Fara í efni

Sveitarstjórn

271. fundur
16. júní 2015 kl. 08:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Kristján Hjartarson Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Heiða Hilmarsdóttir boðar forföll og varamaður Þórhalla Karlsdóttir mætir í hennar stað.
Valdís Guðbrandsdóttir boðar forföll og varamaður hennar Kristján E Hjartarson mætir í hennar stað.

Í upphafi fundar óskaði varaforseti, Valdemar Þór Viðarsson, eftir heimild sveitarstjórnar að taka erindi frá Akureyrarbæ á dagskrá er varðar ályktun um Aflið á Akureyri; málsnúmer 201506093.
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 735, frá 21.05.2015.
Málsnúmer 1505009F
1.2 Frá Málræktarsjóði; Aðalfundur Málræktarsjóðs 2015.
Tekið fyrir bréf frá Málræktarsjóði, dagsett þann 30. apríl 2015, þar sem boðað er til aðalfundar Málræktarsjóðs föstudaginn 12. júní kl. 15:30 á Hótel Sögu. Dalvíkurbyggð hefur rétt til að tilnefna einn mann í fulltrúaráðið, en átti ekki fulltrúa á síðasta aðalfundi. Tilnefningar fyrir næsta aðalfund þurfa að berast eigi síðar en 22. maí n.k. Lagt fram til kynningar.
1.3 Frá LSR og LH; Ársfundir LSR og LH 2015.
Tekinn fyrir rafpóstur frá LSR, dagsettur þann 6. maí 2015, þar sem boðað er til ársfundar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga fimmtudaginn 21. maí í húsnæði sjóðanna að Engjateigi 11 í Reykjavík og hefst fundurinn kl. 15:00. Launagreiðendur sem greiða iðgjald fyrir starfsmenn sína til LSR og LH eiga rétt á að senda einn eða fleiri fulltrúa á ársfundinn. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á fundinum. Lagt fram til kynningar.
1.4 Frá Markaðsstofu Norðurlands; Aðalfundarboð.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Markaðsstofu Norðurlands, dagsettur þann 5. maí 2015, þar sem boðað er til aðalfundar Markaðsstofu Norðurlands miðvikudaginn 20. maí n.k. kl. 13 - 15. Upplýst var á fundinum að búið er að færa aðalfundinn til föstudagsins 22. maí 2015. Þeir sem hafa hug á að bjóða sig fram í stjórn eða varastjórn þurfa að láta vita fyrir aðalfund og um mætingu á fundinn. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að Margrét Víkingsdóttir, upplýsingafulltrúi, sæki fundinn og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.
1.5 Frá BHS; Aðalfundarboð 2015.
Tekið fyrir bréf frá BHS þar sem boðað er til aðalfundar fimmtudaginn 28. maí n.k. kl. 20:00 á kaffistofunni að Fossbrún 2. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja fundinn og fara með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.
Byggðaráð ítrekar vilja sveitarfélagsins hvað varðar sölu á eignarhluta sínum í félaginu.
Niðurstaða Upplýst var á fundinum að sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs sótti fundinn í stað sveitarstjóra sem sótti fund á sama tíma í Menningarhúsinu Tjarnarborg um málefni framhaldsskólans við Tröllaskaga.
1.6 Frá Greiðri leið ehf.; Aðalfundur Greiðrar leiðar 2015.
Tekinn fyrir rafpóstur frá framkvæmdastjóra Eyþings og stjórnarformanni Greiðrar leiðar ehf, dagsettur þann 15. maí 2015, þar sem með bréfi er boðað til aðalfundar Greiðrar leiðar ehf. föstudaginn 29. maí n.k. að Hafnarstræti 91 á Akureyri og hefst fundurinn kl. 11:00. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn og fari með umboð Dalvíkurbyggðar á fundinum.
1.7 Frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til laga um skipulags- og mannvirkjamál á Reykjavíkurflugvelli, 361. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis dagsettur þann 6. maí 2015 þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Aþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um skipulags- og mannvirkjamál á Reykavíkurflugvelli, 361. mál. Óskað er umsagnar eigi síðar en 12. maí s.l. Lagt fram til kynningar.
1.8 Frá nefndasviði Alþingis; Frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, 703. mál.
Tekinn fyrir rafpóstur frá nefndasviði Alþingis, dagsettur þann 4. maí 2015, þar sem fram kemur að allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskar umsagnar um frumvarp til laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, 703. mál. Óskað er umsagnar eigi síðar en 15. maí n.k. Lagt fram til kynningar.
1.9 Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Stöðumat stjórnenda janúar - mars 2015.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs fór yfir og kynnti stöðumat stjórnenda hvað varðar stöðu rekstrar í samanburði við fjárhagsáætlun janúar - mars 2015.
Einnig var kynnt rekstraryfirlit janúar - mars 2015 og staða málaflokka og deilda í samanburði við fjárhagáætlun 2015.

Með stöðumati leikskólastjóra Kátakots og Krílakots fylgdi bréf dagsett þann 29. apríl 2015 þar sem upplýst er um kostnað vegna veikindaleyfa sem ekki var gert ráð fyrir í áætlun, alls kr. 1.184.000. Fram kemur að ekki er metin ástæða til að óska eftir viðauka við fjárhagsáætlun að sinni en staðan verður endurmetin við næsta stöðumat og þá skoðað hvort þörf sé á beiðni um aukafjárveitingu.

Staða málaflokka og deilda er almennt metin í lagt af stjórnendum með þeim undantekningum sem fram koma í málum 10, 11, og 12 á dagskrá sem og ofangreind ábending frá leikskólastjóra.
Lagt fram til kynningar.
1.10 Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Snjómokstur 2015; beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, dagsett þann 12. maí 2015, þar sem hann vísar í stöðumat janúar- mars 2015 þar sem fram kemur að allir þeir fjármunir sem gert var ráð fyrir vegna snjómoksturs 2015 eru búnir. Sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs óskar því eftir kr. 12.000.000 viðauka við fjárhagsáætlun 2015 á lið 10-60-4948.

Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti á fundinum að í fjárhagsáætlun 2015 er gert ráð fyrir kr. 14.888.0000 en þegar búið að bókað kr. 18.453.404 miðað við 21. maí 2015.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka að upphæð kr. 8.400.000. Vísað á lið 10-60-4948 sem viðauki við fjárhagsáætlun 2015 og til lækkunar á handbært fé.
1.11 Frá sviðsstjóra félagsmálasviðs; Beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra félagsmálasviðs, dagsett þann 12. maí 2015, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna framfærslu og vegna launa fyrir fötluð ungmenni sem eru að vinna í sumar.

Vegna sumarvinnu fatlaðra framhaldsskólabarna, kr. 952.603.
Vegna fjárhagsaðstoðar, kr. 5.000.000. Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs upplýsti að heimild vegna deildar 02-11 er kr. 7.798.200 en búið er að bóka kr. 7.051.259 miðað við 21. maí 2015.
Alls beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015; kr. 5.952.603.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar beiðnir um viðauka við fjárhagsáætlun 2015 og að þessari hækkun sé mætt með lækkun á handbæru fé.
1.12 Frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs; Bakkavarnir við Svarfaðardalsá, ósk um viðauka.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs, bréf dagsett þann 19. maí 2015, þar sem óskað er eftir auknu framlagi sem nemur kr. 1.000.000 vegna bakkavarna við Svarfaðardalsá. Fram kemur að eftir að framkvæmdir hófust við brunnsvæði Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar í Svarfaðardal kom í ljós að verkið yrði umfangsmeira en gert var ráð fyrir. Sviðsstjóri leggur til að fært verði fjármagn frá lið í núverandi framkvæmdaáætlun sem nefndur er "Endurnýja lagnafyrirkomulag í kjallara á Bakkaeyrum". Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka og færslu um kr. 1.000.000 á milli verkefna.
1.13 Frá sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs; Tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019
Með fundarboði byggðaráðs fylgdi tillaga að tímaramma vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2016-2019. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum tillöguna eins og hún liggur fyrir.
1.14 Frá íþrótta- og æskulýðsráði; Skýrsla vinnuhóps um uppbyggingu vallarsvæðis UMFS.
Á 68. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 5. maí 2015 var eftirfarandi bókað:
"2. 201504122 - Skýrsla vinnuhóps um uppbyggingu vallarsvæðis UMFS
Skýrsla vinnuhóps um uppbyggingu á vallarsvæði UMFS ásamt þriggja ára áætlun um endurbætur og viðhald var lögð fram. Í vinnuhópnum voru Björn Friðþjófsson, Ingibjörg María Ingvadóttir,Jónína Guðrún Jónsdóttir, Kristinn Ingi Valsson, Valdís Guðbrandsdóttir og Gísli Rúnar Gylfason.

Í skýrslunni er lagt til að UMFS fái kr. 1.000.000 til viðbótar við þær þrjár milljónir sem þegar hafa verið samþykktar aukalega í viðhald vallarins árið 2015. Í skýrslunni er einnig lagt til að fjármagn næstu tveggja ára verði um 7 milljónir á ári og í framhaldinu kr. 5.000.000. á ári.

Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar fyrir skýrsluna og óskar eftir við byggðaráð aukafjárveitingu að upphæð kr. 1.000.00 í viðhald vallar árið 2015. Fjárþörf árin 2016 og 2017 er metin að upphæð kr. 7.000.000 á ári og 2018 og 2019 kr. 5.000.000 á ári er vísað til endurnýjunar á samningi við félagið og er því óskað eftir að byggðaráð taki tillit til þess við rammaúthlutun."

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2015 styrk til UMFS vegna umhirðu á knattspyrnuvelli að upphæð kr. 1.000.000. Vísað á deild 06-80.
1.15 Frá stjórnsýslunefnd; Hverfisnefndir í Dalvíkurbyggð.
Á 726. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað:
"201501155 - Frá 260. fundi umhverfisráðs; Hverfisnefndir í Dalvíkurbyggð, kl. 13:35.

Undir þessum lið komu á fund byggðarráðs kl. 13:53 Valur Þór Hilmarsson, umhverfisstjóri, og Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs.

Á 260. fundi umhverfisráðs þann 6. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað:
"Umhverfisstjóri kynnir hugmynd að hverfanefndum í Dalvíkurbyggð.
Hlutverk hverfisnefnda er að vera vettvangur íbúanna til að hafa áhrif á næsta umhverfi sitt.

Umhverfisráði lýst vel á hugmyndina og vísar erindinu til afgreiðslu byggðarráðs og leggur einnig til að umhverfisstjóri kynni hana fyrir ráðinu."

Með fundarboðinu fylgdi drög að samþykkt fyrir hverfisnefndir í Dalvíkurbyggð.

Til umfjöllunar ofangreint.

