Fara í efni

Sveitarstjórn

260. fundur
18. júní 2014 kl. 16:15 - 18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Heiða Hilmarsdóttir Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Aðalmaður
Kristján Guðmundsson Aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson Aðalmaður
Valdemar Þór Viðarsson Aðalmaður
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Dagskrá
1.
Kjör forseta og varaforseta sveitarstjórnar samkvæmt 7. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201406057
a) Guðmundur St. Jónsson bar upp tillögu um Heiðu Hilmarsdóttur, kt. 180859-3499, sem forseta sveitarstjórnar. b) Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu um kjör 1. og 2. varaforseta sveitarstjórnar:1. varaforseti: Valdemar Viðarsson (D)kt. 011172-40792. varaforseti: Valdís Guðbrandsdóttir (J) kt. 270477-4619

a) Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Heiða Hilmarsdóttir réttkjörin forseti sveitarstjórnar.
b) Ekki komu fram aðrar tillögur og eru því Valdemar Viðarsson og Valdís Guðbrandsdóttir rétt kjörin.

2.
Málefna- og samstarfssamningur á milli B-lista Framsóknar og óháðra og D-lista Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar um meirahlutasamstarf.
Málsnúmer 201406063
Forseti las upp eftirfarandi yfirlýsingu:B-listi Framsóknar og óháðra og D-listi Sjálfstæðisfélags Dalvíkurbyggðar og óháðra hafa gert með sér samkomulag um meirihlutasamstarf í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2014-2018.Málefna- og samstarfssamningur hefur verið gerður og tekur hann mið af stefnumálum beggja framboðanna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 31. maí 2014. Meirihlutinn leggur áherslu á ábyrga og nútímalega stjórnunarhætti sem miða að því að laða fram það besta í samfélaginu. Lagt er upp með að allir kjörnir fulltrúar vinni sem ein heild og sjónarmið allra séu virt og skoðuð. Mikilvægt er að áætlanir séu vandaðar og þeim fylgt. Aðhald í rekstri og ábyrgð skal vera í öndvegi en um leið áhersla á hátt þjónustustig og vandaða stjórnsýslu.Jafnræði verður varðandi formennsku og skiptingu í nefndir og ráð á milli B-lista og D-lista. Leitast var við að halda jafnræði í kynjaskiptingu í nefndum og ráðum.Málefna- og samstarfssamningurinn lagður fram á fundinum til kynningar.Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
3.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga; Kosning fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélga 2014-2018.
Málsnúmer 201406035
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett þann 6. júní 2014, þar sem fram kemur að samkvæmt 5. gr. samþykkta Sambands íslenskra sveitarfélaga kjósa sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna fulltrúa á landsþing sambandsins að afloknum almennum sveitarstjórnarkosningum og gildir sú kosning fyrir kjörtímabil sveitarstjórnar.Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar kýs 2 fulltrúa á landsþing sambandsins og jafn marga til vara. Kjörgengir eru nýkjörnir aðalmenn í sveitarstjórn og varamenn þeirra jafnmargir að tölu.Meðfylgjandi er fyrirmynd að kjörbréfi sem þarf að senda til Sambandsins í síðasta lagi 1. ágúst 2014.Samkvæmt 4. lið hér að ofan þá eru eftirtaldir fulltrúar Dalvíkurbyggðar á landsþing sambandsins.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélagaAðalmaður:Gunnþór E. Gunnþórsson (D), kt. 130375-5619Valdís Guðbrandsdóttir (J), kt.270477-4619Varamenn:Heiða Hilmarsdóttir (B), kt.180859-3499Kristján Guðmundsson (B), kt.150290-4069Enginn tók til máls.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ráðning sveitarstjóra, sbr. 47. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201406060
Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu:Sveitarstjórn samþykkir að ráða Bjarna Theódór Bjarnason, kt. 200864-4419, til heimils að Dalbraut 8, 620. Dalvík, sem sveitarstjóra Dalvíkurbyggðar kjörtímabilið 2014-2018. Byggðarráði er falið að ganga frá starfssamningi við sveitarstjóra.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir með 5 atkvæðum ofangreinda tillögu, Guðmundur St. Jónsson og Valdís Guðbrandsdóttir sitja hjá.
5.
Prókúruumboð sveitarstjóra, sbr. 48. gr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201406061
Forseti bar upp eftirfarandi tillögu:Sveitarstjórn samþykkir að Bjarni Theódór Bjarnason, kt. 200864-4419, til heimils að Dalbraut 8, 620 Dalvík, sveitarstjóri, skuli fara með prófkúru fyrir sveitarfélagið Dalvíkurbyggð.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.
6.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 699, frá 22.05.2014.
Málsnúmer 1405010F
7.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 700, frá 05.06.2014.
Málsnúmer 1406001F
8.
Atvinnumálanefnd - 37, frá 28.05.2014.
Málsnúmer 1405012F
9.
Fræðsluráð - 182, frá 11.06.2014.
Málsnúmer 1405008F
10.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 57, frá 10.06.2014.
Málsnúmer 1406003F
11.
Menningarráð - 44, frá 05.06.2014.
Málsnúmer 1405011F
12.
Umhverfisráð - 251, frá 04.06.2014.
Málsnúmer 1405005F
13.
Frá stjórn Dalbæjar; Fundargerðir stjórnar 2014, 3., 4., 5. og 6. fundur.
Málsnúmer 201402060
Lagðar fram til kynningar ofangreindar fundargerðir stjórnar Dalbæjar.

Enginn tók til máls.
14.
Tillaga um frestun sveitarstjórnarfunda samkvæmt 8. gr., 4. mgr. Samþykktar um stjórn Dalvíkurbyggðar nr. 206/2013 með síðari breytingum.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201406062
Forseti lagði fram eftirfarandi tillögu, dagsett þann 13. júní 2014:Með vísan til 8. gr. í Samþykkt um stjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir sveitarstjórn að fresta fundum sínum í júlí og ágúst 2014.Jafnframt er byggðarráði Dalvíkurbyggðar falin fullnaðarafgreiðsla þeirra mála, sem það telur nauðsynlegt að fái afgreiðslu, sbr. 31. gr. V. kafla Samþykkta um stjórn Dalvíkurbyggðar, frá og með 19. júní 2014 til og með 31. ágúst 2014.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.
15.
Sveitarstjórn - 259, frá 20.05.2014, til kynningar.
Málsnúmer 1405007F
Lagt fram til kynningar.