Fara í efni

Sveitarstjórn

267. fundur
17. mars 2015 kl. 16:15 - 17:39
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 727, frá 26.2.2015
Málsnúmer 1502009F
Til staðfestingar í sveitarstjórn liðir:1.2.1.3.1.9.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 728, frá 12.3.2015.
Málsnúmer 1503006F
Til staðfestingar liðir:2.4.
3.
Atvinnumála- og kynningarráð - 7, frá 4.2.2015
Málsnúmer 1502001F
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 8, frá 11.3.2015
Málsnúmer 1503004F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn liðir:4.54.9
5.
Félagsmálaráð - 185, frá 12.2.2015
Málsnúmer 1502002F
Til staðfestingar í sveitarstjórn liðir:5.4
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 66, frá 3.3.2015
Málsnúmer 1502010F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn liðir:6.8
7.
Landbúnaðarráð - 94, frá 12.2.2015
Málsnúmer 1412010F
8.
Landbúnaðarráð - 95, frá 12.3.2015
Málsnúmer 1503002F
9.
Menningarráð - 48, frá 5.3.2015
Málsnúmer 1501010F
10.
Umhverfisráð - 261, frá 13.3.2015
Málsnúmer 1502004F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn liðir:10.3.10.5.10.6.10.8.10.11
11.
Ungmennaráð - 6, frá 12.3.2015
Málsnúmer 1503005F
12.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 25, frá 25.2.2015
Málsnúmer 1502008F
13.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 26, frá 10.3.2015
Málsnúmer 1503003F
Til afgreiðslu í sveitarstjórn liðir:13.213.7
14.
Frá Flokkun Eyjafjörður ehf.; Samvinna í úrgangsmálum.
Málsnúmer 201503111
Tekið fyrir erindi frá Flokkun Eyjafjörður ehf., rafpóstur dagsettur þann 18. febrúar 2015, þar sem vísað er í meðfylgjandi minnisblað frá fundi 11. febrúar 2015. Minnt er á tilnefningu hvers svæðis, þ.e. austur-, mið- og vestursvæðis i starfshóp sem vinnur áfram að samstarfsmálunum og að móta umræðu við stjórnvöld.
Til máls tók:
Bjarni Th. Bjarnason, sem gerði grein fyrir að Eiríkur Björgvin Eiríksson, bæjarstjóri Akureyrarbæjar, hefur verið tilnefndur í starfshópinn sem fulltrúi Eyjafjarðarsvæðisins.


Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.
15.
Frá Einari Þorsteini Pálssyni; Ósk um lausn frá störfum úr ráðum og nefndum.
Málsnúmer 201503112
Tekið fyrir erindi frá Einari Þorsteini Pálssyni, rafpóstur dagsettur 10. mars 2015, þar sem Einar Þorsteinn óskar lausnar úr barnaverndarnefnd hjá Dalvíkurbyggð þar sem hann er fluttur úr sveitarfélaginu.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Einari Þorsteini lausn frá störfum sem aðalmaður í barnaverndarnefnd og varamaður í félagsmálaráði þar sem hann hefur misst kjörgengi sitt. Sveitarstjórn þakkar Einari Þorsteini fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
16.
Frá Sigurði Viðari Heimissyni; Ósk um lausn frá störfum úr atvinnumála- og kynningarráði.
Málsnúmer 201502114
Tekið fyrir erindi frá Sigurði Viðari Heimissyni, móttekið þann 17. febrúar 2015, þar sem Sigurður Viðar óskar eftir lausn frá trúnaðarstörfum í Atvinnumála- og kynningarráði vegna mikilla anna í starfi.
Enginn tók til máls.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Sigurði Viðari lausn frá störfum og þakkar honum fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
17.
Frá Elmari Sindara Eiríkssyni; Beiðni um lausn frá störfum sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði.
Málsnúmer 201502199
Tekið fyrir erindi frá Elmari Sindra Eiríkssyni, rafpóstur dagsettur þann 23. febrúar 2015, þar sem Elmar Sindri óskar lausnar sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði.
Til máls tók:
Guðmundur St. Jónsson.

Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Elmari Sindra lausn frá störfum og þakkar Elmari Sindra fyrir störf í þágu sveitarfélagsins.
18.
Frá stjórn Menningarfélagsins Bergs ses.; Breyting á stjórn.
Málsnúmer 201503075
Tekið fyrir erindi frá stjórn Menningarfélagsins Bergs ses, dagsett þann 4. mars 2015, þar sem bent er á að samkvæmt skipulagsskrá fyrir Menningarfélagið Berg ses. er kominn tími á að kjósa báða fulltrúa Dalvíkurbyggðar á næsta aðalfundi og þarf því að tilnefna nýja fulltrúa eða þá sömu áfram fyrir aðalfund sem verður haldinn í lok apríl. Dalvíkurbyggð skipar einn fastan fulltrúa í stjórn og anna til vara til tveggja ára.
Til máls tóku:
Bjarni Th. Bjarnason.
Kristján Guðmundsson, sem gerði grein fyrir vanhæfi sínu hvað þennan lið og vék af fundi kl. 17:19.


Kosningu vísað til 19. liðar á dagskrá.

Kristján kom á fundinn að nýju kl. 17:20.
19.
Kosningar í nefndir og ráð skv. Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013, 46. gr. með síðari breytingum.
Málsnúmer 201503116
a) Kosning aðalmanns í barnaverndarnefnd í stað Einars Þorsteins Pálssonar.Til máls tók forseti sveitarstjórnar og kynnti tillögu um Guðmund Pálsson, kt. 270562-2489, sem aðalmann í barnaverndarnefnd f.h. Dalvíkurbyggðar.b) Kosning varamanns í félagsmálaráð í stað Einars Þorsteins Pálssonar.Til máls tók forseti sveitarstjórnar og kynnti tillögu um Jóhannes Tryggva Jónsson, kt. 030962-3899, sem varamaður í félagsmálaráð.c) Kosning aðalmanns í atvinnumála- og kynningarráð í stað Sigurðar Heimis Viðarssonar.Til máls tók Guðmundur St. Jónsson sem kynnti tillögu um Jón Steingrím Sæmundsson, kt. 220482-3329sem aðalmann í atvinnumála- og kynningarráð.d) Kosning varamanns í íþrótta- og æskulýðsráðs í stað Elmars Sindra Eiríkssonar.Til máls tók Guðmundur St. Jónsson, sem kynnti tillögu um Helenu Rögnu Frímannsdóttur, Nesvegi 2, sem varamann í íþrótta- og æskulýðsráð.e) Kosning aðalmanns og varamanns í stjórn Menningarfélagsins Bergs.Til máls forseti sveitarstjórnar sem kynnti tillögu um Valdemar Viðarsson, kt. 011172-4079, sem aðalmann og Margréti Víkingsdóttur, kt. 290178-5259, sem varamann.
a) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Guðmundur Pálsson réttkjörinn.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Jóhannes Tryggvi Jónsson réttkjörinn.
c) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Jón Steingrímur Sæmundsson réttkjörinn.
d) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Helena Ragna Frímannsdóttir réttkjörin.
e) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Valdemar Viðarsson og Margrét Víkingsdóttir réttkjörin.
20.
Sveitarstjórn - 266
Málsnúmer 1502007F
Lagt fram til kynningar.