjóri og Dóróþea Reimarsdóttir, kennsluráðgjafi, gerðu grein fyrir vinnu síðustu tveggja funda. Með fundarboði fylgdu fundargerðir 8. og 9. fundar starfshóps um námsárangur. Fræðsluráð lýsir ánægju sinni með þann farveg sem þessi vinna er í.
14.6 Heimsókn í Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar
Tónlistarskóli Dalvíkurbyggðar bauð fræðsluráði í heimsókn í húsakynni skólans með það að markmiði að kjörnir fulltrúar sæju ástand húsnæðisins og þáði ráðið boðið. Fræðsluráð tekur undir með stjórnendum skólans að afar mikilvægt sé að farið verði í töluvert viðhald á húsnæðinu. Leggur fræðsluráð til við byggðaráð að það fari í heimsókn og skoði húsakynni skólans og leggur mikla áherslu á að forgangsraðað verði í þágu hans við núverandi fjárhagsáætlanagerð. Jafnframt óskar ráðið eftir við sviðsstjóra umhverfis- og tækisviðs að gerð verði heilsufarsleg úttekt á húsnæði skólans og brugðist strax við, reynist ástæða til.

Fræðsluráð þakkar starfsfólki Tónlistarskólans fyrir boðið og móttökurnar.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
15.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 71, frá 6.10.2015.
Málsnúmer 1510001F
15.1 Endurnýjun á Gúmmíi sparkvallar
Íþrótta- og æskulýðsfultrúi kynnti stöðuna á sparkvellinum á Dalvík í ljósi umræðu um skaðsemi gúmmís á sparkvöllum á landinu. Í fjáhagsáætlun árið 2015 er gert ráð fyrir endurnýjun og hreinsum á gúmmíi sparkvallar og er vonast til að hægt verði að skipta því út fyrir veturinn, áætlaður kostnaður við slíka hreinsun er um 200.000.- Áætlaður kostnaður við að skipta öllu gervigrasinu er um 4,5 milljónir. Íþróttafulltrúar landsins hafa rætt þessi mál mikið undanfarið og mun íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fylgjast með þeirri umræðu og mun upplýsa ráðið um gang mála. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi telur samt ekki nauðsynlegt að fara í heildarskipti strax.
15.2 Skýrsla forstöðumanns Vinnuskóla 2015
Skýrsla forstöðumanns Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar fyrir sumarið 2015 lögð fram til kynningar. Alls voru 9 flokksstjórar og 46 nemendur í vinnuskólanum í sumar. Starfsemin heldur áfram að þróast og aukning varð í samstarfi við aðrar stofnanir Dalvíkurbyggðar.
15.3 Sparkvöllur í Árskógi
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 var ákveðið að vísa umræðu um gerð sparkvallar í Árskógi til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2016. Ungmennafélagið Reynir hefur sent inn áætlaðan kostnað vegna byggingar sparkvallar. Áætlaður kostnaður er um 16 milljónir.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að vísa þessu til vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2017. Samhliða þeirri vinnu verði Ungmennafélagið kallað á fund ráðsins og farið yfir það með hvaða hætti Ungmennafélagið gæti komið að þessu verkefni. Einnig verði kannað hvort hægt verði að fá styrki frá utanaðkomandi aðilum, t.d. KSÍ eða ÍSÍ.
15.4 Fjárhagsáætlun 2015; Strandblakvöllur
Kristinn Ingi Valsson vék af fundinum undir þessum lið vegna vanhæfis.

Lagt fram erindi frá Blakfélaginu Rimum vegna strandblakvallar. Óskað er eftir því að fá að nýta styrk frá Dalvíkurbyggð til kaupa á sandi í ár til að nýta þann afslátt sem félaginu hefur boðist. Vellirnir yrðu svo byggðir vorið 2016.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að styrkurinn verði notaður til kaupa á sandi með þeim skilyrðum að framkvæmdir fari fram árið 2016, að öðrum kosti muni félagið endurgreiða styrkinn.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs með 6 atkvæðum, Valdemar Þór Viðarsson situr hjá.
15.5 Samningar við íþróttafélög 2016-2019
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir athugsemdum sem bárust við samningsdrög.
UMFS gerði athugsemdir við upphæðir í samningi, það hefur verið leiðrétt, enda um innsláttarvillur að ræða.
Skíðafélag Dalvíkur gerði athugsemd við tímaramma vegna skila á ársreikningum og skýrslu félagsins, þar sem aðalfundur félagsins er haldinn í maí ár hvert. Gerðar voru breytingar á drögum vegna þessa.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir drögin með breytingum sem voru lagðar fram á fundinum. Einnig var samþykkt breyting á skiptapotti vegna félagsstarfs.
