Fara í efni

Sveitarstjórn

247. fundur
14. maí 2013 kl. 16:15 - 18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir Aðalmaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir Aðalmaður
Jóhann Ólafsson Aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir Varamaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 661
Málsnúmer 1304006F
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 662
Málsnúmer 1305003F
3.
Félagsmálaráð - 169
Málsnúmer 1305002F
4.
Fræðsluráð - 172
Málsnúmer 1304013F
5.
Fræðsluráð - 173
Málsnúmer 1303008F
6.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 45
Málsnúmer 1303007F
7.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 46
Málsnúmer 1304014F
8.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 47
Málsnúmer 1304012F
9.
Landbúnaðarráð - 80
Málsnúmer 1304010F
10.
Menningarráð - 37
Málsnúmer 1304011F
11.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 2
Málsnúmer 1304009F
12.
Samþykkt um búfjárhald í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201202026
Á 241. fundi bæjarstjórnar þann 20. nóvember 2012 var samþykkt um búfjárhald í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar tekin til síðari umræðu og hún samþykkt samhljóða með 6 atkvæðum.Á 80. fundi landbúnaðarráðs þann 24. apríl 2013 voru teknar fyrir athugasemdir frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu við ofangreinda samþykkt.Landbúnaðarráð leggur til við sveitarstjórn að samþykktin verði samþykkt með áorðnum breytingum og send til ráðuneytisins til staðfestingar.Með fundarboði sveitarstjórnar fylgdi samþykkt um búfjárhald í lögsagnarumdæmi Dalvíkurbyggðar með þeim breytingum sem gerðar voru á fundi landbúnaðarráðs.Til máls tók:Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6 atkvæðum samþykktina eins og hún liggur fyrir með áorðnum breytingum og vísar henni til atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis  til staðfestingar.
13.
Ársreikningur Dalvíkurbyggðar 2012. Síðari umræða.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Málsnúmer 201304017
Á 246. fundi sveitarstjórnar þann 16. apríl 2013 var ársreikningur Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012 tekinn til fyrri umræðu og samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum að vísa ársreikningum til síðari umræðu í sveitarstjórn.Til máls tók:Svanfríður Inga Jónasdóttir.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 6  atkvæðum ársreikning Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2012.
14.
Sveitarstjórn - 246, lagt fram.
Málsnúmer 1304005F