Valur Þór og Börkur viku af fundi kl. 14:13.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til umræðu í framkvæmdastjórn og stjórnsýslunefnd."

Fundur stjórnsýslunefndar var haldinn 13. maí 2015.
Niðurstaða stjórnsýslunefndar er að leggja til við byggðaráð að setja ekki á laggirnar hverfisnefndir þar sem um mikla umsýslu og kostnað væri að ræða. Menn sjá heldur ekki þörfina í ekki stærra sveitarfélagi þar sem íbúar hafa gott aðgengi að kjörnum fulltrúum og starfsmönnum sveitarfélagsins til að koma hugðarefnum sínum á framfæri.
Lagt er til að haldnir verði a.m.k. einu sinni á ári opnir stjórnsýslunefndarfundir; 1 á Árskógsströnd, 1 í Svarfaðardal/Skíðadal og 1 á Dalvík.


Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka undir niðurstöður af stjórnsýslunefndarfundi.
1.16 Frá stjórnsýslunefnd; Akstur barna í félagsmiðstöð er búa utan Dalvíkur.
Á 726. fundi byggðaráðs þann 12. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað:
"201410298 - Frá 65. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs; Akstur barna í félagsmiðstöð er búa utan Dalvíkur.

Á 65. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. febrúar 2015 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið sat Viktor Már Jónasson forstöðumaður Víkurrastar.
Á 63. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs gerði íþrótta- og æskulýðsfulltrúi grein fyrir fundi sam haldinn var með foreldrum barna er búa utan Dalvíkur. Afgreiðslu var frestað.

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi telur ekki vera svigrúm innan núverandi fjárhagsáætlunar til að geta sinnt akstri fyrir börn er búa utan Dalvíkur.

Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að gerð verði tilraun með akstur í 5 skipti nú í vor. Óskað er eftir aukafjárveitingu sem nemur 200.000 kr. og erindinu því vísað til Byggðaráðs.

Viktor Már Jónasson vék af fundi kl. 10:40. "

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta afgreiðslu og vísa ofangreindu til umfjöllunar í Stjórnsýslunefnd."

Fundur stjórnsýslunefndar var haldinn 13. maí 2015.

Niðurstaða stjórnsýslunefndar er að leggja til við byggðaráð að hafnað verði því að bjóða upp á akstur, hvort sem það er til reynslu eða framtíðar.
Aðalrökin sem komu fram að með því væri sett fordæmi fyrir því að sveitarfélagið kosti akstur í aðra tómstunda- og íþróttaiðkun ungmenna.
Lagt er til að skoðað verði hvort ekki sé hægt að bæta þessu við hvatagreiðslur í ÆskuRækt þannig að hægt verði að sækja um niðurgreiðslu á móti kostnaði foreldra vegna aksturs í félagsmiðstöð.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að taka undir með niðurstöðu stjórnsýslunefndar en þó þannig að byggðaráð hvetur til að farin verði sú leið að bjóða upp á hvatagreiðslur í gegnum ÆskuRækt, vísað til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa til úrvinnslu.
1.17 Frá stjórnsýslunefnd; vinnuhópur vegna fasteigna Eignasjóðs
Frestað.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 736. frá 28.05.2015.
Málsnúmer 1505012F
2.1 Húsabakki
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs kl. 13:00 Arnar Guðmundsson, formaður stjórnar Húsabakka ehf., Hjörleifur Hjartarson og Elín Gísladóttir, stjórnarmenn í Húsabakka ehf., og Auðunn Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri Húsabakka ehf.

Á 734. fundi byggðaráðs þann 7. maí 2015 var eftirfarandi bókað:
"Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Auðunn Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri Húsabakka ehf. og Hjörleifur Hjartarson, stjórnarmaður, kl. 9:05.

Á 729. fundi byggðaráðs þann 27. mars 2015 var eftirfarandi bókað:
"201408038 - Frá Húsabakka ehf; Fjárhagsáætlun 2015; ábendingar um viðhald.

Á 720. fundi byggðaráðs þann 11. febrúar 2014 var eftirfarandi samþykkt:
"Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum beiðni stjórnar Húsabakka ehf. um að draga til baka fyrri ákvörðun um uppsögn á leigusamningi á milli Dalvíkurbyggðar og Húsabakka ehf. Ný ákvörðun um framhald leigusamnings verði tekin eftir viðræður við stjórn Húsabakka ehf., í síðasta lagi 1. júní 2015.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að leita eftir viðræðum við forsvarsmenn Húsabakka ehf. og að sveitarstjóri leiði þær viðræður fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
Byggðarráð ítrekar fyrri bókun sína um vilja til að framlengja samning um Rima til 1. júní 2015 og verði hann tekinn til endurskoðunar í viðræðum um samninginn við Húsabakka.
Byggðarráð ítrekar afstöðu sína um vilja til að selja húsnæði Húsabakka."

Til umræðu ofangreint.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir forsvarsmönnum Húsabakka ehf. á fund byggðarráðs."

Til umræðu ofangreint.

Stefnt að funda næst um ofangreint fimmtudaginn 28.maí 2015.
Auðunn Bjarni og Hjörleifur viku af fundi kl. 09:40.

Lagt fram til kynningar.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að ganga frá málum hvað varðar leigusamning um Rima."

Forsvarsmenn Húsabakka ehf. lögðu fram minnisblað dagsett þann 27. maí 2015 frá aðalfundi Húsabakka ehf. varðandi ofangreind mál og hvernig stjórn og hluthafar sjá fyrir sér næstu skref.

Til umræðu ofangreint.

Arnar, Hjörleifur, Elín og Auðunn Bjarni viku af fundi kl. 13:33.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að setja upp minnisblað í samráði við framkvæmdastjóra Húsabakka ehf. um næstu skref fyrir næsta fund byggðaráðs.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fresta ákvörðun um framhald leigusamnings og ákvörðun um ný tímamörk verður tekin þegar ofangreint minnisblað liggur fyrir, en markmiðið var að ný ákvörðun lægi fyrir í síðasta lagi 1. júní n.k.
Niðurstaða Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu kl. 08:27.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs, Kristján E. Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Kristján kom inn á fundinn að nýju kl. 08:28.
2.2 Frá 67. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 21.04.2015; Samningar við íþróttafélög 2016-2019.
Undir þessum lið komu á fund byggðaráðs Kristinn Ingi Valsson, formaður íþrótta- og æskulýðsráðs, Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, og Hildur Ösp Gylfadóttir, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, kl. 13:25.

Á 67. fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 21. apríl 2015 var eftirfarandi bókað:
"Með fundarboði fylgdu gögn frá fundi formanns ráðsins og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa með forsvarsmönnum íþróttafélaga í sveitarfélaginu um samninga fyrir árin 2016-2019. Grunnur að reiknilíkani var kynntur og ræddur. Velt var upp ef forsendur breytast á samningstímanum eða ef samningurinn er ekki uppfylltur til hvaða aðgerða íþrótta- og æskulýðsráð getur gripið. Stefnt er að því að drög að samningum liggi fyrir á næsta fundi ráðsins. Íþrótta- og æskulýðsráð felur sviðsstjóra, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og formanni ráðsins að fara á fund byggðaráðs og kynna þá vinnu sem farið hefur fram."

Til umræðu ofangreint.

Kristinn Ingi,Gísli Rúnar og Hildur Ösp viku af fundi kl. 14:04.
Lagt fram til kynningar.
Byggðaráð þakkar fyrir góða vinnu varðandi reiknilíkanið.
2.3 Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Tilboð í viðbyggingu við Krílakot.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs, kl. 14:06.

Þriðjudaginn 26. maí s.l. kl. 11:00 voru opnuð tilboð í viðbyggingu Krílakots. Eitt tilboð barst í verkið frá Tréverki að upphæð kr. 198.200.282 með virðisaukaskatti.

Samkvæmt fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar er gert ráð fyrir kr. 88.200.000 árið 2015 vegna áfanga 1 og kr. 72.164.000 árið 2016 vegna áfanga 2, eða alls kr. 160.364.000.

Í nýrri kostnaðaráætlun AVH er verkið áætlað kr. 167.315.113 með vsk en þá vantar að gera ráð fyrir kostnaði vegna lýsingu kr. 1.500.000 og kostnaði við inntök, byggingarleyfi, gatnagerðargjöld og skipulagsgjald að upphæð kr. 5.364.000 en sá kostnaður var ekki inni kostnaðaráætlun AVH né hluti af tilboði Tréverks. Alls áætlaður kostnaður kr. 174.179.113.

Mismunar á upphæðum í fjárhagsáætlun og tilboði með kostnaði að upphæð kr. 5.364.000 er því kr. 43.200.282 eða 26,9% en 16,87% þegar tekið er tillit til nýrrar kostnaðaráætlunar.


Til umræðu ofangrient.

Börkur Þór vék af fundi kl. 14:19.
Afgreiðslu frestað og byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela byggingarnefnd viðbyggingar Krílakots að fara yfir ofangreint og koma með tillögu.
2.5 Ávöxtun á innistæðum Dalvíkurbyggðar; tillögur.
Heiða Hilmarsdóttir vék af fundi undir þessum lið til annarra starfa kl. 14:56.

Undir þessum lið vék sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs af fundi vegna vanhæfis kl. 15:00.

Á 723. fundi byggðaráðs þann 15. janúar 2015 var til umfjöllunar ávöxtun á innistæðum Dalvíkurbyggðar og á þeim fundi var sveitarstjóra og sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs falið að kanna hvað Dalvíkurbyggð stendur til boða hjá fjármálafyrirtækjum hvað varðar ávöxtun á innistæðum Dalvíkurbyggðar.

Leitað var eftir tillögum frá 7 fjármálafyrirtækjum á Eyjafjarðarsvæðinu með bréfi dagsettu þann 11. maí 2015 þar sem óskað var eftir tillögum í síðasta lagi 27. maí s.l. kl. 15:00. Svör bárust frá 6 aðilum og liggur fyrir samanburðarskrá á grundvelli þeirra svara sem bárust.


Til umræðu ofangreint.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóra falið að afla nánari upplýsinga á milli funda.
2.6 Frá Ferðafélagi Svarfdæla; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kom inn á fundinn að nýju undir þessum lið kl. 15:42.

Á 721. fundi byggðaráðs þann 18. desember 2014 var eftirfarandi bókað:
"3.
201410305 - Frá 21. fundi veitu- og hafnaráðs; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.

Á 21. fundi veitu- og hafnaráðs þann 3. desember s.l. var eftirfarandi bókað:

Þessu erindi var frestað á 20. fundi ráðsins.
Á 257. fundi Umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 7. nóvember sl., var tekið fyrir ofangreint erindi.Lagður fram til staðfestingar endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla. Á fundi umhverfisráðs var eftirfarandi fært til bókar. "Þar sem greiðslur vegna þessa styrkjar hafa verið greiddar af umhverfisverkefnum veitna undanfarin ár vísar umhverfisráð samningnum til veitu- og hafnaráðs."

