Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
69. fundur
7. ágúst 2025
kl.
08:30
-
09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
framkvæmdarstjóri
Dagskrá
1.
Ársreikningur 2024; Leiguíbúðir Dalvíkurbyggðar hses.
Farið yfir ársreikning Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses.fyrir árið 2024, semunninn er af KPMG ehf.Tap varð á rekstri félagsins að fjárhæð kr. 5.762.328.- samkvæmtrekstarreikningi
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir ársreikninginn samhljóða með 3 atkvæðum og staðfestir hann með undirritun sinni.
2.
Fjárhagsáætlun 2026- 2029
Lagt fram yfirlit yfir rauntölur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. fyrir árin 2023 og 2024 og fjárhagsáætlun ársins 2026-2028.
Stjórn Leiguíbúðanna leggur til að framlag í hússjóð verði hækkað í kr. 13.700 þar sem rekstur hans er í járnum og framlag í viðhaldssjóð lækkað sem því nemur. Heildarleigutekjur munu því standa í stað, framkvæmdarstjóra falið að útfæra og senda á stjórn í tölvupósti til samþykktar. Samþýkkt samhljóða með 3 atkvæðum.
3.
Ársfundur Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. - 2025
Til umræðu ársfundur félagsins og boðun hans.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að boða til ársfundar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses., þann 4.september nk., kl. 17:00 og verður hann haldinn í Upsa á 3.hæð Ráðhúss Dalvíkur. Boða þarf til ársfundar með tveggja vikna fyrirvara og er framkvæmdarstjóra falið að boða til fundarins.
4.
Hleðsla rafbíla fyrir íbúa að Lokastíg
Stjórn Leiguíbúðanna samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tilboð frá Ingva Óskarssyni ehf., í vinnu við að setja upp hleðslustaur frá Orkusölunni við Lokastíg.
5.
Sláttur og hirðing, Lokastíg - EB ehf.
Á 66.fundi stjórnar Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses. þann 13.desember 2024 var eftirfarandi bókað:Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að samningur verði afgreiddur í tölvupósti þegar svar hefur borist frá EB ehf.Fyrir fundinum liggur samningur við EB ehf. fyrir árin 2025-2027, með möguleika á framlengingu tvisvar sinnum um eitt ár í senn eða til sumarloka 2029.
Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi samning við EB verktaka ehf.
6.
Leiguverð hjá Leiguíbúðum Dalvíkurbyggðar hses.
Á ársfundi Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses, sem haldinn var þann 27.ágúst 2024, kom fram tillaga frá einstaklingi í fulltrúaráði til stjórnar þess efnis að stjórnin myndi skoða aðkomu Dalvíkurbyggðar að leiguverði hjá félaginu og benti á leiguverð á Akureyri og hjá Brynju leigufélagi hjá Reykjavíkurborg.Gögn hafa ekki borist þegar fundarboð er sent út.
Formaður stjórnar og framkvæmdarstjóri fóru yfir minnisblað varðandi umrædda fyrirspurn, minnisblaðið er enn í vinnslu þar sem beðið er svara frá fleiri aðilum. Lagt fram til kynningar.