Sveitarstjórn
252. fundur
3. desember 2013
kl.
16:15
-
18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 683, frá 28.11.2013.
2.
Félagsmálaráð - 174, frá 27.11.2013.
3.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2014. Síðari umræða.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Á 251. fundi sveitarstjórn þann 19. nóvember s.l. var síðari umræðu um gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur frestað.Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi tillaga að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur þar sem gert er ráð fyrir að gjaldskráin verði óbreytt á milli áranna 2013 og 2014, í samræmi við samþykkt sveitarstjórnar frá 251. fundi um að endurskoða hækkanir á þjónustugjaldskrám samkvæmt vísitölu.Enginn tók til máls.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum tillögu að gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur eins og hún liggur fyrir.
4.
Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014 - 2017. Síðari umræða.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Á 251. fundi sveitarstjórnar þann 19. nóvember s.l. var síðari umræðu um fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 frestað. Sveitarstjórn samþykkti þá eftirfarandi:Sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar samþykkir að endurskoða áformaðar breytingar á þjónustugjaldskrám sem taka áttu gildi 1. janúar nk. Með þessari ákvörðun vill sveitarstjórn leggja af mörkum til að sporna við verðbólgu og auka kaupmátt komandi kjarasamninga. Sveitarstjórn telur að allir verði að bera sameiginlega ábyrgð og vinna saman að því markmiði.Sveitarstjórn samþykkir því að fresta síðari umræðu um fjárhagsáætlun 2014 og felur byggðarráði og sveitarstjóra að leggja nýja tillögu fyrir sveitarstjórn á fundi hennar þann 3. desember nk.Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi frumvarp að starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 til síðari umræðu.Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta:2014 kr. 68.178.000 jákvæð.2015 kr. 47.549.000 jákvæð.2016 kr. 98.029.000 jákvæð.2017 kr. 89.982.000 jákvæð.Handbært fé frá reksti samstæðu:2014 kr. 267.253.0002015 kr. 257.350.0002016 kr. 317.196.0002017 kr. 312.053.000Fjárfestingar samstæðu:2014 kr. 310.530.0002015 kr. 318.805.0002016 kr. 225.060.0002017 kr. 109.080.000Lántaka samstæðu:2014 kr. 210.000.0002015 kr. 190.000.0002016 kr. 60.000.0002017 kr. 0Afborganir lána samstæðu:2014 kr. 104.652.0002015 kr. 120.503.0002016 kr. 141.310.0002017 kr. 149.012.000Til máls tók:Svanfríður Inga Jónasdóttir, sem gerði grein fyrir helstu forsendum og niðurstöðum.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2014-2017 eins og hún liggur fyrir. Sveitarstjórn færir starfsmönnum, stjórnendum og kjörnum fulltrúum bestu þakkir fyrir gott samstarf og vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2014-2017.
5.
Sveitarstjórn - 251
Lagt fram til kynningar.