Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

7. fundur
9. apríl 2018 kl. 14:00 - 15:43
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Guðrún Pálína Jóhannsdóttir sviðstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Undirbúningur framkvæmda
Málsnúmer 201802004
Undir þessum lið komu á fund stjórnar Ágúst Hafsteinsson frá Form ráðgjöf ehf. og Eyrún Rafnsdóttir, sviðstjóri félagsmálasviðs, kl. 14:00.Á 6. fundi stjórnar þann 28. mars 2018 var m.a. eftirfarandi bókað:"Með fundarboði stjórnar fylgdi drög að hönnunarforsendum við Ágúst Hafsteinsson, Arkitektastofunni Form. Til umræðu ofangreint. Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses felur sviðstjóra umhverfis- og tæknisviðs að hafa samband við Ágúst Hafsteinsson og koma á framfæri þeim ábendingum sem fram komu á fundinum um hönnunarforsendur og drög að teikningum. "Á fundinum kynnti Ágúst uppfærð drög að hönnunarforsendum og að teikningum.Eyrún vék af fundi kl. 14:30Ágúst vék af fundi kl. 15:35.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela Ágústi að vinna áfram að málinu í samræmi við umræður og ábendingar á fundinum.