Veitu- og hafnaráð hafnar erindinu og vísar því til byggðarráðs til afgreiðslu.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í framkvæmdastjórn.

Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir formlegu erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla um endurnýjun á samningi ásamt upplýsingum um forsendur á bak við endurnýjun.

Einnig óskar byggðarráð eftir upplýsingum um hlutverk og samþykktir Ferðafélags Svarfdæla."


Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá Atla Dagssyni fyrir hönd Ferðafélags Svarfdæla, dagsettur þann 20. maí 2015, þar sem fram kemur að Ferðafélag Svarfdæla óskar eftir endurnýjun á eldri samningi sem gerður var á milli Ferðafélagsins og Dalvíkurbyggðar. Ferðafélag Svarfdæla lítur svo á að í þessum samningi, sem kveður á um fjárframlag frá sveitarfélaginu, fari saman hagsmunir beggja aðila. Hagsmunir sveitarfélagsins eru þeir að bæta aðgengi að umhverfi og náttúru fyrir ferðafólk og íbúa sveitarfélagsins. Framlag Dalvíkurbyggðar til Ferðafélagsins mun svo að mestu leyti fara í frekari uppbyggingu sem svo eykur enn á fjölbreytni til útivistar. Með rafpóstinum fylgdu drög að samningi ásamt verkáætlun fyrir árið 2015. Varðandi "hlutverk og samþykktir Ferðafélags Svarfdæla" er vísað í lög félagsins sem eru meðfylgjandi en lögin voru samþykkt með breytingum árið 2011.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að óska eftir forsvarsmönnum Ferðafélagsins á fund byggðaráðs.
2.7 Frá leikhópnum Lottu; Styrkbeiðni og beiðni um sýningarhald
Tekinn fyrir rafpóstur frá Leikhópnum Lottu, dagsettur þann 19. maí 2015, þar sem A) óskað er eftir leyfi til að fá að sýna Litlu gulu hænuna á kirkjutúninu þann 8. ágúst kl. 17:00. B) Í öðru lagi er sótt um styrk vegna póstdreifingar og ferðakostnaðar að upphæð kr. 18.000. C) Í þriðja lagi er þess farið á leit að sýningin verði kynnt á vefsíðum sveitarfélagsins og miðlum sem sveitarfélagið sér sér fært að auglýsa hana á. Einnig eru vel þegnar allar ábendingar um bæjarblöð eða vefmiðla sem sérstaklegar eru ætlaðar svæðinu. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum:
a) að vísa beiðni um leyfi til sýningarhalds í kirkjubrekkunni til umhverfis- og tæknisviðs.
b) að hafna beiðni um styrk.
c) að vísa beiðni um kynningu á vefmiðlum Dalvíkurbyggðar til upplýsingafulltrúa.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu byggðaráðs hvað varðar 7. lið b).
2.10 Frá stjórnsýslunefnd; vinnuhópur vegna fasteigna Eignasjóðs
Frestað.
2.11 Frá Varasjóði húsnæðismála; Lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði
Tekið fyrir erindi frá Varasjóði húsnæðismála, dagsett þann 21. maí 2015, þar sem upplýst er um lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði þar sem sjóðurinn hefur ekki fjármuni til afgreiðslu umsókna um framlög. Í ljósi fjárhagslegrar stöðu Varasjóðs húsnæðismála ákvað ráðgjafarnefnd sjóðsins á fundi þann 20. apríl 2015 að hætta móttöku og afgreiðslu umsókna frá sveitarfélögum vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði frá og með 20. apríl 2015.

Fram kemur að frá stofnum Varasjóðs húsnæðismála hafa sjóðnum verið markaðir tekjustofnar samkvæmt samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Í september 2011 var gert samkomulag um verkefnaflutning milli ríkis og sveitarfélaga sem kvað á um að sveitarfélög fjármögnuðu að öllu leyti verkefni Varasjóðsins. Þetta samkomulag var í gildi fyrir árin 2012-2013 en rann úr gildi 31. desember 2014 og hefur ekki verið endurnýjað.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að óska eftir upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hvað á að gera til að tryggja þetta verkefni áfram.
2.12 Frá Sýslumanninum á Akureyri; Umsögn um leyfi v. Ektarétta.
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Húsavík, bréf dagsett þann 20. maí 2015, þar sem óskað er umsagnar sveitarstjórnar um umsókn um nýtt rekstrarleyfi frá Elvari Reykjalín, kt. 261254-7199, fyrir Ektaréttir ehf., kt. 461100-2950, Aðalgötu 2, 621. Dalvík til sölu veitingu veitinga og sölu áfengis að Aðalgötu 2. Sótt er um rekstrarleyfi / veitingastað í flokki II og nafn veitingarstaðar er Ektaréttir ehf. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við ofangreinda umsókn.
2.13 Frá Gásakaupstað ses.; Aðalfundarboð 2015.
Tekinn fyrir rafpóstur frá Gásakaupstað ses., dagsettur þann 26. maí 2015, þar sem boðað er til aðalfundar miðvikudaginn 3. júní 2015 kl. 15:00 í Zonta-salnum, Aðalstræti 54, Akureyri. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 737, frá 11.06.2015.
Málsnúmer 1506003F
3.2 Frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs; Dalvíkurhöfn, dýpkun 2015, beiðni um viðauka.
Sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs, Þorsteinn K. Björnsson, kom inn á fund byggðaráðs undir þessum lið kl. 08:51.

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs, dagsett þann 2. júní 2015, þar sem fram kemur að sótt er um kr. 5.000.000 í viðauka við fjárhagsáætlun 2015 vegna dýpkunar í Dalvíkurhöfn og breytingu á framkvæmdaáætlun 2015 þar sem frágangur á göngustígum samkvæmt deiliskipulag við Dalvíkurhöfn að fjárhæð kr. 2.500.000 verði fært undir liðinn dýpkun Dalvíkurhafnar, sbr. 30. fundur veitu- og hafnaráðs frá 27. maí 2015. Alls er því óskað eftir kr. 7.500.000 í þetta verkefni en einnig er upplýst að siglingasvið Vegagerðarinnar hefur veitt kt. 2.000.000 í verkefnið þannig að stefnt er að framkvæmdakostnaður verði kr. 9.500.000.

Til umræðu ofangreint.

Þorsteinn vék af fundi kl.08:59.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015 að upphæð kr. 5.000.000, vísað á málaflokk 42 og á móti til lækkunar á handbæru fé.
3.3 Frá Sparisjóði Norðurlands; Ávöxtun á innistæðum Dalvíkurbyggðar
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Jónas M. Pétursson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðurlands, kl. 9:08.


Til umræðu ávöxtun á innistæðum sem og staða mála Sparisjóðs Norðurlands, sbr. það sem hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarnar vikur og mánuði.

Jónas vék af fundi kl. 09:33.
Lagt fram til kynningar.
3.4 Frá Ferðafélagi Svarfdæla; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Undir þessum lið kom á fund byggðaráðs Magnús Á. Magnússon fyrir hönd Ferðafélags Svarfdæla, kl. 10:00.

Á 736. fundi byggðaráðs þann 28. maí 2015 var eftirfarandi bókað:
"Á 721. fundi byggðaráðs þann 18. desember 2014 var eftirfarandi bókað:
"3. 201410305 - Frá 21. fundi veitu- og hafnaráðs; Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Á 21. fundi veitu- og hafnaráðs þann 3. desember s.l. var eftirfarandi bókað: Þessu erindi var frestað á 20. fundi ráðsins. Á 257. fundi Umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 7. nóvember sl., var tekið fyrir ofangreint erindi.Lagður fram til staðfestingar endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla. Á fundi umhverfisráðs var eftirfarandi fært til bókar. "Þar sem greiðslur vegna þessa styrkjar hafa verið greiddar af umhverfisverkefnum veitna undanfarin ár vísar umhverfisráð samningnum til veitu- og hafnaráðs." Veitu- og hafnaráð hafnar erindinu og vísar því til byggðarráðs til afgreiðslu. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til umfjöllunar í framkvæmdastjórn. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að óska eftir formlegu erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla um endurnýjun á samningi ásamt upplýsingum um forsendur á bak við endurnýjun. Einnig óskar byggðarráð eftir upplýsingum um hlutverk og samþykktir Ferðafélags Svarfdæla." Með fundarboði byggðaráðs fylgdi rafpóstur frá Atla Dagssyni fyrir hönd Ferðafélags Svarfdæla, dagsettur þann 20. maí 2015, þar sem fram kemur að Ferðafélag Svarfdæla óskar eftir endurnýjun á eldri samningi sem gerður var á milli Ferðafélagsins og Dalvíkurbyggðar. Ferðafélag Svarfdæla lítur svo á að í þessum samningi, sem kveður á um fjárframlag frá sveitarfélaginu, fari saman hagsmunir beggja aðila. Hagsmunir sveitarfélagsins eru þeir að bæta aðgengi að umhverfi og náttúru fyrir ferðafólk og íbúa sveitarfélagsins. Framlag Dalvíkurbyggðar til Ferðafélagsins mun svo að mestu leyti fara í frekari uppbyggingu sem svo eykur enn á fjölbreytni til útivistar. Með rafpóstinum fylgdu drög að samningi ásamt verkáætlun fyrir árið 2015. Varðandi "hlutverk og samþykktir Ferðafélags Svarfdæla" er vísað í lög félagsins sem eru meðfylgjandi en lögin voru samþykkt með breytingum árið 2011.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að óska eftir forsvarsmönnum Ferðafélagsins á fund byggðaráðs. "

Til umræðu ofangreint.

Magnús vék af fundi kl. 10:41.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum viðauka við fjárhagsáætlun 2015 að upphæð kr. 500.000, vísað á málaflokk 11 og til lækkunar á handbæru fé.
Byggðaráð felur upplýsingafulltrúa að ganga frá samningsdrögum við Ferðafélag Svarfdæla í samvinnu við sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og umhverfisstjóra. Um er að ræða samráðsverkefni innan Dalvíkurbyggðar á milli umhverfis- og tæknisviðs og fjármála- og stjórnsýslusviðs þar sem verkefni snertir bæði umhverfismál og ferðamál. Samningsdrögin færu síðan til umfjöllunar og afgreiðslu umhverfisráðs og til kynningar í atvinnumála- og kynningaráði.
3.5 Frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs; Viðauki v/ millifærslu frá Vatns- og fráveitu.
Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra veitu- og hafnasviðs, dagsett þann 9. júní 2015, er varðar beiðni um viðauka vegna millufærslu frá vatnsveitu og fráveitu inn á Hitaveitu Dalvíkur.

