Fara í efni

Sveitarstjórn

268. fundur
21. apríl 2015 kl. 16:15 - 18:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Varamaður
Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 729, frá 26.03.2015.
Málsnúmer 1503016F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:2. liður a).2. liður b).4. liður.8. liður, beiðni um viðauka.9. liður.10. liður.11. liður.12. liður.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 730, frá 30.03.2015.
Málsnúmer 1503018F
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 731, frá 09.04.2015.
Málsnúmer 1504001F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:2. liður, a) gjaldskrár og b) vinnuhópur.3. liður.6.liður.7. liður9. liður.14. liður.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 9, frá 26.03.2015.
Málsnúmer 1503020F
5.
Félagsmálaráð - 186, frá 25.03.2015.
Málsnúmer 1503010F
6.
Félagsmálaráð - 187, frá 14.04.2015.
Málsnúmer 1504003F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:9. liður.8.liður.
7.
Fræðsluráð - 190, frá 18.03.2015.
Málsnúmer 1503001F
8.
Fræðsluráð - 191, frá 08.04.2015.
Málsnúmer 1503019F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:2. liður.
9.
Menningarráð - 49, frá 18.03.2015.
Málsnúmer 1503007F
10.
Menningarráð - 50, frá 19.03.2015.
Málsnúmer 1503008F
11.
Landbúnaðarráð - 96, frá 09.04.2015.
Málsnúmer 1503014F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:2. liður.3.liður.
12.
Umhverfisráð - 262, frá 10.04.2015.
Málsnúmer 1503017F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:6. liður.8. liður.9. liður.10. liður.11. liður.17. liður.18. liður.
13.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 27, frá 25.03.2015.
Málsnúmer 1503011F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn:Liður 13.1.
15.
Málefni Róta bs.; málefni fatlaðra.
Málsnúmer 201410286
Til máls tók:Bjarni Th. Bjarnason sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Samkvæmt 4.gr laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59 frá 1992 þarf hvert þjónustusvæði að ná að lágmarki 8.000 íbúum en hægt er að fá undanþágu frá þessu á grundvelli landfræðilegra aðstæðna. Mikið óhagræði fylgir slíkum vegalengdum. Þjónustusvæði Róta bs. telur ríflega 11.000 íbúa. Sveitarstjórn samþykkir tillögu þess efnis að veita sveitarstjóra heimild til að senda inn beiðni um undanþágu til ráðherra skv. ákvæðum 4.gr. laga nr. 59 frá 1992."Greinargerð með tillögunni:"Málefni Róta bs. hafa verið í brennidepli hjá sveitarstjórnarfólki í Dalvíkurbyggð síðustu misserin vegna slæmrar stöðu sem uppi er í málefnum Róta bs. Undirritaður sem hefur verið í stjórn Róta frá því í september sl. og lýsir yfir miklum áhyggjum vegna rekstrarvanda Róta bs. Hallinn árið 2014 verður líklega á bilinu 60-80 milljónir og stefnir í 100 milljónir í ár og verður velt yfir á sveitarfélögin. Ljóst er að það rekstrarmódel sem Rætur bs. búa við virkar ekki eins og það þarf að gera. Margar ástæður mætti telja til, s.s. miklar vegalengdir á starfssvæði Róta bs., sem Jöfnunarsjóður virðist ekkert tillit taka til, og lítil samlegðaráhrif í þjónustu við fatlaða á milli byggðarlaga. Sú staða sem uppi er í byggðasamlaginu er með öllu óviðunandi fyrir aðildarsveitarfélögin.Samkvæmt 4.gr laga um málefni fatlaðs fólks nr. 59 frá 1992 þarf hvert þjónustusvæði að ná að lágmarki 8.000 íbúum en hægt er að fá undanþágu frá þessu á grundvelli landfræðilegra aðstæðna. Þjónustusvæði Róta bs. telur ríflega 11.000 íbúa. Sveitarstjórnarfólk í Dalvíkurbyggð og Fjallabyggð hefur rætt um það sín á milli hvort nú ætti að láta reyna á slíka beiðni um undanþágu sem nefnd er í 4.gr. ofangreindra laga enda er klárlega um samlegðaráhrif að ræða í málefnum fatlaða á milli sveitarfélaganna. Skrefin sem þarf að stíga eru í fyrsta lagi að sækja um undanþágu og það þá gert í samfloti með Fjallabyggð sem framtíðarsamstarfsaðila um málefni fatlaða. Ef undanþága er veitt þá þarf sveitarstjórn að ákveða um úrsögn úr Rótum bs. og þarf sú úrsögn að gerast með 6 mánaða fyrirvara og miðast við áramót samkvæmt samþykktum Róta bs."Einnig tóku til máls:Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson.Kristján E. Hjartarson.Valdís Guðbrandsdóttir.Þórhalla Karlsdóttir.Fleiri tóku ekki til máls.Sveitarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra og að félagsmálaráð verði upplýst um málið svo fljótt sem verða má, Þórhalla situr hjá.
16.
Sveitarstjórn - 267, frá 17.03.2015.Til kynningar.
Málsnúmer 1503009F
Lagt fram til kynningar.