Fara í efni

Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses

68. fundur
26. maí 2025 kl. 17:00 - 17:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir formaður
Heiða Hilmarsdóttir varaformaður
Börkur Þór Ottósson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Valdís Guðbrandsdóttir Formaður
Dagskrá
1.
Hleðsla rafbíla
Málsnúmer 202209018
Fyrir fundinum liggur beiðni frá íbúa í Lokastíg að setja upp rafhleðslustöð.Lagðar fram áætlaðar kostnaðartölur frá Orkusölunni og Elektró um uppsetningu á tvöföldum hleðslustaur. Íbúar í Lokastíg geta þá keypt rafmagn til hleðslu á rafbíl í gegnum Orkusölulykil eða app.
Stjórn samþykkir með tveim atkvæðum að fá sundurliðaða kostnaðaráætlun fyrir tvöföldum hleðslustaur ásamt kostnaði við uppsetningu.