Óskað er eftir að gerð verði eftirfarandi breyting á fjárhagsáætlun 2015:

Vatnsveita,
43- 21- 4975
upphæð var
kr.12.788.000,-
verður
kr.5.363.000,-.
Hitaveita,
47 -31- 0565
upphæð var
kr.-11.780.000,-
verður
kr.0,-.
Fráveita,
73- 10- 4975
upphæð var
kr. 4.218.000,-
verður
kr.2.863.000,-.

Fram kemur að við gerð næstu fjárhagsáætlunar verði búið að ganga frá því hvernig skipting verður á milli fyrirtækjanna þar sem um sameiginlega þjónustu verður að ræða.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka og vísar til breytinga á fjárhagsáætlun 2015.
3.6 Frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs; Ósk um viðauka vegna verkamanns í þjá mánuði með umhverfisstjóra.
Undir þessum lið kom Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs,á fundinn kl. 11:34.

Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 1. júní 2015, þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætun vegna verkamanns hjá umhverfisstjóra.

Óskað er eftir viðauka að upphæð kr. 894.659 á deild 11-00 þar sem verkefni umhverfisstjóra við viðhald og umhirðu opinna svæða og almenningsgarða er töluvert meira en gert var ráð fyrir, grisun á þeim skógarreitum sem er um í umsjá sveitarfélagsins og svo hefur bætts við viðhald girðinga.

Fram kemur að ein af aðalástæðum að sótt er um þennan viðauka er að þeir fjármunir sem gert er ráð fyrir í viðhaldsvinnu girðinga duga tæplega þar sem töluverðir fjármunir hafa farið í sérfræði- og lögfræðiáliti vegna fjallgirðinga á Árskógsströnd.

Til umræðu ofangreint.

Börkur Þór vék af fundi kl. 11:50.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun 2015, vísað á deild 11-00 og til lækkunar á handbæru fé.
3.8 Frá Umhverfisstofnun; Verndar- og stjórnaráætlun Friðlands Svarfdæla - fundarboð.
Tekið fyrir erindi frá Umhverfisstofnun, bréf dagsett þann 3. maí 2015, þar sem umhverfisstofnun og umsjónarnefnd Friðlands Svardæla boðar landeigendur til fundar um gerð verndar- og stjórnunaráætlunar fyrir friðlandið fimmtudaginn 11. júní 2015. Fundurinn fer fram í félagsheimilinu Rimum í Svarfaðardal kl. 16.00. Á fundinum munu fulltrúar Umhverfisstofnunar kynna markmið með gerð verndar- og stjórnunaráætlunar, fara yfir ávinning þess fyrir friðlandið og þá er það nýta. Reynt verður að svara spurningum eins og kostur er auk þess sem öllum ábendinum varðandi gerð áætlunarinnar er fagnað. Mælt er með að landeigendur tilnefni á fundinum sinn fulltrúa í vinnuhópinn um gerð verndar- og stjórnunaráætlunar. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að sækja fundinn fyrir hönd Dalvíkurbyggðar.
3.9 Frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands; Úthlutun úr styrktarsjóði 2015.
Tekið fyrir bréf frá styrktarsjóði Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 4. júní 2015, þar sem fram kemur að á fundi stjórnar EBÍ þann 29. maí s.l. voru samþykktar styrkveitingar til 16 aðila, samtals að upphæð 5,0 m.kr.
Fram kemur að því miður reyndist ekki unnt að þessu sinni að veita styrk til ritunar Sjávarútvegssögu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
3.10 Frá EBÍ; Tilkynning um aðalfund fulltrúaráðs EBÍ - 23. sept. n.k.
Tekið fyrir rafpóstur frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands, dagsett þann 9. júní 2015, þar sem fram kemur að stjórn EBÍ hefur ákveðið að aðalfundur fulltrúaráðs EBÍ verður haldinn miðvikudaginn 23. september 2015 á Grand Hótel Reykjavík. Kjörnum fulltrúum sveitarfélagsins hefur verið sent fundarboð. Lagt fram til kynningar.
3.11 Vátryggingar sveitarfélagsins
Frestað.
3.12 Lögmannsþjónusta sveitarfélagsins.
Frestað.
3.13 Frá Lundi í Svíþjóð; Vinabæjarmót 2016
Á 732. fundi byggðaráðs þann 22. apríl 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá vinabænum Lundi í Svíþjóð, rafpóstur dagsettur þann 15. apríl 2015, þar sem 2 fulltrúum er boðið til undirbúningsfundar í 3. -4. september 2015 vegna vinabæjamóts árið 2016.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla og taka saman upplýsinga um kostnað í tengslum við ofangreint."

Sveitarstjóri gerði grein fyrir þeim upplýsingum sem hann hefur aflað. Lundur greiðir fyrir gistingu og mat. Kostnaður sveitarfélagsins væri þá ferðakostnaður fram og til baka.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að sveitarstjóri sæki fundinn, vísað á lið 21-51-4210.
3.14 Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn um umsókn um leyfi; Dalvik Hostel
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 28. maí 2015, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kristínar A. Símonardóttur, kt. 190964-2729, fyrir hönd K.A.S. ehf. kt. 471186-1129 vegna endurnýjunar á rekstrarleyfi til sölu gistingar að Hafnarbraut 4, 620. Dalvík. Um er að ræða umsókn í flokki II og heiti gististaðar er Dalvik Hostel, Hafnarbraut 4. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
3.15 Frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra; Umsögn um umsókn.Dalvik Hostel - smáhýsi
Tekið fyrir erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, bréf dagsett þann 28. maí 2015, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Kristínar A. Símonardóttur, kt. 190964-2729, fyrir hönd K.A.S. ehf. kt. 471186-1129, er varðar endurnýjun á rekstarleyfi til sölu gistingar að Vegamótum í þremur smáhýsum og einu sumarhúsi. Um er að ræða flokk II og heiti gististaðar er Dalvík Hostel- smáhýsi. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við umsóknina.
3.16 Frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa; Ósk um heimild til sölu á bifreið Vinnuskóla
Tekið fyrir erindi frá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dagsett þann 28. maí 2015, þar sem óskað eftir leyfi og umboði til að selja Toyota Hilux bifreið vinnuskólans með fastanúmerinu KR-946. Bifreiðin hefur verið tekin úr notkun og númer lögð inn. Bifreiðin er árgerð 1989 og stóðst ekki skoðun á síðasta ári. Íþrótta - og æskulýðsfulltrúi hefur fengið fyrirspurnir um hvort hægt sé að kaupa bílinn og ef heimild fæst verður bíllinn auglýstur á heimasíðu Dalvíkurbyggðar þar sem óskað verður eftir tilboðum. Byggðaráð samþykkkir samhljóða með 3 atkvæðum að veita íþrótta- og æskulýðsfulltrúa ofangreint leyfi og umboð skv. beiðni.
3.17 Frá Varasjóði húsnæðismála; Lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði
Á 736. fundi byggðaráðs þann 28. maí 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá Varasjóði húsnæðismála, dagsett þann 21. maí 2015, þar sem upplýst er um lok verkefnis um framlög til sveitarfélaga vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði þar sem sjóðurinn hefur ekki fjármuni til afgreiðslu umsókna um framlög. Í ljósi fjárhagslegrar stöðu Varasjóðs húsnæðismála ákvað ráðgjafarnefnd sjóðsins á fundi þann 20. apríl 2015 að hætta móttöku og afgreiðslu umsókna frá sveitarfélögum vegna sölu félagslegra eignar- og leiguíbúða á almennum markaði frá og með 20. apríl 2015. Fram kemur að frá stofnum Varasjóðs húsnæðismála hafa sjóðnum verið markaðir tekjustofnar samkvæmt samkomulagi ríkis og sveitarfélaga. Í september 2011 var gert samkomulag um verkefnaflutning milli ríkis og sveitarfélaga sem kvað á um að sveitarfélög fjármögnuðu að öllu leyti verkefni Varasjóðsins. Þetta samkomulag var í gildi fyrir árin 2012-2013 en rann úr gildi 31. desember 2014 og hefur ekki verið endurnýjað.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum að óska eftir upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hvað á að gera til að tryggja þetta verkefni áfram."

Í svari framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs, dagsett þann 2. júní 2015, kemur fram meðal annars fram að að áliti sambandsins er brýnna verkefni við núverandi aðstæður að leysa vanda tónlistarskóla ( þ.e. að í yfirstandandi viðræðum hafa fulltrúar sambandsins lagt til breytingu sem felur í sér að stað þess að sveitarfélög greiði 30 m.kr. framlag ríkisins til Varasjóðs húsnæðismála verði sömu fjárhæð ráðstafað til að leysa bráðavanda tónlistarskóla) heldur en að viðhalda greiðslum til Varasjóðs húsnæðismála. Það álit byggist annars vegar á því að verulegur árangur hefur náðst á undanförnum árum í að aðstoða sveitarfélögin við sölu félagslegra íbúða með þátttöku varasjóðsins í að greiða mismun á áhvílandi skuldum og markaðsverði íbúða. Hins vegar horfir sambandið til þess að nú standa fyrir dyrum miklar breytingar á löggjöf um húsnæðismál og er á þessu stigi óljóst um hvort varasjóðurinn hafi eitthvert framtíðarhlutverk. Fram kemur að þess skal getið að þetta mál er ekki frágengið en stjórn sambandsins hefur reglulega verið gerð grein fyrir stöðu og þróun málsins og hafa fulltrúar sambandsins í þessum viðræðum fengið fullan stuðning stjórnarinnar í málinu.
Með vísan til framangreinds eru miklar líkur á að Varasjóður húsnæðismála hafi ekki til ráðstöfunar sérstak fjármagn í ár eða næstu ár til að greiða mismun á áhvílandi skuldum og markaðsverði íbúða eins og verið hefur undanfarin ár.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu til skoðunar hjá vinnuhópi Dalvíkurbyggðar um Félagslegar íbúðir.
3.19 Frá stjórnsýslunefnd; vinnuhópur vegna fasteigna Eignasjóðs
Frestað.
3.20 Frá sveitarstjóra; Tillaga um viðbótarfulltrúa inn í byggingarnefnd Krílakots.
Á 729. fundi byggðaráðs þann 26. mars 2015 var eftirfarandi bókað:
"Tekið fyrir erindi frá sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs, bréf dagsett þann 23. mars 2015, þar sem fram kemur ósk um stofnun stýrihóps / rýnihóps vegna viðbyggingar við Krílakot en samkvæmt samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar skal byggðaráð taka ákvörðun um skipun og samsetningu vinnuhópa. Jafnframt þarf að liggja fyrir hvort vinnuhópar séu launaðir. Sviðsstjóri telur mikilvægt að slíkur hópur sé skipaður hið fyrsta þar sem fyrir liggur að taka þurfi ákvarðandir um hin ýmsu atriði sem snúa að frágangi viðbyggingarinnar áður en til útboðs kemur.
Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að eftirtaldir skipi stýrihópinn: Börkur Þór Ottósson, sviðsstjóri umhverfis- og tæknisviðs. Haukur A. Gunnarsson, formaður umhverfisráðs, Drífa Þórarinsdóttir, leikskólastjóri, Bjarni Th. Bjarnason, sveitarstjóri. Byggðarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að formaður umhverfisráðs fá greitt fyrir fundi en aðrir í hópnum eru starfsmenn sveitarfélagsins. Kappkosta skal að halda fundi á dagvinnutíma."

