Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
8. fundur
26. apríl 2018
kl.
11:30
-
12:54
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
framkvæmdastjóri
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda; endurskoðaðar tillögur að íbúðum
Undir þessum lið komu á fund stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs, og Ágúst Hafsteinsson, arkitekt hjá Form ráðgjöf ehf., kl. 11:30.Á 7. fundi stjórnar þann 9. apríl s.l. var m.a. eftirfarandi bókað:"Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður og ábendingar á fundinum. "Með fundarboði fylgdu endurskoðaðar tillögur að íbúðunum.Til umræðu ofangreint.Ágúst vék af fundi kl. 12:42.Eyrún vék af fundi kl. 12:53.
Stjórn leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til kynningarfundar fimmtudaginn 4. maí n.k. kl. 20:00 í Ráðhúsi Dalvíkur, Upsa, með væntanlegum leigjendum, forráðamönnum og aðstandendum þeirra.