Niðurstaða Til máls tóku:
Valdís Guðbrandsdóttir, sem leggur til að beint sé til íþrótta- og æskulýðsráðs að bætt sé við inn í samningana ákvæði um samstarf um forvarnir samkvæmt Forvarnarstefnu Dalvíkurbyggðar.

Guðmundur St. Jónsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað varðar samning við Golfklúbbinn Hamar.
Bjarni Th. Bjarnason.

Guðmundur St. Jónsson vék af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis kl. 16:34.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum samning við Golfklúbbinn Hamar, Guðmundur St. Jónsson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Guðmundur kom á fundinn að nýju kl. 16:35.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum samninga íþrótta- og æskulýðsráðs við íþróttafélögin.
15.6 Framtíðarrekstur Tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð
Íþrótta- og æskulýðsráð ræddi möguleikann á að bjóða út rekstur tjaldsvæða í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta- og æskulýðsráð telur ekki heppilegt að bjóða út reksturinn að svo stöddu og leggur til að reksturinn verði með óbreyttu sniði næsta sumar.
15.7 Reglur um hvatagreiðslur
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti hugmyndir að nýjum drögum um hvatagreiðslur. Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að uppfæra drögin miðað við umræðu á fundinum og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.
15.8 Laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar 2016
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti samanburð launa vinnuskóla við önnur sveitarfélög. Laun eru í sumum tilfellum hærri og sumum lægri.
Íþrótta- og æskulýðsráð stendur við fyrri bókun og leggur til að laun nemenda Vinnuskóla Dalvíkurbyggðar hækki um 3% fyrir árið 2016.
Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
16.
Landbúnaðarráð - 99, frá 16.09.2015.
Málsnúmer 1509013F
16.1 Umsókn um auka beitiland að Hamri
Með rafpósti dag. 10. september 2015 óskar Guðrún Rut Hreiðarsdóttir eftir viðbót við það beitiland sem hún þegar hefur að Hamri. Landbúnaðarráð samþykkir að veita umbeðið land, en þar sem svæðið er að hluta til á deiliskipulagðri frístundarbyggð er sviðsstjóra falið að semja til eins árs.
16.2 Umsókn um leyfi til búfjárhalds - hænur
Með rafpósti dag. 14. september 2015 óskar Guðrún Rut Hreiðarsdóttir, Smáravegi 10, Dalvík eftir búfjárleyfi fyrir fjórar hænur. Landbúnaðarráð samþykkir umsóknina fyrir fjóra hænur og bendir á að hámarksfjöldi miðast við fimm hænur. Ráðið bendir á að hanar eru með öllu bannaðir í þéttbýli. Aðbúnaður þarf að uppfylla lög og reglur um aðbúnað dýra og skal haft samráð við byggingarfulltrúa.
16.3 Gjaldskrá Landbúnaðarráðs 2016
Til umræðu gjaldskrá 2016 Landbúnaðarráð samþykkir framlagðar gjaldskrár með áorðnum breytingum.
16.4 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2016
Til umræðu starfs og fjárhagsáætlun 2016 Landbúnaðarráð gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
17.
Umhverfisráð - 268, frá 14.09.2015.
Málsnúmer 1509007F
17.1 Vegna fjárhagsáætlunargerðar 2016 - fasteignagjöld
Tekið fyrir erindi frá Sævaldi Jens Gunnarssyni, dagsett þann 26. júní 2015, er varðar álagningu fasteignagjalda í Dalvíkurbyggð sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs. Umhverfisráð hefur kynnt sér málið og frestar afgreiðslu þar til niðurstaða fæst úr úttekt og samanburði á tekjum og þjónustu sveitarfélaga, sem ákveðið var af byggðarráði að láta vinna fyrir sveitarfélagið.
17.2 Erindi vegna fjárhagsáætlunar 2016
Tekið fyrir erindi sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs frá Leikfélagi Dalvíkur, ódagsett en móttekið þann 15. júlí 2015, er varðar neðri hæðina í Ungó. LD leggur til við Dalvíkurbyggð að félagsmenn leikfélagsins taki á sig alla vinnu við að gera upp neðri hæðina og Dalvíkurbyggð myndi greiða efniskostnaðinn. Umhverfisráð leggur til að kostnaður við efniskaup vegna viðhalds á kjallara Ungó verði greiddur af eignasjóði ( 31). Sviðsstjóra falið að hafa umsjón og eftirlit með verkinu.