Sveitarstjóri leggur til að Guðmundur St. Jónsson taki sæti í byggingarnefnd Krílakots.
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda tillögu.
3.21 Fjárhagsáætlun 2015; heildarviðauki I
Sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs kynnti drög að heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2015 með þeim viðaukum sem samþykktir hafa verið það sem af er ársins fyrir utan þá viðauka sem byggðaráð hefur fjallað um og samþykkt á þessum fundi.

Niðurstaða Aðalsjóðs var áður áætluð jákvæð um kr. 41.732.000 en verður neikvæð um kr. 62.979.000. Megin breytingin er framlag til félagslegra íbúða hækkar um kr. 29.079.000 vegna sölu á 2 íbúðum og niðurgreiðslu á 3 lánum. Einnig breytast fjármagnsliður um kr. 25.823.000 vegna lækkunar á verðbólguspá úr 3,4% í 1,9% skv. greiningardeild Íslandsbanka.
Niðurstaða A-hluta var áður jákvæð um kr. 47.113.000 en verður neikvæð um kr. 9.461.000.
Niðurstaða samstæðu aftur á móti verður jákvæðari um kr. 3.834.000, þ.e. hækkar úr kr. 69.056.000 í kr. 72.890.000.
Áætluð lántaka lækkar úr 100 m.kr. í 75 m.kr.
Fjárfestingar hækka úr kr. 183.920.000 í kr. 197.990.000.



Taka þarf einnig afstöðu til:
a)Hækkun á framlagi til Eyþings þar sem ekki lágu fyrir upplýsingar við gerð fjárhagsáætlunar 2015-2018 að á aðalfundi í október 2014 var samþykkt að hækka framlag sveitarfélaga úr 3,0 m.kr. í 9,0 m.kr. Það þýðir að framlag Dalvíkurbyggðar hækkar úr kr. 190.305 í kr. 570.915, deild 21-80.
b) Lækka viðauka til Félagslegra íbúða um kr. 100.000 þar sem búið var að selja eina íbúð sem var á listanum, sjá mál 201504109.
c) Uppgreiðsla á láni vegna Klapparstígs 3 vegna sölu á íbúðinni; salan fór fram árið 2014 en uppgreiðslan á láninu var árið 2015 og fer á það fjárhagsár.
d) Sala á Ásholti 2b og Klapparstíg 7 en gengið frá frá kaupsamningi vegna þessara eigna á árinu 2015.
e) Ákvörðun um breytingu á verðbólgu í fjárhagsáætlunarlíkani úr 3,4% í 1,9% skv. greiningardeild Íslandsbanka en skv. yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans frá 10. júní s.l. má gera ráð fyrir versnandi verðbólguhorfum.
f) Taka út styrk til Bergs vegna ljóskastara að upphæð kr. 315.000, sbr. mál 201408100, en fyrir liggur að Eignasjóður greiddi þennan búnað árið 2014, og að þessi styrkur verði þá nýttur að hluta til að greiða styrk til niðurgreiðslu á fasteignaskatti til félagasamtaka skv. reglum og umsóknum þar um.

Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2015 til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn eins og hann liggur fyrir með þeim breytingum sem urðu á fundinum með nýjum viðaukum.
Byggðaráð samþykkir að verðbólguspá verði óbreytt eða 3,4% og að tekið verði tillit til þeirra liða sem fram koma hér að ofan a) - f).
3.23 Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; 828. fundur stjórnar.
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 828 frá 29. maí 2015. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
4.
Félagsmálaráð - 189, frá 09.06.2015.
Málsnúmer 1506001F
4.1 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201504062 Bókað í trúnaðarmálabók
4.2 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 201506016 Bókað í trúnaðarmálabók
4.3 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201503194 Bókað í trúnaðarmálabók
4.4 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201506045 Bókað í trúnaðarmálabók
4.5 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201506042 Bókað í trúnaðarmálabók
4.6 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 201504172 Bókað í trúnaðarmálabók
4.7 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál 201506040 Bókað í trúnaðarmálabók
4.8 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 20150639 Bókað í trúnaðarmálabók
4.9 Endurnýjun á dagmóðurleyfi
Hafdís Sverrisdóttir óskar eftir að fá endurnýjun á dagforeldraleyfi sínu. Félagsmálaráð samþykkir dagforeldraleyfið til eins árs.
4.10 Trúnaðarmál
Trúnaðarmál - 201506049 Bókað í trúnaðarmálabók
4.11 Beiðni um viðauka 2015
Félagsmálastjóri lagði fram bréf er sent var til byggðarráðs vegna beiðni um viðauka. Erindið var samþykkt í byggðarráði dags: 21.05.2015 fundur 735. Bókun byggðarráðs var eftirfarandi: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreindar beiðnir um viðauka við fjárhagsáætlun 2015 og að þessari hækkun sé mætt með lækkun á handbæru fé.
Lagt fram til kynningar
4.12 Frávikagreining fjárhagsáætlunar 2015
Félagsmálastjóri kynnti fyrir nefndarmönnum frávikagreiningu vegna fjárhagsáætlunar félagsmálasvið fyrir fyrstu 3 mánuði ársins. Lagt fram til kynningar
4.13 Tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019
Félagsmálastjóri kynnti fyrir nefndarmönnum tímaramma vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2016 Lagt fram til kynningar
4.14 Námskeið í þjónandi leiðsögn (Gental teaching)
Félagsmálastjóri greindi frá námskeiði í þjónandi leiðsögn sem hún og Tóta eru að sækja. Námskeiðið tekur í heild eitt ár og voru þær á tveggja daga fyrirlestri núna í maí með fyrirlesaranum Michael Vincent ásamt 50 öðrum þátttakendum víða um land. Frá og með septembermánuði munu verða mánaðarleg námskeið og vinna. Frestað til næsta fundar
4.15 Meistararitgerð
Félagsmálastjóri lagði fram erindi sem barst með rafpósti dags. frá Vöku Hafþórsdóttur þar sem hún er að bjóða meistararitgerð sína í lögfræði við Háskóla Íslands til sölu. Ritgerðin ber heitið "í upphafi skyldi endinn skoða. Heimildir og skyldur barnaverndar til afskipta af ófæddum börnum á grundvelli barnaverndarlaga nr. 80/2002". Markmið ritgerðarinnar er að rannsaka heimildir og skyldur barnaverndarnefnda til afskipta af ófæddum börnum. Í ritgerðinni er rannsakað hvað barnaverndarnefndir geta gert þegar þunguð kona stofnar heilsu og lífi ófædds barns síns í hættu og hversu langt barnaverndarnefndir geta gengið í úrræðum sínum án þess að brjóta gegn friðhelgi einkalífs hinnar þunguðu konu.
Verð ritgerðarinnar er 17.000 kr. fyrir rafrænt eintak en 22.000 kr. fyrir prentað eintak.
Félagsmálaráð hafnar erindinu.
4.16 Garðsláttur 2015
Félagsmálastjóri kynnti fyrir nefndarmönnum hvernig niðurgreiðslum á garðslætti verður háttað fyrir sumarið. Félagsmálastjóri fór yfir fyrirkomulag á niðurgreiðslu á garðslætti fyrir árið 2015.
Lagt fram til kynningar
4.17 Hagstofuskýrsla fyrir árið 2014
Félagsmálastjóri lagði fram skýrslu um þjónustu sveitarfélags við fólk með fötlun árið 2014 frá Hagstofu Íslands. Félagsmálastjóri lagði fram Hagstofuskýrslu í málefnum fatlaðra fyrir árið 2014 er varðar þjónustu sem fatlaðir einstaklingar eru að njóta í Dalvíkurbyggð.
4.18 Fundargerðir þjónustuhóps
Félagsmálastjóri lagði fram fundargerð Róta bs. frá því í maí mánuði. Lagt fram til kynningar. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
5.
Fræðsluráð - 193, frá 03.06.2015.
Málsnúmer 1505008F
5.1 Skólastefna Dalvíkurbyggðar
Með fundarboði fylgdu uppfærðar innleiðingaráætlanir Dalvíkurskóla, Árskógarskóla, Kríla- og Kátakots og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar í tengslum við innleiðingu nýrrar skólastefnu sveitarfélagsins. Þessar uppfærðu áætlanir eru unnar út frá punktum sem vinnuhópur um nýju skólastefnuna skilaði frá sér.
Rætt var um ýmsa þætti sem beint eða óbeint tengjast stefnunni eins og leiktæki á lóð Dalvíkurskóla og LAP verkefnið sem er þróunarverkefni varðandi fjölmenningarlegt skólastarf og Krílakot og Dalvíkurskóli eru í, íbúa- og nemendaþróun í sveitarfélaginu og fleira.

Fræðsluráð samþykkir innleiðingaráætlanirnar og stefnir á að athuga gang innleiðingarinnar í nóvember/desember nk. Skólastjóri Dalvíkurskóla óskaði eftir að leggja fram nýtt skjal á næsta fundi þar sem hann sagði að nýlegar ábendingar hefðu borist frá starfsmönnum skólans, sem rétt er að skoða nánar. Var það samþykkt. Skólastjóri Káta-og Krílakots mun fara yfir áætlunina á næstu dögum með starfsmönnum og uppfæra áætlun ef þörf er á.
5.2 Ytra mat á skólum 2015
Með fundarboði fylgdu drög að skýrslu um ytra mat 2014-2015 sem fræðsluskrifstofan hefur tekið saman vegna Káta- og Krílakots, Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar.

Nú í júní munu bætast vissir þættir við skýrsluna og verður hún því lögð aftur fram á næsta fundi ráðsins.

5.3 Sjálfsmatsskýrslur og sjálfsmatsáætlanir skóla 2015
Með fundarboði fylgdu sjálfsmatsskýrslur skólanna.

Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti sjálfsmatsskýrslu skólans fyrir skólaárið 2014-2015.

Drífa Þórarinsdóttir skólastjóri Káta- og Krílakots kynnti sjálfsmatsskýrslu skólans fyrir skólaárið 2014-2015.

