Stjórn Leiguíbúða Dalvíkurbyggðar hses
66. fundur
13. desember 2024
kl.
10:00
-
10:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Valdís Guðbrandsdóttir
formaður
Heiða Hilmarsdóttir
varaformaður
Börkur Þór Ottósson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Sláttur og hirðing, Lokastíg - EB ehf.
Drög að samningi tekin fyrir.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að samningur verði afgreiddur í tölvupósti þegar svar hefur borist frá EB ehf.
2.
Loftræstikerfi Lokastíg
Tekin fyrir drög að þjónustusamningi við Blikkrás ehf. fyrir loftræstikerfi í Lokastíg.
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi drög að samningi við Blikkrás ehf., og felur framkvæmdarstjóra að undirrita samninginn.
3.
Beiðni um að kanna húsnæði að Lokastíg sökum hávaða
Stjórn samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fá Blikkrás ehf., til þess að kanna málið.
4.
HMS eftirlit og upplýsingaskylda eigenda almennra íbúða skv. lögum.
Sjá tölvupóst frá HMS varðandi upplýsingar sem koma fram í lögum og reglum um ákvörðun leigufjárhæðar. Ræðum undir þessum lið eftirfarandi tillögu sem fram kom á ársfundi okkar:Borghildur Freyja kom með þá tillögu til stjórnar að hún skoði aðkomu sveitarfélagsins að leiguverði og benti á leiguverð á Akureyri og hjá Brynju leigufélagi hjá Reykjavíkurborg.
Stjórn fór yfir tölvupóst frá HMS sem sendi stjórn upplýsingar um það sem fram kemur í lögum og reglugerðum um ákvörðun leigufjárhæðar. Búið er að taka ákvörðun um leigufjárhæð ársins 2025, en stjórn mun halda áfram að fara yfir málið.