Sveitarstjórn
265. fundur
20. janúar 2015
kl.
16:15
-
18:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Aðalmaður
Kristján Guðmundsson
Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Varamaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 721, frá 18.12.2014.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 722, frá 08.01.2015.
3.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 723, frá 15.01.2015.
4.
Atvinnumála- og kynningarráð - 6, frá 07.01.2015.
5.
Félagsmálaráð - 184, frá 13.01.2015.
6.
Fræðsluráð - 188, frá 14.01.2015.
7.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 64, frá 08.01.2015.
8.
Umhverfisráð - 259, frá 09.01.2015.
9.
Ungmennaráð - 4, frá 19.12.2014.
10.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 22, frá 14.01.2015.
11.
Samþykkt um afgreiðslu umhverfisráðs. Síðari umræða.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Á 264. fundi sveitarstjórnar var eftirfarandi bókað við fyrri umræðu: "Á 256. fundi umhverfisráðs þann 3. október 2014 var eftirfarandi samþykkt:Drög að samþykkt um afgreiðslu umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar. Umhverfisráð gerir ekki athugasemd við samþykktina. Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga að Samþykkt um afgreiðslu umhverfisráðs í Dalvíkurbyggð til fyrri umræðu.Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að vísa ofangreindi tillögu að Samþykkt um afgreiðslu umhverfisráðs í Dalvíkurbyggð til síðari umræðu í sveitarstjórn. "Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum samþykkt um afgreiðslu umhverfisráðs eins og hún liggur fyrir.
12.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur. Síðari umræða.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Á 264. fundi sveitarstjórnar þann 16. desember 2014 var tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur tekin til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða að vísa henni til síðari umræðu í sveitarstjórn.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur við síðari umræðu eins og hún liggur fyrir.
13.
Sveitarstjórn - 264, frá 16.12.2014, til kynningar.
Lagt fram til kynningar.