Magnús G. Ólafsson skólastjóri Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar kynnti sjálfsmatsskýrslu skólans fyrir skólaárið 2014-2015.

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson skólastjóri Árskógarskóla kynnti sjálfsmatsskýrslu skólans fyrir skólaárið 2014-2015.


Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir skýrslunar.
5.4 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016
Rætt var um starfs- og fjárhagsáætlun 2016 sem og þriggja ára áætlun og hvaða sérstöku verkefni til stendur að fara í á næsta ári.

Drífa Þórarinsdóttir, Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson og Magnús G. Ólafsson véku af fundi.
5.5 Námsárangur
Með fundarboði fylgdu fyrstu fimm fundargerðir starfshóps um bættan námsárangur í Dalvíkurskóla. Gísli Bjarnason skólastjóri Dalvíkurskóla kynnti þá vinnu sem þegar hefur átt sér stað í tengslum við verkefnið.

Fræðsluráð þakkar upplýsingarnar og hvetur starfshópinn til dáða í vinnunni.
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 69, frá 02.06.2015.
Málsnúmer 1505014F
6.1 Langtímasamningur við UMSE
Undir þessum lið sátu Þorsteinn Marinósson framkvæmdarstjóri UMSE og Bjarnveig Ingvadóttir, formaður UMSE fundinn.

Með fundarboði fylgdu drög að samningi á milli Dalvíkurbyggðar og UMSE ásamt ábendingum frá stjórn UMSE við drögin. Lagt er til að samningurinn verði til fjögurra ára eins og stefnt er á með íþróttafélögin í Dalvíkurbyggð. Á fundinum voru breytingar gerðar á samningsdrögunum út frá ábendingum frá stjórn UMSE og hugmyndum sem komu fram á fundinum.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samninginn, með breytinum sem gerðar voru á fundinum og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Niðurstaða Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum afgreiðslu íþrótta- og æskulýðsráðs, Þórhalla Karlsdóttir situr hjá.
6.2 Skátatjaldið
Með fundarboði fylgdi rafbréf frá Friðjóni Árna Sigurvinssyni, fyrir hönd björgunarsveitarinnar á Dalvík, þar sem óskað er eftir því að björgunarsveitin fái til umráða stóra tjaldið og bekkina sem var í eigu skátanna. Skátarnir afhentu Dalvíkurbyggð, ásamt öðrum eignum, tjaldið þegar þeir hættu starfsemi á Dalvík.

Íþrótta- og æskulýðsráð hefur verið í samningaviðræðum við UMSE og rætt um umsjón þeirra á tjaldinu en Björgunarsveitin mun geta fengið afnot af tjaldinu vegna starfsemi sinnar a.m.k. einu sinni á ári.
6.3 Akstur barna í félagsmiðstöð er búa utan Dalvíkur
Á 63. og 65. fundi íþrótta- og æksulýðsráðs var erindi um akstur barna til félagsstarfa til umræðu.
í framhaldinu var málinu vísað til meðferðar hjá Stjórnsýslunefnd sveitarfélagsins en hún fundaði 13. maí 2015.
Niðurstaða stjórnsýslunefndar var að leggja til við byggðaráð að hafnað verði því að bjóða upp á akstur, hvort sem það er til reynslu eða framtíðar.
Aðalrökin sem komu fram að með því væri sett fordæmi fyrir því að sveitarfélagið kosti akstur í aðra tómstunda- og íþróttaiðkun ungmenna.
Lagt er til að skoðað verði hvort ekki sé hægt að bæta þessu við hvatagreiðslur í ÆskuRækt þannig að hægt verði að sækja um niðurgreiðslu á móti kostnaði foreldra vegna aksturs í félagsmiðstöð.

Byggðaráð vísaði málinu til úrvinnslu hjá íþrótta- og æskulýðsfulltrúa sem ræddi ýmsar úrfærslur og álitamál við ráðið.

Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.



6.4 Samningar við íþróttafélög 2016-2018
Lögð voru fram drög að samningum við íþróttafélögin. Farið var yfir skiptingu á fjármagni miðað við skiptareglu sem tekur mið af iðkendafjölda og æfingartímabili félaganna.
Samþykkt að notast við skiptaregluna, en gera ráð fyrir sérstökum greiðslum vegna umsjónar og reksturs íþróttasvæða og annarra verkefna sem ekki geta komið til í slíkri reglu.
Jafnframt verður hluti samningsfjárhæðar nokkurskonar pottur, sem skiptist á milli þeirra félaga sem standa við þær kröfur sem samningur setur á félögin.

Samhliða þessu var lagt fram erindi Skíðafélags Dalvíkur um viðhaldsþörf á skíðasvæðinu næstu árin. Í erindinu kemur m.a. fram að afar mikilvægt er að farið verði í að skipta um belti á snjótroðara og legu í kæliviftu strax í sumar, svo hann verði nothæfur í vetur þegar skíðavertíðin hefst. Áætlaður kostnaður við það er kr. 2.012.300.

Í samningi á milli Dalvíkurbyggðar og Skíðafélagsins fyrir árin 2013-2015 er gert ráð fyrir kr. 2.000.000 í viðhald á árinu 2015 en sá liður var stjörnumerktur og var sett inn með fyrirvara um aukafjárveitingu en kom ekki til greiðslu.

Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með 4 atkvæðum að óska eftir við byggðaráð að staðið verði við þá viðbótarfjárveitingu í viðhald, sem áætluð var í samningnum, að upphæð kr. 2.000.000. Jafnframt var frekari óskum um viðhald vísað til samningagerðar við félagið. Íris Hauksdóttir greiðir atkvæði gegn beiðninni.

6.5 Heilsueflandi Samfélag - verkáætlun 2014-15
Með fundarboði fylgdi til kynningar fundargerð starfshóps um heilsueflandi samfélag frá 13. maí 2015. Einnig kynnti íþrótta- og æskulýðsfulltrúi nýtt verkefni sem starfshópurinn kom af stað, en það kallast „Sumar heilsuefling í Dalvíkurbyggð“ og gengur út á að bjóða upp á valmöguleika á hreyfingu fjóra virka daga í viku fram að Fiskidegi án gjaldtöku. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir því að fyrsta daginn mættu 30 manns í skokk/göngu- og styrktarhópinn.

Íþrótta- og æskulýðsráð fagnar framtakinu og hvetur hópinn til áframhaldandi góðra verka.
6.6 Starfs- og fjárhagsáætlun fræðslu- og menningarsviðs 2016
Undirbúningur við gerð starfs- og fjárhagsáætlun 2016 er hafinn.

Rætt var um verkefni og áhersluþætti við starfs- og fjárhagsáætlanagerð næsta árs.
6.7 Ársskýrslur félaga 2014
Frestað. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
7.
Landbúnaðarráð - 97, frá 11.06.2015.
Málsnúmer 1504015F
7.1 Ósk um endurskoðun á lausagöngu katta
Með erindi dags. 15. apríl 2015 óskar Friðrik Þorbergsson eftir endurskoðun á samþykkt um kattahald í Dalvíkurbyggð. Landbúnaðarráð þakkar ábendingarnar og felur sviðsstjóra að semja bréf til allar kattaeiganda þar sem áréttaðar eru gildandi reglur. Einnig leggur ráðið til að reglurnar verði kynntar íbúum sveitarfélagsins.
7.2 Fjallgirðingar 2015
Til umræðu lögfræði- og sérfræðiálit vegna fjallgirðinga ofl. Eftir ýtarlegar umræður á fundinum leggur landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar til við sveitarstjórn að stuðst verði við tillögu 1 í áliti lögfræðings Pacta frá 24. apríl 2015.
7.3 Göngur 2015
Til umræðu séfræðiálit vegna óskar um breytingar á gangnadögum haustið 2015. Á 268. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað.
11.3 201503198 - Göngur 2015
Til máls tók:
Bjarni Th. Bjarnason sem leggur fram eftirfarandi tillögu:
"Lagt er til að þessum lið sé vísað til baka til landbúnaðarráðs og leitað verði leiða til að ná meiri sátt um þetta mál."
Kristján E. Hjartarson.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu Bjarna.

Vegna beiðni frá Zophoníasi Jónmundssyni um að fá að framkvæma fyrstu göngur 29. og 30. ágúst 2015, samþykkir landbúnaðarráð Dalvíkurbyggðar þá beiðni með þeim skilyrðum að Zophonías sjái til þess að minnst þrjú dagsverk verði lögð til á Ytra-Holtsdal samhliða fyrstu göngum á Syðra-Holtsdal þann 11. september 2015. Tekið skal fram að seinni göngur eru á sama tíma á öllum gangnsvæðum helgina 18.-20. september 2015"

Þar sem ráðið telur að með fyrirliggjandi álitsgerð Ólafs Dýrmundssonar frá 23. maí 2015 staðfesti ákvörðun ráðsins frá 96. fundi þann 9. apríl 2015 og stendur hún því óbreytt.
Samþykkt með öllu greiddum atkvæðum.
7.4 Tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019
Til kynningar Ráðið hefur kynnt sér tímaramman.
7.5 Endurskoðun á samningi Umhverfisstofnunar og sveitarfélaga um refaveiðar 2014-2016
Til kynningar Ráðið fagnar hækkun á styrk til refaveiða frá Umhverfisstofnun og felur jafnframt sviðsstjóra að kanna grundvöll samstarfs við nágrannasveitarfélög.
7.6 Leiga á beitar og slægju
Til umræðu leiga á beitarlandi við Árgerði. Ráðið felur sviðsstjóra að ganga frá formlegum samningum samkvæmt umræðum á fundinum. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
8.
Menningarráð - 52, frá 28.05.2015.
Málsnúmer 1505011F
8.1 17. júní 2015
Undir þessum lið sátu Margrét Víkingsdóttir og Sunna Björg Valsdóttir fundinn en þær eru, ásamt Gísla Rúnari, í starfshópi um 17. júní.

Umræða var um hátíðarhöld á 17. júní og drög að dagskrá voru kynnt.

Margréti og Sunnu þökkuð koman á fundinn.
8.2 Ársreikningur 2014
Farið var yfir ársreikning fyrir Menningarfélagið Berg, skýrslu stjórnar og þær breytingar sem hafa orðið á stjórn en Valdemar Viðarsson, formaður menningarráðs er nýr í stjórn Menningarfélagsins Bergs.
8.3 Starfs- og fjárhagsáætlun 2016
Undirbúningur við gerð starfs- og fjárhagsáætlun 2016 er hafinn.

