Sveitarstjórn
245. fundur
19. mars 2013
kl.
16:15
-
18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðmundur St. Jónsson
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Aðalmaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Aðalmaður
Jóhann Ólafsson
Aðalmaður
Sveinn Torfason
Aðalmaður
Óskar Óskarsson
Varamaður
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
Ritari
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Atvinnumálanefnd - 33, frá 13.03.2013.
2.
Byggðaráð Dalvíkurbyggðar - 658, frá 28.02.2013.
3.
Félagsmálaráð - 167, frá 26.02.2013.
4.
Fræðsluráð - 171, frá 13.03.2013.
5.
Íþrótta- og æskulýðsráð - 44, frá 05.03.2013.
6.
Umhverfisráð - 236, frá 06.03.2013.
7.
Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar - 1, frá 08.03.2013.
8.
Fundagerðir stjórnar Dalbæjar 2013; 1. 2. og 3. fundur ársins 2013.
Enginn tók til máls. Lagt fram til kynningar.
9.
Kosingar: a) Varamaður í íþrótta- og æskulýðsráð.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram tillögu um að Guðmundur St. Jónsson verði varamaður i íþrótta- og æskulýðsráði í stað Sigurrósar Karlsdóttur.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að veita Sigurrós Karlsdóttir lausn frá störfum sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði. Ekki komu fram aðrar tillögur og er því Guðmundur St. Jónsson réttkjörinn sem varamaður í íþrótta- og æskulýðsráði.
10.
Kosningar til Alþingis þann 27. apríl 2013.Til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Til máls tók forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:a)Ákvörðun sveitarstjórnar um fjölda kjördeilda og kjörstaði vegna kosninga til Alþingis 27. apríl 2013, sbr. 10. gr. III, kafla laga um kosningar til Alþingis nr. 24. frá 16. maí 2000 og sbr. 68. gr. XIII. kafla laga um kosningar til Alþingis með síðari breytingum.Sveitarstjórn samþykkir að ein kjördeild verði í Dalvíkurbyggð og að hún verði í Dalvíkurskóla, líkt og verið hefur undanfarnar kosningar. b)Umboð til byggðarráðs Dalvíkurbyggðar til að staðfesta kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram fara þann 27. apríl 2013 og fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir.Sveitarstjórn samþykkir að veita byggðarráði fullnaðarumboð til að ganga frá kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram fara þann 27. apríl 2013. Jafnframt veitir sveitarstjórn byggðarráði fullnaðarumboð til að úrskurða um athugasemdir sem kunna að berast vegna framlagðrar kjörskrár sbr. ákv. 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu.
11.
Bæjarstjórn - 244, til kynningar.