17.3 Íbúasamtökin á Árskógssandi; beiðni um styrk
Tekið fyrir erindi frá Erlu Eiríksdóttur sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs, f.h. íbúasamtakanna á Árskógssandi, dagsett þann 14. ágúst 2015, þar sem fram kemur að íbúar á Árskógssandi sækja um styrk til að koma leiksvæðinu á staðnum i viðunandi horf. Umhverisráð getur ekki fallist á að veita styrk til íbúasamtaka á Árskógsströnd vegna endurbóta á leiksvæði. Ráðið leggur þó áherslu á að þetta svæði verði ofarlega á verkefnalista næsta árs, og verði þær endurbætur gerðar í samráði við íbúasamtökin.
Umhverfisráð vill þó taka fram að ráðið harmar hvernig staðið var að lagfæringum síðastliðið sumar og biðst afsökunar á seinaganginum.
17.4 Fjárhagsáætlun 2016; Herferð Dalvíkurbyggðar gegn ágengum plöntum.
Tekið fyrir erindi sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs frá Gittu Unn Ármannsdóttur, dagsett þann 30. ágúst 2015, þar fram kemur að bréfritari fagnar mjög boðaðri herferð gegn ágengum plöntum en vill vekja athygli á að kerfill hefur náð sér verulega á strik nyrst í Hörgárbyggð. Lagt er til að Dalvíkurbyggð bæti við svæðinu meðfram þjóðvegi frá mörkum Hörgárbyggðar og Dalvíkurbyggðar að Dalvík og að jafnframt verði skoðuð samvinna á milli Hörgárbyggðar og Dalvíkurbyggðar hvað þetta varðar þannig að kerfill berist ekki á milli sveitarfélaganna. Umhverfisráð þakka Gittu fyrir góða ábendingu og felur umhverfisstjóra að kanna möguleika á samstarfi við Hörgársveit og aðkomu Vegagerðarinnar að verkefninu.
17.5 Umhverfismál í Túnahverfi. Vegna gerðar fjárhagsáætlunar 2016
Tekið fyrir erindið frá Friðrikku J. Jakobsdóttur og Dóróþeu Reimarsdóttur, f.h. íbúa í Túnahverfi, dagsett þann 31. ágúst 2015, sem vísað var til umhverfisráðs á 744. fundi byggðarráðs þar sem vísað er til umfjöllunar umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar frá fundi þann 11. mars 2006 um erindi dagsett þann 27. febrúar 2006 frá íbúum við Hringtún, Steintún og Miðtún um framkvæmdir við opin leiksvæði í Túnahverfi. Bókað var að það yrði tekið upp við gerð næstu fjárhags- og framkvæmdaráætlunar. Á fundi bæjarráðs þann 21. september 2006 var erindi íbúa í Túnahverfi tekið fyrir, bréf dagsett þann 11. september 2006, þar sem ýmsum hugmyndum og tillögum hvað varðar framkvæmdirnar var lýst og einnig var lýst yfir áhuga að taka þátt í ferlinu við gerð svæðisins. Erindinu var vísað frá bæjarráði til umhverfis- og tæknisviðs. Síðan þá hefur engin hreyfing verið á málinu. Íbúar Túnahverfis ítreka hér með þá ósk sína að hafist verði handa við frágang þessa svæðis þar sem níu ár eru liðin frá því að upphaflega var fjallað um erindið. Umhverfisráð þakkar innsent erindi íbúa. Þar sem deiliskipulag svæðisins var ekki klárað á sínu tíma og er í vinnslu er óskum um gerð leiksvæðis vísað til þeirrar vinnu.
Þær lagfæringar sem bent er á verða teknar til greina við gerð fjárhagsáætlunar 2016.
17.6 Fjárhagsáætlun 2016;; úrbætur í vegamálum ábúenda í Svæði
Tekið fyrir erindi frá ábúendum í Svæði, Magnúsi Á. Magnýssyni og Heiðu Hringsdóttur, bréf dagsett þann 1. september 2015, þar sem þau fara þess á leit við Dalvíkurbyggð að sveitarfélagið lagi heimreiðina að bænum. Umhverfisráð þakka Heiðu og Magnúsi innsent erindi og felur sviðsstjóra að gera kostnaðaráætlun fyrir verkið. Ráðið sér þó ekki að hægt verði að verða við þessu erindi við gerð fjárhagsáætlunar 2016, en gerir sér grein fyrir að verkefnið er þarft á næstu 2-3 árum.