Rætt var um verkefni og áhersluþætti við starfs- og fjárhagsáætlanagerð næsta árs.
Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
9.
Umhverfisráð - 264, frá 05.06.2015.
Málsnúmer 1505005F
9.1 Vetvangsskoðun um sveitarfélagið þar sem skoðuð eru verkefni sumarsins.
Vettvangsskoðun um sveitarfélagið þar sem skoðuð eru verkefni sumarsins.
Farið var yfir þau vekefni sem fyrirhuguð eru í sumar.
Valur Þór Hilmarsson umhverfisstjóri fór með umhverfisráði í skoðunarferð um sveitarfélagið.
Einnig var farið yfir þau verkefni sem fyrirhuguð eru á næsta ári.
9.2 Umsókn um byggingarleyfi fyrir Sognstún 4, Dalvík.
Með innsendu erindi dags. 5. maí óskar Kristján E. Hjartarsson fyrir hönd Mario Roberto Molina eftir byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Sognstún 4 samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðið leyfi og felur sviðsstjóra að grendarkynna framkvæmdina og í framhaldi af því ganga frá leyfinu með fyrirvara um að öll gögn berist. Eiganda er þó bent á að þar sem um tvær íbúðir er að ræða í húsinu þarf að liggja fyrir eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið. Niðurstaða Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu á þessum lið kl. 8:55.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs, Kristján E. Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Kristján kom inn á fundinn að nýju kl.08:56.
9.3 Umsókn um byggingarleyfi fyrir hönd eigenda að Böggvisbraut 21, Dalvík.
Fyrir hönd eigenda að Böggvisbraut 21 óskar Kristján E Hjartarsson eftir byggingarleyfi samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðið leyfi og felur sviðsstjóra að ganga frá leyfinu með fyrirvara um að öll gögn berist. Niðurstaða Til máls tók:
Kristján E. Hjartarson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið varðar og vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu á þessum lið kl. 08:55.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs, Kristján E. Hjartarson tekur ekki þátt í atkvæðagreiðslu vegna vanhæfis.

Kristján kom inn á fundinn að nýju kl. 08:56.
9.4 Umsókn um byggingarleyfi vegna garðhýsis.
Með innsendu erindi dags. 3.júní 2015 óskar Gunnar Gunnarsson eftir byggingarleyfi fyrir garðskála samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðið leyfi og felur sviðsstjóra að grendarkynna framkvæmdina og í framhaldi af því ganga frá leyfinu með fyrirvara um að öll gögn berist. Eiganda er þó bent á að þar sem um tvær íbúðir er að ræða í húsinu þarf að liggja fyrir eignaskiptayfirlýsing fyrir húsið.
9.5 Umsókn um malartöku í landi Ytra-Hvarfs 2015
Með innsendu erindi dags. 2. júní 2015 óskar Herdís Aðalheiður Geirsdóttir eftir leyfi til malartöku í landi Ytra-Hvarfs, Svarfaðardal. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að veita umbeðið leyfi, þar sem veiðitímabilið er hafið ( frá 01.06-20.09) og í umsögn veiðifélagsins kemur fram að ekki sé heimilt að taka efni á veiðitíma. Í samráði við veiðifélagið er þó veitt leyfi til að moka upp efni sem ekki hefur áhrif á rennsli árinnar.
Tekið skal fram að framkvæmdir á svæðinu skulu fara fram í samráði við sviðsstjóra.
9.6 Tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019
Til kynningar Ráðið hefur kynnt sér tímaramma vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019.
9.7 Malbik milli Hafnargötu 2 og 4, Hauganesi.
Á 733. fundi veitu- og hafnarráðs Dalvíkurbyggðar var ósk um malbik milli Hafnargötu 2 og 4 á Hauganesi vísað aftur til umhverfisráðs. Umhverfisráð getur ekki fallist á umbeðna framkvæmt þar sem frestur til innsendra ábendinga er liðinn. Framkvæmdaáætlun fyrir árið 2015 liggur fyrir og ekki er svigrúm innan hennar til þessarar framkvæmdar. Umsækjanda er bent á að senda inn erindi fyrir fjárhagsáætlun 2016.
9.8 Gjaldskrá byggingarfulltrúa.
Til umræðu túlkun gjaldskrár byggingarfulltrúa. Túlkun gjaldskrár samþykkt samkvæmt umræðum á fundinum.
9.9 Styrkbeiðni og beiðni um sýningarhald
Tekinn fyrir rafpóstur frá Leikhópnum Lottu, dagsettur þann 19. maí 2015, þar sem A) óskað er eftir leyfi til að fá að sýna Litlu gulu hænuna á kirkjutúninu þann 8. ágúst kl. 17:00. B) Í öðru lagi er sótt um styrk vegna póstdreifingar og ferðakostnaðar að upphæð kr. 18.000. C) Í þriðja lagi er þess farið á leit að sýningin verði kynnt á vefsíðum sveitarfélagsins og miðlum sem sveitarfélagið sér sér fært að auglýsa hana á. Einnig eru vel þegnar allar ábendingar um bæjarblöð eða vefmiðla sem sérstaklegar eru ætlaðar svæðinu. Umhverfisráð gerir ekki athugasemdir við umbeðna staðsetningu vegna sýningarinnar.
9.10 Umsögn um leyfi v. Ektarétta
Til kynningar Lagt fram til kynningar.
9.11 Umsögn um umsókn.Dalvik Hostel - smáhýsi
Til kynningar Lagt fram til kynningar.
9.12 Umsögn um umsókn um leyfi; Dalvik Hostel
Til kynningar Lagt fram til kynningar.
9.13 Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Til kynningar nýtt deiliskipulag Dalvíkurhafnar Erindinu frestað þar sem ekki liggur fyrir greinagerð með deiliskipulaginu.
9.14 Óheimilar auglýsingar meðfram vegum og annars staðar utan þéttbýlis
Til kynningar Ráðið hefur kynnt sér innsent erindi og felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir.
9.15 Grundargata, 15 á Dalvík vegna sandfoks úr fjörunni.
Til umræðu bréf frá eigendum Grundargötu 15, Dalvík. Ráðið samþykkir þáttöku sveitarfélagsins í framkvæmdinni.
Með fyrirvara um samþykkta kosnaðaráætlun fyrir verkið er sviðsstjóra falið að ganga frá samningi við lóðarhafa.
Niðurstaða Til máls tóku:
Guðmundur St. Jónsson, sem leggur til að sveitarstjórn feli sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs að kostnaðargreina verkefnið og fari til umfjöllunar í byggðaráði þegar kostnaðargreining liggur fyrir.
Bjarni Th. Bjarnason.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.
Kristján E.Hjartarson.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum afgreiðslu umhverfisráðs með ofangreindri breytingatillögu Guðmundar St. Jónssonar.
9.16 Mat á umhverfisáhrifum - C flokkur
Til kynningar Ráðið hefur kynnt sér erindið.
9.17 Deiliskipulag sumarhúsasvæðis í landi Hamars.
Til umræðu nýsamþykkt deiliskipulag í landi Hamars. Ráðið leggur til að lóðir á svæðinu fari í auglýsingu og felur sviðsstjóra verkefnið.
Úthlutun mun í framhaldinu fara fram samkvæmt nýsamþykktum úthlutunarreglum ráðsins.
Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 30, frá 27.05.2015.
Málsnúmer 1505010F
10.1 Malbik milli Hafnargötu 2 og 4, Hauganesi.
Á 733. fundi byggðarráðs þann 30. apríl 2015 var ósk um viðauka vegna malbikunarframkvæmda á Hauganesi vísa til umfjöllunar í umhverfisráði.
Umhverfisráð bendir á að umrætt svæði er skilgreint sem hafnarsvæði í Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2008-2020 og falla því framkvæmdir á þessu svæði undir veitu- og hafnaráð.
Umsókninni er því vísað til veitu- og hafnaráðs.

Á aðal- og deiliskipulagsuppdráttum eru hafnasvæði skilgreind með sérstökum lit og er það gert samkvæmt skipulagsreglugerð í grein 4.8.1 Skilgreining hafnasvæða segir: "Á hafnarsvæðum tengist landnotkun fyrst og fremst hafnsækinni starfsemi, s.s. útgerð, fiskvinnslu og starfsemi tengdri sjóflutningum og skipasmíði eða viðgerðum." Hér er því um að ræða svipaða skilgreiningu eins og almennt er gert á skipulagsuppdráttum en hefur ekki með framkvæmdir á skipulagssvæðinu að gera.
Veitu- og hafnaráð vísa framangreindu erindi aftur til umhverfisráðs til efnislegrar meðferðar.
10.2 Tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar 2016-2019
Meðfylgjandi tímarammi samþykktur í byggðaráði 21. maí sl. vegna vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2016-2019 og var sviðsstjórum falið að kynna hann fyrir fagráðum. Lagður fram til kynningar.
10.3 Lækkun gjalds fyrir móttöku á úrgangi frá skipum samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 1201/2014
Eftirfarandi póstur er áframsendur á allar aðildarhafnir Hafnasambands Íslands að beiðni Umhverfisstofnunar.

Í honum koma fram neðangreindar upplýsingar. Hvenær er réttmætt að lækka gjald fyrir móttöku á úrgangi frá skipum samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 1201/2014 um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum?

Samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 1201/2014 um gjaldtöku í höfnum vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum má lækka gjald samkvæmt 1. gr. reglugerðarinnar ef umhverfisstjórnun, hönnun, búnaður og starfræksla skips er með þeim hætti að skipstjóri geti sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð.
Lagt fram til kynningar.
10.5 Dalvíkurhöfn, dýpkun 2015.
Sviðsstjóri sendi gögn til tveggja aðila til að fá verðhugmyndir í dýpkunarframkvæmir í Dalvíkurhöfn og gerði ráðsmönnum grein fyrir niðurstöðum.
Rétt þykir einnig að það komi fram að skipstjóri ferjunar Sævars, en hún sér um flutinga til Árskógssands og Hríseyjar, vakti athygli á því að hann hefur orðið var við grynningar í innsiglingunni að Árskógssandi.
Sviðsstjóra falið að ræða við Hagtak hf um framkvæmd verksins og tala við Sigurð Áss Grétarsson hjá siglingarsviði Vegagerðarinnar vegna dýpkun hafna almennt í Dalvíkurbyggð.
Sviðsstjóra falið að sækja um til byggðarráðs kr. 5.000.000,- viðauka vegna dýpkunar í Dalvíkurhöfn og breytingu á framkvæmdaáætlun 2015 þar sem frágangur á göngustígum samkvæmt deiliskipulagi við Dalvíkurhöfn að fjárhæð kr. 2.500.000,- verði fært undir liðinn dýpkun Dalvíkurhafnar.
10.6 Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur.
Formaður ráðsins gerði grein fyrir starfi nefndar um samráð/sameiningu hafna í Eyjafirði. Formaður gerði grein fyrir fundinum. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 31, frá 27.05.2015.
Málsnúmer 1505013F
11.1 Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Boðaðir voru á fund ráðsins hagsmunaaðilar við Ránarbraut, Martröð, Hafnarbraut og Gunnarsbraut.
Formaður kynnti fyrir gestum þau drög að deiliskipulagi sem ráðið hefur verið að vinna með. Almennt vöru gestir ánægðir með deiliskipulagsdrögin, þó urðu töluverðar umræður um þann bílastæðisvanda sem er á svæðinu.
Veitu- og hafnaráð vísar drögum að deiliskipulagi Dalvíkurhafnar til umhverfisráðs. Niðurstaða Enginn tók til máls um fundargerðina og ekkert þarfnast afgreiðslu.
12.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 32, frá 10.06.2015.
Málsnúmer 1506002F
12.1 Samgönguáætlun fyrir árin 2014-2018.
Í framhaldi af fundi sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis boðaði til vegna endurskoðunar á samgönguáætlun 2014-2018 var óskað eftir erindi frá Dalvíkurbyggð um áherslur Hafnasjóðs í hafnagerð. Í framhaldi þá sendi sviðsstjóri, að höfðu samráði við formann ráðsins og sveitarstjóra, meðfylgjandi erindi. Veitu- og hafnaráð staðfestir framlagða umsókn til umhverfis- og samgöngunefnar Alþingis. Niðurstaða Til máls tóku:
Kristján E. Hjartarson.
Guðmundur St. Jónsson.
Bjarni Th. Bjarnason.
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.

Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu veitu- og hafnaráðs með 4 atkvæðum, Kristján E. Hjartarson, Guðmundur St. Jónsson og Þórhalla Karlsdóttir sitja hjá.
12.2 Fyrirmynd af umhverfisstefnu fyrir hafnir
Umhverfis- og öryggisnefnd hafnasambandsins hefur útbúið fyrirmynd af umhverfisstefnu fyrir hafnir sem hafnasjóðir geta nýtt sér í sinni vinnu. Vert er að benda á að hafnasjóðir geta hugsanlega haft samstarf um gerð umhverfisstefnu. Ofangreind umhverfisstefna lögð fram til kynningar. Sviðsstjóra falið að bera hana saman við gildandi umhverfisstefnu hafna í Dalvíkurbyggð.
12.3 Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Fyrir fundinum lá fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 22. maí 2015. Fundargerðinn lögð fram til kynningar.

Í 3. tl. fundargerðarinnar kemur eftirfarandi fram:

"Hafnasamband Íslands skorar á ráðherra og umhverfis- og samgöngunefnd að auka fjármagn til framkvæmda í höfnum. Fjölmargar hafnir eru komnar í viðhaldsþörf og mikilvægt er að í samgönguáætlun og fjárlögum næstu ára verði tryggt fjármagn til framkvæmda til að tryggja öryggi sjófarenda. Nauðsynlegt er að það liggi fyrir mat á forgangsröðun verkefna sem verði unnið í samstarfi við hafnirnar. Stjórn Hafnasambands Íslands telur einnig að aukin gjöld á útgerðir í gegnum veiðigjöldin eigi að renna að hluta til, til hafnarsjóðanna svo hægt sé að viðhalda þeim innviðum sem eru mikilvægir svo útgerð geti haldið áfram að blómstra."

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar tekur undir ofangreinda bókun.
12.4 Fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 2015.
Sviðstjóri kynnti fyrir ráðsmönnum stöðu framkvæmda ársins. Kynning á framkvæmdum. Niðurstaða Fleiri tóku ekki til máls um fundargerðina og annað þarfnast ekki afgreiðslu.
13.
Frá Andreu Ragúels Víðisdóttur; Ósk um lausn frá störfum sem varamaður í sveitarstjórn og í fagráðum.
Málsnúmer 201506069
Tekið fyrir erindi frá Andreu Ragúels Víðisdóttur, rafpóstur dagsettur þann 9. júní 2015, þar sem fram kemur að hún óskar lausnar frá störfum frá 1. ágúst 2015 sem varamaður í sveitarstjórn og aðalmaður í íþrótta- og æskulýðsráði vegna búferlaflutninga.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Andreu Ragúels lausn frá störfum samkvæmt ofangreindu og þakkar henni störf í þágu Dalvíkurbyggðar og óskar henni velfarnaðar.
14.
Kosningar í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013, 46. gr. með síðari breytingum:
Málsnúmer 201506088
a) Varamaður í sveitarstjórnTil máls tók:Guðmundur St. Jónsson sem leggur fram eftirfarandi tillögu:Marinó Þorsteinsson, kt. 281058-2749, næsti maður inn á J-lista.Ekki komu fram aðrar tillögur.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að Marinó Þorsteinsson taki sæti Andreu Ragúels sem varamaður í sveitarstjórn. b) Aðalmaður í íþrótta- og æskulýðsráðTil máls tók:Guðmundur St. Jónsson, sem leggur fram eftirfarandi tillögu um aðalmann í íþrótta- og æskulýðsráð í stað Andreu Ragúels:Zbigniew Kolodziejczyk kt. 1410812099Ekki komu fram aðrar tillögur.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að Zbigniew taki sæti Andreu Ragúels sem aðalmaður í íþrótta- og æskulýðsráð.c) Kosning í byggðaráð til eins árs - 3 aðalmenn og 3 til vara.Til máls tók;Bjarni Th. Bjarnason sem leggur til óbreytt byggðaráð.Formaður: Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson (D)Varaformaður: Kristján Guðmundsson (B) Guðmundur St. Jónsson (J) Varamenn: Heiða Hilmarsdóttir (B) Valdemar Viðarsson (D)Valdís Guðbrandsdóttir (J)Ekki komu fram aðrar tillögur.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.Fleiri tóku ekki til máls.
15.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2015; Heildarviðauki I.
Málsnúmer 201506059
Á 737. fundi byggðaráðs þann 11. júní s.l. samþykkti byggðaráð samhljóða með 3 atkvæðum að vísa heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2015 til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn eins og hann liggur fyrir með þeim breytingum sem urðu á fundinum með nýjum viðaukum. Byggðaráð samþykkir að verðbólguspá verði óbreytt eða 3,4% og að tekið verði tillit til þeirra liða sem fram koma hér að ofan a) - f).Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason, sem kynnti helstu forsendur og niðurstöður í heildarviðauka I við fjárhagáætlun 2015.Helstu niðurstöður:Aðalsjóður neikvæður um kr. 46.167.000 en var jákvæður um kr. 9.354.000A- hluti neikvæður um kr. 19.628.000 en var jákvæður um kr. 30.241.000.Samstæða A- og B- hluti niðurstaða jákvæð um kr. 53.270.000 en var áður jákvæð um kr. 69.056.000.Lækkun á lántöku úr 100 m.kr. í 75 m.kr.Fjárfestingar hækka úr kr. 183.920.000 í kr. 202.490.000.Handbært fé frá rekstri áætlað kr. 231.412.000.Fleiri tóku ekki til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu að heildarviðauka I við fjárhagsáætlun 2015 eins og hún liggur fyrir.
17.
Aflið- ályktun frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar.
Málsnúmer 201506093
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi svohljóðandi tillaga frá bæjarstjórn Akureyrarbæjar:"Aflið - samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi hefur starfað á Akureyri frá árinu 2002. Starfsemin hefur ávallt byggt á ósérhlífni hugsjónafólks og er það samdóma álit þeirra sem til þekkja að þar hafi verið unnið ómetanlegt starf í gegnum tíðina. Aflið hefur átt í góðu samstarfi við þá aðila sem koma að þjónustu við þolendur ofbeldis, svo sem Akureyrarbæ, lögregluna á Akureyri, slysa- og bráðamóttöku SAk, geðdeild SAk, Kvennaathvarfið í Reykjavík og Símey. Fyrir marga er það mjög stórt skref að leita sér hjálpar. Það skiptir því máli að aðgengið að þjónustunni sé gott, en Aflið hefur opinn síma allan sólarhringinn, auk þess að taka við beiðnum í tölvupóstum og á samskiptamiðlum. Ráðgjafar eru í viðbragðsstöðu og stökkva til með litlum fyrirvara ef nauðsyn krefur. Mikilvægt er að þolendur geti unnið úr reynslu sinni í heimabyggð óháð efnahag. Fjárframlög af hálfu hins opinbera hafa verið af mjög skornum skammti. Starfsemi Aflsins hefur liðið fyrir fjárskort og allt of mikill tími og orka hefur farið í fjáröflun til að standa undir brýnustu verkefnum. Aflið hefur því reglulega sent út neyðarkall sem félagasamtök, einstaklingar og fyrirtæki víðs vegar á Norðurlandi hafa svarað með fjárframlögum. Þrátt fyrir að framlög til Aflsins hafi aukist lítillega á undanförnum árum er staðan sú að starfsemi samtakanna er í uppnámi. Aflið hefur ekki efni á að ráða starfsmann, þó ekki væri nema í hálft starf. Öll umsýsla og fjáröflun hvílir því á herðum sjálfboðaliða. Aflið gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki á Akureyri og á Norðurlandi öllu, ef ekki víðar. Þótt það sé jákvætt að þjónusta við þolendur sé efld með ráðningu sálfræðings á SAk kemur það ekki í stað þeirrar þjónustu sem Aflið veitir. Rannsóknir hafa sýnt að jafningjastuðningur við úrvinnslu ofbeldisreynslu er afar mikilvægur í bland við faglegan stuðning. Þar gegna félagasamtök mjög mikilvægu hlutverki.Fyrir hönd samfélagsins og þolenda ofbeldis óskum við þess að félagsmálaráðherra tryggi Aflinu nauðsynlegt fjármagn til að standa vörð um sambærilega þjónustu á landsbyggðinni og veitt er á höfuðborgarsvæðinu."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að taka undir ofangreinda ályktun bæjarstjórnar Akureyrarbæjar.

18.
Tillaga um sumarleyfi sveitarstjórnar 2015, skv. 8. gr. III. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar frá 14.02.2013 með síðari breytingum.
Málsnúmer 201506087
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi eftirfarandi tillaga frá forseta sveitarstjórnar, dagsett þann 12. júní 2015:"Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2015.Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 17. júní 2015 til og með 31. ágúst 2015."
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.
19.
Stjórn Dalbæjar, fundargerðir nr. 2, 3, 4, 5, 6, til kynningar.
Málsnúmer 201502082
Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdu fundargerðir stjórnar Dalbæjar, 2. - 6. fundur árs 2015.Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
20.
Sveitarstjórn - 269, til kynningar.
Málsnúmer 1505007F
Lagt fram til kynningar.
21.
Sveitarstjórn - 270, til kynningar.
Málsnúmer 1505006F
Lagt fram til kynningar.