17.7 Fjárhagsáætlun 2016; Samningur við Náttúrusetrið á Húsabakka
Til umræðu endurnýjun á samkomulagi við Náttúrusetrið á Húsabakka. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að endurskoða samkomulagið við Náttúrusetrið fyrir 31. maí 2016 með framlengingu í huga. Ráðið óskar einnig eftir greinagerð frá Náttúrusetrinu um ráðstöfun styrksins 2015.
17.8 Gjaldskrár umhverfis og tæknisvið 2016
Gjaldskrár umhverfis- og tæknisviðs 2016. Tillaga sviðsstjóra um hækkun gjaldskráa umhverfis- og tæknisviðs samkvæmt þeim vísitölum sem viðkomandi gjaldskrár eru tengdar við samþykkt. Þær gjaldskrár sem ekki eru tengdar vísitölu hækka um 3 %.
Gjaldþátttaka íbúa er áfram 80% af kostnaði við almenna sorphirðu og gjald vegna dýrahræja hækkað úr 70% í 80% af kostnaði. Þar sem hækkun þessarar gjaldskrár er umfram hækkun vísitölu vill ráðið benda á að við gerð samnings um sorphirðu í Dalvíkurbyggð 1. september 2015 var þjónusta á gámasvæði aukin til muna, móttöku sorps frá sumarhúsum bætt við, og þjónusta við dreifbýli bætt. Ráðið vísar gjaldskrám sviðsins til staðfestingar í byggðarráði.
17.9 Starfs- og fjárhagsáætlun umhverfis- og tæknisviðs 2016
Til umræðu starfs-og fjárhagsáætlun 2016, ásamt framkvæmdaráætlun fyrir 2016. Umhverfiráð hefur farið yfir framkvæmdaráætlun 2016, starfs- og fjárhagsáætlun 2016 og gerir ekki athugasemdir við framlögð gögn.
17.10 Fundargerðir 2015
Til kynningar fundargerðir frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra frá 15. apríl, 6. maí, 24. júní og 2. september 2015. Ráðið hefur kynnt sér fundagerðirnar og gerir ekki athugasemdir. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
18.
Umhverfisráð - 269, frá 25.09.2015.
Málsnúmer 1509017F
18.1 Heimsókn í hausaþurrkun Samherja Dalvík.
Heimsókn í hausaþurrkun Samherja Dalvík . Forsvarmenn fyrirtækisins fóru yfir þurrkunarferlið og ráðinu voru kynntar þær fyriráætlanir fyrirtækisins um mengunarvarnarbúnað sem stefnt er á að settur verði upp fyrri hluta árs 2016.
Umhverfisráð þakkar Samherja fyrir góðar móttökur og fagnar áformum fyrirtækisins í loftmengunarvörnum.
18.2 Brunavarnaráætlun 2015
Til afgreiðslu lokaútgáfa af Brunavarnaráætlun Dalvíkurbyggðar 2015. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Niðurstaða Til máls tók:
Þórhalla Karlsdóttir.
18.3 Móttaka sorps á gámasvæði
Sviðsstjóri leggur fram tillögur að breytingum á gámasvæði og gámavelli austan svæðisins. Ráðið felur sviðsstjóra að útfæra hugmyndina betur og einnig að fá álit Friðlandsnefndarinnar þar sem umrætt svæði er að hluta innan Friðlandsins. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
19.
Umhverfisráð - 270, frá 02.10.2015.
Málsnúmer 1509018F
19.1 Ræsi í Brimnesá
Til umræðu framkvæmd við ræsi yfir Brimnesá og fjármögnun verkefnisins. Umhverfisráð leggur til að kr. 3.100.000 verði fluttar af 32-200-11900 til kaupa á ræsisrörum í verkefnið. Áætlað er að hafist verði handa við verkefnið snemma árs 2016.
19.2 Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026, 101. mál.
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um landsskipulagsstefnu 2015-2026. Umhverfiráð telur ekki sérstaka ástæðu til að gera athugasemdir við landsskipulagsstefnuna.
19.3 Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðgarð á miðhálendinu, 10. mál
Til umsagnar tillögu til þingsályktunar um þjóðgarð á miðhálendinu. Umhverfiráð telur ekki sérstaka ástæðu til að gera athugasemdir við þingsályktunina.
19.4 Samningur um sorphirðu 2015
Til kynningar undirritaður sorphirðusamningur við Gámaþjónustu Norðurlands. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við samninginn.
19.6 Eigendastefna fyrir þjóðlendur, verkefnalýsing
Til kynningar verkefnalýsing frá Forsætisráðuneytinu vegna eigendalýsingar fyrir þjóðlendur. Umhverfiráð telur ekki sérstaka ástæðu til að gera athugasemdir við verkefnislýsinguna.
19.7 Brunavarnaráætlun 2015
Til staðfestingar brunavarnaráætlun fyrir Dalvíkurbyggð Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við áætlunina.
19.8 Móttaka sorps á gámasvæði
Til umræðu breytingar á gámasvæði og gámastæðum austan svæðisins. Umhverfisráð leggur til að kr. 1.100.000 verði fluttar af 32-200-11900.
19.9 Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Til kynningar deiliskipulag ásamt greinargerð vegna deiliskipulags Dalvíkurhafnar. Umhverfisráð hefur kynnt sér drögin og bendir á að lóðarmörk Ránarbrautar 4b að austan verði samsíða byggingarreit Ránarbrautar 2b. Ráðið óskar eftir að settur verði inn byggingarreitur á lóð fyrir bílastæði og þjónustu fyrir ferju. Ráðið gerir athugasemdir við mörk skipulagssvæðisins til austurs og leggur til að reitir 1.18, 1.19 og 1.20 verði felldir út ásamt lóð nr. 18 á reit 1.21.
Ráðið bendir einnig á að mörk hafnarsvæðisins vantar á uppdráttinn.

19.10 Gjaldskrár umhverfis og tæknisvið 2016
Til endurskoðunar tillaga að gjaldskrá sorphirðu Ráðið samþykkir að gjaldskrá fyrir sorphirðu 2016 þar sem lagt er til að sorphirðugjald verði kr 34.638 sem er um 8% hækkun frá fyrra ári. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
20.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 38, frá 16.09.2015.
Málsnúmer 1509012F
20.1 Fjárhags- og starfsáætlun 2016
Sviðsstjóri kynnti fyrir ráðsmönnum greiningu á tekjum Hafnasjóðs 2014 og 2015 eftir mánuðum og byggist tekjuáætlun fyrir framlagðri fjárhagsáætlun á henni. Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir 2016. Stefnt er að sér fundi þar sem framkvæmdir verða ákveðnar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast ekki afgreiðslu.
21.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 39, frá 23.09.2015.
Málsnúmer 1509016F
21.1 Fjárhags- og starfsáætlun 2016
Á undanförnum fundum hefur ráðið verið að fjalla um starfs- og fjárhagsáælun 2016 fyrir þá málaflokka sem eru á forræði ráðsins. Í starfsáætluninni er farið yfir ýmsa þætti starfsemi þeirra stofnanna sem hún tekur til og gefur greinagóða mynd að því gert hefur verið og fyrirhugað er að gera á næsta ári.
Allar stofnanirnar ná að halda ramma nema Hitaveita Dalvíkur, en henni hefur verið falið að standa undir kostnaði vegna gagnaveitu í dreifbýli sveitarfélagsins. Ráðið beinir því til sveitarstjórnar að taka tillit til þess þegar að afgreiðslu fjárhagsáætlunar Hitaveitu Dalvíkur kemur.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagað starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2016.
21.2 Dalvíkurhöfn, dýpkun 2015.
Á 746. fundi byggðarráðs var hafnað erindi þar sem óskað var eftir viðauka vegna dýpkun Dalvíkurhafnar. Í bókun byggðarráðs kemur fram að óheimilt sé að óska eftir viðauka sé kostnaðurinn þegar til fallinn og er vísað til 63. gr. sveitarstjórnarlaga 2. mgr.
Ennfremur óskar byggðaráð eftir að fá nýtt erindi vegna þessa.
Sviðstjóra er falið að svara erindinu í samæmi við umræður á fundinum.
21.3 Vegna fjárhagsáætlunargerðar 2016 - fasteignagjöld
Á 37. fundi veitu- og hafnaráðs var tekið fyrir erindi sem vísað var til ráðsins frá 744. fundi byggðarráðs. Á fundinum kynntu ráðsmenn sér erindið og var formlegri afgreiðslu erindisins frestað. Byggðarráð hefur ákveðið að fá KPMG til að framkvæma úttekt á tekjum Dalvíkurbyggðar og þeirri þjónustu sem veitt er í sveitarfélaginu í samanburði við önnur sveitafélög. Að framansögðu þá frestar veitu- og hafnaráð afgreiðslu erindisins þangað til ráðið hefur kynnt sér þann samanburð. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
22.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 40, 21.10.2015.
Málsnúmer 1510012F
22.1 Sérstakt strandveiðigjald hafna
Með bréfi frá Fiskistofu frá 8. október 2015 kemur fram sundurliðun á þeirri fjárhæð sem kemur í hlut Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar vegna "Sérstaks strandveiðigjaldi hafna".

Dalvíkurhöfn kr. 555.931,-
Hauganeshöfn kr. 23.146,-
Lagt fram til kynningar.
22.2 Grímseyjarferja, aðstaða við Dalvíkurhöfn.
Með rafbréfi sem barst 9. október 2015 kemur fram að Vegagerð ríkisins er tilbúin að koma að framkvæmd á gerð bílastæða vegna Grímeyjarferju að fjárhæð kr. 1 m.kr. framlagi. Lagt fram til kynningar.
22.3 Aðstöðuhús fyrir Hríseyjarferju á Árskógssandi.
Með rafpósti, sem dagsettur er 9. október 2015, fylgdi minnisblað þar sem farið er yfir þá kosti sem til greina koma í allítarlegu máli. Veitu- og hafnaráð mælir með því að leið b verði farin, en hún er tilgreind á framlögðu minnisblaði frá Vegagerð ríkisins sem dagsett er 7. október 2015.
22.4 Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Fundargerð 377. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Haldinn 21. september 2015. Lögð fram til kynningar.
22.5 Drög að breytingu á lögum um vatnsveitur
Nú hafa verið birt til kynningar og umsagnar, drög að lagafrumvarpi um breytingar á lögum um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004.

Tilefni breytinganna eru nýlega fallnir dómar Hæstaréttar (mál nr. 396/2013 og 397/2013) þar sem fram kom þrengri túlkun á skyldu húseigenda til greiðslu vatnsgjalds en vatnsveitur sveitarfélaganna hafa almennt hingað til byggt gjaldtöku sína á.
Í framhaldi af úrskurðum og dómum um þau mál, þá sendi Samorka ásamt Sambandi íslenskra sveitarfélaga erindi til innanríkisráðherra þar sem kallað var eftir nauðsynlegum lagabreytingum. Þá fór af stað samráðsferli í óformlegum starfshópi, þar sem ráðuneytið hefur unnið að frumvarpi þessu, með þátttöku fulltrúa Samorku, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Orkuveitu Reykjavíkur.
Lagt fram til kynningar.
22.6 Reglur um staðfestingu á gjaldskrám hitaveitna.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur tilkynnt Samorku að búið sé að skrifa undir nýjar reglur um staðfestingu á gjaldskrám hitaveitna, og senda þær til birtingar í Stjórnartíðindum. Reglurnar munu taka gildi við þá birtingu, væntanlega í lok október.

Forsaga málsins er sú að undanfarið hafa ný lög um starfsemi hitaveitna nokkrum sinnum verið á dagskrá hjá iðnaðarráðherra, en ráðuneytið hefur talið nauðsynlegt að auka formfestu við staðfestingu breytinga á gjaldskrám hitaveitna. Samorka hefur á hinn bóginn haldið því fram að ekki sé ástæða til að setja ný lög um hitaveitur, og að ágæt sátt ríki um núverandi fyrirkomulag. Þau drög að nýjum hitaveitulögum sem fram hafa komið hafa iðulega falið í sér stóraukið eftirlit og tilheyrandi gjaldtöku, að okkar mati af litlu tilefni.

Á síðasta ári varð það svo sameiginleg niðurstaða stjórnar Samorku og iðnaðar- og viðskiptaráðherra að í stað þess skyldi unninn einskonar gátlisti um gagnaskil hitaveitna. Í framhaldi af því var settur af stað starfshópur ráðuneytisins, Samorku og Orkustofnunar, sem unnið hefur að málinu síðan. Niðurstaðan úr þessari vinnu eru þær reglur sem nú hafa verið staðfestar.

Þess má geta að fagráð hitaveitna í Samorku hefur á öllum stigum málsins fjallað um það og verið með í ráðum. Auk þess voru reglurnar sendar til umsagnar til allra hitaveitna í Samorku.
Lagt fram til kynningar.
22.7 Ósk um að frárennslisgjöld verði felld niður
Erindi hefur borist frá Elíasi Þór Höskuldssyni þar sem hann óskar eftir því að rotþróargjald verði felt niður fyrir árin 2014 og 2015. Fram kemur í máli hans að rotþróin og lagnir séu hans eign. Sviðsstjóra falið að ræða við Elías Þór um erindið.
22.8 Viljayfirlýsing um vatnsaflvirkjun í Brimnesá.
Á 35. fundi veitu- og hafnaráðs þann 19. ágúst 2015 var fjallað um ofangreint mál þar sem fram kom eftirfarandi: "Á fund sveitarstjóra kom Garðar Lárusson, frá Íslenskri Vatnsorku ehf, hann kynnti fyrirtækið áhuga þess að koma að byggingu vatnsaflsvirkjunar í Brimnesá.
Fyrir fundinum liggja drög að viljayfirlýsingu um framangreinda framkvæmd."
Afgreiðslu málsins var frestað.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað og sveitarstjórn feli umhverfisráði að huga að auðlindastefnu fyrir Dalvíkurbyggð. Niðurstaða Til máls tóku:
Guðmundur St. Jónsson.
Bjarni Th. Bjarnason.
22.9 Viljayfirlýsing um samstarf.
Á 35. fundi veitu- og hafnaráðs þann 19. ágúst 2015 var fjallað um ofangreint mál þar sem fram kom eftirfarandi:
"Bjarni Th. átti fund með fulltrúum EAB á skrifstofu Fallorku þann 12.júní 2015. Fundur haldinn af tilstuðlan Andra Teitssonar frmkv.stj. Fallorku sem skrifaði nýverið undir viljayfirlýsingu á milli Fallorku og EAB á aðalfundi AFE þann 20.maí 2015. Fulltrúar EAB sendu drög að viljayfirlýsingu til Dalvíkurbyggðar í framhaldinu til skoðunar."
Veitu- og hafnaráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að erindinu verði hafnað og sveitarstjórn feli umhverfisráði að huga að auðlindastefnu fyrir Dalvíkurbyggð. Niðurstaða Til máls tóku:
Guðmundur St. Jónsson.
Bjarni Th. Bjarnason.


Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
23.
Frá stjórn Dalbæjar; Fundargerðir stjórnar frá 21.09.2015 og 19.10.2015.
Málsnúmer 201502082
Teknar fyrir fundargerðir stjórnar Dalbæjar frá 21. september 2015 og frá 19. október 2015.
Lagt fram til kynningar.

Enginn tók til máls um fundargerðinar og ekkert þarfnast afgreiðslu.
24.
Fjárhagsáætlun 2015; Heildarviðauki II.
Málsnúmer 201510082
Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri, sem gerði grein fyrir helstu niðurstöðum heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2015.Helstu niðurstöður:Áætluð rekstrarniðurstaða aðalsjóðs kr. 76.108.000 tap, þar af er framlag til Félagslegra íbúða áætlað kr. 36.041.000.Áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta kr. 24.299.000 tap.Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B- hluta kr. 61.269.000 rekstrarafgangur.Áætluð lántaka samstæðu A- og B hluta, (Eignasjóður) kr. 40.000.000.Handbært fé frá rekstri áætlað kr. 218.221.000 fyrir samstæðu A- og B- hluta.Áætlaðar fjárfestingar samstæðu A- og B- hluta kr. 174.573.000.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum heildarviðauka II við fjárhagsáætlun 2015.
26.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2016. Síðari umræða.
Málsnúmer 201509070
Á 272. fundi sveitarstjórnar þann 15. september 2015 var tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2016 tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða með 7 atkvæðum að vísa gjaldskránni til síðari umræðu í sveitarstjórn.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2016 eins og hún liggur fyrir.
27.
Frá Sunnevu Halldórsdóttur; Ósk um lausn frá störfum úr Ungmennaráði.
Málsnúmer 201510047
Tekinn fyrir rafpóstur frá forstöðumanni Félagsmiðstöðvar, Viktori Má Jónassyni, dagsettur þann 23. september 2015, þar sem fram kemur að Sunneva Halldórsdóttir hefur óskað lausnar frá störfum í Ungmennaráði þar sem hún stundar nú nám í Reykjavík.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Sunnevu Halldórsdóttur lausn frá störfum í Ungmennaráði og þakkar hennir störf í þágu sveitarfélagsins.
28.
Frá Guðnýju Rut Sverrisdóttur; Beiðni um lausn frá störfum.
Málsnúmer 201509145
Tekið fyrir erindi frá Guðnýju Rut Sverrisdóttur, bréf dagsett þann 22. september 2015, þar sem hún óskar eftir lausn frá störfum sem aðalmaður í stjórn Dalbæjar, formaður fræðslusjóðs og sem aðalmaður í landbúnaðaráði.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Guðnýju Rut Sverrisdóttur lausn frá störfum og þakkar henni störf í þágu sveitarfélagsins.
29.
Kosningar í nefndir og ráð skv. 46. gr. Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar með síðari breytingum.
Málsnúmer 201510095
Þórhalla Karlsdóttur vék af fundi undir þessum lið kl. 17:13a) Formaður fræðsluráðs í stað Þórhöllu Karlsdóttur.Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Lilja Björk Ólafsdóttir, Hringtúni 38, kt. 190862-3489.b) Aðalmaður / Varaformaður fræðsluráðs.Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Steinunn Jóhannsdóttir, Dalbraut 12, kt. 110166-5249c) Varamaður á aðalfund Eyþings í stað Þórhöllu Karlsdóttur.Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Íris Hauksdóttir.d) Varamaður í sveitarstjórn í stað Þórhöllu Karlsdóttur.Til máls tók Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Sölvi H. Hjaltason, Hreiðarsstöðum, kt. 200452-3139e) Aðalmaður í Ungmennaráð í stað Sunnevu Halldórsdóttur.Þórhalla kom á fundinn að nýju kl.17:16.Til máls tók forseti, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Björgvin Páll Hauksson, Mímisvegur 30, kt. 131098-3089.f) Varamaður í Ungmennaráð í stað Björgvins Páls Haukssonar.Til máls tók forseti, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Birna Kristín Kristbjörnsdóttir, Smáravegur 4, kt. 240600-3660.g) Aðalmaður í stjórn Dalbæjar í stað Guðnýjar Rutar Sverrisdóttur.Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Lilja B. Ólafsdóttir.h) Formaður Fræðslusjóðs í stað Guðnýjar Rutar Sverrisdóttur.Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Valdemar Þór Viðarsson.i) Aðalmaður í landbúnaðarráð í stað Guðnýjar Rutar Sverrisdóttur.Til máls tók Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Guðrún Anna Óskarsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Lilja Björk réttkjörin.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Steinunn réttkjörin.
c) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Íris réttkjörin.
d) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Sölvi réttkjörinn.
e) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Björgvin Páll réttkjörinn.
f) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Birna Kristín réttkjörin.
g) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Lilja Björk réttkjörin.
h) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Valdemar Þór réttkjörinn.
i) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Guðrún Anna réttkjörin.


30.
Frá Rótum bs.; Samþykktir og þjónustusamningur.
Málsnúmer 201510081
Þórhalla Karlsdóttir vék af fundi undir þessum lið kl. 17:20.Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason.Stjórn Róta bs. fundaði þann 20.október 2015. Á fundinum var verkefnisstjóra falið að senda samþykktir fyrir byggðasamlagið Rætur bs. og þjónustusamning sveitafélaga um málefni fatlaðs fólks til staðfestingar sveitarstjórna. Óskað er eftir því að sveitarfélögin afgreiði þetta eigi síðar en 20.nóvember n.k. og sendi verkefnisstjóra Róta bs. niðurstöðu afgreiðslu. Til upplýsinga er forsagan sú að innanríkisráðuneyti á samkvæmt lögum að staðfesta samþykktirnar. Frá stofnun Róta bs. í janúar 2014 hafa samþykktirnar verið til umfjöllunar hjá ráðuneytinu. Ráðuneytið sendi tölvupóst 12.okt. sl. þar sem fram kom tillaga að minniháttar orðalagsbreytingu og aðeins einni efnisbreytingu. Staðfestingarferillinn er með þeim hætti að sveitarfélögin þurfa nú að taka samþykktirnar og þjónustusamning fyrir á ný og staðfesta og þar til bær aðili frá öllum sveitarfélögum þarf að staðfesta með undirskrift samþykki sitt. Þegar því er lokið fer frumrit til ráðuneytis til staðfestingar og ráðuneytið sendir hverju sveitarfélagi bréf þar sem tilkynnt er um staðfestinguna og að samþykktin verði send til birtingar í Stjórnartíðindum.Ef þetta gengur allt eftir eiga aðildarsveitarfélög Róta bs. staðfestar samþykktir sem er mjög mikilvægt ekki og ekki síst þar sem framundan er breyting á samstarfi sveitarafélaga eins og kunnugt er.Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi:Rafpóstur frá Grétu Sjöfn Guðmundsdóttur fyrir hönd stjórnar, dagsettur þann 20. október 2015.Fundargerð 23. fundar stjórnar Róta bs. frá 20. október 2015.Samþykktir fyrir byggðasamlagið Rætur bs.Þjónustusamningur sveitarfélaga um málefni fatlaðs fólks með fylgiskjölum.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum fyrirliggjandi Samþykktir fyrir byggðasamlagið Rætur bs. og Þjónustusamning sveitarfélag um málefni fatlaðs fólks, Þórhalla Karlsdóttir tók ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.
31.
Sveitarstjórn - 272, frá 15.09.2015. Til kynningar.
Málsnúmer 1509011F
Þórhalla Karlsdóttir kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 17:24.
Til kynningar.